Vísir - 06.08.1959, Blaðsíða 8
■fckcrt lkU8 n 4dýrara í áikrift en Víalr.
létH lan ySnr fréttir ** uul
IjWtnrefai kda — án fyrirhafnar af
y8u hálfo.
Sími 1-18-1«.
'VÍSIR
Munið, a8 þeir. lem gerast átkrifuiu
Vitia eftir 10. hvers mánaðar, fá hlaHS
ákeypis til mánaðamóta.
Síml 1-16-0«.
Fimmtudaginn 6. ágúst 1959
Þeir sáu aldrei skipið
berum augum
en gátu fylgzt með í ratsjá.
Sjópróf vegna áreksturs Lag-
arfoss við þýzka skipið m.s. Lu-
dolf Goldorff, hafa farið fram
í Reykjavík.
Yíirheyrðir voru skipstjóri
Haraldur Gíslason og 1. stýri-
maður, Hjalti Þorgrímsson. —
Segja þeir svo frá að Lagarfoss
. haS. verið staddur í St. Lawr-
euce-flóa. Svarta þoka var á og
Jhafði verið undanfarna daga,
skyggni um 0,3 sjómílur.
Samkvæmí dagbók í vélar-
aúmí var snúningshraði vélar
•150 sn. á mín., en það mun vera
rvenjuleg full ferð. 1. stýrimað-
23i' var á verði í brú, þegar fyrst
Betra ástand
í Laos.
ffirá Laos berast nú þær fregn
fir, að stjórnarherinn sé búinn
s>S ná yfirhöndinni, og sé nú sem
«Sast að hrekja uppreisnarmcnn1
að norðurlandamærunum. I op- j
mberri tilkynningu þaðan seg-
Sr, að ástandið sé nú mikið að
Jbatna. |
Það mun vera aukinn liðsafli
stjómarhersins sem valdið hef-j
«r þessum umskiptum. Bardag-
smir í Laos undanfarið hafa
vakið allmikla athygli víða um
liejm, og m. a. ræddu þrír af
■utanríkisráðherrunum, sem sátu
Genfarfundinn, málið í gær. —'
Talsverður uggur hefur verið í
mönnum, bæði í London og’
Washington, vegna þessa máls,'
<cg m. a. segir brezka utanríkis- j
ráðuneytið, að starfsmenn
hrezka sendiráðsins í Laos hafi
sjálfir séð vopn, smíðuð í Tékkó
slóvakíu, sem stjórnarherinn
segist hafa tekið af uppreisnar-
mönnum.
Forsætisráðherrann í N-Viet-
Nam hefur látið fara frá sér
©rðsendingu, þar sem hann tel-'
ur að ástandið í Laos sé ógnun
við friðinn í Asíu. I
Ivarð vart við skipið í ratsjá.
Var það þá 9,2 sjómílur undan
og reiknaðist 7 gráður á bak-
j borðshlið Lagarfoss. Tvisvar
' var breytt um stefnu, og um 5
gráður í hvert sinn. Kallað var
1 í skipstjóra til öryggis, og kom
han upp í brú. Þegar um 3 sjó-
'mílur virtust millum skipanna,
fór skipstjóri út á brúarvæng-
1 inn. Skipti það þá engum tog-
| um, að hann sá grænt stjórn-
borðsljós framundan. Var sam-
Jstundis gefin fyrirskipun um
að taka afturábak og leggja
hart í stjórnborða. Kom það þó
ekki að haldi, og rakst Lagar-
foss á stjórnborðshlið skipsins
miðskips.
Neyðarbjöllu skipsins var
hringt, eins og venja er i slíkum
tilfellum, farþegar látnir vita
um hvað skeð hafði, og skips-
höfn skipað að bátum til taks.
Síðan var einn bátur settur á
sjó og voru skemmdir athugað-
r. Kom þá strax í Ijós að
skemmdir voru ekki það alvar-
legar að hætta væri að. Einhver
sjór komst þó í skipið, og er
órannsakað hvort um vöru-
skemmdir sé að ræða vegna
þess.
Um skemmdir á hinu skipinu
er ekki vitað, en þær munu
hafa orðið allmiklu meiri, og
virðist að tvísýnt hafi verið um
tíma hvort það flyti. Talsam-
band var ekkert við þýzka skip
ið, og varð að senda skeyti á
milli. Beið Lagarfoss við skipið
og fylgdi því síðan áleiðis til
hafnar að beiðni þýzka skip-
stjórans, þar til dráttarbátur
kom á vettvang og tók við leið-
sögu. Voru þá liðnar um 6
klukkutímar frá því er árekst-
urinn varð.
