Vísir - 04.05.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blaS er ódýrara i áskrift en Vísir.
LitiS hann færa yður fréttir og annað
leetrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðlð
ókeypis til mánaðamóta
Sími 1-16-60.
Fyrir nokkru fundu stúdentar í S.-Afríku upp á því að athuga, hversu margir gætu troðið
sér inn í símaklefa og breiddist vitleysan eins og örskot út um allan lieim. Nú hafa stúlkur í
Kalíforníu athugað, hversu margar komast fyrir í litlum bíl og árangurinn varð — 21.
Gaitskell segir:
Frekari kjarnorkutiiraunir
svlvirðilegur glæpur.
í Kína beindist 1. maí-áróðurinn
gegn Indverjum.
Víða út um heim var fjöl-
Cnenni við hátíðahöld í tilefni
af verkalýðsdeginum og fóru
C'riðsamlega fram.
Verkalýðsdagurinn var liá-
tíðlegur haldinn að vanda 1.
Bnaí í flestum löndum heims,
Siema brezkum, þar sem kröfu-
göngur og fundahöld fóru fram
1 $ gær. — f Moskvu var hersýn-
jmg á Rauðatorginu, en var ó-
venju stutt, — voru hersveiíirn
ar aðeins 12 mínútur að ganga
fram hjá hápallinum, þar sem
Beðstu menn og hershöfðingjar
Btóðu.
32 þús. í kröfu-
göngu í London.
í London var rigning og tóku
mm 12 þúsund manns þátt i
kröfugöngu, sem lauk með fundi
£HydePark. Gaitskell, jafnaðar-
tnannaleiðtoginn var í farar-
■broddi í göngunni og flutti að-
alræðuna í garðinúm.
Kvað hann hverja þá þjóð,
sem byrjaði tilraunir með
kjarnorkuvopn á nýjan leik,
seka um svívirðilegan glæp.
Hann ræddi nokkuð um rann-
fóknir þær og athuganir, sem
fram hafa farið í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Japan á geisla
virkni og sagði, að gera yrði
ráðstafanir til þess að stöðva
þessa eitrun andrúmsloftsins
þegar í stað, og hvatti stórveld-
Aukin viðskipti
Tékka og Kanada.
Fimmtíu manna viðskipta-
inefnd frá Kanada er komin til
Prag.
Flestir í nefndinni eru frá
Vancouver, B.C.- — Mikill á-
liugi er sagður fyrir tékknesk-
feanadiskum viðskiptum.
| in til samkomulags um bann við
öllum tilraunum með kjarn-
orkuvopn.
í Kína
var öllum áróðri beint gegn
Indverjum fyrir íhlutun þeirra
um innanlandsmál Kína, og
hvassorðar aðvaranir fram born-
ar til Indverja — öll frekari í-
hlutun þeirra í Tíbet myndi
verða til að stórspilla sambúð
Kína og Indlands. — í Tíbet
reyndu kínverskir kommúnistar
að stofna til funda til þess að
æsa menn upp gegn Indlandi.
Samtímis er verið að koma þar
upp fangabúðum fyrir? tibet-
anska föðuiiandsvini.
Hæslircttur staðfesti sl. föstu
dag dóm undirréttar í málinu:
Akæruvaldið gegn Aldísi
Bjarnadóttur, þar sem hún cr
dæmd í tíu þúsund króna sekt,
sem renni í byggingasjóð ríkis-
ins, fyrir að hafa leigt íbúðar-
hæð í húsi sínu nr. 10 A við
Vitastíg undir hárgreiðslu-
stofu, og ennfremur greiði hún
4 þús kr. kr. í málskostnað.
Málavextir eru þeir, að 20.
jan. 1958 kærði húsnæðismála-
stjórn til sakadómarans í
Reykjavík yfir því, að hár-
greiðslustofa hefði tekið til
starfa í nefndu húsnæði, en áð-
ur hafði þar verið íbúð, tvö
herbergi og eldhús. Eigandi
hússins er kærði, sem er ekkja.
Hún og maður hennar bjuggu í
húsinu frá árinu 1932, og eftir
að maður hennar dó, bjó hún
Hussein kom-
inn heim.
Husscin Jórdaníukonimgur
er nú kominn hehn til Amman,
að afloknu hnattflugi sínu.
Hann flutti útvarpsræðu um
helgina og kvaðst hafa skýrt
fyrir leiðtogum afstöðu Jórd-
aníu, — þar hefðu rnenn fyrst
gert sér grein fyrir hættunum,
sem af kommúnismanum stafa,
og hafið baráttu gegn honum.
Biskupi veitt
lausn.
Hinn 29. apríl 1959 veitti for-
seti íslands herra Ásmundi
Guðmundssyni lausn frá emb-
ætti biskups íslands frá 1. júlí
1959 að telja.
Sama dag veitti forseti ís-
lands Sigurbirni prófessor Ein-
arssyni biskupsembættið á ís-
landi frá 1. júlí 1959 að telja.
Reykjavík, 2. maí 1959.
(Frétt frá ríkisráðsritara).
áfram í húsinu til 6. janúar
1957. Þá lét hún framkvæma
nokkuð víðtæka viðgerð á hús-
inu, og um mánaðamótin júní
og júlí leigði hún neðri hæðina
undir hárgreiðslustofu, sem
hefir verið rekin þar síðan.
