Vísir - 24.10.1959, Blaðsíða 9
V I S IK
Laugardaginn 10. október 1959
*---------------------------
Dómkirkjan fær
fagra gripi.
Laugardaginn 17. okt. 1959
afhenti frú Dagný Auðuns, for-
maður kirkjunefndar kvenna
Dómkirkjunnar sóknarnefnd
kirkjunnar að gjöf frá kvenna-
nefndinni veglega altarisgripi.
Eru það 4 kertastjakar og
kross, allt úr góðmálmi, í forn-
um sniðum. Hefur kvennanefnd
in í nokkur -ár. unnið að því
marki að búa altari kirkjunn-
ar. Þannig hafði neíndin áður
gefið altariskiæði úr rauðum
flosdúk; Er það siifurbúið, lagt
gullhúðuðum vínviðarsveig úr
silfri á öllum jöðrum, en í milli
gullhúðaður silfurkross. Altar-
isbrún er einnig búin vínviðar-
sveig úr silfri, prýddum íslenzk
um steinum.
Með vinnu sinni og gjöfum
góðra safnaðarmanna hefur
kvennanefndin nú náð marki
sínu um búnað altarisins. Er ó-
hætt að fullyrða, að búnaður
þess sé einstakur í sinni röð hér
á landi og hin mesta gersemi
og prýði kirkjunnar.
Formaður sóknarnefndar
þakkaði fyrir hönd nefndarinn-
ar og safnaðarins^ þessa fögru
og vegleg gjöf.
Hverfisstjórnir
í Reykjavík.
Bæjarstjórn Reykjavíkur
kaus á síðasta fundi sínum 27
menn í 7 hverfastjórnir í alþing
iskosninguniun, sem fram fara
á morgun. Fara nöfn þeirra hér
á eftir:
Guttormur Erlendsson, Bjarni
K. Bjarnason, Hafsteinn Bald-
vinsson, Björn L. Halldórsson,
Þorvaldur Lúðvíksson, Magnús
Þórðarson, Axel Kristjánsson,
Kristinn Ó. Guðmundsson, Guð-
rún Erlendsdóttir, Gísli Einars-
son, Hilmar Garðars, Hjörtur
Torfason, Ólafur Egilsson, Stein
þór Guðmundsson, ísleifur
Högnason, Magnús Torfi Ólafs-
son, Ingólfur Geirdal, Haraldur
Jóhannsson, Kristinn Guð-
mundsson, Lúðvík Gissurarson,
Björn Guðmundsson.
Vetrarvertíð á Vest-
fjdrðum að byrja.
Frá jréttaritara Vísis.
ísafirði í gœr.
Vestfirzku vélbátarnir hafa
undanfarið verið að búa sig til
vetrarvertíðarinnar. Mun vetr-
arvertíð hér almennt hefjast
um næstu mánaðamót. Talið er,
að vélbátar Súgfirðinga byrji
sjósókn um næstu helgi, og
vænta menn góðrar vertíðar,
því að jafnan hefur reynst hér
fiskisælt þegar smokkur hefur
komið. — Arn.
^mmmmmmmwmm:
Wmmimms
_ wmvtmm
S
eeuwen&
ESTABLISHED IN 1844
Head-ofíice
ROTTERDAM
9, Leeuwenstraat
P.O.B. 1036
Brartch-office
AMSTERDAM
131, Pr, Hendrikkade
ÁGENTS O F REGULAR LINES * FORWARDING A G E N T S^j* ~ SHIPBROKERS
INSURANCE-, CHARTERING -7 TRAVELLING - A N D^TOU R IST-A G E NTS
Símnefni: Seewen, Rotterdam
Höfum sérþekkingu og langa reynslu í að annast umskipun og farmflutning á vörum
til og frá íslandi, um Rotterdam og aðra hafnarbæi á meginlandinu og Bretlandi. —
Sérlega lág bóknun.
Umboðsmenn fyrir ICEL4IVIDIC AIRLIIXIES LOFTLEIDIR
Símnefni: Loftleiðir, Rotterdam
Vill sleppa nazista-
leiðtogum.
Brezkur maður hefur hvatt
til hess í Sunday Express, að
þremur fyrrverandi nazistaleið-
togum, sem eru í haldi Span-
daufangelsi í Berlín, verði
sleppt úr haldi.
Þeir Rudolf Hess, Albert
Speer og Baldur Schirach. —
Bretinn er G.D. Roberts, sem
var einn ákærenda við Núrn-
berg réttarhöldin 1946.
Nazistaleiðtogar þessir ger-
ast nú gamlaðir og vill Roberts
að þeim verði sleppt af mann-
uðarrástæðum.
MUNIÐ
Hver bók
Sjálfstæðismanna.
sem happdræftiinúmer