Vísir - 02.10.1959, Side 9

Vísir - 02.10.1959, Side 9
Föstudaginn 2. október 1959 VlSIB 9 Krúsév talar um Krúsév — Framh. at 4. síðu. Maðurinn, sem geymdi vodka íiösku í buxnavasanum til að bæta bjórinn á tímum zars- ins, þekkir öll undanbrögð dr ykk j umannsins. Hann er varkárari gagnvart sjálfum sér með mat, heldur en drykk. Þegar þeir félagarnir Kruschev og Bulganin fóru í heimsókn til Englands, var eft- ir því tekið að hann hafnaði rjóma með ávöxtum, smjöri með kexi og baunum með lanmbasteik. Hann sagði við veitendur sína „Læknisráð. Eg er að reyna að létta mig,“ En hann naut hvít- vínsins. Þyngdin, sem hann er að reyna að minnka eru 220 pund, og helztu málin eru: Brjóst 43 tommur, mitti 52, og hvaða kiæðskeri sem er, segir að þetta þýði „óvenju feitlaginn.“ Kauðalegur £ klæðaburði. Kruschev hefur ákaflega víð- tækan smekk. Hann smakkar á öllum tegundum rússneskra eftirmata. Fyrir nokkru sagði hann Rússum, sem eru kauða- legastir allra kauða í klæða- burði, að þeir yrðu að hressa upp á útlitið. Hann er sjálfur í silkiskyrtu með blátt, einlitt bindi og 40 sterlingspunda klæðskerasaumuð föt. „Margir ykkar eru enn í út- stoppuðum jökkum, sem voru í tízku á tímum Nikulásar II," sagði- Kruschev fyrir nokkru. „Það er kominn tími til að setja þá á forngripasafnið. Við þurf- um að láta sníða fallegri föt úr sama efni.“ Vissulega er hörmung að sjá klæðið, sem er til sölu hjá GUM, stærsta vöruhúsi Moskvu nema í leyniverzluninni á efstu hæð, þar sem kvikmyndastjörn- ur og annað fyrirfólk kemur til að kaupa „vinnuföt“. Kruschev vonar í raun og sannleika að eftir 10 ár verði þjóðin farin að klæðast eins og brezka yfirstéttin. Það hef- ur hann látið í ljós. Kom við fínu taugarnar I Pinya. Annars eru Rússar mjög ná- kvæmir í klæðaburði. Ein versta skyssa, sem manni getur crðið á í Moskvu, er að fara ekki úr frakka, er maður kem- ur í hús. Hvort sem maður ætl- ar aðeins að stanza augnablik hjá kunningja, eða fer á hljóm- leika, verður maður að fara úr frakkanum og hengja hann upp. Þegar framkvæmdastjóri hljómlistarhallarinnar sagði Kruschev frá áhyggjum sínum vegna þess að tónburður í saln- um mundi ekki verða góður, þegar 3000 Rússar sætu þar í pelskápum sínum, fékk hann framan í sig: „Rússar sitja ekki í frökkunum á hljómleikum. Við erum ekki birnir.“ Hann hafði óvart komið við fínu taugarnar í Pinya litla. Nákvæmar athuganir í Bandaríkjunum hafa leitt í ljós, að konur þurfa að með- altali 7 sinnum lengri tíma en karlar til að taka á- kvörðun um það í búðum hvort kaupa skuli eða ekki Síðustu efnahagsráðstafanir hrökkva skammt til öryggis. Ályktanir aðalfundar Verzlunarráðs Islands. Á nýafstöðnum aðalfundi Verzlunarráðs íslands voru rædd þau mál er mest snerta verzlunarháttu og annað er að efnahagsmálum þjóðarinnar lýt ur. Fara hér á eftir helztu álykt anir fundarins: Aðalfundur Verzlunarráðs ís- lands 1959 vill vekja athygli á því, að ráðstafanir þær, sem gerðar hafa verið í efnahags- málum þjóðarinnar að undan- förnu muni ekki nægja til þess að skapa efnahagslegt jafnvægi og atvinnuöryggi í landinu. Fundurinn telur eftirfarandi ráðstafanir nauðsynlegar til þess að ná því marki: 1. Fjárfesting og bankaútlán verði við það miðuð, að komizt verði hjá verðbólgu. Telur fund urinn nauðsynlegt, að banka- löggjöfin verði endurskoðuð og hefur gert um það sérstaka sam þykkt. 