Vísir - 02.12.1959, Side 1

Vísir - 02.12.1959, Side 1
12 síður 12 siður 4». ár. Miðvikudaginn 2. desember 1959 262. tbl. Fárviöri veldur stórtjóni - einkum við Miðjarðarhaf. Skip rak á latnl„ en annur saliliu. — stórtjón á íantiL Feikna tjón hefur orðið af völdum þess og um 10 skip sendu frá sér neyðarskeyti, — Fárviðri, sem fór yfir mik- inn hluta Suður-Evrópu og gerði mestan usla á Miðjarðar- bafi, en náði allt til vestur-! skip sukku, önnur rak á land, strandar Spánar, er nú að slota. enn önnur gátu bjargast að að loknum af eigin ramleik,- eða fengu hjálp. Margir menn arukknuðu — hve margir verður ekki enn sagt um með neinni vissu. Á landi varð mikið tjón í mörgum löndum. Meðal skipa, sem rakst á land var hafskipið Braemer Castle — eign Union Castle línunnar. Banaslys og tvö önnur ssys. í gær varð banaslys í flug- turnsbyggingunni nýju á Rvík- urflugvelli. Roskinn maðbr, Gísli Sæ- mundsson, Garðastræti 9, varð á milli þils og lyftu og beið bana. Gísli var þarna við vinnu þegar slysið skeði. Hann var fluttur í slysavarðstofuna, en var látinn þegar þangað kom. Tvö öimur slys. Tvö slys önnur urðu í Reyk,ja yík í gær. Kona, Una Þorsteins- dóttir að nafni datt á gangstétt fyrir framan Hjarðarhaga við Reykjanesbraut og meiddist. Var talið að hún muni hafa muni hafa brotnað á hægri handlegg. Önnur kona hrapaði niður stiga í húsi við Mosgerði og meiddist í andliti. Báðar voru þær fluttar í slysavarðstofuna til aðgerðar. Braemer Castle, sem strandaði í Gibraltarvíkinni, með á 3 hundrað farþega ♦ innanborðs, var um skeið talið í mikilli hættu, og voru engin tök að ná farþegunum, sökum brims og storma, en skipið var ekki á hættuleg- I um stað, osr herma fregnir í morgun, að bað hafi náðst út, og muni geta haldið á- fram ferð sinni til London. Ofviðrið á Rivierunni. Ofviði'ið olli feikna tjóni á Rivierunni svonefndu eða Mið- jarðarhafsströnd Frakklands og í Monaco. Þar stöðvaðist Frh. á 6. síðu. Ránið á Keflavðkur- flugvelli upplýst. Ætluðu að lumbra á íslendingum. Rannsókn í árásarmálinu á Keflavíkurflugvelli fyrir s.I. helgi er nú að fullu upplýst, og hafa varnarliðsmennirnir fjór- ir allir náðst og hafa játað á sig verknaðinn. Þeir sitja nú allir í varðhaldi ob bíða dóms. Björn Ingvarsson lögreglu- stjóri á Keflavikurflugvelli skýrði Vísi svo frá í morgun að mennirnir íjórir hafi allir játað. Báru þeir það fyrir sig að tilgangur þeirra hafi upp- runalega ekki verið sá að fremja rán,' heldur hefðu þeir ætlað að lumbra á þessum ís- lendingum vegna-þess' að þeir hefðu átt að móðga vátnarliðið. Hafði' einrt annar vamarliðs-1 maður tjáð þeim, að þeir hefðu haft- méðganir í ftaíhmi, *og » tóku-þeir feTg. þá samán úm að hefna þessa/ög ^jtaka fslend- íngana - í gegn“. Þegar-til kom skildi hvorugur aðilinn hinn,.'ög .J þeim samskiptum komst kut- inn áloft. Vissu þeir þá ekki fyrri — að sögn þeirra — en þeir stóðu með jakka mannsins í höndunum og íslendingarnir voru á bak og burt. Munu þeir þá hafa hugsað sér að nota tækifærið og gera sér gott af ránsfengnum, og hirtu þess vegna peningana, sem í jakkanum voru. Þegar þeir náðust voru þeir búnir að eyða peningunum, þ. e. a. s. þeir voru búnir að skipta þeim í dollara. Allir munu þeir hafa verið ódrukknir. Eins og fyrr hefur verið greint fl’á, beindist grunurinn fyrst að einum ákveðnum manni; og var húsið, þar sem hann bjó umkringt áf lögregl-’ unni og rannsakáð, en hann tekin fastur. í því húsi bjuggu um 180 manns. Við yfii’heyu'zl- ur mun hann síðan hafa til- greint hverjir voru með honum, með fyri'gi'eindum árangri. Launþegar með iausa samninga. Flest verkalýðsfélög hafa nú sagt ’.’pp samninguni sínuni við atvinnurekendur og eru nú á ,.Iausum samningum“. Samningar ýmissa félaga runnu út 15. okt., en annara nú 1. des. Hafa öll félögin haldið fundi um uppsögn þeirra, og mun óhætt að fullyrða að flest Reykjavíkurfélögin og önnur suðvestanlands hafi samþykkt að segja upp samningum strax og þeir runnu út. Aðeins r.okkur félög eru á föstum samningum til áramóta og hafa ekki enn