Vísir - 05.10.1959, Side 11
Mánudaginn 5. október 1959
VlSIB
■?«W'
11í
VIR;
Sþróttir úr ölium áftum
Hilmar Þorbjörnsson.
Framh. af 4. síðu.
ur, en kuldi og þar nokkuð upp
á móti.
Er íslenzku íþróttamennirnir
héldu til keppni í Málmey um
mánaðamótin ágúst—sept. sl.
var Hilmari ekki spáð miklum
árangri af Svíunum sem sáu til
hans hér heima. En það fór á
annan veg, hann vann báða þá
er hann hafði orðið að lúta í
lægra haldi fyrir hér heima,
og það strax í fyrsta hlaupi, og
varð annar á sama tíma (10.5)
Pólverjinn Zielenski, en hann
hefur í sumar hlaupið á 10.2
sek. ( ólöglegt þó vegna með-
vinds).
Nú um síðustu helgi keppti
Hilmar ásamt Valbirni Þorláks-
syni og Jóni Péturssyni í Dres-
den í Þýzkalandi. Þar náði
Hilmar slíkum árangri, að ef til
vill telst það hið besta sem ísl.
iþróttamaður hefur náð í sum-
ar, þrátt fyrir hinn afburða-
góða aranguur Valbjarnar í
stangarstökkinu, 4.45 m. Að
vísu kemst Hilmar ekki jafn
hátt á afrekskrána og Valbjörn,
en móti kemur, við hve sterka
menn Hilmar átti að etja, en
hann fékk sama tíma og þeir.
Sigurvegarinn í hlaupinu var
Englendingurinn Peter Radford
sá sem varð þriðji á Evrópu-
meistaramótinu í fyrra. Annar
varð E. Burug, frá Þýzkalandi,
sem að vísu hefur hlaupið á
betri tíma en 10.5 í sumar, en
er þó sterkur hlaupari. Hilmar
varð þriðji, og allir fengu tím-
ann 10.4 sek. Hér hefur því
verið um hnífjafnt hlaup að
ræða. — Radford hefur hins
vegar hlaupið á 10.3 sek. í sum-
ar, og er talinn einn besti
spretthlaupari í Evrópu, í flokki
með mönnum eins og Germar
og Hary. Hann er talinn ein
stærsta von Englendinga á
Rómarleikjunum næsta ár.
■ Gleðilegt er til þess að vita,
að Hilmar skuli enn hafa skip-
að sér á bekk með beStu sprett-
hlaupurum álfunnar (besti tími
á Norðurlöndum í ár er 10.4
sek., það á Bunæs hinn norski),
og ef allt er með felldu, ætti
hann að geta orðið verðugur
fulltrúi íslands á Rómarleikj-
unum næsta ár.
Carl Kaufmann.
Frh. af 4. s.
Kauffmann ágæti sitt, er hann
keppti á móti Bandaríkjamann-
inum Carlson, í Ziirich í Sviss,
Þar hljóp hann á 46.4 sek.
Carl Kaufmann er fæddur 1
New York 25. marz 1936. Hann
byrjaði að hlaupa 17 ára gam-
all, og þá sem spretthlaupari.
Hann varð þýzkur unglinga-
meistari í 100 m. 1954, á tíman-
um 10.9 sek. Sama ár náði hann
að bæta sig og fá tímann 10.7
sek. — Ári síðar keppti hann
sem fullorðinn og varð þá þýzk-
ur meistari í 200 m. hlaupi, á
undan hinum þekkta hlaupara
Heinz Futterer. Tími Kauf-
manns var þá 21.4 sek. Sama
ár keppti hann á alþjóðlegu
iþróttamóti í Rúmeníu og vann
þar 200 m. hlaup, var á undan
öllum helztu spretthlaupurum
A-Evrópulandanna. 1956 var
hann meiddur og gat lítið tekið
þátt í keppni. 1957 varð hann
annar í 200 m. hlaupi á þýzka
meitaramótinu, á eftir Manfred
Germar. í fyrra varð hann svo
þýzkur meistari í 400 m. hlaupi
eins og áður er getið, og nú í
ár — Evrópumeistari. Með
þessu áframhaldi má ætla að
Kaufmann verði skeinuhættur
á Rómarleikjunum, þótt gera
megi ráð fyrir, að Bandaríkja-
menn eigi sterkari 400 m.
hlaupara.
Þess má geta, að sá maður
sem næst hefur komizt því að
slá met Harbigs í 400 m. Rúss-
inn Ardaalion Ignatyev, jafnaði
það árið 1952. Ignatyev tekur
enn þátt í keppni, en mun ekki
hafa náð að hlaupa undir 47
sek. í sumji'. — Þá hefur Finn-
inn Voitto Hellsten náð 46.1
sek. árið 1956, en hann hefur
ekki náð slíkum tíma aftur.
(Heimsmet í 400 m. er 45.2 sek.
sett af Bandaríkjamanninum
Lcu Jonse 1956).
