Vísir


Vísir - 02.07.1959, Qupperneq 4

Vísir - 02.07.1959, Qupperneq 4
A VISIR Fimmtudaginn 2. júlí 195í> Moskva, Peking, Astraiía.... Senn verður hægt að Ijúka \'ið mynd eina, sem varla mun eiga sinn líka. í>að er æílunin, að hún verði tekin í ýmsum löndum svo sem í Rússlandi (Moskva), Kína (Peking), Astralíu o. s. frv. í myndinni, sem á að heita ,.On the Beach“, leika Ava Gardner, Gregory Peack, Tony Perkins o. fl. þektkir leikarar, svo sem hinn sextugi Fred Astaire. Miklu verður kostað til eins og sjá má af leikaranöfnunum og því hve víða þarf að fara til þess að taka myndina. Það er Stanley Kramer, sem gerir myndina. Hún er tekin eftir skáldsögu Nevils Shute. Efni myndarinnar er sagan af litlum hópi manna, sem lifir af kjarnorkustyrjöld. Fáheyrð ósvífní. Curd Jiirgen virðist hafa lært sitt af hverju af sumum stjörn- unum, sem hann hefir ýmist verið kvæntur eða á annan hátt komizt í tæri við. Nýlegá fann hann sig knúðan til að gefa blaðmanni einum í London áminningu. Blaðamað- urinn hafði sagt frá því í blaði sínu, að Curd hefði fengið 50 þúsund sterlingspund fyrir )eik sinn í mynd einni. Þetta fannst Curd hreinasta móðgun: Eg fæ aldrei minna en 75 þús. pund, sagði hann og gat ekki nógsamlega undrast ósvífni blaðamannsins. Á fyrsta fjórðungi þessa árs biðu 1488 menn bana í umferðarslysum á vegum Bretlands eða 168 færri en á sama tíma 1958. Af þess- um fjölda urðu 218 fyrir bifhjólum, 44 færri en á ! sama tíma 1958. Þær verða fteir! sköHéttar. Gina Loilobrigida kemur fram krúnurökuð. Það hefir margsinnis verið sagt frá myndinni, sem Gina Lollobrigida á að leika í þar sem hún verður að láta sér lynda að koma kúnurökuð fram fyrir áhorfendur. Þetta er myndin ,,Jovanka“, sem tekin verður af ítölsku fé- Verðlaunuð í 3ja sinn. Franska leikkonan Simone Signoret er ákaflega vinsæl í Englandi. Nýlega var nýjasta kvikmyrrd hennar, „Room at the Top“, frumsýnd í London. Fyrir hana fékk hún ensku Oscarverðlaun- in, sem þar eru afhent af ensku kvikmyndaakademiunni. Si- mone vár reyndar ekki nær- stödd við þetta tækifæri, þar sem hún var á fyrirlestraferða- lagi í ísrael með manni sínum, Yvea Montand. Þetta er í þriðja sinn, sem Simone fær ensk verðlaun og stendur hún þá jafnfætis Marlon Brando, sem annars var methafi í veðlaunamóttökum. 1952 fékk hún verðlaunin „Casque d’Or“ (Fagra Maria) og 1957 fyrir leik sinn í Norn- unum. Dagbók Önnu Frank á kvikmynd. Kvikmyndin um Dagbók Onnu Frank var nýlega frum- sýnd í New York. Þar leikur Millie Perkins Onnu. Hún var alveg óþekkt leikkona, en hún er nú hafin til skýjanna. „Hún er ný Eliza- beth Taylor“, segja sumir. Aðrir segja að hún sé ný Audrey Hepburn. Við sjáum til. // Grand Hotei" kemur á kvik- mynd í annað sinn. Michele Morgan leikur hið gamla hlutverk Gretu Garbo. Fyrir 27 árum kom mikil mynd á markaðinn: Grand Ho- tel, eftir skáldsögunni með sama nafni eftir Vicki Baum. Nú er enn verið að kvik- mynda þessa sögu. Hún á að heita „Fólk í hóteli“. Það var Greta Garbo, sem setti svip á gömlu myndina. En þar léku líka aðrir miklir leik- arar þeirra tíma, svo sem Wallace Beery, sem nú er lát- inn, John Barrymore, sem ækki heldur er lengur í tölíi hinna lifandi, Joan Crawford Q, fl. ^ Snælduhurðin á Grand Hotel