Vísir - 09.03.1960, Síða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-CO.
WXSIK.
Munið, að Jieir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 9. marz 1960
Tvær hrakniiigasögur:
Fjóruní Rússum bjargað
eftir 49 daga hrakninga
Indonesar í 5 vikna hrakningum.
Bandarískt flugvélaskip á
Kyrrahafi bjargaði s.l. sunnu-
dag fjórum rússneskum sjólið- 1
um, sem höfðu hrakist á lösk-
uðum löndunarbát í 49 daga.
Laskaðist hann við Kurile-
eyjar og hefur rekið um 1000
sjómílur. — Þyrla flutti menn-
ina á þilfar flugvélaskipsins
Kearsarge. Sjóliðarnir höfðu 3
dósir af niðursoðnu kjöti og eitt
brauð til viðurværis allan þenn-
an tíma, enda höfðu þeir létst
Vægt frost
næstu nótt.
I morgun var suðaustanátt
hér á landi. smáskúrir suð-
þustanlands. Léttskýjað
norðanlands. Hlýjast var á
Reykjanesi 5 stig, kaldast.
f—3 á Sauðárkróki og Hrauni.
Kl. 8 í morgun var austan-
átt og 4 vindstig í Reykjavík
og 3 stiga hiti. Skýjað.
Skygni 40 km. Úrkoma í nótt
jckki teljandi. Minnstur hiti
hótt 3 stig.
Djúp og víðáttumikil lægð
íyrir sunnan og suðvestan
Íand.
Veðurhorfur í Rvík og ná-
jfrenni: Suðaustan kaldi,
Skýjað. Frostlaust í dag, en
frost 1—2 stig nstuæ nótt.
mjög og voru mjög máttfarnir.
Þeir verða fluttir til San
Francisco.
Hrakningar
á Timor-hafi.
Önnur hrakningasaga var
sögð í fréttum síðdegis í gær.
Bátur frá Indónesíu komst eftir
mikla hrakninga til Ástralíu og
voru í honum níu manns, þar
af nokkrar konur, og var fólk
þetta mjög illa farið, enda
hrakist um hafið frá því ofviðri
skall á í Timor-hafi 19. janúar.
Tólf af þeim, sem voru í bátn-
um, er af stað var lagt biðu
bana, og höfðu hinir vart mátt
til þess að varpa þeim fyrir
borð. — Fólkið er nú í sjúkra-
húsi í Darwin. — Þegar fólkið
var að drepast úr þorsta varð
það því til bjargar, að monsún-
vindar færðu regn.
Senda eldflauga-
sveitir.
Tilkynnt liefur verið >' Banda-
ríkjunum, að Ivær hersveitir,
sem ráði yfir eldflaugum verði
sendar til Vestur-Þýzkalands.
Önnur verður send í þessum
mánuði, hin í næsta. Hersveitir
þessar ráða yfir eldflaugum,
sem hægt er að skjóta af her-
flutningabifreiðum.
„Lollo" verður Kanadaborgari.
Flrzt vestur ásuml manui og
2jja ára svni.
Kvikmyndaleikkonan Gina
Lollobridga og maður hennar,
sem er júgóslavneskur og lækn-
ir að menntun, ætla að setjast
að í Kanada.
Læknirinn sagði, að þau
hefðu ekki tekið þessa ákvörð-
un vegna deilu við ítölsku
skattayfirvöld, heldur vegna
íramtíðar tveggja ára sonar
þeirra. Þau munu að líkindum
setjast að í Toronto, þar sem
bróðir læknisins á heima, og
flytjast þangað fyrir miðbik
maímánaðar.
Þess er að geta, að Gina hefur
alllengi átt í brösum við skatta-
yfirvöldin í heimalandi sínu og
verið sökuð um að svíkja stórfé
undan skatti.
Sprengja
Kínverjar?
Engar sannanir hafa enn
fengist fyrir, að Kínverjar
áformi að gera tilraun með
kjarnasprengju, með „70—90%
sovézkri aðstoð.“
Margir efast um sannleiks-
gildi fregnarinnar, en brezk
blöð segja að hvort sem hún sé
sönn eða upplogin, minni hún
á hætturnar, sem því séu sam-
fara, ef fleiri og fleiri þjóðir
fari að gera tilraunir með
kjarnorkuvopn, og beri að
hraða samkomulagi um bann
við kjarnavopnaframleiðslu og
samkomulagi um afvopnun. —
Daily Herald minnir á, að Kin-
verska kommúnistastjórnin hef-
ur áður lýst yfir, aðð hún ætli
sér að vera búin að eignast
kjarnasprengjur ekki síðar en
1961.
Stjórnin í Peking hefur ekk-
ert látið hafa eftir sér um þetta
mál.
Genfarnefnd
fullskipuð.
Eins og kunnugt er hefst í
Genf hinn 17. marz n.k. á veg-
um Sameinuðu þjóðanna önnur
alþjóðaráðstefna um réttar-
reglur á hafinu, og er hlutverk
ráðstefnunnar að setja reglur
um víðáttu landhelgi og fisk-
veiðilögsögu.