Svo svört var þokan, að aldr-
ei sáu skipverjar á Lagarfossi
til hins skipsins, nema á því
augnabliki, er áreksturinn varð.
Skemmdir hafa ekki verið
metnar til fulls enn, en það mun
gert næstu daga.
Talsverð síldveiði út af
Austfjörðum í gær.
Engin veiði við Grímsey.
Minkaplága í
Eyjafirði.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri.
Meiri brögð eru að mink í
Eyjafirði nú en verið hefir áð-
ur og eru margir uggandi út
af þeim vágesti.
Fenginn hefir verið minka-
eyðir úr Mývatnssveit með tvo
góða veiðihunda til að ráðast
gegn þessum óvætti, sem nú
herjar Eyjafjörð. Nýlega tókst
honum að vinna tvo minka við
Hraunsvatn, en verður eftir-
leiðis víðsvegar í Eyjafirði þar
sem minks hefir orðið vart eða
hans er helzt að vænta.
Bílstjóri frá Akureyri, sem
nýlega var á ferð á Flateyjar-
dalsheiði sá mink á leið sinni,
en var byssulaus. Réðist hann
að minknum með grjótkasti og
fékk unnið hann.
Áður hefir verið skýrt frá
því í blöðum, að bóndinn í
Þórsnesi — sem er skammt ut-
an við Krossanes — hafi skotið
þrjá minka út um eldhúsglugg-
ann hjá sér. Og eitt sinn þegar
bóndi var sjálfur ekki heima,
sá kona hans minka fyrir utan
húsið. Ekki hafð hún skotið úr
byssu áður, en greip nú til
vopnsins, miðaði og skaut —
og minkurinn lá dauðUr.
Rafvæðing
Vestfjarða.
Frá fréttarilara Vísis.
ísafirð ií gær.
Viimuflokkur hefir undan-
farið unnið að lagningu raf-
magnslínu frá Flateyri yfir
Klofningsheiði áleiðis til Suð-
ureyrar. Verður verkinu vænt-
janlega lokið í þessari viku, og
Suðureyri fær innan skamms
raforku frá Mjólkurárvirkjun í
Arnarfirði.
Einnig er unnið að lagnirigu
rafmagnslínu frá Önundarfirði
hingað til ísafjarðar og vænt-
anlega verður einnig i haust
lögð rafmagnslína héðan til
Reiðhjallavirkjunar í Bolung-
arvík. Verða þá allar Vest-
|fjarðarafveitur samtengdar.
Arn.
Rússar kaupa í
Astralíu.
Þær fréttir berast frá Sidney
Þórsmörk er nú orðinn einhver vinsælasti áfanga- og dvalar-
staður, sem Reykvíkingar sækja og flykkjast þangað unnvörp-
um um hverja helgi sumarsins í tuga- og hundraðatali. Um
síðustu helgi gisti mörg hundruð manns Mörkina og sennilega
hefur aldrei jafn margt fólk verið þar saman komið í einu.
A vegum Ferðafélags íslands fóru þangað á 3. hundrað manns
um helgina. Á myndinni sést inn eftir Mörkinni til Goðalands.
en Krossá í forgrunni og er bíll að ösla þar yfir hana.
Gífurleg umferð við Akur-
eyri yfir verzlunarm.helgina
A 7. þúsund bílar á 5 dögum.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri.
Um verzlunarmannahelgina
var meiri umferð í grend við
Akureyri en venja er til og á
fimm dögum, fyrir og um helg-
ina, voru taldir á 7. þúsund
bílar, sem voru á ferð innan
við bæinn.
Mjög mikið var af aðkomu-
fólki á Akureyri, eða fór þar
um um helgina, en einnig fóru
Akureyringar sjálfir í þúsunda
tali úr bænum og lögðu leið sína
aðallega í Vaglaskóg og Mý-
vatnssveit, en einnig á aðra
staði og jafnvel austur á land.
í ' Vaglaskógi var meira af
tjöldum heldur en menn höfðu
nokkru sinni séð þar áður um
eina helgi. Tvær skemmtanir
voru haldnar þar og auk þess
var skemmtun í Mývatnssveit
og fjölmenntu Akureyringar á
þær allar.
Kalsaveður var um helgina
og sneri fólk fyrr heim aftur
fyrir bragðið en ella hefði orð-
ið og áætlað var.
