Vísir - 30.12.1959, Qupperneq 7
Miðvikudaginft 30. desember 1959
V í S IR
Brotizt inn á
2 stöðum.
I fyrrinótt var innbrot fram-
ið hjá Sindra við Borgartún.
Var það framið með þeim
liætti að brotin var lítil rúða
í hurð og hurðin síðan opnuð
með því að seilst var eftir
smekklásnum. Að því búnu
voru sprengdar upp tvær
skrifstofuhurðir og mikið rótað
og tætt til eftir að inn var
lcomið. Meðal annars hafði
v'erið rótað upp úr öllum skúff-
um í ieit að verðmætum, en
elcki hafði sézt í morgun að
r.einu hafi verið stolið í skrif-
stofunum. Aftur á móti var
verkfærakassa með allskonar
verkfærum og varastykkjum
stolið úr brotajárnageymslunni
þar fyrir utan.
Sýnilegt var að innbrot þetta
hafði verið framið fyrrihluta
riætur, eða áður en snjóaði, því
för sáust engip.
Um jólin vatí innbrot framið
á Laugavegi 10. Það var framið
með áþekkum hætti og hjá
Sindra i nótt, að brotnar voru
rúður í tveim hurðum og seilst
eftir smekklásnum. Farið var
fyrst inn í rakarastofu og sið-
an úr henni upp á loft. í risinu
ei mannlaus íbúð og hélt þjóf-
urinn þangað í leit að verð-
mætum, en ekki sást að neinu
hafi verið stolið. Hinsvegar
var miklu rótað til og eitt-
hvað skemmt.
Átök f skipi.
í fyrrinótt kom til átaka í
togara sem liggur í Reykjavík-
urhöfn. Drukknir menn lentu
þar í ryskingum og fór lög-
x-eglan með einn mann til lækn-
isaðgerða en tveir voru fluttir
í fangageysmlu.
líkið á kú.
í fyi'radag var ekið á kú á
Borgarúni. Voru menn að leiða
kúna til slátrunar en bifreið
sem bar að flýtti fyrir dáuða
bennar, því bíllinn ók á hana
og beinbraut. Varð að lóga
henni þar á staðnum.
-- 41 -
Bfökkumenn í
bardaga.
Ennþá berjast blökkumenn-
irnir í Afríku, eins og í gamla
daga, með eitruðum örvum,
spjótum og eldgömlum lúður-
byssum, — en nú eru það taldar
heimsfréttir, því nú berjast þeir
út af stjórnmálum.
Baluba ættflokkurinn er að
berjast við Lulua flokkinn,
vegna þess að Balubar eru fjöl-
mennari, og þykjast ætla að
vinna kosningar, sem standa
fyrir dyrum. Luluum líkaði það
illa, og fóru að skjóta á Bal-
uba, og allt komst í bál og
brand. Konungur Lulua heitir
Mwanangana Kalamba Muk-
enge.
Akureyrartogarinn Slcttbak
ur kom 21. þ. m. af veiðum
með góðan afla, eða um 200
lestir af þorski eftir 11 daga
útivist.
Svalbakur kom af veiðum 18.
þ. m. með 140 lestir og Harð-
bakur þann 15. þ. m. með 126
tonn. Þetta er yfirleitt þorskur
og fer allur í hraðfrystingu.