Vísir


Vísir - 11.01.1960, Qupperneq 7

Vísir - 11.01.1960, Qupperneq 7
VISIR Mánudaginn 11. janúar 1960 Mánudaginn 11. janúar 1960 VÍSIR Þjcðhættuleg stjórnarandstaða. Það er í senn broslegt og hryggi- legt að lesa samsetninginn í Tímanum um stefnu ríkis- stjórnarinnar og væntanleg- ar viðreisnartillögur. Alltof margir íslenzkir stjórn- málamenn og aðrir, sem um stjórnmál rita, virðast telja það vænlegast til fylgis fyrir flokka sína, að þeir hegði sér eins og skemmdarverlca- flokkar, þegar þeir, eru í stjórnarandstöðu. Varast er að láta nokkru sinni falla viðurkenningarorð um verk eða viðleitni þeirra, sem með völdin fara, þótt allir heil- vita menn sjái, að stjórnar- andstaðan liefði oft og tíðum reynt nákvæmlega hið sama, ef hún hefði haft stjórnar- taumana. Þó keyrir fyrst um þverbak þegar ábyrgðarleysi stjórn- arandstöðunnar gengur svo langt, að hún fer að segja 1 fyrir um úrræði ríkisstjórn- arinnar áður en þau koma 1 fram, og lýsa þeim á þann hátt, sem líklegastur er til þess að skapa óánægju meðal almennings að óathuguðu máli. Þótt lýðræðisflokkarnir þrír hafi að ýmsu leyti ólíkar stefnur, greinir þá í höfuð- atriðum ekkert á um þær i leiðir, sem nú eru nauðsyn- legar til þess að bjarga þjóð- inni úr þeim vanda, sem hún er stödd í. Væri Framsóknar- flokkurinn í stjórn með hin- um tveimur, myndi hann á- reiðanlega telja það nauð- synlegt sem hann lætur mál- gögn sín nú fordæma. Þetta er meira ábyrgðarleysi en svo, að- við verði unað. Fjöldi kjósenda í öllum flokk- um fyrirlítur svona baráttu- aðferðir, hver sem beitir þeim. Og verði haldið áfram á þessari braut, hlýtur að reka að því fyrr eða síðar, að ábyrgir menn í flokkun- um leysi þá foringja frá stjórnmálastörfum, sem slík- um vinnubrö'gðum beita. Þegar vinstri stjórnin hrökkl- aðist frá völdum, lýsti for- sætisráðherra hennar, Her- mann Jónasson, yfir því í á- heyrn alþjóðar, að ný verð- bólgualda væri skollin yfir þjóðina, að ríkisstjórninni væri ekki samstaða um nein úrræði og yrði hún því að segja af sér. Minnihlutastjórn Alþýðuflokks- ins gerði tilraun til að stöðva þessa öldu, og henni tókst það í bili. Forustumenn Framsóknarflokksins og mál- gögn hans vilja þó eklci við- urkenna að nokkur árang- ur hafi orðið af viðleitni þeirrar stjórnar, heldur hafi ástandið þvert á móti versn- að í valdatíð hennar. Vill þá ekki Tíminn svara þessari spurningu? Er ekki þjóðinni lífsnauðsyn á raunhæfum aðgerðum nú þegar, fyrst ný verðbólgu- alda var skollin yfir þjóðina í árslok 1958 og ástandið hefur enn versnað síðan? Var það ekki síðasta verk Hermanns Jónassonar í ráðherrastólnum, að fara fram á það við verkamenn og fastlaunafólk, að það gæfi eftir allmörg vísitölustig af kaupi sínu meðan verið væri að finna leiðir til þess að stöðva holskefluna? Þá var það líísnaitðsyn! Þá hét þetta ekki á máli Tím- ans „skerðing á lífskjjörum , almennihgs, til þess að gera , þá ríku ríkari“. Nei, þá sögðu Framsóknarm. að það væri þjóðinni lífsnauðsyn, til þess að forða henni frá