Vísir - 28.05.1959, Blaðsíða 8

Vísir - 28.05.1959, Blaðsíða 8
Ekkert blaS er ódýrara 1 áskrift en Vísir. LátiS Imm fœra yður fréttir 9g annað Iwtrarefni helm — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. VISIR. Fimmtudaginn 28. maí 1959 Munið, að þeir, sem gerast áskrifendar Vísia eftir 10. hvers mánaðar, fá klaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Rússnesk kona biður hælis fyrir sig og 5 ára gamla dóttur sína. Maður hennar starfaði við sendlróð sovétstjórnarinnar í London. fíartn hoiur nú veriö fiuttur untlir eftiriiti til 3Masiieu. Sögulegir atburðir, sem minna á það, sem hér er að gerast hafa áður gerst í sovézk- um sendiráðum erlendis, er starfsmenn óttuðust að verða sendir heim, t .d. í Ástralíu og Kanada og nú síðast í Burma. Beiðni konunnar um dval- arlevfi og það, sem þegar er kunnugt í máli hennar vekur feikna athygli. Skólagarðarnir fluttir í Aldamótagarðana. Taka til starfa a iiæsfiiiini. Skólagarðar Reykjavíkur! áður til ræktunar fyrir unga taka til starfa innan skamms — fólkið, um 1 hektara lands. >ar á nýjum stað. Þeir verða nú verður börnunum gefinn kost- fluttir af Klambratúni (sem í ur, eins oð áður, á að rækta það seinni tíð kallast Miklatún) og sem þau hafa helzt áhuga á, en í Aldamótagarðana, svæðið milli Hringbrautar og flug- vallarins, og verður þar fram- tíðastaður þeirra. Á þessum nýja stað fá skóla- garðarnir ívið stærra .svæði en *" Rússnesk kona, gift aðstoðar- flotamálasérfræðingi sovézka áendiráðsins í London, Dmitri kapteini, hefur beðið brezk stjórnarvöld um leyfi til að dveljast áfram á Bretlandi á- samt fimm ára dóttur sinni, þótt maður hennar sé farinn til Sovét-Rússlands. Málsatvik þau, sem kunn éru, eru þessi: Síðastliðinn laugardag ætluðu þau hjónin út á landsbyggðána, eða til húss síns í Kent, og ætluðu að vera þar um helgina. Komu þá starfsmenn úr sendiráðinu heim til þeirra, og fór Dmitri kapteinn með þeim, og var gert ráð fyrir, að frúin færi til Kent og biði þar manns síns. Vestur-íslenzk kona tíræð. Þann 8. apríl s.I. átti íslenzk kona í Vesturheimi tíræðisaf- niæli. Konan heitir Þórunn Davíðs- son og er til heimilis að Lundar í Manitobafylki. Hún fæddist heima á Fróni og ólst þar upp en fluttist vestur til Kanada um aldamótin. Hún settist að 1 Lundar og hefur átt þar heima síðan. Frú Þórunn er þrátt fyrir hinn háa aldur hin ernasta og við góða heilsu. Þá gerist það, að Dmitri er kyrrsettur í sendiráðinu, að því er virðist, en vitni bera, að konan hafi sást á götum Lundúnaborgar meS telp- unni, og hafi hún sýnilega verið trufluð eða átt í hug- arstríði miklu. Starfsmenn sendiráðsins komust að því, að konan fór ekki til Kent og hófu leit að henni, en gátu ekki fundið hana. Á sunnudag sneru þeir J sér til lögreglunnar, sem fann^ mæðgurnar (eða þær fóru á} fund hennar og leituðu ásjár I hennar), en lögreglan afhenti ] þær ekki og var tilkynnt um j beiðni konunnar, og að hún j væri til athugunar. Dmitri var áfram kyrrsettur en konan féllst á, að sendiráðsmenn ræddu við Hana, og voru brezk- ir embættismenn viðstaddir. Á mánudag innsigluðu sov- ézkir sendiráðsmenn Lundúna- íbúð Dmitris og konu hans og bjuggu ramlega um, og. í gær fóru sendiráðsmenn með hann út á flugvöllinn í London, þar sem rússnesk farþegaþota beið, og var hann sendur heim. Sendiráðið hefur ekki látið í té neina skýringu á orsökum þess sem hér hefur gerst. Konan mun hafa sést á göt- um Lundúna hálfri klukku- stundu eftir að maður hennar fór með sendiráðsmönnunum. Það er vafasamt, að nokkru sinni hafi verið tekin mynd, sem sýnir eins greinilega, hvað gerist, þegar hús hrynur. Fyrir nokkru var ákveðið að „rífa“ skóla einn í Oakland í Kaliforniu, CoIIege of the Holy Name, og var sprengiefni komið fyrir , kjallaranum. Síðan var straumi hleypt á sprengjurnar og andar- taki síðar tók byggingin að hrynja. Nú á að reisa 28 hæða kyggm&u á grunninum. Saltfiskaflinn altur seldur — og þó meira væri. Frá aðalfundi SÍF. Frá aðalfundi SH: Fiskveri verði mismunandi eftir gæðum. §'ala a sl. ári nam 66.300 lestum lil 12 landa. Aðalfundur Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna var haldinn hér í sl. viku, og sóttu hann fulltrúar 56 frystihúsa. Elías Þorsteinsson, formaður stjórnarinnar, skýrði m. a. frá því, að framleiðslan á sl. ári hefði numið 73 000, og seldar hefðu verið 66.300 lestir til 12 landa. Mest keyptu Sovértíkin, en í öðru sæti voru Bandaríkin. Jón Gunnarsson