Vísir - 01.03.1960, Blaðsíða 8

Vísir - 01.03.1960, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í .áskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir osr annað lestrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hólfu. Sími 1-16-60. Munið, að ]>eir setn gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers niánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Þriðjudaginn 1. marz 1960 Innbrotsþjófur handtekinn. i\»kkn.r innltrot o*» tilraiinir til inii8)i*ots unt lielgina. Rannsóknarlögreglan í sem fyrirfundust þó ekki og jReykjavík hefur handtekið fór þjófurinn slyppur á brott. mann þann, sem valdur var að j í fyrrinótt var tilraun til innbrotinu í Grandaver að- innbrots gerð í Herratízkuna á faranótt fimmtudagsins 25. þ. Laugavegi 27. Heppnaðist þjófn- m. . jum að krækja upp glugga, en Þarna var um að ræða pilt, hefur sýnilega brugðið í brún rúmlega tvítugan að aldri, sem og varð frá að hverfa er hann áður hefur komið við sögu lög- lenti þar á öflugum járnrimlum. reglunnar. j Til þess að fara þó ekki er- Eins og áður var skýrt frá í indisleysu réðist hann með Vísi hafði maður þessi verðmæti sama hætti að næsta fyrirtæki, með sér úr fyrirtækinu, sem sem var fiskbúðin Sæbjörg. námu andvirði margra þúsunda Þár komst hann inn um glugg- króna. Meðal annars stal hann ann og lét greipar sópa um öll um 40 pakkalengjum af vindl- þau verðmæti sem hann girnt- miklu af fatnaði, átta-'ist en það voru 10—15 krónur Það vakti mikla athygli í lok s.l. viku, er birt var trúlofunar- fregn Margrétar Bretaprinsessu og ljósmyndarans Antony Ármstrong-Jones. Myndin er tekin við Windsor-liöll á laugardag. Aðsókn að Sundhöllinni með mesta móti s.l. ár. Sólarleysið s.l. sumar kom í veg fyrir metaðsókn. Ágæt aðsókn var að Sundhöll Iteykjavíkur á árinu sem leið, og samtals komu þangað rúm- léga 218 þúsund manns. Að undanteknum einu eða tveimur hernámsárunum var árið 1958 metár hvað aðsókn að Sundhöllinni snerti. Þá sóttu hana rúmlega 230 þúsund bað- gestir. Þar næst kemur svo ár- ið sem leið með samtals 218479 Hvass NA og frost 5-7 st. I morgun var norðaustan- átt um land allt og víðast 6—8 vindstig. Snjókoma all- víða norðanlands, en bjart og þurrt sunnanlands. Frost 2—3 stig suðvestanlands, en 8—10 stig á Vestfjörðum. Kl. 8 í morgun var norð- anátt og 7 vindstig í Reykja- vík og frost 6 stig. Bjart. Mikil hæð er yfir Græn- landi, en djúp lægð og nærri kyrrstæð við Færeyjar. Veðurhorfur » Reykjavík og nágrenni: Hvass norð- j austan og frost 5—7 stig. Ræóismaóur Islands í Sevilla látinn. Ræðismaður íslands í Sevilla á Spáni Sr. Francisco Sainz Madrazo, andaðist laugardag- ihn 27. febrúar. Heimilisfang fjölskyldunnar er Calle Alcala 26, Madrid. (Frétt frá utan- jrikisráðuney tinu.) gesti. Annars hefur venjuleg aðsókn að Sundhöllinni numið 200—208 þús. gestum á ári. Mismunurinn á aðsókninni árið sem leið og árið næsta á undan, er nær einvörðungu fólginn í minnkandi aðsókn að Sunnhöllinni yfir sumarmánuð- ina s.l. sumar. Það gerði sólar- leysið. Af þeim sökum dró úr aðsókninni sem svaraði þrjú þúsund manns á mánuði miðað við árið 1958, þ. e. a. s. yfir mán uðina, júní, júlí og ágúst. Fólk, sem venjulega leitar sólbaða á eftir baði þessa mánuði, gat það ekki í sumar. Aðsókn að Sundhöll Reykja- víkur árið sem leið skiptist nið- ur sem hér segir: Karlar 54255, konur 12408, drengir 57838, stúlkur 52049, skólafólk 38248 og íþróttafélag- ar 3678. I W sltjs. Slys varð í gær á Rauðarár- stíg er fimm ára drengur varð fyrir bíl. Drengurinn, Sigurður Geirs- son að nafni meiddist á höfði og blæddi talsvert úr andliti hans. Auk þess viðbeinsbrotn- aði hann. Á laugardaginn varð slys á Nóatúni. Maður, Torfi Þórðar- son að nafni, datt af gangstétt og skall í götuna. Hlaut hann áverka á hnakka og blæddi mikið. Báðir hinir slösuðu voru fluttir í sjúkrabifreiðum í slysav arðstof una. mgupi vitum og