fjárhags- legu hruni. Hvefs vegna breytist þetta svona, eftir því, hvort Framsóknarflokk- urinn er í ríkisstjórn eða ekki? Vel má vera að Tímanum og Þjóðviljanum takist með skrifum sínum að æsa fylg- ismenn sína til andstöðugegn væntanlegum úrræðum rík- isstjórnarinnar. Engum kem- ur á óvart þótt kommúnistar reyni það. Þeir vinna þar í samræmi við sínar áætlanir. En flokkur, sem þrátt fyrir allar sínar syndir, fyrr og síðar, hefur þó verið talinn þjóðlegur flokkur, ætti að hugsa sig tvisvar um áður en hann fylkir liði með kom- únistum í landráðastarf- semi þeirra. Meðan einhver lýðræðisflokkurinn fellur fyrir þeirri freistingu, að vinna sér stundarfylgi með svona óheiðarlegri stjórnar- andstöðu, og gengur þannig beinlínis í þjónustu komm- únista, er vonlaust að nokkr- ar viðreisnartilraunir heþpn- ist. Allir stjórnmálamenn í lýð- ræðisflokkunum vita það — Framsóknarmenn alveg eins og aðrir — að efnahagslegt sjálfstæði og frelsi íslenzku þjóðarinnar mn ófyrirsjáan- lega framtíð er undir því Frh. á 11. síðu. VESTRÆN SAMVINNA. — Tæknilegri og efnaliagslegri að- stoð við þurfandi þjóðir, bæði þær sem liart höfðu orðið úti í síðustu heimsstyrjöld og í vanþróuðum löndum, var lialdið áfram. Hafin voru skipti milli þjóða á stúdentum, kennurum, verkamönnum, vísindamönnum, félagsniálaleiðtogum og lista- og menntamönnum. — Hér er Iandbúnaðarsérfræðingur frá Bandaríkjunum að ræða jarðvegsbætur við bændur og leiðtoga í Etavvah á índlandi. JARÐFRÆÐIRANNSÓKNIR. — Á alþjóða jarðeðlisfræðiárinu svonefnda frá 1. júlí 1957 til 31. des. 1958, voru gerðar ein- hverjar víðtækustu alþjóða vísindarannsóknir, sem um getur. f þeim tóku þátt 55 þjóðir og helztu viðfangsefni voru höf og jöklar, veðurfarið, heimskautaísinn, geimgeislar, jarðsegul- magn, sólblettir, norðurljós og rafhvolfið. Hér sést, er verið er að mæla hitastig og samsetningu sjávar Norður-Atlantshafs. GEIMRANNSÓKNIR. — Mikil breyting varð á þessum ára- tug á afstöðu mannsins til alheimsins — rannsóknir úti í himin- geimnum voru ekki lengur draumur heldur veruleiki. Ný orð eins og Sputnik, Vanguard, Explorer, Pioneer og Astronaut komust inn í tungu manna um heirri allan, og gömul orð í sam- bandi við stjörnu- og geimvísindi fengu raunhæfari merkingu. Lögð voru á ráð um að senda menn út í geiminn, koma upp móttöku- og sendistöðvum á brautum liimintunglanna, reyna að lenda á tunglinu og öðrum stjörnum. Á þessari mynd sést tunglið á lofti um leið og Thor-eldflaug er skotið upp frá Canaveralhöfða í Flórída. AFVOPNUN. —. Afvopnunarmálin voru alltaf öðru hverju á dagskrá allt þetta tímabil. Hér sjást tæknisérfræðingar átta vestrænna ríkja og Sovétríkjanna á fundi í Genf, þar sem rætt var, hvernig koma ínætti upp um broí á samningum um stöðvun kjarnorkutilrauna. ÓKYRRÐ í LEPPRÍKJUNUM. — Mikið bar á ókyrrð og óánægju víða í leppríkjum Sovétríkjanna í Austur-Evrópu. í Austur-Þýzkalandi og Ungverjalandi varð sovézkt herlið í skriðdrekum að grípa í taumana til að bæla niður uppreisn fólksins. Á