Vísir - 24.10.1959, Page 1
-49. ár.
Laugardaginn 24. október 1959
m? T>?
Reykvíkingar ganga tii orustu á
morgun. Þeir eiga að hrinda af höndum
sér enn einni árás af hálfu manna, sem
þykjast vera einlœgir vinir þeirra, en
óska aðeins að ná völdunum hér til að
gera bœjarbúa að ánauðugum lýð.
Hingað til hafa Reykvíkingar borið gœfu til að
hrinda öllum árásum, sem „vinir" þeirra hafa gert á borg
þeirra. Vísir vœntir þess, að þeir beri enn gœfu til að
hrinda þeirri árás, sem nú er undirbúin undir forustu
Framsóknar.
Á morgun verða bœjarbúar og aðrir landsmenn í
rauninni aðeins látnir segja álit sitt á þessu: Vilja íslend-
ingar kalla yhr sig nýja vinstri stjórn Framsóknarflokks-
ins og kommúnista eða vilja þeir gefa heilsteyptum flokki
'œkifœri til að fœra sönnur á, hvers hann er megnugur.
Um annað er ekki spurt.
Sjálfstœðisflokkurinn lofar ekki kraftaverkum eins
og vinstri stjórnin, en hann vœntir þess, að ef stéttirnar
standa saman og láta vígaferli niður falla, geti framtíð
islenzku þjóðarinnar orðið björt.
Munið það á morgun, íslendingar, að þið hafið
aðeins um tvennt að velja. Annars vegar eru sundrung-
aröflin, sem fengu að stjórna landinu 1956— 58 og hins-
vegar Sjálfstœðisflokkurinn — flokkur allra stétta.
Gjaldið Islandi atkvæði 'kkar á morgun - x-D