2. Útgjöldum ríkissjóðs verði haldið innan þeirra takmarka, að hann verði greiðsluhalla- laus. 3. Uppbótarkerfið verði af- numið, þannig að þær atvinnu- gi-einar, sem erlends gjaldeyris afla, fái jafna aðstöðu og mis- ræmið hverfi milli innlends og erlends verðlags. Atvinnurek- endur beri þá sjálfir áhættu og ábyrgð í rekstri fyrirtækja sinna. 4. Dregið verði úr niður- greiðslu á innlendum vörum og í þess stað auknar fjölskyldu- bætur og gerðar hliðstæðar um- bætur í félagsmálum. 5. Stefnt verði að því, að við- skiptum og atvinnurekstri verði búið sem bezt svigrúm til at- hafna og samkeppni, sem koma mun þjóðinni í hag með auk- inni framleiðslu og bættum lífs- kjörum. Bankamál. Aðalfundur V. í. 1959 telur r.auðsynlegt, að sett verði ný löggjöf um íslenzka banka, er marki skýrt verkefni og verk- svið seðlabankans annars veg- ar og viðskiptabanka hinsvegar. Tryggt verði að seðlabankinn verði sem sjálfstæðastur og ó- háður stjórnmálaátökum. Hlutverk seðlabankans verði að vernda verðgildi íslenzku krónunnar, stuðla að jafnvægi á lánsfjármarkaðinum, frjáls- um gjaldeyrisviðskiptum við út lönd og nægilegri atvinnu í landinu. í verkahring seðlabankans falli eingöngu viðskipti við pen ingastofnanir og ríkissjóð. Hann annist seðlaútgáfu, yfirstjórn cg eftirlit gjaldeyrismála, skrán ingu á gengi erlends gjaldeyris og ákveði forvexti á endur- keyptum víxlum og reglur um handbært fé viðskiptabank- anna. Verkefni viðskiptabankanna verði fyrst og fremst að sjá at- vinnulífinu fyrir rekstursfé og annast gjaldeyrisverzlun við fyrirtæki og einstaklinga, en lán til fjárfestingar verði byggð á fjáröflun til lengri tíma, svo sem með sölu skuldabréfa. Tryggt verði, að viðskiptabank- ar, hvort sem um er að ræða ríkisbanka eða einkabanka, starfi á viðskiptalegum grund- velli óháð stjórnmálasjónarmið um. Heimilt verði að stofna viðskiptabanka að ákveðnum skilyrðum fullnægðum, og skulu allir bankar hlíta sömu reglum um aðhald og eftirlit seðlabankans. Kaupþing. Aðalfundur V.í. 1959 telur nauðsynlegt, að stofnað verði með lögum verðbréfakaupþing, þar sem frjáls viðskipti með vaxtabréf og hlutabréf fari fram á uppboði. Fundurinn álítur, að á þann hátt muni skapast möguleikar á aukinni lánsfjármyndun til langs tíma og meiri eingaraðild almennings í atvinnufyrirtækj- um þjóðarinnar. Tilhögun gjaldeyrisúthlutunar. Aðalfundur V.í. 1959 lítur svo á, að eðlilegast sé, að verk- efni þau, sem Innflutningsskrif stofari hefur með höndum varð- andi ráðstöfuri á gjaldeyri verði flutt yfir í gjaldeyrisbankana og að stefnt sé að því, að Inn- flutningsskrifstofan verði lögð niður. Skattamál. Aðalfundur Verzlunarráðs ís- lands 1959 vill leggja sérstaka áherzlu á nauðsyn þess, að lög- gjöf um skatt- og útsvars- greiðslur fyrirtækja verði tekin til gagngerðrar endurskoðunar. Fundurinn mótmælir því, að veltuútsvör verði framvegis nctuð sem tekjustofn bæjar- og sveitarfélaga og krefst þess, að þau verði afnumin, enda er sýnilegt, að verði ekki bráðlega breyting á, mun þessi skattlagn ing hafa mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir allt atvinnulíf í landinu. Stefnuskráin — Framh. af 8. síðu. 10. Sérstök áherzla verði lögð á að hlúa að allri sparnaðar- viðleitni og örvuð myndun innlends fjármagns. 