Vísir - 28.03.1960, Blaðsíða 1

Vísir - 28.03.1960, Blaðsíða 1
12 síður q i\ I V 12 síður 50. árg. Mánudaginn 28. marz 19(10 73. tbl. Það er ekki ósennilegt, að nafn þessa manns verði á hvers manns vörum hér á Iandi á næstunni því að hann hefur að undanförnu unnið stórvirki, sem snertir mjög sögu Off bók- menntir Islendinga. Hann hef- ur nefnilega býtt Heimskringlu á finnsku, og sagt er nánar frá því inni í blaðinu. Færeyingar í Siglufirði. Frá fréttaritara Vísis — Siglufirði 25. marz. Togarinn Hafliði kom frá Færeyjum með 25 sjómenn á Sigufjarðarskipin. Vélskipin Bragi og Margrél eru á togveiðum og leggja upp fisk hjá haðfrysthúsi Síldar- verksmiðja ríkisins. Þau hafa veitt vel að undanförnu. Línu- veiðarinn Baldvin Jóhannsson hefur haft lélegan afla. Nokkr- ar trillur ganga héðan, en hafa sáralitla veiði. Átvinna er aftur að glæðast í bænum vegna aukinnar fisk- vinnslu. — Þrj. Vítamín úr whisky. Varla fer hjá því, að whisky-vinir reka upp sigur- óp við lestur þessarar fregn- ar, sem tilkynnt var í há- skólanum í Cincinnati í Ohio í Bandríkjunum á mið- vikudaginn: Dr. J. R. Couch, sem er prófessor við land- búnaðar- og vélaháskólami í Texas (venjulega kallað- ur í stuttu máli Texas A & M), hefur fundið upp nýja tegund vítamíns í whisky-dreggjum, sem finn- ast í ámum þeim sem whisky er látið gerast 1. Hér er um ræða vítamín af B-fjörvastefni, og hefurþann eiginleika, að það eykur mjög vaxtarhraða og holda- myndun hjá þeim, sem þess neyta. Hafa tilraunir verið gerðar með það á kjúkling- um og hefur þroskaaukinn nmnið 19—25 af hundraði. Menn gera sér vonir um, að vítamín þetta geti komið að góðu gagni í löndum, þar sem matvælaskortur er land- lægur af ýmsum sökum. Eins og þegar er getið, er hér um B-vítamín að ræða, og er þetta 15. vítamínið, sem viísiindin hafa fundið og einangrað. Emkaviðtal Vísis við George Drew: Ráðstefnan ætti ekki að gera samþykkt um „sögulegan" rétt. ÍSann n nö vera santnint/s- atriöi tniíli þjfóöa. Rætt við fulltrúa Kanada á sjóréttar- ráðstefnunni í Genf. Frá fréttantara Vísis.:— Genf í gær. Mér hefur tekizt að fá einkaviðtal við George Drew, fulltrúa Kanadamanna á sióréttarráðstefnunni í Genf, sem fulltrúar margra bjóða telja í rauninni foringja sinn í baráttunni fyrir stærri fiskveiðilögsögu og er raunar talsmaður Jjeirra, sem mest berjast gegn Bretum. í fyrstu snerist samtalið einkum um muninn á sjónar- miðum Bandaríkjanna og Kanada, og taldi Drew hann minnkandi. Hann komst svo að orði: „Eg held, að við (Banda- ríkin og Kanada) sé nær því að ná samkomulagi nú en fyrir tveim árum. Það er minna bil milli skoðana okk - ar, og við erum nær því að vera sammála en á fyrri ráð- stefnunni.“ Þá bai’st talið að svonefndum „sögulegum“ rétti, sem mjög er haldið fram af sumum þjóð- um. Hann taldi það skoðun Kanadastjórnar, að bezt mundi vera, að fjallað væri um fisk- Eitt mannslíf í síldarháf. Barni bjargað frá drukknun. Frá fréttaritaya Vísis — Sauðárkróki, laugardag. í gær voru nokkur börn að leika sér á svonefdri „Gömlu bryggju“, sem er áustan við Verzlunarfélag Kaupfélagsins. Bryggjan er garmur með götóttu dekki, enda ekki not- uð. Margeir Valberg sjómaður var staddur þarna