Bifreiðaeftirlitsmenn voru á
vegunum til þess að athuga
umferðina og halda uppi lög-
gæzlu, enda var umferðin blátt
áfram gífurleg. Engin meiri
háttar óhöpp komu fyrir og
ekki slys á fólki.
Samkæmt umferðartalningu
skammt innan við Akureyri
höfðu rúmlega 1250 bílar farið
um á dag til jafnaðar um og
íyrir verzluriarhelgina, en það
er óvenju mikil umferð á þeim
slóðum.
Útsvör á ísafirði.
Frá fréttaritara Vísis.
ísafirði.
Hæstu útsvör á fsafirði eru.
þessi:
Hraðfrystihúsið Norðurtangi
127 þús. Kaupfélagið 125.500.
íshúsfélag fsfirðinga 121.600.
Olíusamlag útvegsmanna 103
þús. M. 'Bernharðsson skipa-
smíðastöð 93.600. Fiskimjöl 85
þús. Vélsmiðjan Þór 72.800..
Einstaklingar voru hæstir þeir
Jón Bernharðsson 53.600. H. A..
Svane 52500. M. Bernharðsson
32.900. Ólafur Guðmundsson
30.300. Jóhann Gunnar Ólafs-
son 30 þús. Úlfur Gunnarsson
28.100. Gunnlaugur Jónasson
28 þús. Kjartan Halldórsson
26.700. Hjörtur Bjarnason
25.800. Ragnar Ásgeirsson
25.600.
Frá fréttaritara Vísis.
Raufarhöfn í morgun.
Fáir bátar fengu síld í gær-
Ikveldi. Mest mun veiði hafa
verið út af Austfjörðum. Þar
var samankominn mikill fjöldi
báta er voru að kasta fram í
miyrkur og byrjuðu aftur klukk
an fimm í morgun.
f Þistilfirðinum, klukku-
stundarsiglingu frá Raufarhöfn,
var nokkur veiði í gærkveldi.
í»ar fengu eftirtalin skip afla:
Huginn 250 tunnur, Nonni 200,
Eigrún 250, Valþór 600, Guð-
jpundur á Sveinseyri 150, Faxa-
borg 105 og svo kom Huginn
aftur inn með 200 tunnur.
ÖIl þessi síld fór til söltunar.
Síldin sem veiddist út af Aust
fjörðum er smá og íer því á
ýmsar hafnir í bræðslu. Þar
fékk Ófeigur 3. 550 mál, Sigur-
björg 600, Kópur 350, Álftanes
600, Guðbjörg 450 Heimir, 750,
Blíðfari fékk 300 mál við Bjarn
arey og var það eina skipið sem
fékk síld þar. Engin veiði var
við Grímsey.
Fanney varð vör við ailmikla
sild út af Sléttugrunniriu.
í Ástralíu, að hinn nýi sendi-
herra Rússa hafi kunngert mik-
il vörukaup Rússa þar í landi.
Mun hér aðallega vera um
stál að ræða, en sendiherrann
sagði að á vantaði, að Rússar
hefðu allt það stál er þeir þyrftu
til hinnar auknu vélafram-
leiðslu. Hin vörutegundin sem
aðallega er um að ræða er
hveiti, en Rússar telja að ódýr-
ara sé að flytja hveiti frá
Ástralíu sjóleiðis til hafna í
Síberíu, en það kosti að flytja
það frá Ukrainu til Síberiuhér-
aðanna.
Námskeið fyrir i
Menntamálaráðuneytið hefur I
samþykkt, að íþróttakennaia-
skóli íslands gangist fyrir nám-
skeiði í leikfimi fyrir íþrótta-
kennara dagana 24. ágúst til 4.
septembcr n. k.
Námskeiðið verður haldið í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar,
Reykjavík, og verður sett þar
mánudaginn 24. ágúst kl. 10.
Kennari í leikfimi karla verð
ur Klas Thoresson, sem er aðal-
leikfimikennari sænska íþrótta
íþróttakennara.
I kennaraskólans í Stokkhólmi.
Klas Thoresson er víðkunnur
leikfimikennari, sem er fenginn
til kennslu á námskeið kennara
víða um Evrópu.
Kennarar í leikfimi kvenna
verða Hjördís Þórðardóttir,
Mínerva Jónsdóttir, Sigríður
Valgeirsdóttir og Þórey Guð-
mundsdóttir.
Auk leikfiminnar mun verða
æfðir knattleikir og þjóðdans-
ar.