Vísir - 01.03.1960, Blaðsíða 4

Vísir - 01.03.1960, Blaðsíða 4
v|siB Þriðjudaginn 1. marz. 1960 WISKB. DA6BLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 2,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. • • Oðru vísi mér áður brá. Ekki alls fyrir löngu tilkynnti Tíminn, að vandamál efna- hagslífsins yrði ekki leyst ! nema með samstarfi á breið- ! um grundvelli. Við aðra um- ræðu efnahagsmálafrum- varps ríkisstjórnarinnar fyrir skemmstu sagði Ólafur Jó- hannesson, aö „efnahagsmál- j in verða ekki leyst nema ) með víðtæku samstarfi flokka og stéttasamtaka“ ) eins og haft er eftir honum í stórri fyrirösgn í Tímanum á sunnudaginn. Má segja um 1 þetta hvorutveggja, að öðru vísi mér áður brá. Þegar menn lesa slíkar yfirlýs- ingar forvigismanna Fram- j sóknarflokksins og blaðs hans, hlýtur að rifjast upp ' fyrir þeim, hvað sömu aðilar sögðu um nákvæmlega sömu ► viðfangsefni fyrir fáeinum * árum. Áður en vinstri stjórnin var mynduð — sæll- l ar minningar — var það I nefnilega eini boðskapurinn, sem Framsóknarflokkurinn hafði fram að færa, að það væri ekki hægt að leysa vandamál efnahagslífsins ' nema með því, að Sjálfstæð- isflokkurinn fengi hvergi nærri að koma. Samkvæmt þessu var svo vinstri stjórnin sett á lagg- ir, og eitt helzta verkefni hennar var að útiloka yfir tvo fimmtu hluta þjóðarinn- I ar frá öllum áhrifum á gang þjóðmála og þar með lausn efnahagsmálanna. Meðan Hermann Jónasson hélt enn, ! að hann gæti stjórnað land- inu, vildi hann ekkert við Sjálfstæðisflokkinn tala. Hann lét meira að segja svo um mælt norður á Hólma- vík, að hann væri búinn að setja Sjálfstæðisflokkinn út úr íslenzkum stjórnmálum i og þóttist vitanlega mikill maður af þeim sökum. En skyndilega hljóp hann eins og flík úr lélegu efni, því að allt í einu var hann búinn að fá þá hugmynd, að íslandi yrði bezt stjórnað af þjóð- stjórn. Það var í lok ársins 1958, þegar Framsóknar- flokkurinn var búinn að gera tilraunina til að stjórna landinu með útilokun Sjálf- stæðisflokksins. Þá voru erf- iðleikarnir allt í einu orðnir svo gífurlegur, að jafn- vel Framsóknarflokkurinn skildi, að hann var ekki eins mikill og merkilegur og hann hafði haldið. Hann laut meira að segja svo lágt, að hann vildi fyrir alla muni fá Sjálf- stæðismenn í stjórnina. Þá átti Framsóknarflokkurinn sér ekkert æðra mark en að fá að vera í ríkisstjórn áfram. Hann var svo æstur í það, að hann vildi jafnvel kingja öllum stóru orðunum og leggja sig niður við að vera í stjórn með Sjálfstæðis- flokknum. Má segja um það, að aldrei hefir nokkur flokk- ur lagzt eins lágt og Fram- sókn gerði þá, en ef til vill má kenna það að nokkru af- skiptum foringjanna af olíu- sölu. Nú fór svo, sem menn muna, að Framsóknarflokkurinn var dæmdur úr leik, En síðan hefir hann ekki linnt látum — hann vill með einhverju móti komast í stjórn aftur, og að því marki beinist ein- mitt barátta hans um þessar mundir. Síðustu vikurnar hefir öll hans viðleitni snúizt um að sannfæra menn um, að vandamálin verði aðeins leyst með „samstarfi á breið- um grundvelli" — þ. e. með því að hafa nokkra ráðherr- anna úr Framsóknarflokkn- um. Margar kvaðningar slökkvl- liðslns um heigina. Mt sí iim eld rteða sem krakkar liofAu kveikt. Slölckviliðið í Reykjavík var nokkurum sinnum kvatt út um helgina, en mest var það vegna elds sem krakkar höfðu kveikt, ýmist í sinu eða rusli. Svo virðist sem brennuæði krakka sé orðið að miklu vandamáli og Reykjavíkurbæ dýrt orðið. Hafa óvenjumikil brögð verið að því í vetur að krakkar hafa kveikt í sinu. Og enda þótt eldur í sinu valdi ekki tjóni í sálfu sér, stafar þó ávailt hætta af því að