Það var hins vegar árið 1955,
að Belgíumaðurinn Roger Mo-
ens setti nýtt E.met og heim.s-
met í 800 m. hlaupi, er hann
sigraði á alþjóðlegu íþrótta-
móti í Oslo, og fékk ótrúlegan
tíma 1.45.7 mín. — þótt Þjóð-
verjanum Paul Schmidt tækist
að slá hið 20 ára gamla met
Harbigs. T. Schmidt var sem
sé 1.46.2 sek., sem þó. er af-
burðatími. — Hann hafði áðuur
best hlaupið í sumar á 1.47.7
mín, og er hér um stórkostleg-
ar framfarir að ræða. — í fyrra
var Schmidt í þriðja sæti á
heimsskránni í 800 m. hlaupi,
með tímann 1.46.8 mín Þá
gerðu aðeins betur Courney,
Olympíumeistarinn frá 1956, og
Makomaski, Pólverji. Banda- '■
ríkjamaðurinn fékk sama tíma
og Schmidt þá, en Pólverjinn
1/10 úr sek. betri.
Sl. vetur tók Schmidt þátt í
innanhúsmótum í Bandaríkjun-
um, en gekk ekki eins vel og
búizt hafði verið við. Eftir heim
komuna til Þýzkalands virtist
sem hann væri ekki í því formi
sem mun eiga best 1.49.3 mín
Margir voru því farnir að
halda, að Schmidt væri búinn
að lifa sitt besta, en hann hef-
ur nú rekið af sér slyðruorðin.
og bætt hið 20 ára gamla
met Harbigs.
Síðasti bóndsnn í Papey —
Bærinn Papey er nú farinn a£ íá .a á sjá, enda langt síðan hann
var byggður. Þarna koma oft mikil austan og suðaustan veður
og haía speikur verið reistar upp við bæínn til þess að tryggja
hann gegn mestu veðrum. Liíla iiúsið tii hægri á myntíinni er
kirkjan, en í henni hefur ekki verið ínessaö í meira en áratug.
Frh. af 9. s.
ekki vörinni, heldur hrakti
brott fi'á eynni og æ lengra og
lengra án þess að hann fengi
nokkuð um ráðið hvert bátinn
rak. Veður harðnaði stöðugt og
myrkur skali á. Gísli lét samt
ekki bugast, heldur stýrði bátn-
um af snarræði og útsjón, svo
sem góðum formönnum og sjó-
sóknurum var tamt ýmist gegn-
um brim eða boða, uþpundir
land eða út til hafs, eftir því
' sem veður og straumar hröktu
hann. Hins vegar varð þetta
helför piltsins. Hann var óharðn
aður, þoldi ekki vosbúðina og
1 kuldann og króknaði um nótt-
' ina. Gísli náði til Papeyjar um
miðjan næsta dag og þótti för
I hans einstæð hafa orðið í því-
I líku veðri og um öll þau hættu-
, legu sker sem leið hans lá um.
Þetta varð síðasta slysið í
Papeyjarálum.
Þ. J.
v^iÍATPÖÍl ÓUPMUMSOH
l)&$turujcd& /7%:*<> tSimi 'lifylc
INNHEiMT-A
LÖOFJZÆQ/STÖQF
H0FUM FLUTT
skrifstofur okkar í Tryggvagötu 8.
H. BENEDIKTSSON H. F.
Tryggvagöíu 8. — Sími 11228.
VERKAMENN ÓSKAST
við timburhreinsun, iöng vinna. Sími 34619.
TILB0Ð ÓSKAST
í nokkrar fólksbifreiðir er verða til sýnis í Rauðarárporti,
mánudaginn 5. þ.m. kl. 1—3 síðdegis.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Eyðublöð fyrir tilboð verða afhent á útboðsstað.
Sölunefnd varnarliðseigna.
AFGREIÐSUISTÚLKA.
Stúlku vantar til afgreiðslustarfa strax í tóbaks- og sæl-
gætisverzlun. Þrí-skiptar vaktir. Uppl. í síma 13812.
ATVINNA
Afgreiðslumaður óskast strax.
K JÖTIiÚÐ INT
Langhoitsvegi 17. — Valdimar Gíslason, simi 34585 og
eftir kl. 7 í 14598.
HI| ómleikar þýzkra
listaman-na
í tilefni 10 ára afmælis Þýzka Alþýðulýðveidisins
í Austurbæjarbíói fimmtudaginn 8. okt. 1959 kl. 19,00.
Einleikur á fiðlu: Werner Scholz.
Einleikur á píanó: Dieter Brauer.
Einsöngur og dúettar: Ina-Marie Jenss og Max Janssen.
Undirleikári: Dieter Brauer.
Aðgöngumiðar seidir í Bókabúð Lárusar Blöndal, Skóla- 'Æ
vörðustíg, Kron, Bankastræti, Sigfúsar Eymundsson, Morg-
unblaðshúsinu, Máis og menningar, Skóiavörðustíg, og
' Ausfurbæjárbíói.
Hljómleikarnir verða ekki endurteknir.