tekið afstöðu til fram- halds þeirra, en bíða hverju fram vindur. Mikið flóð á Akranesi. Frá fréttaritara Vísis. Akranesi í morgun. í gærkvöldi og í morgun var geysimikið flóð á Akranesi. Gekk sjór svo hátt á land að menn muna ekki annað eins hér í fjölda ára. Flóðhæðin var um það bil hálfum öðrum metra hærri en venjulega gerizt á stórstraums- flóði. Flæddi yfir báða hafnar- garðana og bryggju Sements- verksmiðjunnar. Ekki varð komist um bryggjurnar nema á stígvéium. Ekkert tjón varð í I höfninni af þessu flóði enda var I alveg ládautt. Ástæðan fyrir flóðinu mun vera austan storm ur á hafi úti og þrýsti hann sjónum inn í Faxaflóa, en auk þess er nú stórstreymt. Daglegar bílferðir til Akureyrar. Fra fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Hlýviðri hefur verið síðustu dægur á Akureyri og í nótt var hláka með 4 stiga hita. Samgöngur eru mjög góðar milli Reykjavíkur og Akureyr- 1 ar um þessar mundir og m. a. fara áætlunarbílar Norðurleiða h.f. þrisvar í viku frá Rvíkur I til Akureyrar, þ. e. á sunnudög um, þriðjudögum og föstudög- um, en daginn eftir héðan til ' Reykjavíkur. Verði færð og veðrátta hag- stæð fyrir jólin er ráðgert að halda uppi daglegum ferðum eftir því sem farþegar og flutn- óngaþörfin verðúr. . > r < í- Siggeir Sverrisson lieitir hann, pilturinn á myndinni. Hann er að taka við prófskírteini sínu frá yfirmanni bandarísks flug- virkjaskcla, bar sem hann hefur verið við nám undanfarna 14 mánuði. Siggeir er nú kominn heim aftur frá Bandaríkjunum. Hann er sonur hjónanna Sverris Jóhannessonar og Aðalheiðar Siggeirsdóttur, Silfurteig 1 í Reykjavík. — Þrír aðrir íslcnzkir piltar voru við nám í þessum sama skóla. Þeir eru Jóhann Erlendson, Sörlaskjóli 3, Elías Egill Guðmundsson, Freyjugötu 10 A og Páll Júlíusson, Birkimel 6. Véfaprófun viö Efra-Falf hefst um miðjan mánuðinn. Nýtt rafmagn væntanlegt fyrir jól. Við gerum okkur vonir um’ rafmagnið nýja frá raforku- verinu við Efra-Falli fyrir jól, hvort sem það nú tekst, sagði Steingrímur Jónasson raf- magnsstjóri við Vísi í morgun. En allt bendir til þess, að ( hægt verði að setja vélar í gang fyrir miðjan mánuðinn, og verða þá hafnar prófanir, sem standa munu yfir 7—10 daga. Þó er aðeins um að ræða aðra vélasamstæðuna, eitthvað; dregst lengur, að hin geti kom-j izt í gang. En við erum líkaj hólpnir með álag, þegar hin: fyrri er komin af stað. Verkið hefur sótzt betur en flestir gerðu sér vonir um, eftir hið mikla ólán sem henti í sumar eð leið. Tíðarfarið í haust og það sem af er vetrar hefur vei'ið okkur hagstætt eftir því sem orðið gat. Að vísu var allmikið um rigningar í haust, en hvorki þær né frost hafa hamlað steypuverkinu svo, að því er svo að segja lokið. En mikið er enn ógert, og munu Verktakar ekki hafa lokið sínu verki fyrr en í sumar. Smíða- vinna er talsverð eftir, og einnig einangrun og klæðning á pípum og fleira og múrhúð- un á gólfum og fleira innan- húss, sem að sjálfsögðu verður haldið áfram hindrunarlaust unz lokið er. Sliigeru Yoshicfa, fimm sinh- um forsætisráfcheÍTa Japáns, er áein 'stendtil- í heimsókn í Sidney, ÁstPálíii; MíkH síldveiði í Miðnessjó í nótt. Bátarnir fengu vont veður. Frá fréttaritara Vísis. J Akranesi í morgnn. Allir reknetabátarnir voru með net sín í Miðnessjó í -nótt. Voru þar einnig flestir bátár úr öðrum verstöðvum. Þrátt fyrir vont veður lögðu flestir netin ■og fengu góðan afla. ■ - 'Fyrstu bátarnir vorb komnir ^ til Akraness snemma t-morgun og var aflinn frá 30 tillMO tunn- [ úi-á bát. Flestir vórú með uhv 90 tunnuí af féitri og •góðri sölt- uharéíld. • Vegnti veðiw var ,ékki hægt að hrista út netunum. Telja sjómenn að ef hægt hefði verið að láta reka, hefði fengizt mokveiði í nótt, því mik ið virðist vera af síld í Miðnes- sjó. Sildin sem bátarnir hafa komið með úr Miðnessjó úr tveimur síðustu róðrum er stór og feit og fer næstum öll tii söltunar. í gær báryst til Akra- ness 700 tunnur af 10 bátum," Þp var búið að ’sáita í 3H20 turtrtur a Akrapesi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.