eldurinn nái til mannvirkja eða annarra verð- mæta og þess vegna óhjákvæmi- legt að kveðja slökkviliðið á vettvang. Á laugardaginn var slökkvi- liðið kvatt að gróðrarstöðinni Alaska vegna sinuelds, sem krakkar höfðu kveikt og sama dag að Skálholti í Kaplaskjóli af sömu orsökum. Enn var það kvatt. á laugardaginn að Brá- vallagötu 40, en þar höfðu krakkar kveikt í rusli utan húss í fyrrad. laust eftir hádegið kom brunakvaðning frá Lauga- vegi 46 vegna elds sem kveikt- ur hafið verið í rusli að húsa- baki. Aðar kvaðningar um helgina voru í vélbátinn Pálmar við Grandagai’ð á laugardag. Reyks hafði orðið vart í bátnum og við athugun kom í ljós að hann stafaði út frá rafleiðslu sem lá á gólfi í klefa bátsins. Var gólf- ið tekið að sviðna þegar slökkvi- liðið kom á vettvang, en tjónið varð lítið. Aðfaranótt s.unnudagsins hafði kviknað lítilsháttar í bíl suður í Garðahverfi. Hafði neisti komist út frá öskubakka í sætisbaki og var þetta fljót- lega slökkt á staðnum, en bíl- eigandanum þóttj tryggara að aka bílnum að slökkvistöðinni og láta athuga hvort hugsanlegt væri að eldur ieyndist enn í bílnum. Skautamót í gær: Jón R. Einarsson skautameistari Reykjavíkur 1960. Þeir eru hvíldarþurfi. Það er hæpið, að almenningur í landinu telji það allra ráða bezt að fá Framsóknarmenn til að gerast aðilar að stjórn. Þeir ,,mætu“ menn fengu sitt gullna tækifæri, þegar þeir mynduðu vinstri stjórnina, og þarf ekki framar um það að tala,hvernig þeirávöxtuðu ' sitt pund þá. Það mun al- mannarómur, að þeir eigi að taka sér hvíld frá störfum fyrst um sinn, þeir eigi ekki ' að vera að vasast í þjóðmál- Um að neinu verulegu leyti. j>eir munu sámt hafa næg verk- efni. i»eir þurfa alls.ekki að f vera iðjulausir, þótt þeir þyrmi þjóðinni urn tíma. Þeir gætu tekið sig til að reyna að uppræta það hugar- far, sem búið hefir um sig í flokknum undanfarinn ald- arfjórðomg og kemur meðal annars fram í því, að brodd- ar flokksins og fyrirtækja hans líta svo á, að um þá og fjáröflunaraðferðir þeirra gildi önnur lög en samskon- ar athafnir annarra manna. Meðan flokkurinn gerir ekki hreint fyrir sínum dyrum í þessu efni, er hann vitanlega brennimerktur, en hann ræð- . ur því, hversu lengi hann vill vera það. Skautamót Reykjavíkur var haldið um helgina á Tjörninni í Reykjavík. Sigurvegari varð Jón R. Einarsson, Þrótti; sigraði hann í 1500 m., 3000 m. og 5000 m. hlaupum og varð fyrstur í stigakeppninni. Efstir í einstökum greinum (á mánudag): 11.500 m. hlaup: 1. Jón R. Einarsson, Þrótti 2:59.9 mín. 2. Sigurjón Sigurðsson, Þrótti 3:02. 3mín. 5.000 m. hlaup: 1. Jón R. Einarsson, Þrótti 11:13.5 mín. 2. Sigurjón Sigurðss, Þrótti 11:19.8 mín. Stigakeppnin: 1. Jón R. Einarsson, Þrótti 256.517 stig. 2. Sigurjón Sigurðss., Þrótti 257.597 stig'? Þá var einnig keppt í 1.500 m. hlaupi drengja, og urðu úrslit þessi: Guðmundur Einarsson K. R. 3:22.3 mín. 2. Ólafur Þorsteinss, Skf. R; 3:26.7 mín. 500 m. hlaup: 1. Þorsteinn Steingímss, Þr. 53.8 sek. 2. Guðm. Þorsteinss. K.R. 59.6 sek. 3000 m. hlaup: 1. Jón R. Einarsson, Þr. 6:43.8 mín. 2. Sigurjón Sigurðsson, Þr. 6.50.1 mín. Stigakeppnin: 1. Sigurjón Sigurðsson; Þr. (128.850 stig. 2. Jón R. Einarsson, Þr. 129.200. 