Vísir - 30.12.1959, Page 11
MíSvikudág'mh 30. degfeMb‘ér l'956
■i - ■ ■ iii. i ......i r.-íi.
vfs'rft
ÚTVARPIÐ UM ÁRAÍMÓTIN:
Gamlársdagur:
8.00—10.00 Morgunútvarp. —-
12.15—13.15 Hádegisútvarp. —
12.50—14.00 „Á frívaktinni“,
sjómannaþáttur með nýárs-
kveðjum (Guðrún Erlendsdótt-
ir). 15.00—16.30 Miðdegisút-
varp. 16.30 Nýárskveðjur. —
18.00 Aftansöngur í Dómkirkj-
unni (Prestur: Séra . Óskar J.
Þorláksson. Organleikari: Dr.
PPáPll ísólfsson). 19.10 Tón-
leikar: a) Söngfélag verkalýðs-
samtakanna syngur undir
stjórn dr. Hallgríms Helgason-
ar. b) Frá Musica sacra tónleik-
um í Dómkirkjunni 8. okt. s.l.:
Lög eftir Jónas Tómasson. —
20.20 Ávarp forsætisráðherra,
Ólafs Thors. 20.40 Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur; Herbert
Hriberschek stjórnar. 21.10 Lög
ársins. 21.40 „Höldum gleði
hátt á loft“: Tryggvi Ti-yggva-
son og sexmepningar hans
syngja gömul alþýðulög. Þórar-
inn Guðmundsson leikur undir
á pianó. 22.00 Veðurfregnir.
„í gamni og græzkulausri al-
vöru“: Leikþáttur og vísna-
söngur. 23.00 Harmonikuhljóm-
sveit Geoi'gs Kulp leikur. 23.30
Annáll ársins (Vilhjálmur Þ.
Gíslason útvarpsstjóri). 23.55
Sálmur. — Klukknahringing.
Áramótakveðja. — Þjóðsöngur-
inn. — (Hlé). — 00.10 Danslög,
þ. á m. leikur danshljómsveit
Björns R. Einarssonar. Söngv-
ari: Ragnar Bjarnason — til
kl. 02.00.
(Dagskrá útvarpsins að
öðru leyti hafði ekki borizt
blaðinu).
Nærfatnaðui
karlmanna
•g drengja
fyrlrliggjandl
LH.MULLER
Sjálfsliir.lestingar í
mótmælaskyni.
Átta fangar í Ivy Bluff fang-
elsinu í Raleigh í Bandaríkjun-
um, hafa sjálfir valdið á sér
meiðslum til þess að vekja at-
hygli á sér.
Þrír þeirra skáru hluta af
eyrum sínum með rafmagnsá-
haldi, sem þeir náðu í í smíða-
verkstæði ’fangelsisins, og hinir
fótbrutu sig með stórum
hamri. Kröfur þær, sem fang-
ar bera fram eru á þá leið, að
þeir fái sjónvarpstæki, veitinga-
stofu og betri mat. Fangelsis-
stjórinn hefir lofað að taka mál-
ið til athugunar.