Vísir - 02.12.1959, Page 10

Vísir - 02.12.1959, Page 10
I 10 VlSIB Miðvikudaginn 2. desember 1951 Uivian do ornel S P N N E N petlui S A K A M Á L A S A G A „Lokað! Mér þætti gaman að ganga þangað upp og ganga í kringum húsnð. Þegar eg virði húsið fyrir mér er eg alltaf kom- inn aftur heim til Grikklands.“ Hún sagði ekkert og þau voru þögul aftur á veginum til Cannes. Hún stöðvaði bílinn við Napoleonsgistihúsið og horfði út á sjóinn. „Mig langar ekki að fara að hátta.“ Hr. Pharaoh leit á hana og hugur hans var fjarri. „Eg hef sal uppi. Við getum farið upp og setið á svölunum.“ Þau fóru upp í salinn og hún sagði. „Eg verð að fara og hressa upp á andlitið á mér. Eg verð ekki augnablik. Eg er á sama gólfi og þér.“ Á meðan hún var í burtu fékk hann sér flösku af kampavíni og vínið beið í glösunum þegar hún kom aftur. Hún kom og sat hjá honúm á svölunum. Hr. Pharaoh lyfti glasi sínu kurteislega, en hann var samt ekki viðlátinn. „Segið mér frá skipunum yðar.“ Hr. Pharaoh andvarpaði og því næst leit hann á hann og hrissti höfuðið. „Eg er hræddur um að Olga hafi eyðilagt kvöldið.“ „Olga eyðileggur öll kvöld fyrir yður, ef þér losið hana ekki úr huga yðar.“ „Það er ekki Olga. Hún er dauð fyrir mér. Það eru perlurnar." „Perlurnar verða sjúkdómur í huga yðar ef þér gleymið þeim ekki.“ „Eg ætla ekki að gleyma þeim.“ „Þá verðið þér að gera eitthvað í rnálinu." „Hvað get eg gert? Tún stal þeim og — hvað munduð þér gera? „Stela þeim aftur.“ ,Hr Pharaoh hikaði; því næst hló hann. Það var í fyrsta sinn sem hann hafði hlegið þetta kvöld. „Hvað á eg að gera? Brjótast inn í skrauthýsið á meðan hún sefur?“ En Francine hló ekki með honum. „Nei. Fá einhvern til að stela þeim?“ ■ Hr. Pharaoh leit á hana dimmum furðu lostnum augum. „Eg held þér séuð að gera að gamni yðar.“ „Það er eg ekki. Ef Shebaperlurnar um háls Olgu eiga eftir að yerða yður áhyggjefni alla ævi, þá verðið þér að fá þær aftur.“ „Þér eruð brjáluð. Hvern ætti eg að fá til að stela þeim? Eg þekki enga innbrotsþjófa.“ „Það geri eg.“ ■ Þetta var eins og köld demba fyrir hr. Pharaoh. Hann beitti nú rödd sinni varlega og horfði ekki á hana. „Hvernig þekkið þér innbrotsþjófa?" „Eg kom aftur seint til vinnu fyrir ameríska húsbóndann minn og eg fann innbrotsþjóf viö peningaskápinn.“ Hún þagnaöi andarta.k og andvarpaði. „Eg leyfði honum að fara. Hann haföi ekkert tekið." Hún þagnaði af nýju. „Hann lét mig hafa nafnið sitt og sagði að ef eg þarfnaðist einhvérn tíma greiða, þá skyldi eg leita til sín.“ Nú leit hún á hr. Pharaoh. „Eg mætti honum i morgun á skemmtigöngustaðnum hérna í Cannes. Og hann lét mig hafa heimilisfang sitt. Hún dreypti á kampavíninu. „Vilj-ið þér fá perlurnar?" Hr Pharaoh stóð upp gekk um í herberginu og kom svo aftur út á svalirnar. „Eg get ekkí verið viðriðinn innbrot.“ „Hann mun aldrei gefa upp nafn yðar þó að hann verði grip- inn.“ „Er yður alvara með þetta?“ Hönd hennar snerti hans hönd og var eins svöl eins og vötn Shalimar. „Maður sem er fuilur af gremju er gamall maður. Þetta perluband mun hanga um hálsinn á yður alla æfi og kyrkja yður að lokum.“ Hún gerði honum hverft þarna á svölunum. Hann vissi vel að hann hafði komið til Cannes til þess að vera í nánd við Sheba- perlumar. Perlubandið gerði það að verkum að hinn mikli hr. Pharaoh hegðaði sér eins og barn eða gamall maður. — Silkiföt hennar hvísluðu í tunglsljósinu. Rödd hans svaraði hvíslinu. „Hvenær eigum við að setja hann í vinnu til þess að stela minum eigin perlum handa mér?“ Hún stóð upp og ilmurinn af henni flaut í loftinu. Eg mun hitta hann á morgun. Og svo hringi eg yður upp.