Vísir - 27.07.1959, Síða 6
B
vtstm
Mánudaginn 27. júlí 1959
D A G B L A Ð
Útgefandl: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H J.
YUIr kemur út 300 daga á árl, ýmlst 8 eBa 12 blaBsíBur.
Rltstjórl og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnayskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00,.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Aigreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: (11660 (fimm llnur)
Vísir kostai kr. 25.00 í áskrift á mánuði,
kr. 2.00 eintakið í lausasölu. *
Félagsprentsmiðian h.f.
Hörð sókn gegn kommiínistum
í Norðurbotnum í Svíþjóð.
— Kommúnisminn sýki, sem halda verður
í skefjun og vera á verði gegn.
Prestar og landhelgin.
Aðalfundur Prestafélags ís-
lands ákvað að scnda ensk-
um prestum -opið bréf um
landhelgisdeiluna. Var bréf
þetta síðan sent erkibiskup-
unum af Kantaraborg og
t Jórvík og um 30 biöðum í
Bretlandi. Bréfið undirrit-
; uðu fyrir hönd félagsins séra
Jakob Jónsson, formaður
; þpss, herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup, varaformað-
i ur, og séra Jón Þorvarðar-
son, ritari.
Bréf þetta var lesið við guðs-
þjónustu í Hallgrímskirkju,
og var messunni útvarpað,
en auk þess hefir það verið
birt í dagblöðum bæjarins.
Það fer mæta vel á því, að
Pestafélag íslands skuli hafa
iagt fram þennan skerf til
þess að kynna málstað ís-
iands í þessu lífsnauðsynja-
máli þjóðarinnar, og má
vænta þess, að bréfið hafi
mikil áhrif í þá átt. Hvar-
vetna í kristnum löndum
heims gefa menn gaum að
því, sem prestar og aðrir
kirkjunnar þjónar segja, og
samkvæmt eðli málsins hlýt-
ur bréf um þetta mál frá
slíku félagi, að vekja mikla
athygli.
í bréfi Prestafélagsins segir
meðal annars á þessa leið:
,,A síðustu mánuðum hefir
samband góðvildarinnar
rofnað vegna aðgerða hinnar
brezku ríkisstjórnar, sem að
voru áliti brýtur i landhelg-
isdeilunni hið sanna lögmál
kristilegs samfélags og
kristilegs siðgæðis. Alkunna
er, að England er ekki hið
eina land, sem andmælt hef-
ir 12 mílna fiskveiðatak-
mörkum, én England er eina
landið, sem notar hernaðar-
tæki í þeim tilgangi að knýja
hið íslenzka lýðveldi til að
afnema reglur, sem þjóðin
öll, án tillits til stjórnmála-
skoðana, telur vera í sam-
ræmi við alþjóðleg lög, og
nauðsynlegar til að tryggja
framtíðartilveru þjóðar
vorrar.“
Allt er þetta satt og rétt, sem
hér er sagt í bréfinu, og síð-
an segir þar: „Vér vonum,
að þér, þjónar kristinnar
kirkju, séuð oss sammála um
hina miklu þýðingu þessa
máls. Vér biðjum yður að
kynna yður ágreiningsefnin,
þar eð vér trúum því, að
þegar þér vitið sannleikann,
eins og hann er, munið þér
fúsir til að hafa áhrif á al-
menningsálitið, svo að hin
enska þjóð líði eigi lengur
hinar skaðlegu aðgerðir rík-
isstjórnar yðar, sem nú ríf-
ur niður samfélag tveggja
kristinna þjóða“.
Á þessu stigi málsins er ekki
vitað, hver hafi orðið við-
brögð þeirra blaða í Eng-
landi, sem bréfið fengu. Vísi
er heldur ekki kunnugt um,
hvernig erkibiskuparnir af
Kantaraborg og Jórvík hafa
tekið því. Væri raunar fróð-
legt, ef stjórn Prestafélags
íslands greindi frá því, þeg-
ar fregnir berast.