snýst án afláts. Menn koma og fara: Þarna kemur hin dáða dansmey Grusinskaja (forðum j Greta Garbo) nú Michéle Mor- gan. Þá hinn fíni, flotti barón, sem reyndar er hótelþjófur j (John Barrymore) nú O. W. Fischer. Loks iðnjöfurinn (Berry) nú Gert Fröbe — og sv.o allt starfsfólkið í hótelinu, ' þai' á meðal rauðhærða, flotta, hættulega stúlkan og einkarit- arinn (Joan Crawford), nú Sonja Ziemann. Og ekki má gleyma Lionel Barrymore, sem lék Kringelein, bókhaldara hót- elslns, sem tilbað þá rauð- lagi í Júgóslavíu nú í sumar. En þær verða fleiri, sem verða krúnurakaðar af þessu tilefni. Fyrir utan Ginu leika þar Shirley Mac Laine og r.ýupp- götvuð stjarna, sem mikils er vænt af, Carla Gravina að nafni. Annars á Gina svo að fara til Bandaríkjanna og leika þar í mynd á móti Frank Sinatra. Það vakti athygli, að hún fór nýlega til Parísar og keypti sér kjóla hjá Dior, en hingað til hefir hún ekki talið sig þufa að beygja sig fyrir tízk- unni þar. Hún hefir jafnvel forsmáð þá tízku. En það var reyndar þegar þeir kröfðust þess, að allar konur tækju þátt í pokahlaupum. Nú eru tízku- kóngar Parísar hinsvegar farn- ir að koma auga á sköpulag konunnar og þá er cðru máli að gegna, segir Gina. Samt ætlar hún ekki að láta þá segja sér neitt um það, hvernig hún eigi að klæðast, bætir hún við. Lífið er unaðslegt. ítalinn Fellini, sem gerði myndirnar La Strada og Ca- biria, er nú að hafjast handa um enn eina myndagerð, en hún er um annað efni og á að heita La Dolce vita, sem leggja mætti út: Lífið er unaðslagt, og gerist í Róm og segir frá hinum björtu hliðum himiar eilífu borgar. Að vísu mun gæta nokkurrar kaldhæðni í lýsingum hans á allir sælunni á þessum slóðum. I myndinni leikur vinsæll ít- alskur leikari, Marcello Mat- roinni. Er hann á ráfi um hin „fínu“ hverfi Rómar á hnot- skóg eftir hneykslum og ævin- týrum. Hann hittir einn og ann- an á þessum ferðum sínum og ekki þá sízt urigar Evudætur og þar sem hann er léttlyndur blossar ástareldurinn fljótt upp, en hefir á litlu að nær- ast þegar til kastanna kemur og deyr jafnóðum út. Ein hinna ungu ástmeyja er leikin af Anitu Ekberg og þar eru líka Anouk Aimée og Yvonne Fourneaux. Meðal kailmann- anna í myndinni fáum við að sjá Lex Barker. ■jc Þegar samþykkt var á fundi Alþjóða verkamálaráðstefn- unnar (ILO) í Genf að meina ungverskum fulltrú- um að sitja ráðstefnuna, gengu fulltrúar Sovétríkj- anna af fundi í mótmæla skyni. hærðu. Hans Rúhmann leikur nú Kringelein. Myndin verður tekin í Ber- lín og verður einhver dýrasta mynd, sem Þjóðverjar hafa tekið. Séra Duval er kunnasti vísnasöngvari -Frakklands. Pantanir urrt hljómleika haja borizt 35 ár fram í tímann. Við áttum bágt með að trúa því þegar við lásum það, svo við lásum það tvisvar og urðum að trúa. Það hljóðari semsé þannig: Kunnasti vísnasöngvari Frakk- lands er prestur, meira að segja kaþólskur prestur. Hanr. söng fyrir þrettán þús. manns á einum og sömu hljómleikun- um í London. Hann syngur þjóðlög og jafnframt sálma, sem eru sambland af amerísk- um negrasálmum og rokkmús- ík. Allar tekjur af hljómleikum þeim, er Aime Duval heldur, en það er nafn hans, renna til kirkjunnar. Daglega berast honum tugir óska um að koma fram hingað og þangað í Ev- rópu. Til