skammt frá, og heyrði skyndilega hróp frá barnahópnum. Brá hann fljótt við og hljóp til barnanna. Kom þá í ljós að lítill 4ra ára dreng- ur hafði fallið í sjóinn niður um gat á bryggjunni. Af til- viljun var Margeir þarna með trillubát sinn, en í honum var smásíldarháfur með löngu skafti. Margeir fór í skyndi niður í bátinn, kom honum undir byggjuna og náði barn- inu í háfinn eftir örskamma stund. Var þá drengurinn orð- inn meðvitundarlítill, en jafn- aði sig fljótt. — Togarinn Ingvar Guðjóns- son landaði hér tæplega 100 lestum af fiski, sem fer í vinnslu í frystihúsi bæjarins. ■fa Á ferðalaginu um vínhéruð Frakklands var Krúsév gef- in flaska af víni af „árgang - inum 1894“, en bað ár var hann fæddur. Hann gaf 3 flöskur af vodka í staðinn. Þegar upp komst um svikin í spurninga'þáttum sjónvarpsins bandaríska á s.l. ári, var ekki haft fyrir að yfirheyra þann mann, Teddy Nadler, sem mest hafði fengið í verðlaun eða 264,000 dollara, en landafræðin var hans sterka hlið. í s.I. viku sótti hann um starf og varð að ganga undir próf — og féll á landafræðinni. Hann vissi ekki almennilega um áttirnar á landabréfínu. veiðikröfur í sambandi við þenna „sögulega“ rétt með samningum milli þjóða frekar en að gera samþykkt þar að lútandi á ráðstefnunni, þar sem slíkur réttur væri viður- kenndur. „Eg get vitanlega ekki fullyrt neitt um það á þessu stigi málsins,“ sagði Drew, „hverjar verða niðurstöður ráðstefnunnar eða hvaða samþykktir hún gerir. Hitt er mér óhætt að segja, að menn hafa hugleitt marga möguleika. Að niðurstöðun- um verður svo ráðstefnan sjálf að komast.“ Drew sagði, að nokkurt breytingatímabil mundi fylgja í kjölfar ráðstefnunnar, og til dæmis mundu Kanadamenn ekki stöðva veiðar Bandaríkja- manna við Kanadastrendur tafarlaust, þótt ráðstefnan heimilaði slikt. Framh. á 2. síðu. Víða í stórboi’gum er loft mjög slæmt vegna allskonar gastegunda, sem streyma frá vélum af öllu tagi. Svo er t.d. i París, og þar hefur fyrirtæki eitt fundið upp á að setja upp klefa á götum úti, þar sem menn geta fengið sér hressingu — andað að sér hreinu súrefni. Staðfesting öldungadeildar Bandaríkjaþings á 12-þjóða sáttmálanum um suður- skautasvæðið hefur dregizt vegna tafsamrar afgreiðslu annarra mála en samning- urinn var undirritaður 1. des. s.I. Getur staðfesting dregizt lcngi enn. Væntanlega ekkert verkfall á togurum. Var að ganga saman fyrir helgina. Eins og getið hefur verið í blöðum, boðuðu yfirmenn á tog:(vaflotanum verkfall fyrir nokkru. Höfðu samningar staðið yfir um skeið. og orðið samkomulag um flest atriði, en þó ekki öll, og boðuðu yfirmenn síðan verk- fll frá miðnætti á miðvikudag 30. þessa mánaðar, ef endanleg- ir samningar hefðu ekki tekizt. Síðan hafa samningafundir bfrggja aðila unnið af kappi i málinu, og á laugardaginn var svo komið, að því er Vísir frétti eftir góðum heimildum ímorg- un, að samningar voru að ganga saman, þótt ekki væri' þeim að öllu lokið. Voru góðar vonir um, að ekki mundi koma til verkfalls. Rétt er að geta þess vegna fullyrðinga Þjóðviljans um þetta efni, að ríkisstjórnin hef- ur engin afskipti haft af samn- ingum þessum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.