Vísir - 13.10.1959, Blaðsíða 3

Vísir - 13.10.1959, Blaðsíða 3
I>riðjudaginn 13. október 1959 VtSIB •JWWWWSA WW.V .■NWWVVWWWVWWi rufmiwiKir (jamlar whhiHgar ÚR FJALLGÖNGUM OG RÉTTUM ------ Langijökull, Eiríksjökull, Strút- ur og Ok sem augað staldrar við. Öll þessi fjöll gnæfa hátt yfir umhverfið og bera af öðru landi hvað fegurð snertir. Eink- um er það þó Eiriksjökull, hið fagra bogadregna jöluhvel sem setur svip á landið. Norðan úr honum ganga margir brattir og mikilúðgir jökulfossar, sumir sem ná niður á jafnsléttu og er jökullinn hvergi fegurri á að líta en einmitt norðan af Arnar- vatnsheiði. Veröld útilegumanna. Syðsta vatnið á heiðinni heit- ir Reykjavatn. Þar var áður fyrr áningastaður gangna- manna í tvær nætur. Lítill kofi stóð þar á vatnsbakkanum, hlaðinn úr torfi og grjóti og þar var gist. Hvergi á heiðinni er 9 leyndist maður, enda mun hvergi vera til annað fylgsni jafngott eða betra. Bústaður Jóns Franz var verri. Það er hellisskúti í úfnum hraunhrygg og hlaðið fyrir munnann. Þar sér enn í dag minjar aðdrátta hins seka manns, sem ætlaði sér að feta í spor Eyvindar og leita frelsis í heimi öræfanna. Þar sér bein og hauskúpur af stórgripum, enda ekki nema hálf önnur öld frá því er hann var gripinn. Sekir menn. Öruggar heimildir um dvöl Eyvindar við Reykjavatn eru að vísu ekki fyrir hendi. En ságn- ir herma að hann hafi a. m. k. tvívegis leitað norður á Arnar- vatnsheiði og dvalið þar lengur eða skemur. Og þeir sem kunn- ir eru landslagi og staðhátt- Það eru 20 ár frá því að eg hefi komið í Fljótstungurétt — gangnarétt mína fyrr á árum, þegar eg var á hverju hausti í göngum á Arnarvatnsheiði og smalaði til þessarar afdalsréttar sem liggur þar sem heiðalönd og byggð mætast, efst og innst í Borgarfjarðardölum. Það eru nær eingöngu tveir hreppar, Reykholtsdals- og Hálsahreppur, sem eiga fé í Fljótstungurétt. Samt sem áður er hún fjármörg, en ekki að sama skapi mannmörg. Hún hefur verið ein af þeim sára- fáum fjárréttum landsins, þar sem fólk kom ekki hópum sam- an til að rabba saman, sjá aðra og fá sér neðan í því. Það hef- tir til skamms tíma þótt við- burður að sjá kvenfólk eða krakka við Fíjótatungurétt. Og sennilega mun hún vera eina fjárrétt landsins þar sem ekki hefur þótt sjálfsagður hlutur að hafa fleyg í vasanum. Liggur við innstu byggð. Orsakir til þessa eru ýmsar, •en aðallega tvær. Önnur sú að réttin liggur við innstu byggð, þangað sem torvelt var að kom- ast allt til þessa, og annað hvort yfir illfært hraun að fara eða yfir margar vatnsmiklar ár. Það þótti því ekki árennilegt fyrir konur eða börn að fara þessa leið og helzt ekki fyrir aðra en þá sem áttu þangað brýnt erindi. í öðru lagi varð að hraða réttarhaldi eftir föng- um. Löng leið var fyrir hönd- um með rekstra og áríðandi að komast sem lengst með þá áð- ur en myrkur skall á . Þess- vegna þótti það skortur á á- byrgð að súpa á flösku í Fljóts- fungurétt. Nú er eg kom eftir tvo ára- tugi í Fljótatungurétt að nýju- hafði talverð breyting orðið frá því áður var. Vegir höfðu verið lagðir að réttinni úr tveim átt- um, bilar sem aldrei sáust þar áður — voru þarna unnvörp- um, talvert af krökkum og kvenfólki og öðru aðgerðarlitlu fólki sem kom sömu erinda og það kemur í aðrar