Gagnlegt framtak.
Enn af fréttariturum New
York Times, Werner Wiskari.1
símar, að í Luleá í Norðurbotn-!
um, Svíþjóð, þar sem komm-
únistar eru öflugastir í landinu,
heyi jafnaðarmenn harða bar-
áttu til að halda þeim I skefj-
um, og með næsta góðum ár-
angri, og sé það mest að þakka
skeleggri forustu Ragnars Lass-
inantti, höfuðleiðtoga jafnaðar-
manna í þessum landshluta. j
Hann er þingmaður Norður-
botna og varalögreglustjóri
^ héraðsins og þeirrar skoðunar, j
^ að kommúnisminn sé sýki, sem
tekizt hafi að halda í skefjum(
í Norðurbotnum, en stöðugt
beri að hafa gát á.
Krókur á móti bragði.
Lassinantti er alltaf fljótur
til og lætur koma krók á móti;
hverju bragði. Nefnir hann sem
dæmi, að kommúnistar hafi
sent héraðsráðinu mótmæli
gegn því að komið verði upp
tilrauna-eldflaugastöð í Norður-
botnum, þar sem slík stöð yrði
undanfari tilrauna með kjarn-
orkuvopn, og af því leiði mikla
geislaverkunarhættu fyrir hér-
aðið. Lassinantti kom með
gagntillögu þess efnis, að leitað
j væri samkomulags við Moskvu,
um að Sovétríkin hættu öllum
jtilraunum með kjarnorkuvopn,
því að geislavirkt ryk hefði stór
aukizt í Norðurbotnum við til-
raunir þeirra.
Hann fylgdi þessari tillögu
eftir með því að birta blaða-
grein, þar sem hann kvað
kommúnista ekki vera á verði,
þegar um sovézkt geislavirkt
ryk væri að ræða, og taldi
mark þeirra vera algerlega
varnarlausa Svíþjóð.
36.000—260.000.
Greinin var birt í Norr-
landska Socialdemokraten, sem
hefur 36,000 áskrifendur og er
útbreiddasta blaðið í Norður-
Svíþjóð (íbúatala Norðurbotna
er 260.000. — Blað kommún-
ista, hefur aðeins 4000 áskrif-
endur. í blaði jafnaðarmanna
er því óhikað haldið fram, að
Moskvuvaldsins og svikarar
gagnvart Svíþjóð.
Sunnar, í Stokkhólmi og víð-
ar, er kommúnistum ekki veitt
mikil athygli, segir Wiskari, en
í Norðurbotnum, þar sem 5000
menn voru atvinnulausir s.l.
vetur, telja jafnaðarmenn nauð
syn að vera vel á verði gagn-
vart kommúnistum, einkum til
að afstýra að þeir. nái aftur tök-
um á félagi málmiðnaðarmanna
en þau gengu þeim úr greipum
fyrir 6 árum. Til marks um hve
vel sókn jafnaðarmanna gengur
er það að í aukakosningu s.l.
ár fengu þeri 53% atkvæða, en
kommúnistar 16, en höfðu
26.7% 1932.
Jafnaðarmenn í Norðurbotn-
um eiga fimm menn í Þjóðþing-
inu, kommúnistar einn, og hin-
ir 3 flokkarnir einn hver.
Jafnaðarmenn eru öruggir í
þeirri trú, að þeir geti haldið
kommúnistum í skefjum og
aukið fylgi sitt, einkanlega ef
vel gengur með umbætur í
timburiðnaðinum og fleiri grein
um, til atvinnuaukningar.
Sigluf jörður.
Haile Selassei.
Stjórn Prestafélags íslands á
skilið þakkir allra lands-
manna fyrir þetta framtak
sitt. Mikið ríður á, að um-
heiminum séu kynntir sem
bezt allir málavextir í land-
helgisdeilunni, — aðeins
með þvi móti vinnum við
lokasigur í þessu lífshags-
munamáli okkar.