“ Hr. Pharaoh kyssti á hönd henni þegar hann bauð henni góða nótt. Hr. Pharaoh stökk út úr rúminu morguninn eftir, í sólglituðu herberginu. Hann æfði sænska leikfimi á gólfábreiðunni. Hann fékk sér kalda fosslaug. Hr. Pharaoh gætti þess að vera seigur og reiðubúinn fyrir daginn. „Eg sveitist á hverjum morgni og hrek þannig draumana á burtu,“ sagði hann einu sinni við Izak. En þegar hann var að drekka kaffið sitt með bollunum, mundi hann eftir einkennilegum draumi, sem hann hafði dreymt um Francine um nóttina. Hann hafði séð hana á gangi í sítrónu- lundi á Olympíuhæðum og hún bar perlurnar einar. Hann fór í síðbuxur og „leikskyrtu og stóð á svölunum. Hann sá Francine koma út niðri fyrir, hún var í rauðum stuttbuxum og bláum bol, fór inn í bíl sinn og ók eftir Croisette. Hann hló þegar honum flaug í hug áætlunin um að stela perlunum. Hann ætlaði að skoða teikninguna frá Hamborg af olíuskipinu svo sem klukkustund og svo ætlaði hann að fá sér sundsprett. En Shebaperlubandið hékk á stafni hins volduga tankskipi. sem Slidinger. hafði teiknað. Hr. Pharaoh bölvaði hei’msku sinni. Síminn hringdi of hr. Pharaoh greip heyrnartólið bölvandi. Röddin, semh talaði var svöl og ákveðin. ..Vilduð þér koma út að synda? Eg bíð í bílnum eftir tíu minútur." Hún beið í bílnum og setti bílinn í gang. Hún beygði út á skemmtigangveginn. „Hvert erum við að fara?“ „Út á ströndina við Golíe-Juan. Við höfum stefnumót þar.“ Hr. Pharaoh fannst eins og han nstæði á valtara og yrði að láta skeika að sköpuðu. „Er þetta — um perlurnar?“ Hún kinkaði kolli og hann gat heyrt andardrátt hennar og liann fann ilmin af sítrónulundinum á Olympstindi. „Eg ætti að hafa dálítinn tíma til að hugsa um þetta.“ „Ef svo er, verð eg að aka yður aftur til Napoleons-gistihússitrs — og fara á stefnumótið ein.“ Það var skarpt ljós i augum hennar „Akið áfram,“ sagði hr. Pharaoh og hann íhugaði þá fullvissu að hann væri á- leiðinni til að hitta þjóf og.með stúlku, sem hann hafði fyrst kynnst í gærkvöldi. 4 KVðLDVÖKUKNI OöWJOðL A öm «ÖUM! v ■ ■ ® -AuaturstraBti- E. R. Burroughs - TARZAN - 311» Við viljum rannsaka land- ] ið sem liggur handan For- ; [ boðnu fjalla. Þessi á sem fellur neðanjarðar hlýtur að renna þangað. Tarzan kink- aði kolli, Get eg orðið ykkur til aðstoðar, en segið mér, hefur ekki einhver flogið í flugvél yfir þetta svæði? — ÚHEV HAVEJ' RLEPLIEt7 SUTTON. '‘BUT THSV CAKÍT SEE BELOW— THEKE IS AM ETERINAL AAIST 1 Jú, að vísu, sagði Sutton, en það hefur ekki sézt hvað þar er, því landið er hulið eilífu mistri. Það var syfjaður hermaður, sem kom í þjónustudeild í Washington. Þar voru klefar, sem létu af hendi ýmislegt. Einn klefinn hafði gjafa-að göngumiða, annar hafði kaffi, einn hafði mat og einn hafði rúm. Og þessi drengur vildi fá rúm í snatri. Hann fór í að- göngumiðaklefann af misgán- ingi. „Einn miða,“ sagði hann og átti við rúm. „Viltu ekki fá stúlku með þér?“ sagði afgreiðslukonan, sem var móðurleg kona. Ha! þetta var vandamál. „Þú getur fengið það ef þú vilt,“ sagði konan og deplaði augunum framan í hann. „Þú skemmtir þér betur ef þú gerir það.“ Kaupi gull og sílfur Skipuleggjum ferðalög. Útvegum hótelpláss. ■ Seljum farseðla. Ferðaskrifstofa ríkisins. Sími 1-15-40. UÓSMYNDASTOFA Annast allar myndatökur innanhús og utan PÉTUR THOMSEN kgl. hirðljósmyndari. Ingólfsstræti J. Sími 10297. NÝKOMIN stór sending af finnskum aluminium pottum, kötlum, skálum o. fl. — Fjölbreytt úrval. — Hagstætt verð. unaení BtYHJAVÍH

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.