500 m. hlaup drengja: 1. Gunnar Snorrason, Umf. Breiðablik, 1‘01.7 mín. 2. Andrés Sigurðsson K.R. 1:03.3 mín. Veður var hið fegursta, stillt og bjart, og voruáhorfendurum 1500 talsins. Eftir keppnina af- hent Gísli Halldórsson, formað- ur í. B. R. sigurvegurunum verðlaunin, en drengirnir fengu bækur í verðlaun. Mótinu var síðan slitið af Lárusi Salómons- syni, formanni Skautafélags Reykjavíkur, en Sautafélagið annaðist framkvæmd mótsins að þessu sinni. Indonesia fái Vestur- Guineu. í sameiginlegri yfirlýsingu birtri í Djakarta kemur Krúsév svo að orði, að Sovétríkin styðji kröfu Indonesiu til vesturhluta Nýju Guineu, sem Hollendingar ráða yfir. Efnahagsaðstoðin. Soekarno forseti Indonesiú og Nikita Krúsév forsætisráðherra Sovétríkjanna hafa nú undirrit- að efnahags- og menningarsátt- málann milli landa þeirra. Samkvæmt honum veita So- vétríkin Indoesiu lán að upp- hæð sem svarar til 350 millj. dollara til ýmiskonar umbóta og framkvæmda, m.a. til þess að reisa stáliðjuver. ----•------ Nasser forseti Arabiska sambandslýðveldsins kom í skyndiheimsókn til hafnar- borgarinnar Latakia í Sýr- laudi sl. sunnudag. ■ Launakjör. Eftirfarandi bréf hefur Berg- máli borizt: „Það er engu líkara en að nú ætli hver stétt menntamanna af annarri hér á landi að hefja sókn fyrir því að fá hærri laun. Allir segjast bera of lítið úr býtum, áróðri er Beitt, samanburður gerður á launum menntamanna hér og erlendis, og beinlínis haft í hótunum að flytja úr landi, yf- irgefa sitt föðurland og vinna þar sem bezt er borgað. Um þetta er mikið rætt manna meðal og einkum vekur framkoma þeirra, sem áróðurinn reka mikla furðu — ekki sízt hótanirnar um að hverfa úr landi, a. m. k. ef um menn er að ræða, sem fengið hafa námsstyrk með þvi fororði, að þeir ynnu tiltekinn árafjölda fyrir land sitt. Ur öllu hófi keyrir þó er stétt- arfélag beinlínis varar ísl. verk- fræðinga erlendis við að koma heim, svo fremi, að um menn sé að ræða, sem lokið hafa prófi með háum námsstyrkjum, en ekki enn unnið hér heima. Hverjir næstir? Hverjir verða næstir? Arki- tektar hóta að fara úr landi, verk fræðingar vara stéttarbræður er- lendis við að koma heim og láta i það skína, að til verkfalls komi. Félag íslenzkra náttúrufræðinga hefur gert mikla ályktun um kjai’amálin og segir þar m. a„ að allmargir ísl. náttúrufræðingar, sem lokið hafa námi erlendis hafi neyðzt til að ráða sig til starfa þar og ýmsir þeirra, sem komnir séu yfirvegi að hverfa úr landi, enda hvarvetna nema á Islandi ört vaxandi eftirspurn eft ir náttúrufræðingum. Enginn þarf að ætla, að ekki komi fleiri á eftir og kvarti og ef til vOl hafi í hótunum eða svo má líklegt þykja miðað við það, sem á und- an er gengið. Réttmæti. Fjarri fer því að ég vilji kveða upp neinn dóm um hversu rétt- mætar kröfur þessar stéttir bera fram — og réttmætum kröfum ber að sjálfsögðu að sinna eftir því sem vort fátæku land getúr. Kröfur eiga að vera rökstuddar og um þær ber að semja — án þess að rekinn sé áróður eins og fram kemur í bréfi því, sem birt var í Vísi í dag, 29. febr. Aðrar hliðar. Málin hafa líka aðrar hliðar og líta ber á fleira en það, að sam- bærilegar stéttir erlendis fái hærra kaup. Það verður líka að líta á það, hvort hægt sé að greiða þessum mönnum eins hátt kaup og erlendis er gert sam- bærilegum mönnum og athuga vel hverjar afleiðingar það gæti haft með tilliti til annarra stétta. Þá er þess að geta, að hér heíur komizt meiri jöfnuður en áður var, að því er varðar launakjör manna. Það er ekki æskilegt, að breikka aftur bilið um of. Það má a. m. k. ekki fara út i þær öfgar, að vissar stéttir fái svo hátt kaup, að almenningur fari að lita á þær sem hálaunaðar for- gangsstéttir vegna þeirra sér- þekkingar, sem þær hafa getað aflað sér, m. a. vegna stuðnings er þær nutu og tekinn er líka úr vasa þeirra, sem lægra eru laun- aðir — og vinna föðurlandi sinu eins og hinir, og á ég þar fyrst og fremst við þá, sem halda framleiðslmini; gangandi:. Sjó- menn og bændur. og verkafólk. Seinast en ekki sizt: Nú eru þeir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.