Vísir - 09.09.1959, Blaðsíða 12

Vísir - 09.09.1959, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir. Látið kann færa yður fréttir og annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími 1-16-60. Munið. að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, £í blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Miðvikudaginn 9. september 1959 500 maiiiis bíða eftir fiugi milli lands og Eyja. Miklar síldarlóðningar við Vest- mannaeyjar. Frá jréttaritara Vísis. — Þ>eim, sem pöntuðu far í Reykja Vestm.eyjum í morgun. jvík í gær, var sagt, að þeir V.b. Bergur er aftur kominn gætu komizt með elleftu vél til á síld við Eyjar. í gœr varð Eyja. — Mjólkurbáturinn hefur hann var við allmiklar síldar- lóðningar við Eiðið og víða ann- ars staðar á grunnslóð við Eyj- ar. Eins og kunnugt er fékk Bergur 3000 tunnur af síld í aringnót við Vestmannaeyjar um það leyti, sem síldveiði var að hefjast fyrir norðan í sumaf. Lítur nú vel út með að áfram- hald verði á síldveiði þar. Nokkrir bátar hafa verið á reknetum, en hafa aflað fremur ! lítið. Síldin hefur fari'ð í fryst- ingu. Nokkrir bátar eru á hum- arveiðum enn, þótt afli sé treg- ur. Erfiðar samgöngur. Það hefur ekki verið flogið til Vestmannaeyja síðan á láug- ardag 29. ágúst eða í 12 dága. Fjöldi manns bíður eftir fari bæði í Reykjavík og í Eyjum. ' Tala farþega, sem bíða í Rvík, mun vera komin nokkuð á þriðja hundrað og hópurinn, .sem bíður hér, er litlu minni. daglegá flutt fjölda manns, en ' farþegarými hans er takmark- að. Gekk vel í gær íslenzku frjálsíþróttamenn- irnir kepptu í gærkvöld á Ullevei leikvanginum í Gauta- borg. Var frammistaða þeirra þar með ágætum. Hilmar Þorbjörnsson vann 100 m. hlaupið á 10.6 sek. og var á undan beztu spretthlaup- urum Svía og Pólverja. Val- björn var nr. 1 í stangarstökki með 4.40 m. Næstir komu Krezinski, Póllandi með 4.30, Beztiar 4.22, Frennemo, Sví- þjóð 4.10 og Ritzmann, Sví- þjóð 4.10. Hörður Haraldsson varð 2 í 400 m. hlaupi á 49.3 sek., en fyrstu varð Erikssen á 49.0 sek., þriðji Cope, Englandi á 49.5 sek., fjórði Roholm 49.9 sek. Þórður B. Sigurðsson varð fimmti í sleggju með 52.85. Hjalteyrarbátar veiða illa. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Hjalteyri liafa tveir þilfarsbát- ar þaðan vérið á þorskveiðum að undanförriu. Hafa þeir látið illa af afla- brögðum og telja veiði mjög trega. Þessa dagana er verið að pakka skreið á Hjaltevri til út- flutnings og nokkur atvinna þar á staðnum í sambandi við það. Gukún og Hagalín glíma Ekki má á milli §já9 hvor liöf[4H‘fiiirin>n er vinsælli. Umsið að erííiasta vegarkafi- aitum í ÓlafsfjarSarmúÍa. Nýi veprinn styttir leiðina milli Ölafs- fjarðar og Akureyrar um 200 km. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í gær. Byrjað hefur verið til septemberloka. En þegar þeim lýkur er erfiðasti hjallinn að unninn og úr því miklu greið- sprengja fyrir vegi í svokallaðri ara um vegarlagningu til Dal- Ófærugjá á Ólafsfjarðarmúla- heiði milli Ólafsfjarðar og Dal- víkur. ° Stöðugt hefur verið unnið að vegarlagningu frá Ólafsfjarðar- kauptúni að Ófærugjá í Ólafs- fjarðarmúla að undanförnu, en það er um 3ja km. vegarlengd. Síðustu 200 metrana hefur þurft að sprengja í gegnum klettabelti, sem eru á leiðinni og torvelda til muna vegar- lagninguna. Er nú komið að Ófærugjá sjálfri og byrjað þar á sprengingum, en þar er veg- arstæðið hvað hrikalegast, enda einn örðugasti kaflinn á leið- inni til Dalvíkur. Allsendis ó- víst er talið að sprengingunum í Ófærugjá verði. lokið í haust jafnvel þótt unnié verði óslitið víkur. Alls er leiðin frá Ólafsfirði til Dalvíkur 18 km. löng. Binda menn norður þar þær vonir við þenna nýja veg að hann verði snjólaus mestan hluta vetrar- ins og að vegarlagningunni verði lokjð á næstu tveim ti! þrem árum. Með hinum nýja vegi styttist leiðin hilli Ólafsfjarðar og Ak- ureyrar um hvorki meira né minna en um 200 kíló- metra. Til þess hafa menn orðið að fara um svokallaða Lágheiði til Skagafjarðar og síðan um Öxnadalsheiði til Ak- ureyrar og er það gífurlegur krókur. Verkstjórinn