Vísir - 30.12.1959, Side 10
VlSIR
Miðvikudaginn 30. desember 1059
sem festist í minni. Hjá þessum
mönnum verða lýsingarorðin
ekkert flatt hversdagsmál og
þaðán af síður lesmál, heldur
tala þau sínu eigin rnáli. Orðin
erif nefnilega 'hiuti af mann-
in.um.
T JARIMARBÍÓ:
Danny Kaye og
hljómsveit.
Það mun hafa komið mörgum
óvænta, er séð hafa nýársmynd-
ina í Tjarnai'bíó, ^að hér er ekki
aðeins um að ræða kvikmynd,
sem hin bezta dægrastytting er
að, vegna afburða hæfileika
Danny Kaye sem skop- og
skemmtileikara, að Louis Arm-
strang er þarna meðleikari'
hans, og fjölmörg ágætis dægur-
lög þar á ofan — heldur er í -
raun og sannleika um mynd að '
ræða, sem er annað og mikið
meira en sýriist*í fyrstu, því að
hún reynist í sannleika veiga-!
mikil, og hefur að geyma gull- '
fögur vel leikin og eftírminni-
lega atriði, og nefni eg þar sem
dæmi er Danny Kaye syngur
„The Five Pennies“ við litlu
telpuna sína, en mörg önnur
mætti nefna. — Barbara Bel
Geddes er fögur og geðþekk, og
leikur hennar, og einnig telpn-
anna sem leika dóttur hennar,
einkum er Susan Gordon, sem
leikur hana á 6 ára aldri, minn-
isstæð. Mikil aðsókn er að
kvikmyndinni og verður hún
án vafa sýnd lengi. — 1.
—-------
Vaxandi atvinnu-
leysi í USA.
Atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um jókst um 1.191.000 í nóvem-
ber, frá fyrra mánuði.
Atvinnulausir eru nú sam-
tals þar 3.670.000, sem er næst-
hæsta tala í nokkrum nóvember-
mánuði síðan heimsstyrjöldinni
lauk. Þrátt fyrir það eru taldir
atvinnuleysingjar aðeins þeir,
sem eru í atvinnuleit.
Búist er við að í janúar eða
febrúar aukist tala atvinnuleys-
ingja upp í rúmar fjórar mill-
jónir.
Stjórnarstríð gegn
áfengi.
Ungverjaland er þriðja land-
ið austan járntjalds, sem tekur
upp sérstaka baráttu gegn á-
fengisnautn. Hin löndin eru Pól-
land og Búlgaría.
Ráðstafanirnar, sem stjórnar-
völdin grípa til, verða sennilega
þær, að fækkað verði áfengis-
búðum og vínveitingastofum og
slíkum stofum verði gert skylt
að loka fyrr en verið hefir.
Nepzava, sem er verkalýðs-
blað, hefir ksýrt frá rannsókn,
sem leitt hefir í ljós, að 30 af
hundraði þeirra, er nýlega voru
lagðir inn á fjögur geðveikra-
hæli, hafi verið áfengissjúkling-
ar.
• Norska Stórþingið liefur
lækkað verð á innfluttu
skozku whiskýi og nokkrum
hinna dýrari léttu vínteg-
tegunda.