Vísir - 11.01.1960, Blaðsíða 10

Vísir - 11.01.1960, Blaðsíða 10
10 . ..............-........ .......................... V í S I R Mánudaginn 11. janúar löfiO’ J var köld. „Eg tala ekki um konur sem eg þekki ekki. Og heldur ekki um konur, sem eg þekki.“ Bompard leit yfir til Olgu og talaði við Pharaoh. „Frænd: minn einn var hjá Cartiers einu sinni og hann sagði mér að það mætti þekkja ekta perlur við eldspýtnaljós. Hann sagði að þær hefðu enga blekkingu — en aldrei vissi eg hvað hann átti við með því.“ Hr. Pharaoh hikaði andatak og andvarpaði svo þungan. Hann andvarpaði alltaf eins og íþróttamaður geispar á undan kapp- hlaupamílu, þegar hann var búinn að ráða við sig hvað hann setti að gera. „Það er blekking, hr. lögreglufulltrúi. Eg hefi perluband, sem er samstætt við Sheba-perlurnar og enginn getur aðgreint þær, nema hann hafi smásjá og vegi perlurnar.“ „Þér hafið samstæðu?" Það var Coyningham sem talaði. „Já, það er satt. Fröken Lincoln ber perlurnar." Hr. Pharaoh opnaði krókana á skikkju Francine. „Eg held ekki, hr. lögreglu- fulltrúi, að þér getið greint aðra perlufestina frá hinni, með berum augum, þó að þér kveiktuð á eldspýtu.“ „Já,“ sagði Bo,jnpard. „Þetta er mjög merkilegt. Eg held eg gæti ekki þekkt þær í sundur.“ Bompard leit yfir til Olgu til þess að reyna sjón sína og það var bersýnilegt að Olga hafði séð perlurnar á Francine. Olga starði bara óaflátanlega á Francine og svo roðnaði hún af reiði. Svo tók hún upp glasið sitt. „Ef hann heldur að hann geti móðgað mig með því að láta gera eftirmynd af perlunum og hengt þær á þessa helgastelpu —“ Miguel greip um úlnlið hennar og rödd hans var eins köld og beitt eins og hnífur. „Þú ert flón! Þú ert bölvað flón!“ Hún starði á hann, og þá vöktu köld og hæðin augu hans til umhugsunar: „Við hvað áttu?“ „Þú ert með eftirmyndina.“ Rödd hans var þurrleg og hlátur hans var kveðjuhlátur. „Hver seldi þér og hvað kostaði það þig mikið.“ Ljósin blikuðu fyrir augum Olgu og svo sá hún rauoan klæðnað. Hún stóð upp með glas sitt i hendi gekk yfir að borðinu og fleygði víninu í andlitið á Dante. Hann deplaði augunum og hristi höfuðið, og þá sveiflaði madame Lorelei sér til og útdeildi Olgu vænt högg á hökuna. „Það virðist vera einhver misskilningur hér, einhversstaðar,“ ságði Bompard við hr. Pharaoh. „Þér afsakið mig, eg held eg fari. Svona smámunir koma oft fyrir hér í Cannes á síðkvöldum." Miguel stóð rétt hjá reiðubúinn til að fara. Har.n hafði borgað reikninginn þegar Olga kom aftur og hélt um hökuna á sér. „Hvern fjandann ertu að gera? Eg er ekki að fara. Eg vil fá mér meira aö drekka og svo ætla eg að gefa þsssum koparhaus á kjaftinn!" „Við erum að fara,“ sagði Miguel. Olga leit á ha.nn, varð stöðugri á gólfinu augnablik og rétti honum svo kinnhest. „Þau greiða þó höggin,“ sagði ungi maðurinn með gullslita KKKMMMMMKM3 R. Burroughs skeggið. „En þetta er allt einstefnuakstur.“ Svo leit hann á Miguel sem gekk fram hjá honum til dyra. „Sjúkrahúsið er til vinstri, gamli vin og eg —“ Miguel rétti út höndina, greip i skeggið á honum og togaði í, bauð síðan Filippo kurteislega góðar nætur. Ungi maðurinn stóð upp af gólfinu strauk skeggið á sér og andvarpaði: „Allt ein- stefnuakstur, Filippo.“ Filippo leit í kringum sig við barinn og var að spyrja sjálfan sig hver myndi berja hvern næst. Þá varð hann undrandi, því að hann sá frúna frá Parthenon vera að traðka á dýrindis perlu- festi, sem hlyti að hafa kostað auð fjár. „Þær hljóta að vera falskar," sagði Filippo og andvarpaði. Þá kom hr. Pharaoh áð barnum til þess að borga reikning sinn og Filippo sá perlufestina, sem Olga hafði verið að traðka á um hálsinn á fröken Lincoln. Þegar hr. Pharaoh var farinn rétti Filippo sinn tröllaukna kjamma að unga manninum með gullslita skeggið. „Gefðu mér á ’ann,“ sagði Filippo. „Eg get það ekki. Mér geðjast svo vel að þér.