Með þessu hefir ákærða brotið
gegn 1. mgr. 2. gr. laga nr. 10,
1957, en með hliðsjón af því,
að hér er um lítið húsnæði að
ræða, þykir refsing hæfilega
ákveðin 10 þús. krónur, sem
renni í byggingasjóð. Verði
sektin eigi greidd eftir fjórar
vikur, komi 50 daga varðhald
í stað sektarinnar.
----•-----
Sauðfé á Norður-frlandi
f jölgaði árið sem leið miðað
við 1957 — úr 928.550 í
980.010.
Leigði ibúð undir hár-
greiðslustofu.
Fékk 10 þósund króna sekt.
Herler á fundi Eisenhowers —
segir bandamenn einhuga.
Hammarskjöld vill fund æðstu
manna á vegum S.þj.
Herter, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna flaug um helg-
ina til fundar við Eisenhowér
forseta, sem dvelst á búgarði
sínum við Gettysburg, til þess
að gera honum grein fyrir við-
ræðunum í París.
Kvað hann algera einingu
hafa náðzt þar á fundum utan-
ríkisráðherra Vesturveldanna
og Vestur-Þýzkalands varðandi
samkomulagsumleitanir á fyr-
irhuguðum fundi utanríkisráð-
herra fjórveldanna 11. maí n.k.
Tillaga Dags
Hamarskjölds.
Dag Hamarskjöld framkv,-
stj. Sameinuðu þjóðanna var í
Kaupmannahöfn run helgina á
leið til Genfar, og er eftir hon-
um haft, að hann sé þeirrar
skoðunar, að fundi æðstu stjórn
arleiðtoga ætti að halda innan
vébanda Sameinuðu þjóðanna,
því að þá væri sáttmáli þeirra
bakhjarlinn, og mikil trygging
í því.
Viðræðum haldið áfram.
Miklar viðræður munu verða
milli ríkisstjórna og stjórnmála
manna allt þar til fjórvelda-
fundurinn hefst 11. maí.
Debré, forsætisráðherra
Frakklands, og Couve de Mur-
í ville utanríkisráðherra fara til
Bonn t. d. nú í vikunni til við-
ræðna við Adenauer kanslara.
Viðbúnaður
í Genf.
f Genf er mikill viðbúnaður
af lögreglunnar hálfu til vernd-
ar þátttakendum í fundinum og
verður 800 manna lögreglulið
þar starfandi. Einkum óttast
svissneska stjórnin, að ung-
verskir flóttamenn, sem eru
margir í Sviss, kunni að gera
einhverja tilraun til að ná sér
niðri á fulltrúum Sovétríkj-
anna.
Flakið fannst í
4500 m. hæð.
Flokkur Ieitarmanna kom í
fyrradag á slysstaðinn í fjöllum
Tyrklands, þar sem brezka flug
vélin fórst fyrir 11 dögum, á
leið til Woomeratilraunastöðv-
arinnar í Astralíu.
Flokkurinn lenti í hríðar-
veðri á fjallinu, sem er yfir
4500 mearar á hæð. Hann fann
nokkur lík og brak úr flugvél-
inni og leifar af farmsins á víð
og dreif á allstóru svæði. — 12
menn voru í flugvélinni sem
fyrr hefur verið getið.
Annir hjá slökkviliði á
‘ laugardaginn.
Ekki samt um stórelda að ræða
né meiri háttar tjón.
Slökkviliðið var kvatt út
nokkrum sinnum síðastliðinn
laugardag en ekki var þó um
neina stórelda að ræða.
Fyrsta kvaðningin var úr
Hafnarstræti 18 á laugardags-
morguninn kl. 7.20. Eldur hafði
komizt þar milli þilja og hafði
kviknað út frá rafmagni. Eld-
urinn var fljótlega kæfður og
skemmdir urðu litlar.
Rétt um hádegisbilið kom
maður akandi á bifreið að
slökkvistöðinni í Tjarnargöt-
unni og bað um aðstoð við að
slökkva eld, sem kviknað hafði
í aftursæti bifreiðarinnar.
Um klukkan hálfátta á laug-
ardagskvöldið kviknaði eldur í
þaki birgðahúss Landssímans á
Sölvhólsgötu 111 og hafði eld-
urinn komist í þakið vegna gats
á skorsteininum. Þarna var
Nýr landamæra-
árekstur.
Til átaka kom um helgina á
landamærum Sýrlands og Jórd-
aníu.
Nokkrir menn særðust. Hvor
aðili um sig kennir hinum um
upptökin.
hrein mildi að ekki varð stór-
bruni því að húsvörðurinn var
í þann veginn að yfirgefa húsið
þegar hann varð eldsins var.
Hefði maðurinn verið farinn
út er ekkert sennilegra en að
eldurinn hefði náð útbreiðslu
og orðið að stóreldi.
Seinna um kvöldið var svo
slökkviliðið kvatt tvívegis á
vettvang í annað skiplíið að
trillubát við Loftsbryggju og í
hitt skiptið að garðskúr í
Kringlumýri, en í hvorugt skipt
ið um tilfinnanlegt tjón að
ræða.
í gær var rólegt hjá slökkvi-
liðinu og ekki um neina kvaðn-
ingu að ræða.
— . —
Don Carlos á hersýsi
ingy Franco.
Mikil hersýning hefur farið
fram í Madrid.
Tilefnið er, að 20 ár eru lið-
in frá lokum borgarastyrjaldar-
innar. Franco hershöfðingi, ein-
ræðisherra, kannaði liðið, og
með honum Don Carlos, sonar-
sonur Alfons Spánarkonungs
XIII., er síðastur var konungui'
á Spáni, en Franco hefur, sem
kunnugt er, valið Don Carlos
konungsefni.