Vísir - 09.03.1960, Side 1

Vísir - 09.03.1960, Side 1
. 10. árg. Miðvikudaginn 9. marz 1960 58. tbl. Rústir af svertingjakofa við Luluaburg í Kongó eftir skærur svarta innbyrðis. Margir óttast að óöld magnist í landinu, er hvítir menn hverfa haðan á brott. Dílþjófur tekinn í gær. Var réttlndalaus og ölvaður og hafði auk þess lent í í gærkvöldi var bílþjófur handtekinn hér í bænum eftir að hann hafði lent í árekstri. Hafði hann stolið bifreiðinni R-1894 og farið á henni í öku- ferð um bæinn. Á Hringbraut- 'inni ók hann á kyrrstæða. og mannlausa bifreið, en lögregl- . unni barst tilkynning um á- reksturinn og rétt á eftir tókst henni að handtaka þjófinn. Við athugun kom í ljós að þjófurinn var bæði ökuréttinda laus og undir áhrifum áfengis. Fór lögreglan með hann í slysa- varðstofuna, þar sem blóðsýnis- horn var tekið af honum en færði hann að því búnu í fanga- . geymslu. Mál hans var tekið fyrir í morgun og skýrði hann . þá frá því, að hann hafi verið að skemmta sér frá því í gær- morgun og verið nokkuð við skál um daginn. í gærkvöldi um 10 leytið var hann á gangi . eftir Hverfisgötunni og kom . þar að bifreiðinni R-1894, sem var ólæst. Manninn langaði þá í ökuferð, vatt sér inn í bílinn og gat kveikt á kveikjulásnum með skrúfjárni. Síðan var ekið af stað. Eins og að framan greinir lenti maðurinn í árekstri á Castro reiður Herter. Castro brást reiður við, er hann frétti um seinustu mót- mæli Herters. Herter vítti harðl. áróður á Kúbu í garð Bandaríkjanna. Kúbastjórn segir seinustu um- mæli Hitlers , stórmóðgandi í garð Kúbu. árekstrl. Hringbrautinni, lenti þar lítils- háttar utan í annarri bifreið og skemmdi hana eitthvað. Ekki sinnti hann því neitt frekar, en hélt för sinni áfram. En maður, sem var þarna nærstaddur og sá áreksturinn, gerði lögregl- unni aðvart og gaf jafnframt lýsingu á bifreið ökumannsins. Lögreglan hóf leit að mannin- um og fann hann og handtók um hálftólfleytið, þar sem hann var enn á ferð í Vestur- bænum. Þjófurinn er 21 árs gamall og er kunnur lögreglunni af fyrri viðskiptum, hefur m. a. lent í þjófnaðarmálum áður, sætt sektum fyrir ölvun og ver- ið sviptur ökuréttindum. Innbrot. í fyrrinótt var brotizt inn í blikkverksmiðjuna Glófaxa við Ármúla. Fór þjófurinn inn um glugga, komst inn í skrifstofu fyrirtækisins, rótaði þar tals- vert til, sýnilega í leit að pen- ingum, og braut upp lítinn pen- ingakassa. Þar var þó enga fjármuni að finna og fór þjóf- urinn slyppur burt. Skriða banar 10 manns í lest. Skriða hefur valdið manntjóni með nokkuð óvenjulegum hœtti í Brasilíu. Féll skriðan á farþegalest, er var á leiðinni frá borginni Ma- ceio til Recife, sem er á „öxl“ landsins, og velti einum vag- anna og varð 10 manns að bana, en meiddi 17. Kínverjar keppast við að leggja hervegi og járnbrautir um Tíbet. Munu síanda vel að vígi, ef til átaka kemur við Indverja. Þrátt fyrir vetrarhörkur starfa Kínverjar af kappi að vegalagningu í Tíbet, segja fregnir frá Darjeeling í Ind- landi. Til skamms tíma mátti segja, að ekki væri um neitt raun- verulegt samgöngunet að i-æða á ,,þaki vei-aldar“, því að þar voru aðeins illfærir troðningar, sem bílar komust varla um. Helzta mannvirkið, sem Kin- verjar ráðast í, er 1600 km. járnbraut frá Chinghai-fylki í Kína til Lhasa, og er lagt svo mikið kapp á hana, að hún á að vera fullgerð á þessu ári. Þá er einnig verið að koma upp vegi — 500 km. löngum — frá Tingri, rétt fyrir norð- an Everest-tind til Gartok í V.