Bréf Prestafélagsins er hvort-
tveggja í senn, skynsamlegt
og drengilegt. fslenzkir
prestar geta vænzt þess, að
ekki aðeins anglíkanskir
prestar, heldur og kenni-
menn annarra kirkjudeilda
sýni skilning á þessu þýðing-
armikla máli, ekki sízt vegna
þess, að það er ekki aðeins
stjórnmálalegs eðlis, heldur
hefir það andlega og sið-
ferðilega hlið, sem ekki má
gleymast.
Við pW.rM<-t"-nr vitum mæta
vcJ, að við ramman er reip
að draga í þessu máli. Tog-
araeigendur í Grimsby og
Hull, undir stjórn ofstækis-
mannsins Sir Farndale
Phillips, spyrja ekki um
hvað sé rétt eða rangt í þessu
máli. Þeir beita öllum
klækjum til þess að koma
okkur á kné og þótt undar-
legt megi virðast, liefir þeim
tekizt að beita sjálfri ríkis-
stjórn Bretlands fyrir sig í
þessu máli.
Þess vegna verðum við að ein-
beita öllum kröftum okkar
til að kynna málstað íslands
á erlendum vettvangi, af
fullri festu og drengskap.
Bréf Prestafélags íslands er
mikilvægur þáttur í þeirri
viðleitni okkar, máske mik-
ilvægari en menn grunar í
fljótu bragði. Og dropinn
holar steininn. Við munum
sigra í þessu máli, þótt
þunglega horfi í bili.
kommúnistar séu skósveinar
Framh. af 1. síðu.
fyrirtæki, að þau athugi mögu-
leikana á að koma þessari stíflu
upp. Samningur var gerður um
skipti vatns í Bláu Níl 1945 og
þá rætt um stífluna, sem nefnd
er Tana-stífla, en Egyptar hafa
ekki viljað viðurkenna þá samn
inga og vilja fara sínu fram. Nú
hefur stirfni Nassers leitt til
þess, að Eþíópía ætlar að fara
sínar eigin leiðir, og getur það
komið sér mjög illa fyrir Nass-
er, er af verður.
Fundur í dag
um stáldeiluna.
Sennilegt er, að sáttatilraun
verði gerð í stáliðnaðardeilunni
í Bandaríkjunum eftir helgina.
Joseph Finnegan sáttasemj-
ari hefur boðað fund á mánu-
dag með fulltrúum beggja að-
ila. — Verkfallið hófst sem
kunnugt er 15. þ. m.
Meistaramótið hefst á Mela-
veliinum kl. 8,30 í kvöld.
Milli 6-8 þátttakendur í flestum greinum.
hannssyni. í 400 m grindahlaupi
eru 6 þáttt. Guðjón Guðmunds-
son mun verða meðal þeirra, ef
hann er góður í fæti, en hann
hefur þjáðst af meiðslum und-
anfarið. Þá mun Svavar Mark-
ússpn hlaupa þá vegalengd í
fyrsta skipti. í hástökki eru 6
þáttt., þará meðal Jón Pétursson
og Jón Ólafsson. 8 keppi í lang-
stökki, og stendur keppnin þar
milli Björgvins Hólm, Einars
Frímannssonar og Helga Björns-
sonar. í kúluvarpi keppa Gunn-
ar Huseby, Jón Pétursson og
auk þeirra ýmsir gamalkunnir
kastarar. Síðasta greinin í kvöld
er spjótkast; keppa þar m. a.
Gylfi Gunnarsson og Jóel Sig-
í kvöld kl. 8.30 hefst aðalhluti
Meistaramóts Reykjavíkur í
frjálsum íþróttum. Fer mótið
fram á Melavellinum. Keppend-
ur eru frá 3 Reykjavíkurfélög-
unum, Ármanni, ÍR og KR. Góð
þátttaka er í öllum greinum
nema 5000 m hlaupi, þar eru
þátttakendur aðeins 3.