réttir, að sýna- sig og sjá aðra og horfa á fulla karla. Meira að segja sá siður að taka upp pytluna og bjóða náunganum hafði hald- ið innreið sína innan veggja' Fljótatunguréttar. Enda þótt nýir siðir séu inn- leiddir, er réttin sjálf söm við sig. Hún er ein af þessum gömlu elskulegu alíslenzku réttum, hlaðin úr hraungrýti í hólf og gólf og er jafn þjóðleg og rfétt- j arhaldið sjálft. Hún stendur á j hrauni og er byggð úr hrauni og þarna hefur hún staðið — 1 rétt fyrir neðan túngarð efsta bæjar í Mýrarsýslu — um nær sjö tugi ára. Vatnalandið mikla. Fjársafnið sem kemur til Fljótstunguréttar er sótt norður á Arnarvatnsheiði og Tvídægru. Fljótstungurétt er fjármörg, en en þeir ekki að sama ckapi mannmörg. Þangað koma naumast aðrir, sem brýnt erindi eiga til réttarhalds. Borgarfjarðarhéraðs og Húna- mik-íi hoiðalnriH miiií vatnsvatnssýslu og norðan Eiríksjökuls. Lengstu göngur stóðu yfir í fimm daga og það oru hamingjudagar smala- piltsins. Það reyndi að vísu stundum á þolrifin og oft varð að spretta úr spori, en gaman var það samt. Gangnasvæðið er vatnaland- ið mikla, þar sem vötnin eru svo mörg að þau verða ekki tal- in fremur en hólarnir í Vatns- dal eða eyjarnar á Breiðafirði. Réttarmaður í Fljótstungurétt. Víða er landið ógreiðfært ög um ^ forarflóa yfir að fara, þar sem hestum verður ekki við komið. ^ En fjarsýn er mikil og' fögur og einkum eru það suðurfjöll, fegurra en þarna. Við Reykja- vatn var útilegumannabyggð og sér þar enn í dag minjar bæði um dvöl Fjalla-Eyvindar og síð- asta útilegumannsins á Islandi, Jóns Franz, sem handtekinn var af byggðarmönnum á öldinni sem leið. Bústaður. Eyvindar var hola eða gjóta í flötu hrauni, skammt sunnan vatnsins, Eyvindarhola kölluð, þar var lítið op, sem rétt var hægt að smeygja sér niður um, en ummerki sáust þar engin. Hraunhella hefur legið við opið og hana var unnt að hreyfa svo að hún legðist yf- ir gjótuna. Úr því gat engum manni komið til hugar að þar „Þar heitir Réttarvatn eitt,“ segir Jónas Hallgrímsson í kvæði sinu. Og í tanganum, sem ber nafn af vatninu, drógu Norðlend- ingar og Sunnlendingar fé sitt sundur. um þessara óbyggða dylst ekki að hvergi var betur að dyljast og hvergi betur að dvelja held- ur en einmitt við Reykjavatn. Þar eru líka einu staðirnir á allri heiðinni, sem fundizt hafa minjar útilegumanna. Um útilegu Jóns Franz við Reykjavatn er vitað meir held- ur en dvöl Eyvindar. Hann var handtekinn í hreysi sínu þar við vatnið seint um haustið 1814 og afhentur yfirvöldunum til gæzlu og meðferðar. Jón Franz var snæfellskur að uppruna, en talinn franskur í aðra ætt og hafi af því hlotið Franz-nafnið, sem við hann loddi. Hann bjó á hjáleigu að Arnarstapa sem hét Bílubúð, en gerðist snemma þjófgefinn og var sóttur til saka þar vestra fyrir þýfsku ýmiskonar og fyrir það að hafa látið steina mílli roðs og fiskjar til að fiskur sá, sem hann seldi kaupmönnum reyndist í þyngra lagi. Komst þetta upp og var Jón kærð'ur fyrir sviksemi. Við réttarhöld játaði hann á sig ýmsan þjófnað o g var þá settur í hald. Á flótta. Á miðju sumri 1814 strauk Jón úr varðhaldinu og lengi vel vissi enginn hvert, og var lýst eftir honum viða um land. En Frh. á 9. s. 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.