við vegagerð þessa er Friðgeir Arnason frá Siglufirði. Skrautlýsing á Austurvelli Rafmagnsveita Reykjavíkur hefur látið smíða Ijósalampa, sem settir hafa verið upp í blómareitiha í Austurvelli. Þegar skýggja tekur er kveikt á lömpunum, sem lýsa upp blómin og setja bjartan og fallegan svip á svæðið í rökkrinu. Bæjarbúar virð- ast ánægðir með þessa tilraun og liafa tekið henni vel, enda mun ekki ólíklegt að þessir snotru Jampar verði settir víðar. Rafveitan mun einnig hafa á prjónunum ráðagerðir um að setja upp stærri ljós í garða bæjarins, vegfarcndum til þæginda, og má vonast til að hafist verði um það Iianda í Hljómskálagarð- inum nú í haust. Fyrir því höfum vér opin-] herar heimildir, að heir tveir ritliöfundar, sem glíma um^ hylli lesenda f landinu, séu Guðrún frá Lundi og Guð-1 mundur Hagalín, en Guðmund- ur má nú lierða sig, því að enn hefur Guðrún betur. í tölum lesinna binda eftir höfundana lítur þetta þannig út, að á öllu landinu hefur Guðrún 3817 og Guðmundur 2882, en Nóbelsskáldið verður aðgera sig ánægt með að vera í þriðja sæti með 2542. Reyk- víkingar gera meiri mun á Guðrúnu cg Guðmundi en aðrir landsmenn, því að þar er frúin í efsta sæti með 1367, en Guð- mundur hrapar þar niður í 10. með 564 bindi, en annað sætið skipar Ragnheiður Jónsdóttir. En, sem sagt, þegar kemur út á landsbyggðina, harðnar glíma þeirra Guðrúnar og Guð- mundar að marki, og hefur kvenmaðurinn þó í fullu tréi við garpinn. Guðmundur hefur hærri bindatölu yfir lands- byggðina, en Guðrún er ofar honum á blaði í 5 kaupstöðum. Akureyringar láta sér nægja að hafa Laxness í efsta sæti, en Jenna og HeiHðar hafa alveg náð tangarhaldi á Kópavogs- búum. Heimild að þessari lauslegu frétt er skýrsla bókafulltrúa Fræðslumálaskrifstofunnar, en bókafulltrúinn heitir Guðm. G. Hagalín. Vonandi gluggum vér nánar í skýrsluna við tækifæri. Settdiherra heiðraður. Forseti íslands hefur í dag, að tillögu orðunefndar, sæmt ambassador Danmerkur, Eggert Adam Knuth greifa, stórkrossi hinnar íslenzku fálkaorðu. (Frétt frá orðuritara.) Ranfarhöfn kvaddi Víiii l. meh fánum í gær. Síldveiðunum lokið. Síldveiðunum norðanlands og austan lauk formlega í gær. Aflahæsta skip síldarflotans Víðir 2. með 19.592 mál og tunnur á skýrslu sinni var kvaddur með því að fánar voru dregnír að hún honum til heið- urs er hann lét úr höfn og hélt heimleiðis. Er þar með Íokið bezta síld- veiðisumri síðan 1944. Verk- smiðjan á Raufarhöfn hefur ,tekið á móti 162.500 málum í I bræðslu og hefur hún ekki Jfengið jafn mikla síld til innslu síðan fyrrnefnt ár. | Saltað var í 35000 tunnur á Raufarhöfn. Hæsta söluntar- stöðin er Hafsilfur með 8,586 t tunnur og mun vera önnur hæsta söltunarstöðin næst á eftir Sunnu á Siglufirði sem var með á 10. þúsundið. Aðeins tveir bátar eru úti með nætur og eru þeir á ufsa- veiðum við Grímsey. Austfirð- ingarnir hafa allir tekið upp nætur sínar, enda er varla von 1 Elon sækir m mennía- j skóla Laisgarvaíns. I Um embætti skólameistara, við Menntaskólann að Laugar- , vatni hefur borizt ein umsókn, j — frá Jóhanni Hannessyni, M. . A, bókaverði við Fiskesafnið 1 Cornellháskóla 1 íþöku. (Frétt frá Menntamálaráðuneyti). um veiði úr þessu. Starfsmenn síldarleitarinnar á Raufarhöfn eru að taka niður talstöð sína og annan útbúnað og er erilsömum stöi’fum þeirra á þes;u sumri íokið. McMiflan — I Framh. af 11. síðu. íhaldsflokksins, að fresta flokksþinginu, sem halda átti um miðjan þennan mánuð. Daglegur flutningur erinda um kosningamál hefjast í brezku útvarpi og sjónvarpi 19. sept. og verður haldið áfram til 6. okt. og lýkur þannig tveimur dögum fyrir kosningar. Nýtt varískip væntanEegfi í gærdag um hádegisbil var hinu nýja varðskipi strand- gæzlunnar hleypt af- stokkun- um í skipasmíðastöðinni í Ála- borg, Danmörku. Frú Ebba P. M. Sigurðsson, kona Péturs Sigurðssonar for- stjóra, gaf skipinu nafn, og heitir það Óðinn. Óðinn er 800 tonn að stærð, og þannig stærsta skip land- helgisgæzlunnar. Væntanlega verður smíði skipsins lokið f febrúar n. k.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.