Vísir - 05.11.1959, Síða 7

Vísir - 05.11.1959, Síða 7
Fimmtudaginn 5. nóvember 1959 VISIB 7 Tarzan og vinir hans gengu inn í muBtriðj en konumar, smt b95a- -ikía-2* sinna, T#Wu þeim ekki athygii. — En allt í eint* -iagfffí Ðöaave Whitney v» attiár: „Sjáið, þarna er Alan Lake!“ ------,„Alan!“ hrópaði hún og sWttðc vfeia1 af * attariau,; ða þess að gá að þvi hvaða al- leiðingar það helði í ii>r með SÉF. Brezk kol dýrari í Ulster en Eire. Kolainnflytjendur í Norður- írlandi hafa borið fram mót* mæli út af því, að þeir verða að kaupa brezk kol dýrara verði en kolainnflytjendur • írska lýðveldinu (Eire). Munurinn er 34 shillingar smálestin. Bezta tegund kola í Dublin kostar 8 stpd. og 12 sh. Áður voru eingöngu flutt inn brezk kol í Eire, en af 1.200.000 smálestum, sem inn voru flutt- ar í fyrra, var helmingurinrt frá Póllandi og Bandaríkjunum. Brezka kolaráðið lækkaði verð- ið á kolum til 'Eire, til sam- ræmis við verð á innfluttum pólskum og bandarískum kol- um. — Belfast Telegraph segir að talsmaður Kolaráðsins hafi sagt, að engar horfur væru á, að verð á kolum til Norður- írlands yrði lækkað. Mikil óánægja rikir yfir þessum mikla verðmismun, en undir- tekta verzlunarráðherra N-f., sem mótmælin voru send — er ekki getið. Átök í lofti yfir Negeb. Til átaka kom í lofti í gær nálægt landamærum ísraels og Egyptalands. Fregnir um þau eru ósamhljóða. Ríkisstjórnir ísraels og Ara* bíska sambandslýðveldisins saka hvor aðra um að eiga upp* tökin. Að vanda ganga klögumálin á víxl um landamæraskerð* ingu. Egyptar segjast hafa skotið niður flugvél — og ísra* elsmenn að þeir hafi hrakið flugvélar þeirra á flótta og hafi þá staðið reykjarstrókur aftur úr einni þeirra. Lærið af Ijtinm dreng. Lítill drengur kom inn á lög- reglustöðina í gær, og skýrði frá því að kona hefði „gengið fyrir hjólið sitt“. Við athugun kom í Ijós að konan hafði rneiðst lítilsháttar, og var ekki meira að gert. Full ástæða er til að benda öðrum drengjum, — og jafnvel eldri og reyndari ökumönnum — á heiðarlega og hreinskilna framkomu drengsins, sem sjálf- ur fer á lögreglustöðina til að tilkynna um óhapp það, sem fyrir hann kom, reiðubúinn að taka afleiðingunum. Það er því miður orðið allt of algengt hér í bæ, að ökumenn hverfi hið bráðasta af slyssstað til að forða sér frá hegningu. 36 hjá henni með körfur fullar af nellikkum. Veröldin var að vakna. Jafnvel vonbrigðin, sem þrýstu að sumu fólki eins og járntengur, gátu ekki breytt þeirri staðreynd að nú var vor. En Caria, sem ekki var vonbrigðum vön, fann skuggann sem hvildi á hjarta hennar og ógnaði með því að spilla allri lífsgæfu hennar. Hana hafði aldrei brostið þor. En nú var hún að hugsa um að þessi skuggi, sem var afleiðing hennar eigin gáleysi og sem gat eyði- lagt hamingju þeirra tveggja manna, sem hún unni mest í heiminum, væri byrði, sem hún mundi kikna undir. Maður sem einmitt þá stundina var í allt annað en góðu skapi, kom auga á fallega stúlku með tvo platinurefsfeldi á hand- leggnum, og sem gekk — já, gekk eins og aðeins ein stúlka í veröldinni gat gengið. Hann snarstansaði og sagði nafnið hennar áður en hann hafði gert sér ljóst hvað hann var að gera. — Caria....! Hún leit upp. Það var Basil Frayne sem horfði á hana. Frayne var ekki heimskari en svo að hann skildi undrunar- og óánægjusvipinn á andlitinu á henni þegar hún þekkti hann aftur. Hann fann til sársauka í hjartanu. — Vertu ekki vond við mig, sagði hann auðmjúkur. — Eg hefði líklega átt að færa mig á hina gangstéttina, en eg gat ekki staðist freistinguna. Hann var sá maður sem hún sízt af öllum hefði viljað hitta, en Caria fann að það hefði verið bamalegt að flýja. — Og það er auðvitað andstætt lífsreglum þínum að standast freistingar, Basil? sagði hún kaldhæðnislega. — Það er hverju orði sannara sagði hann. — En í þetta skipti var um sakleysa freistingu að ræða. Mig langaði aðeins til að vita, hvernig þér liður, eftir allan þennan óratíma. — Alveg ágætlega, þökk fyrir. — Og þú ert hamingjusöm? — Mjög hamingjusöm.... Hún gat þó að minnsta kosti logið sannfærandi, þegar hún burfti á annað borð að ljúga. — Það var gott að heyra. Og þú ætlar að fara að giftast? — Já.... En nú verð eg að flýta mér sagði hún. — Hann pabbi bíður éftir mér. — í klúbbnum sínum, geri eg ráð fyrir? Langar þig til að hrinda mér undir bíl ef eg spyr þig