Keppni hefst í kvöld í 200 m
hlaupi. Þátttakendur eru þar 9.
Mun Hilmar Þorbjörnsson þar
heyja sína fyrstu keppni á vega-
lengdinni í ár. í 800 m hlaupi
eru keppendur 6, þar á meðal
Svavar Markússon og Kristleif-
ur Guðbjörnsson. Þá keppir
Kristleifur einnig í 5000 m
hlaupi, ásamt Kristjáni Jó-
Framh. af 1. síðu:
var inni í danssalnum, fann
óþefinn, hugði það að kviknað
væri í húsinu og að það væri
að brenna. Greip það æði við
þessa tilhugsun og þusti út úr
húsinu um allar þær smugur,
jafnt glugga sem dyr, sem það
fann á húsinu. Var hamagang-
urinn svo mikill, að ýmsir tróð-
ust undir, en fjöldi manns
skrámaðist og aðrir, einkum
kvenfólk, féll í öngvit.
Þeir fáu sem eftir urðu inni
gripu til hvers konar spell-
virkja, þannig að húsið var sem
hreinn vígvöllur til .að sjá
Rúður allar brotnar í mél á
neðri hæðinni, flest eða öll
borð og stólar í danssalnum
brotið og bramlað og annað eft-
ir því. Sögðu menn sem komu
inn í húsið í gær, að þeir hefðu
ekki litið aðra eins eyðileggingu
í einu húsi fyrr eða síðar.
Úti logaði allt í áflogum og
slagsmálum og lögreglan réði
ekki við neitt, enda er hún fá-
liðuð og fangaklefar fáir. Lækn-
ar á staðnum voru önnum kafn-
ir fram eftir allri nóttu að binda
um skrámur og skeinur, en ekki
er vitað að neinn hafi slasast al
varlega.
Að því er staðgengill bæjar-
fógetans á Siglufirði hefur tjáð
blaðinu var almenn ölvun með-
al sjómanna þar á staðnum á
laugardaginn og víða um rysk-
ingar, áflog og slagsmál að
ræða.Spellvirki voru unninn á
stærstu isíldarverksmiðjunni,
S.R. 46, á Siglufirði með því að
kasta planka á síldarfæriband.
Þetta varð til þess að verk-
smiðjan stöðvaðist það sem eft-
ir var nætur og mun hafa vald-
ið tugþúsunda tjóni.
Ölvaðir menn lögðust til
svefns hingað og þangað á göt-
um úti og var lögreglan að hirða
þá upp af götunum fram eftir
allri nóttu og fram á morgun í
gær.
Þá hefur forstjóri áfengisút-
sölunnar á Siglufirði skýrt svo
frá að allmikil áfengissala hafi
verið á Siglufirði bæði á föstu-
dag og fram á hádegis á laugar-
dag, en þó ekki svo að til ein-
dæma mætti teljast. Venjan
mun víst vera sú að útsalan er
lokuð í landlegum, en í þetta
skipti kom aðal-bátaflotinn
ekki inn fyrr en eftir hádegið,
en þá var búið að loka vinbúð-
inni.
„Órjúfanleg og
ævarandi tengsl“
I Puertu Roco voru hátíða-
höld í gær.
Var þar minnzt tengslanna
við Bandaríkin, sem komust á
1952, eða fyrir sjö árum. Kom
mjög fram við hátíðahöldin, að
sambandstengsl Purerto Rico
við Bandaríkin skyldu órjúfan-
leg og ævarandi.
urðsson.
Eins og sjá má af ofanrituðu,
er þátttaka mjög almenn í mót-
inu, og verður um mikla keppni
að ræða í flestum greinum. —
Mótstjóri er Guðmundur Þór-
arinsson.