í sendinefnd íslands á ráð-
stefnunni eiga þessir menn
sæti:
Guðmundur í Guðmundsson,
utanríkisráðherra, formaður.
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra.
Hans G. Andersen,
ambassodor,
Davíð Ólafsson, fiskimála-
stjóri,
Henrik Sv. Björnsson, ráðu-
neytisstjóri,
Hermann Jónasson, fv. forsæt-
isráðherra, tilnefndur af
Framsóknarflokknum,
Jón Jónsson, fiskifræðingur.
Lúðvík Jósepsson, fv. ráðherra,
tilnefndur af Alþýðubanda-
laginu.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 8. marz 1960.
„Stjörnu" -verkfal!
í Hollywood.
Hér er sá mikli kvennabósi Glynn Wolfe með nokkrar af fyrr-
verandi eiginkonum sínum. Ekki verður annað séð en að sam-
komulagið sé hið ákjósanlegasta.
„Hjúskapurinn er eins og
frímerkjasöfnun“.
Hann ætti aÖ vita það — hefir átt 12 konur.
Það er enginn vandi að vera
vinur konu sinnar, en það þarf
sérstakan hæfileika til að vera
vinur allra fyrrverandi maka
sinna.
Og í því eru fólgnir sérstakir
hæfileikar Glynn Wolfes í Las
Vegas, 46 ára gamals manns,
sem átti 12 „fyrrverandi", þeg-
ar hann kastaði tölu á þær síð-
ast.
Þetta er aðferð Wolfes, sem
á gistihús hingað og þangað:
„Ég gleð þær með því að bjóða
þeim að búa, hvenær sem þær
eiga leið framhjá — og einu
sinni nýlega voru fjórar sam-
tímis í einu gistihúsi mínn. Ég
læt þeim allt í té, sem þær óska.
Ég er ekki einmana, meðan þær
eru í kringum mig. Það ér alltaf
gaman að fá heimsókn gamalla
vina.
Ég borga þeim ertga meðgjöf.
Það er eins og að hafa keypt
þær upp á afborgun. Ég gef
þeim bara myndarlega upphæð,
þegar ég skil við þær, og þar
með búið.“
En hvres vegna hefur hann
kvongazt svona oft?
„Æ.“ svaraði hann, „hjúskap-
urinn er eins og frímerkjasöfn-
un. Maður kemst sjaldnast yfir
beztu merkin fyrst. Maður held-
ur bara áfram og vonast til að
verða heppnari. Ég vonast til
lað kvænast aftur, því að ann-
ars verð ég einmana.“
Wolfe segist hafa borgað fyrr-
verandi konum sínum um.
400,000 dollara. Þær eru allar
fallegar og þær voru 17—18 ára,
þegar hann giftist þeim.
_______ (UPI)..
Nýr Everest-
leiðangur.
Indverskur leiðangur ætlar
að gera tilraun til þess að klífa
Mont Everest í Himalajafjöllum
í maí næstkomandi.
í leiðangrinum eru 10 menn,
þeirra meðal 3 fjallgöngumenn,
sem tóku þátt í Hillary-leið-
langrinum 1953. Farin verður
sama leið og þá. — Leiðang-
ursmenn eru nú við rætur
fjallanna.
^ SI. sunnudag „hruguðust
upp“ á hraðakstursbraut á
Daytona Beach í Florida
hvorki fleiri né færri en 37
bifreiðar í 400 km kapp-
akstri. Rigning var og
brautin hál. Tólf bifreiðar
eyðilögðust gersamlega —
allar hinar skemmdust
meira og minna og átta öku-
menn voru fluttir í sjúkra-
hús, en enginn beið bana.
Komust ekki í búðirnar
nema inn um gluggana!
Hafið er verkfall kvikmynda-
leikara í öllum helztu kvik-
myndaverum í Hollywood, að
Universal-International undan-
teknu.
í samtökum þeirra eru ýmsir
helztu kvikmyndaleikarar og
kvikmyndastjörnur í Banda-
ríkjunum.
Krafist er sérstakrar þókn-
unar fyrir kvikmyndir, sem
gerðar hafa verið frá 1948 og
sýndar eru í sjónvarpi.
Þetta er fyrsta verkfall sam-
takanna.
Troðið liaíði verið eldspýtuin
í skráarlgölin.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun. —
Það gekk ekki andskotalaust
að komast inn. í nokkrar búðir
hér í miðbænum í morgun,
þegar afgreiðslufólkið kom til
vinnu — og komst reyndar
ekki inn öðru vísi en gegnuni
gluggana.
Það sem gerzt hafði, var með
þeim hætti, að troðið hafði ver-
ið eldspýtum inn í skráargötin
á nokkrum helztu búðunum í
miðbænum, svo að ekki var
viðlit að hreinsa spýturnar út-
og koma lyklunum í. Varð ekki
annað til ráða en að taka rúð-
urnar úr, fara inn um glugga
til að opna lásana innan frá! —
Uppátæki sem þetta hefur ekki
verið framið hér fyrr svo vitað
sé.