að uppfylla allar ósk- irnar, er borizt hafa fram til dagsins í dag, þyrfti hann að syngja óslitið í þrjátíu og -fimm ár í viðbót og þá væru senni- lega komnar óskir sem duga mundu í tvær aldir! Slíkar eru vinsældir þessa íranska prests, sem tekið hefur gítarinn og, visnassönginn í þjónustu kirkj- unnar. Séra Duval hefur aðeins sungið inn á þrjár hljómplötur. Fyrsta platan var gefin út af litlu, svo til óþekktu plötufyrir- tæki, en kom fótunum undir það, því platan hefur selzt í meira en hálfri milljón eintaka. Fróðlegt og skemmtilegt mundi vera, ef Ríkisútvarpið gæti náð í þessar plötur og leyft okkur að heyra i þessum sérstæða Frakka. Hiín skiiaii honum hringnum. Zsa Zsa hætti við að giftast. Og það var eriginn smávegis hringur, 45 karata demanst- ^hringur var það. Sá, sem gaf hann var Hal Haynes og sú, sem átti að bera hann, var Zsa Zsa — Zsa Zsa Gabor. Þau ætluðu að ganga í það heilaga. En svo skeði það: — Ekki af þvi að eg hafi nokkuð á móti Hal, segir Zsa Zsa. Það er bara þetta, að eg álít, að kona eigi að vera ægi- FerÓamannastraumur vestur frá Evrópu Það er ekki aðcins ferða- mannastraumur austur um At- lantsliaf heldur einnig vestur yfir það. | Á síðasta ári komu um 190 þús Evrópumenn til Bandaríkj- anna til að skoða landið eða annarra erindá og eyddu þeir um 86 milljónum dollara þar. Árið 1957 voru evrópskir ferða- menn þar 208 þús. og eyddu þeir heldur meira en árið eftir. Alls komu næstum 500.000 ferðamenn til Bandarikjanna á sl. ári og eýddu um 256 millj. dollara. Singapore. Nýja stjórnin í Singapore hefir bannað alla glymskratta- músik. Er .það tekjulind margra í Singapore sem víðar í stórborg- um, að láta mönnum slika skemmtun í té. Skildingi er stungið í rifu og jazz-músikin glymur, en bannið er til komið henni til útrýmingar. Og nú hafa glymskratta- eigendur gert stjórninni tilboð: Að leika aðeins klassisk lög ef hún létti af banninu. lega ástfangin af manni, ef húni á að giftast honum, og það er eg ekki. Eg býst ekki við að> þetta hefði orðið hamingju- samt hjónaband. Og Zsa Zsa ætti að vita hvað hún syngur, því að hún er bú- in að vera gift nokkrum sinn- um. Fyrst var það tyrkneskur stjórnmálamaður. Það var um það leyti, sem hún varð ung- versk fegurðardottning. Þá var hún 15 ára. Því næst var það Conrad Hilton, þessi, sem á öll hótelin. Sá þriðji var Ge- orge Sanders kvikmyndaleik- ari, Annars er þetta í ættinni. Móðir hennar hefir reynt þrjú hjónabönd svo vitað sé og systur hennar, Magda og Eva, hafa verið giftar nokkrum sinnum hvor, eða önnur fjór- um sinnum og hin þrisvar og ekki er öll nótt úti enn. Kemlngway heflr séð kvtkmyndina 200 sinnum. Ernest Hemingway liefip sjaldan haft ástæðu til að vera sérlega ánægður nieð þær kvik- myndir, sem Hollywood hefir gert eftir bókum lians, og þarf ekki annað en að niinnast myndarinnar „Vopnin kvödd“. En nú segir hinn kunni kvilc- myndamaður Robert Siodmak í grein í tímaritinu „Films and Filming", að kvikmynd sú, er hann hafi, gert eftir sögu Hem- ingways „Morðingjarnir“, hafi vakið hrifningu hins mikla skálds. Hemingway er svo hrif- inn af þessari „Morðingja“« kvikmynd, að hann er búinn afj sjá hana oftar en 200 sinnum. j t

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.