“ „Og nvað í helvíti!" sagði Filippo. „Þetta er Cannes. Hvað er eitt kjaftshögg milli vina? Segðu mér gullni drengur, hefur þú nokkurntíma áður séð perluband skreyta tvær konur. — Já, madame!“ kallaði Filippo til Olgu, sem veifaði til hans tómu glasi sínu, en allir í stofunni urðu ottaslegnir og reyndu að forða sér undan því! Bompard hvíldi handlegginn á sjávarveggnum og horfði á sjóinn. Hann sá Miguel ganga í áttina til Napoleonsgistihússins. „Nú getið þér kannske skilið hvers vegna húsbóndinn sagði yður að láta fröken Lincoln í friði.“ Bompard sneri sér við og horfði á eftir hr. Pharaoh og Francine er þau gengu í hægðum sínum áleiðis til gistihússins. Þau leidd- ust, eins og þau hefði þekkt hvort annað lengi. „Hvað segið þér Coyningham?" Coyningham andvarpaði eins og gamall maður þó ungur væri. „Blindur maður gæti séð það, hvað er á ferðum, Henri. Komið þér. Við skulum fara heim.“ Þau stóðu fyrir utan Napoleonsgistihúsið í hinni löngu þögn þegar lífið virðist nema staðar — andar svo aftur og heldur áfram göngu sinni. Hún rétti upp hendurnar til þess að taka af sér Sheba-perlu- bandið. „Nei, eg vil ekki fá það aftur.“ „Og eg vil það ekki. Eg þarf ekki perlubandið til þess að muna." Hún snart perludingulinn með fingrunum. „Þetta er eins og ekki neitt. Þetta er bara perluband.“ „Já, það er allt of sumt. Bara perluband. Og mér stendur á sama um það úr þessu, Francine." „Þakka yður fyrir hvað þér voruð elskulegur í kveld, að láta mig ekki finna------að eg tilheyri yður ekki lengur.“ „Er það „já“, Francine?“ Hún horfði á hann og svo kom það allt af vörum hennar í smádropum eins og perlur, sem enginn getur falsað. Hún hvarf til hans. „Já, já, já. Já og ætíð!“ — ENDIR — Glæsilegt gullmáfastell Til sölu 12 manna gullmáfastell, matar og kaffi, selst saman eða í sitt hvoru lagi. Uppl. í síma 32355. SNJÓKEÐJUR Keðjubitar, keðjulásar, keðjutangir, keðjubönd. Einníg „Wintro" frostlögur. SMYRILL, Húsi Sameinaða. — Sími 1-22-60. TARZAIM - 3167 Hinn hræðilegi fljúgandi } dreki hreif Tarzan og flaug \ á brott með hann frá félög- unum sem stóðu og horfðu óttaslegnir á aðíarirhnar. — Hann fellur til jarðar og ferst, andvarpaði Finch. — Apamaðurinn var hinsvegar ákveðinn að koma í veg fyr- ir slíkt myndi ske og greip heljataki á öðrum fæti drek- ans. Þau vöru að borða ostrur í veitingahúsi og maðurinn nj^so gaut npad um^s i;dXaj3 sinni. Þetta var skoðað með X- geislum og í hálsi hans sást perlan og hann féllst á að láta gera á sér uppskurð til þess að henni yrði náð. Viku síðar heyrði vinkona þeirra hjónanna um uppskurð- inn og spurði konuna hvernig gengi. — Þetta gekk allt ágætlega, sagði hún. — Við fengum perl- una aftur. Og hún var svo dýr- mæt að eg gat fengið minkafeld, borgað lækninum og hafði svo mikið afgangs að eg gat greitt útfararkostnað mannsins míns. ★ Læknirinn hafði lokið við að gera stóran uppskurð á sjúk- lingi. Sjúklingurinn var kom- inn í rúmið sitt og var enn undir áhrifum svæfingarinnar. Þá kom slökkvilið og stanzaði við húsið andspænis. Læknir- inn dró fyrir gluggana. — Eg geri þetta ef hann skyldi vakna, sagði hann við hjúkrunarkonuna. — Svo að hann haldi ekki að uppskurð- urinn hafi mistekist. ★ Fæðingalæknirinn var í kátu skapi. — Eg veit um konu sem var 78 ára og eignaðist tvíbura. — En læknir er það ekki líf- fræðilega ómögulegt? — Það vaf fyrir 50 árum, þegar hún var 28 ára. k Gyðingslegur milligöngumað- ur um giftingar kynnti við- skiptamann sinn fyrir hinni væntanlegu brúði. Biðillinn varð fyrir vonbrigðum. Hann réðist á milligöngumanninn og úthúðaði honum. — Hvað eruð þér að gera? Haldið þér að eg sé einhver asni? Lítið þér á hana! Hún er gömul og ljót. Hún er tileyg. Og lítið þér á fölsku tennurnar í henni. — Yður er óhætt að tala hærra, sagði milligöngumaður- inn. — Hún er líka heyrnar- laus. Nærfatnaðui karlmanna •g drengja fyTÍrliggjandl L.H.MULLER Hann gleymdi . að endurnýja! HÁSKÓLANS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.