fleiru. Lögreglan handtók manninn á laugardag- inn og hefur hann játað á sig innbrotið og stuldinn. Meiri hluta þýfisins hefur hann skilað lögreglunni. Innbrot. Brotizt var inn á tveim stöð” um í Reykjavík um helgina og tilraun til innbrots gerð á þriðja staðnum. í fyrrinótt var brotizt inn í skrifstofu Landssmiðjunnar við Sölvhólsgötu. Brotin var upp hurð og svo freklega aðhafst að karmurinn var rifinn frá. Eftir að inn var komið, hefur þjófur- inn ráðist að klefa gjaldkera sem stúkaður er frá í aðalsal m. a. með glerumbúnaði. Þennan glerumbúnað braut þjófurinn til að komast að verðmætunum, lírslitakeppni i smapemngum. Gestur Þ. í gerfi á skemmtun Fóstbræðra. hafin. Fyrsta umferð í úrslitakeppni Skákþings Reykjavíkur var tefld á sunnudagskvöldið og fór á þessa leið: Ingi R. Jóhannsson vann Halldór Jónsson í 37 leikjum. Benóný Benediktsson vann Guðm. Lárusson í 27 leikjum. Biðskák varð hjá Friðrik Ólafs- syni og Jónasi Þorvaldssyni, Birni Þorsteinssyni og Braga Þorbergssyni. Friðrik á 2 peð yfir í skákinni við Jónas, en Björn Þorsteinsson á 3 peð á móti manni hjá Braga Þorbergs- syni. Önnur umferð verður tefld á fimmtudagskvöld kl. 20.15, og þá tefla saman Ingi R. og Björn Þorsteinsson, Friðrik Ólafsson og Halldór Jónsson, Benóný Benediktss. og Jónas Þorvalds- son, Guðm. Lárusson og Bragi Þorbergsson. Þeir, sem nefndir eru á undan, hafa hvítt. Tekjuskatturinn. Þar eð væntanlegar eru beytingar á lögum um tekju- og eignarskatt hefir ráðuneytið á- kveðið að fresta fyrirfram- greiðslum upp í þinggjöld yfir- síandandi árs þannig að niður falli fyrsti gjalddagi, sem er 1. marz. (Frá fjármálaráðuneyt- inu.) Mikil hrifning á skemmtun Fóstbræðra. Áheyrendur troðfylltu húsið 2 kvöld í röð. Það var troðfullt út úr dyrum á sunnudagskvöldið á miðnæt- ursskemmtun karlakórsins Fóstbræðra í Austurbæjarbíói og komust færri að en vildu. Skemmtikröftum öllum var ó- spart klappað lof enda var skemmtunin öll með ágætum. Og allt fór á sömu leið í gær- kvöldi. Hinir söngglöðu Fóstbræður a sannudagskvöldið á miðnæt- vald og sú hrifning hélzt til enda og náði hámarki í síðasta skemmtiatriði er 'þeir fluttu þætti úr óperettunni „My Fair Lady“. Léttir skemmtiþættir voru sem krydd í prógrammið og juku mjög á skemmtan alla. Leikstjóri var Ævar Kvaran, söngstjórar þeir Ragnar Björns- son og Cai'l Billich, en hljóm- sveitarstjóri Björn R. Einars- son. Einsöngvarar í óperettu- þáttunum voru Eygló Viktors- dóttir og Kristinn Hallsson. Karl Guðmundsson flutti skemmtiþætti. Verður aftur flogið um háloftin til Berlínar? Varað við ótímabærum áformum í því efíni. Óstaðfestar fregnir hafa bor- ist um, að til athugunar sé, ef þörf krefur, að hefja á ný flug- ferðir um háloftin milli Berlín- ar og Vestur-Þýzkalands. Nokkur ástæða virðist til að ætla, að fregnir um þetta hafi vérið látnar síast út, vegna hót- ananna af Krúsévs hálfu um að gera sérsamninga við Aust- Abbas talar í útvarp. Abbas, forsætisráðherra serknesku útlagastjórnarinnar, flutti útvarpsræðu í gser í Tunis. Hann skoraði á frönsku stjórnina að hefja viðræður til öryggis sjálfsforræði Alsír, sem búið væri að lofa þjóðinni. Abb- as kvað ekki koma til mála, að neinir aðrir en Alsírbúar tækju ákvörðun um framtíð landsins. ur-Þýzkaland, ef ekki næst samkomulag um Berlin og sam- einingu Þýzkalands. Daily Mail minnist á þessi mál í morgun, og telur illa far- ið að bæði í austri og vestri komi fram, að hvorugur aðili láti nokkurn bilbug á sér finna — aðeins 11 vikum fyrir fyrir- hugaðan fund æðstu manna. Blaðið telur ótímabært og ó- heppilegt, að ræða háloftaflug milli erlínar og V.-Þ. á þessu stigi. Eisenhower fagnað vel í Chile. var vel fagnað til Santiago í Eisenhower við komuna Chile. Alessandi forseti tók á móti honum. Dvelst Eisenhower í Chile þar til á morgun, er hann heldur áfram ferð sinni til Uruguay.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.