-Tíbet, en sá vegur kemur aðeins að notum við her- flutninga. Þá er einnig verið að gera fullkominn bílveg frá Lhasa suður að landa- mærunum nærri Tahwang, sem er í Indlandi. Fregnir hafa einnig borizt um það til Darjeeling, að Kínverjar hafi mikinn her rétt norðan við hin sameiginlegu landamæri Indlands og Tibets fyrir austan Bhutan. Þar gera Kínverjar einmitt kröfu til margra þús- unda ferkílómetra lands innan landamæra Inrlands, og hafa raunar slegið eign sinni á all- mikla spildu þar. Mönnum stendur stuggur af þessum fyrirætlunum Kínverja í Tíbet, því að fullkomið vega- kerfi mundi að sjálfsögðu auð- velda Kínverjum hernaðarað- gerðir gegn Indverjum, ef til stríðs kæmi, en hinir síðar- nefndu hafa lítt sinnt vegagerð í fjalllendinu á landamærunum, því að þeir hafa ekki hugsað sér neina innrás norður yfir fjöllin. Þessi mynd er af aldar göml- um íslenzkum rokk, með hval- beinsskreytingu, og var mynd- in birt í helzta blaði Dyflinnar, Irish Times, nú fyrir skemmstu. Segir þar enn fremur, að Ágúst Sigurðsson magister, skólastjóri (Námsflokka Rvík- ur) hafi afhent rokkinn þjóð- minjasafninu i Dyflinni, í þakk- lætis- og viðurkenningarskyni fyrir heimsókn til Irlands. — Blaðið tekur fram, að rokkar þessarar tegundar fyirfinnist ekki á Irlandi. Háar kröfur farmanna. Sjómannafélag Reykjavíkur mun hafa afhent atvinnuveit- endum kröfur um kauphækk- anir. Samningaviðræður hafa ekki hafist ennþá, en samning- ar Sjómannafélags Reykjavíkur hafa verið lausir síðan 1. des. 1958. Að meðaltali mun vera farið fram á rúmlega þriðjungshækk- un á kaupi. Fastakaup hækki um 34,7%, yfirvinnutaxti um 36—54 %ð greiðsla vegna tví- skiptra vakta um 35% fæðis- peningar um 42,85%, fatatrygg ing um 100% og verkfæralán um 37%. Þá er einnig farið fram á að tekin verði upp ný persónutrygging sem nemi 200 þús. kr. Vélbyssuárás á Djakarta. í morgun var gerð vélbyssu- árás á forsetahöllina í Jakarta, Indónesíu. Var flogið í þotu yfir mið- hluta borgarinnar og forseta- höllina og dundi kúlnahríðin á höllinni. Ekki er getið um neitt mann- tjón af völdum þessarar árásar. Kista Dan er laus úr ísnum. Hún fékk aðstoð bandaríska ísbrjótsins Glaciers til þess - að losna, eftir að hún hafði verið innilukt í ísbreiðunni í 16 daga. — Hún flytur Sir Vivien Fuchs og leiðangur hans, sem opnar að. nýju bækistöð Breta á Ston- ington-eyju. Tjóniíl nai 161 hús. kr. Mokafli dag hvern — frí í skólum. Frá fréttaritara Vísis. Ólafsvík í morgun. Tjónið, sem brezki togarinn olli á veiðarfærum fiskibáta frá Ólafsvík á dögunum, hefur ver- ið metjð af dómkvöddum' mönnum á 4600 þúsund krón- ur. Hér er mokafli dag hvern sem á sjó gefur, og var aflinn í síðasta róðri upp í 36 tonn á bát. Vegna skorts á vinnukrafti í landi, hefur hver sem vettl- ingi getur valdið, lagt hönd að verki, og gefið hefur verið frí í gagnfræðaskólanum, og það munar strax'um hendur ungl- inganna. Hér var orðið saltlaust. en Baldur er að koma að sunnan með salt. Langjökull liggur hér og tekur frosinn fisk til út- flutnings frá Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur. Ný hryðjuverk í Kamerun. Fregnir hafa borizt um ný hryðjuverk í Kamerun í Af- ríku. Skæruliðar ruddust inn í þorp og brenndu til ösku 200 hús og brytjuðu niður yfir 30 manns köldu blóði.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.