framkvstj. skýrði frá markaðshorfum og gat þess m. a., að vestan hafs hefðu verið framleidd og seld 3000 tonn af soðnum fiski eða tilbúnum til steikingar, en þetta er gert í verksmiðju, sem er í eigu SH. Er þessi vara seld kröfum hinna ýmsu markaða. víðast í Bandaríkjunum og fer í vöxt. Ennfremur lagði Jón Gunnarsson áherzlu á það, að SH þyrfti að ná söluaðstöðu innan markaðsbandalags Ev- rópu, því að þar mundi verða mikill markaður fyrir íslenzk- an fisk á komandi árum. Fundurinh. samþykkti m. a. ályktim um endurskoðun á lögum um fiskmat ríkisins og nauðsyn þess, að tekin væru upp í það ákvæði um fersk- fiskmat og að fiskurinn verði keyptur á mismunandi verði eftir gæðum, svo og að reglu- gerðir um mat á fiski verði endurskoðaðar og samræmdar Saltfiskfranilciðsla 1958 var tæp 29 þús. tonn af verkuðum fiski, og nam andvirðið rnn 132 millj. kr„ svipað fiskverð og áður. Helztu kaupendur að óverkuðiun fiski voru Portú- gal, Ítalía og Grikkland, en Jamaica, Brazilía, Spánn og Kúba að verkuðum. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar Sölusambands ísl. fiskframleiðenda á aðalfundi síðastliðinn mánudag. Þar skýrði stjórnarform. Richard Thors frá aflabrögðum, sölu og útfl. Saltfiskaflinn frá áramót- um og til 15. júní var mn 19 þús. tonn. Samið hefir verið um sölu á 12 þús. tonnum af ó- verkuðum fiski, sem allt mun afskipað fyrir júnílok. Vegna hagstæðra farmgjalda og samninga við ríkisstjórn yrði verðlag til félagsmanna eitthvað hærra en sl. ár. Fram- leiðslan fullnægði ekki eftir- spurn frá Grikklandi, Ítalíu og Jamaica. Fiskur til þessara landa er seldur í frjálsum gjaldeyri og því óhagstætt fyr- ir okkur að geta ekki sinnt þessum mörkuðum. Urðu umræður miklar og al- mennt álit, að of illa væri búið að saltfiskframleiðslunni sam- anborið við aðrar framleiðslu- greinar sjávaraflans. Var samþykkt tillaga um að kjósa þriggja manna nefnd til að ræða við rikisstjórnina og bankana um að bætt verði að- staða til að stunda áfram verk- un á saltfiski til að fullnægja eftirspurn frá elztu fiskkaup- endum okkar, sem greiða að mestu leyti með hörðum gjald- eyri. Stjórn SÍF var endurkjörin: flest rækta þau grænmeti ýmis- konar. Börnin borga sjálf út- sæðið, sem er um 150 krónur, fá að sjálfsögðu ekki kaup hjá görðunum, en hinsvegar eiga þau alla uppskeruna í haust, hvert úr sínum reit. Mörg hafa dregið grænmetisbjörg til heimilisins með þátttöku simri, auk þess yndis sem þau hafa af starfinu, sum hafa selt upp- skeruna og fengið allt að 900 krónur fyrir hvert. Upp úr helginni verður farið að taka á móti umsóknum frá börnum, sem vilja komast að í skólagörðunum, en það eru börn á aldrinum 10—14 ára. Hingað til hefur verið hægt að taka á móti öllum, sem hafa viljað vera með. Nánar verður auglýst um móttöku umsókna síðar. Hal Linker formaðui Islendingafélags. Hal Linker kvikmyndatöku- maður í Los Angeles hefur ver- ið kjörinn formaður íslendinga félagsins þar þar í borg. Frá þessu skýrir vestur-ís- lenzka blaðið Lögberg, er kom út í s.l. mánuði. Þar segir enn fremur að þau hjónin Halla og Hal Linker hafi komið upp ferðaskrifstofu á góðum stað í Los Angeles enda hafa þau i gegnum eigin ferðalög víðsveg- ar um heim hina ákjósanleg- ustu þekkingu á öllu er lýtur að ferðalögum. Enn er í sama blaði frá því skýrt að þegar hafi 15 manns frá Los Angeles ákveðið að ferð ast til íslands í sumar. Richard Thors forstj., Jón G. Maríasson bankastj., Jóh. Þ. Jósefsson alþm., Valgarð J. Ólafsson frkvstj., Hafsteinn Bergþórsson forstj., Jón Gísla- son útgm. og Tryggvi Ófeigs- son útgm. Ekki eins óhagstæð vöruskipti. Munar nærri 112.4 millj. miðað við s.l. mánaðamót. Útflutningur í apríl nam 80.3 millj. kr. (70.7 í s. m. í fyrra), en imiflutningur 118.2 millj. (147.5). Óhagstæður viðskiptajöfn- uður í apríl nam 37.9 millj. kr., en 76.7 m. kr. í sama mánuði í fyrra. Benda þessar tölur til, að stefnt sé stöðugt í rétta átt með að draga úr óhagstæðum vöru- skiptajöfnuði og sést það þó enn betur, ef teknar eru tillög- urnar fyrir árið það af er. Samkvæmt þeim nam útflutn- ingur frá áramótum til april- loka 327.1 millj. (264.1), en innflutningurinn 403.8 millj. (453.3). Óhagstæður vöruskipta- jöfnuður í apríllok 76 millj. 793 þús., en í fyrra á sama tíma 189 millj.188. Munar hér 112 millj. 395 þús. kr. hvað vöruskiptajöfnuðurinn er hag- stæðari nú en í fyrra um sama leyti.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.