11. Aflað verði erlends lánsfjár með viðráðanlegum kjörum til stórframkvæmda og greitt fyrir erlendu fjár- magni til þátttöku 1 upp- byggingu stóriðju til út- flutnings, mrdir úrslitayfir- ráðum íslendinga sjálfra. HLUTDEILD í FRJÁLSUM VIÐ- SKIPTAHEIMI. 1. Stefnt verði að því, að þjóð- in verði aðnjótandi sem frjálsastra heimsviðsk. með aðild að samtökum frjálsra þjóða, sem miða að auknu viðskiptafrelsi » heiminum. 2. Leitað verði hagkvæmra markaða hvar sem þá er að finna og afla aðkeyptra vara þar sem hagstæðast er að kaupa þær. I AUKIN FRAM- 1 LEIÐSLA OG BÆTT LÍFSKJÖR. 1. Allar aðgerðir £ efnahagsmál imi miði fyrst og fremst að því að greiða fyrir aukinni framleiðslu. 2. Við endurskoðun skattakerf- isins verði haft hugfast, að atvinnurekendum verði gert mögulegt að mynda eigið fjármagn til endurnýjunar aukningar á atvinnutækjum. 3. Unnið verði að gernnýtingu atvinnutækja » öllum at- vinnugreinum. 4. Leitazt verði við að bæta vinnubrögð og auka tækni í atvinnurekstri. 5. Unnið verði að afnámi á liöft um og hömlum á athafna- frelsi einstaklinga. 6. Hagur almcnnings verði tryggður með raunhæfri sam keppni og frjálsri verðmynd- un - venjulegum verzlunar- viðskiptum. 7. Löggjöf verði sett, er stuðli að dreifingu efnahagsvalds- ins í þjóðfélaginu. 8. Efnahagslegt sjálfstæði þjóð- félagsborgaranna verði tryggt með eignamyndun öll- uin til handa. Eins og fyrr segir verður þeim áföngum á leiðinni að markmiðunum, sem hér hafa verið talin upp, ekki öllum náð í senn. Fer bað nokkuð eftir, hversu hart þjóðin vill leggja að sér. A hennar valdi er að velja röð þeirra, kveða á um hvað í fyrirrúnii skuli sitja og hverju frestað um sinn, því að í allt verður ekki ráðizt í sama mund. Meginmáíi skiptir, að þjóðin gcri sér Ijóst og viður- kenni ' verki nauðsyn þess að leggja inn á nýja braut, sem sneiðir hjá verðbólgu og sam drætti. Sá vegur liggui- að traustara og þróttmeira efna- hagskerfi en við búum við í dag. Homsteinar þess þjóðar- búskapar eru atvinnufrelsi og eignarréttur einstaklinganna, næg atvinna og félagslegt ör- yggí. fþróttin „jai-alai“, sem þýðir eiginlega „fjörleg liátíð“ — en nafnið er komið úr baskísku — er talin einhver hraðasta íþrótt, sem til er. Hver þátttakandi hefur bogmyndað slíður um hægri höndina, og það notar hann til að grípa hnöttinn og þeyta homun frá sér. Knötturinn getur að sögn náð 240 km. hraða á klst., er hann þýtur af glófanum. Skáldsagnakeppni Menntamálaráðs Um leið og Menntamálaráð íslands þakkar rithöfundum þeim, sem tóku þátt i skáldsagnasamkeppni þess, biður það höfundana að gjöra svo vel að láta vitja handrita sinna. Umsögin með nöfnum þeirra verða ekki opnuð, en hand- ritin afhent skrifstofu ráðsins, Hverfisgötu 21, gegn því að viðtakandi tilgreini söguheiti og dulnefnf .þöfundar. Menntamálaráð íslands. vantar. Mikil vinna. — Uppl. hjá vcrkstjóra. VIKURFÉLA6IDH.F. Hringbraut 121. úl “ 1 t

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.