myndinni sjást tveir Austur-Berlínarbúar á Leipzig- torgi kasta steinum að sovézkum skriðdrekum á fyrsta degi uppreisnarinnar þar í borg hinn 17. júní 1953. FLÓTTAFÓLK. — Straumur flóttafólks frá löndum komm- únista hélt áfram óslitið allt þetta tímabil. Hámark náði straum- Virinn árið 1957, þegar uppreisnin í Ungverjalandi hafði veri® bæld niður. Hér eru Ungvcrjar á flótta yfir til Austurríkis. ÁSÆLNI KOMMÚNISTA. —- Ker Sameinuðu þjóðanna var í fyrsta sinn beitt til varnar frjálsu landi, en kommúnistar í Norður-Kóreu réðust inn í Suður-Kóreu í lok júní 1957 og nutn til þess Sovét-Rússlands og kínverskra kommúnista. Síðar áttu cnnur ríki einnig eftir að kenna á yfirgangi kommúnista, eins og Vietnam, Quemoy, Matsu og Tíbet, þótt ekki kæmi þá til aðgerða Sameinuðu þjóðanna. Hér sést harm'þrungin móðir sitja með barn sitt í fanginu í rústunum í Seoul í Suður-Kóreu, er herlið Sameinuðu þjóðanna hafði náð borginni aí'tur á sitt vald. KJARNORKAN — Merkum áföngum var náð á þessum áratug í sambandi við notkun kjarnorkunnar í þágu friðar og framfara, og alhjóða kjarnorkustofnun var sett á laggirnar. Miklar framfarir urðu í Iandbúnaðar- og læknavísindum, og í iðnaði voru teknir í notkun kjarnaofnar, sem framleiða orku til að lýsa borgir og knýja skip. Hér á myndinni er sýnt, hvernig sjúklingur er lagður undir kjarnaofn við lækningu heilaæxlis. SAMEINUDU ÞJÓBIRNAR. — Vegur og virðing Sameinuðu þjóðanna hefur sífellt farið vaxandi, frá því er 46 þjóðir undir- rituðu stofnskrá þeirra í San Francisco fyrir tæpum 15 árum. Meðlimum þeirra hefur fjölgað, og nú eru þær ekki lengur aðeins vettvangur samningaumræðna og formlegra yfirlýsinga, Iieldur liafa þær komið á fót öryggissveitum, sem hafa það hlutverk með höndum að koma á friði, þar sem bardagar brjót- ast út, og viðhalda honum. Á myndinni sjást eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna aka í hvítum jeppum með hvíta fána inn á vopnahléssvæðið meðfram landamærum Egyptalands og ísraels, áður en öryggissveitir Sameinuðu þjóðanna tóku við varnarstöðvum þar. KALDA STRÍÐIÐ. — Kalda stríðið hófst í lok síðustu heimsstyrjahlar og varð æ harðara næsíu árin þar á eftir. En með dauða Stalíns og valdabaráttunni í Kreml, sem honum fylgdi, hefur nokkuð dregið úi- spennunni milli hins frjálsa heims og kommúnista. Skiptiheimsóknir scvézkra og bandarískra landbúnaðarsérfræðinga urðu til þess að bræða fyrsta ísinn. Þá skiptust þessi tvö Iörtd á sendinefndum mennta- og fræði- manna, íþróttamanna og síjórnmáíamanna. Hámark náðu þessar skiptiheimsóknir, er forsætisráðherra Sovétríkjanna Nikita Krúsév kom til Bandarikjanna í lok september s.l. og Eisen- hower Bandaríkjaforseta var boðið til Sovétríkjanna. Þessi mynd var tekin af Eisenhower og Krúsév skömmu eftir komu hins síðarnefnda til Washington. 'VTKSXlt D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjárnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 25,00 í áskrift á mánuði, kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.