Vísir - 23.12.1959, Side 6
Vf SIR
Miðvikudaginn 23. desember 1959
ITISXR
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
y Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði,
kr. 2,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Þorsteinn Þorsteinsson
fyrrv. sýsiumaður 75 ára.
í dag verður Þorsteinn Þor-
steinsson fyrrv. sýslumaður
Dalamanna 75 ára.
Þorsteinn er Mýramaður að
ætt og uppruna, fæddur að
Arnbjargarlæk í Þverárhlíð og
er bróðir Davíðs stórbónda þar,l
landskunns manns. Þorsteinn
var settur til mennta í æsku og
að stúdeqtsnámj loknu lagð'i
hann stund á lög. Hann var
fyrst settur sýslumaður í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu 1914,
seinna í Norður-Múlasýslu og
Árnesssýslu en lengst af verið
sýslumaður i Dalasýslu, eða á
fjórða tug ára. Þorsteinn hefur,
að sögn þeirra er til þekktu,
jafnan verið vinsælt yfirvald,
friðsemdarmaður mikill og
gerði sér meira far um að jafna
deilur manna á meðal heldur
en að kveða upp úrskurði eða
dóma.
Þorsteinn varð brátt atkvæða
maður i héraði og lét sig lands-
mál miklu skipta. Sat hann
iengi á þingi af hálfu Sj.álf-
stæðisflokksins; naut þar sömu
vinsælda og virðingar sem hann
naut i heimahéraði. Var Þor-
steinn kjörinn í ábyrgðarmikl-
ar nefndir og til annarra starfa
þar sem mikili vandi hvíldi á
herðum hans og þótti gefast
vel. Hér skal sá ferill hans
ekki rakinn frekar.
Þorsteinn hefur gegnt stóru
Framh á 7. siöu
5E2S
^JÁátí&'m mi tía.
Enn ganga jólin í garð. Enn einu sinni munu málm- \
Kreinar klukkur um hmn gjörvalla kristna heim boða
mestu hátíS ársins, — hátíð ljóssins og friðarins. Og
á fjölmörgum þjóðtungum mun verða sunginn fagnað-
arsálmunnn, sem vér þekkjum undir nafninu ,,Heims
um ból“. í kirkjum landsms verður þess rninnzt, að í
lítilli borg í fjarlægu landi hafi frelsari mannkynsins
fæðzt fyrir nær tuttugu öldum. Nú mun íæðingarhátíð
litla barnsms, sem var reifað cg lagt í jötu endur fynr
löngu, verða haldin hvarvetna þar sem kristmr menn
koma saman. Enn einu sinni mun jólaljósið loga, stillt
og skært.
Oft heíir verið á það minnzt, ekki sízt hin síðari
ár, að jólahátíðin sé að breytast í kauptíð, mesta kaup-
sýslutíma ársms. Hm forna lotning fynr jólunum sé að
dvína, hin dulúðga, Ijúfa helgi [xiki um set fynr gróða-
sjónarmiði nútímans. Vel má vera, að þetta hafi við
rök að styðjast. Víst er um það, að jól nægjuseminnar,
jól tólgarkertanna og laufabrauðsms eru horfin í tím-
ans skaut og koma aldrei aftur. Rafmagnsljós nýja
tímans endurspeglast miklu fremur í gljáfægðum ís-
skápum, — uamast í bláum barnsaugum, sem glödd-
ust yfir einu tólgarkerti og laufabrauði.
En eru jólin þá eingöngu kauptíð, annir og um-
stang? Hafa jólin enga þýðingu fyrir oss nútímamenn?
Hver svari fyrir sig, en sennilegt er þó að þrátt fyrir
þotur og kjarnorkuver, vísindi, gróðafíkn, og allt það,
sem hátt ber í lífi nútímamannsms, orki jólin enn á
flest fólk með öðrum, áhrifamein og hugljúfari hætti
en nokkur önnur hátíð ársins.
Sem betur fer höfum vér ekki gleymt að gleðjasi
þegar klukkurnar hnngja -inn hátíðina miklu. Vér
finnum hið innra með oss, að þessir dagar eru ekki
eins og aðrir dagar. Og emhvern veginn er það svo, að
um jólin býr með öllum mönnum meiri góðvild og hlý-
hugur en aðra daga ársins. öll hljótum vér að hafa
fundið til þessara kennda í þessan miklu hátíð í dimm-
asta skammdegmu.
Það er sagt, að jólm séu og eigi að vera hátíð barn-
anna og heimilanna. Þetta er rétt. Jólm eru fyrst og
fremst hátíð heimilanna í borg og byggð. Og ekkert
hreysi er svo fátæklegt á þessu iandi, að menn geri
sér þar ekla emhvern dagamun. En jólin eru samt hátíð
fullorðna fólksins, ekki aðeins barnanna. Jólin eru
hátíð mannkynsms alls.
Senn óska menn hver öðrum gleðilegra jóla. Engin
kveðja er hlýlegn og innilegri, en einmitt þessi tvö
orð: Gleðileg jól! Og þ essi kveðja er ævmlega fram
bonn af heilum hug. Að baki slíkri kveðju felast engin
svik, ekkert undirferh. í þessan kveðju felst máske
leyndardómur hinnar miklu hátíðar: Góðvild til
annarra.
Vísir sendir öllum landsmönnum, nær og fjær,
innilegar jólaóskir sínar og tekur undir hina fögru
kveðju:
! Gleðileg jól!
lu; Bspíiphssj
Mst in firöinfjn
Strandgötu 28.
Símar 50-159 — 50-224.
Giæsilegar iólagiafir:
HRÆRIVÉLAR Kitchen Aid, stærri.
Verð kr. 4,650,00.
Kitchen Aid, minni. Verð kr. 2,960,00.
SAUMAVÉLAR Köhler zick-zack, -
Verð kr. 5,715,00.
Köhíér, zick-zack m. autom. Verð
kl. 6,400,00.
SAUMAVÉLAR Hugin, rafknúnar.
Verð kr. 3,683,00 m. zick-zack fæti.
RYKSUGUR Holland Electro.
Verð kr. 1.852,00.
VÖFFLUJÁRN vestur-þýzk.
Verð kr. 499,00.
Ailt heimsþekkt
vörumerki.
yjung
6 ljóðskáld,
bók cg talplata:
Einar Bragi, Hannes
Pétursson, Jón Óskar,
Matíhías Joiiannessen,
Sigurður A. Magnússon,
Stefán Hörður Grímsson.
Útgáfuna annaðist Eiríkur Hreinn Finnbogason
INGIMAR ERLENDUR SIGURÐSSON:
SUNNANHÓLMAR. — Fyrsta bók gáfáðs skálds, sem
vakið hefur á sér athygli fyrir snjailar smásögur og ljóð
í tímaritum.
A 1 m e n n a b ó k a f é I a g i ð.
★