hvort eg megi labba með þér þangað? Sannast að segja er eg að fara í sömu áttina. Hún trúði honum ekki. En samt svaraði hún: — Jæja, þá er líklega meinbægni af mér að biðja þig um aö ganga hinum megin á götunni. — Hjartans þakkir fyrir óverðskuldaða miskunnsemi. Hann hafði snúið við og gekk við hliðina á henni. Eftir augnabliks þögn sagði hann: — Heyrðu, mikið öfunda eg þig af þessum ljómandi fallega hatti, sem þú ert með. Eg hef verið að reyna að ná mér í nýjan hatt, en allt sem nokuð gagn er í, er selt til útflutnings! Eg er hræddur um aðleg verði aö bíða nokkra mánuði enn. Caria hló hæðnislega. — Nei, því trúi eg ekki, Basil. Þú ert vanur að geta náð í það sem þú ágirnist. — Ekki skaltu fullyrða það. Mér finnst hæfni mín í þá átt hafa brugðist mér alveg upp á síðkastið. Eg var til dæmis í her- málaráðuneytinu í morgun í talsvert áríðandi erindum, og fór algera fýluferð. Það var eitthvað i rödd hans sem olli því að Caria leit snöggt upp. — Hvað áttu við með því? — Þeir hafa rekið mig, eða svo til, góða mín. Eg er líklega ekki hæfur til starfa lengur. Mér finnst eg líka vera farinn að eldast. — Nú! Caria horfði beint fram, en hún hafði tekið eftir að hann var stinghaltur. Hún vissi að það mundi vera sárt fyrir hann að þurfa að fara úr hemum. Því að þó að hann væri land- eyða og hefði marga galla, hafði hann alltaf haft miklar mætur á starfi sínu i hernum. Hún spurði án þess að hugsa sig um: — Stafar þetta af bíl- slysinu? — Já. En eg kæri mig ekki um neina meðaumkvun.... Það var skerpa í röddinni, sem hún hafði aldrei heyrt fyrr. Svo töluðu þau ekkí miera saman á leiðinni upp á St. James Square, og Caria nam staðar. — Jæja, vertu sæll, Basil, sagði hún létt. Svo rétti hun ósjálf- rátt fram höndina: — Eg veit að þú kærir þig ekki um með- aumkvun. En — eg er svo hrygg.... — Það er meira en eg á skilið, svaraði hann og hélt í hönd hennar. Svo sleppti hann henni án þess að segja orð„ lyfti hatt- inum og hélt leiðar sinnar. Caria gekk hægt yfir torgið og fann að hún var hrærðari en hún eiginlega kærði sig um að vera, yfir þessum samfundum. Hún fann líka að þessi sjálfsyfirlýsing, sem hún hafði pyntaö sig með, væri kannske óþarflega mikil. Nú leit hún alveg hlut- laust á Basil Frayne og fann að þrátt fyrir allt hafði hann mik- inn persónulegan þokka. Og hún fann að þrátt fyrir allt var honum vorkunn. Hún hélt aftur andvarpinu sem vildi fram, er hún gekk inn í klúbbinn, og gat meira að segja brosað er hún sá föður sinn sitja í forsalnum og bíða hennar. Þau fóru inn í lyftuna og nokkrum mínútum síðar sátu þau við eitt gluggaborðið, en þar var ágætt útsýni yfir torgið. — Eg á ekki nema einn klukkutíma lausan, barnið mitt, sagði hann. — Eg á að vera á fundi í Whitehall klukkan 14,30. Caria gretti sig yfir brúnina á glasinu. Aldrei þessu vant varð hún að gera sér læti við föður sinn, þó að hún væri sízt af öllu skapi til þess núna. Þau voru hálfnuð með borðhaldið er nann sagði allt í einu: — Eg bað þig ekki um að koma með unga manninn þinn hingað með þér í dag, því að eg hélt að hann mundi vera bundinn núna. — Já, hann fór úr borginni í sjúkravitjun snemma i morgun, svaraði Caria. — Báöir mínir menn eru alltaf önnum kafnir í sjúkravitjunum og fundum. — Það verður ekki við þvi gert, sagði Roger, en eg vona að brúðkaupsferðin ykkar geti að minnsta kosti orðið skemmti- leg.... Hann virtist ekki taka eftir að hún hrökk við er hann nefndi brúðkaupsferð. — Annars er eg hræddur um að eg verði að breyta öllum mínum ráðagerðum i sambandi við hana. — Hvernig þá það, pabbi? Caria var talsvert óstyrk, og það var kvíðahreimur í rödd hennar. — Það er ekki alvarlegt, væna mín. En mér kæmi það bezt að brúðkaupinu yrði flýtt. Eg kernsf ekki hjá að fara til Ameríku þann 18. Eigið þið Ross erfitt með að fresta brúðkaupinu, eða viljið þið fremur gifta ykkur i snatri? Caria vissi ekki strax hverju hún átti að svara. Það eina sem hún vissi var að þarna hafði hún fengið kost á fresti, alveg óvænt. Faðir hennar hafði gefið henni óvænt tækifæri, svo að nú þurfti hún ekki að brjóta heilann um einhverja átyllu til að fresta brúðkaupinu. . .. gpaiið yður tíaup á ndl]i maxgra verzlaúia1- j* WkUOöL HttOM! ' ®S) -Austursbræti E. R. Burroughs - TARZAM - 3130 þj borgar sig að anglysa VÍSI * I

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.