Vísir - 31.03.1960, Qupperneq 1
q
k
I
y
50. árg.
Fimmtudaginn 31. marz 1960
76. tbl.
Kommúnistar biðja um
aistoð allra flokka.
íslendingar spurning-
armerkið í Genf.
F'lokksþing þeirra rekur
upp stórkostlegt neyöaróp
Rokkur þeirra lítill, sundurþykkur,
óþroskaður og þröngsýnn.
„FIokks|>ingi“ kommúnista er nýlega Iokið. Þar
var hver höndin uppá móti annari, enda eru þar tvö
flokksbrot sem togast á um völdin.
Niðurstöðu-ályktun „flokksþingsins“ sýnir bezt hinn dæma-
lausa aumingjaskap kommúnistanna og opinberar algert ráð-
Jeysi þeirra og flokkslegan vanmátt.
Niðurstöður „þingsins“ eru
þessar:
„Flokksþingið telur það því
höfuðverkefni flokksins á
næsta tímabili að skapa póli-
tísk skilyrði til að mynda þjóð-
fyíkingu verkamanna, annarra
launþega, bænda, mennta-
manna og millistétta, sem nái
meirihluta í næstu kosningum
og myndi ríkisstjórn til nýsköp
unar þjóðfélagsins í aðalatrið-
um á þeim grundvelli sem mark
aður var í kosningastefnuskrá
Alþýðubandalagsins haustið
1959.
Flokksþingið álítur að póli-
tísk skilyrði til myndunar slíkr
ar þjóðfylkingar verði bezt
tryggð á þennan hátt:
1. Með því að stórefla Al-
þýðubandalagið og sameina
innan þess alla verkalýðssinna
og þjóðfrelsissinna, þ. e. Þjóð-
varnarflokkinn og þá menn úr
Alþýðuflokknum sem vilja
framfylgja upphaflegri hug-
sjón hans og stefnu.
2. Með samstarfi við Fram-
sóknarflokkinn, en slíkt sam-
starf getur því aðeins borið ár-
angur að samvinnumenn og
aðrir sem fylgja róttækri
'stefnu sigrist á öflum auðvalds
og afturhalds í flokknum.
3. Með samvinnu við öli önn-
ur öfl, einnig menn sem fylgt
hafa Sjálfstæðisflokknum og
unnt reynist að hafa takmark-
að samstarf við gegn stefnu
versta afturhaldsins.
Því aðeins tekst flokknum
að skapa þessi skilyrði að
hann eflist sjálfur að mann-
vali, marxistískum þroska
og víðsýni, að félagatala
hans stóraukist og í honum
verði alger eining um fram-
kvæmd þeirra verkefna seni
flokksþingið setur honum.”
Aldrei hefur heyrzt slíkt
neyðarkall í íslenzkri pólitík.
Kommar lýsa yfir, að til þess
geta leyzt af hendi hlutverk
sitt verði þeir að fá stuðning
frá öllum flokkum. Ennfremur
lýsa þeir yfir, að þeir þurfi
Frh. a* 4. s.
3000 manna lið umkringir
2 hverfi í Höfðaborg.
JVeyðarástantli Ijjst viðtt
í S.- \friku i gter.
Fregnir frá Suður-Afríku í
morgun, að ráðstafanir sem
gripið hefur verið til á grund-
velli Iaga um neyðarásíand, sem
látin voru ganga í gildi í gær,
nái nú til helmings íbúa lands-
ins.
AHt var sagt með nokkurn
veginn kyrrum kjörum í öll-
um hinna stærri bæja, nema
Höfðaborg, en þar hafði 3000
manna herlið umkringt tvær
útborgir og var ails engum
leyft inn í þær að fara né
heidur út úr þetnæ.
Það er mjög víðtækt vald,
sem stjórnin getur tekið sér á
grundvelli laganna um neyðar-
ástand, og hefur þegar gert:
Kvatt herlið til þjónustu, iát-
ið framkvæma handtökur að
vild, ef hún telur menn hafa
brotið nokkur ákvæði reglu-
gerðar um neyðarástand, en
þar með telst að hvetja til mót-
þróa gegn stjórnarvöldunum,
hvetja menn til að halda kyrru
fyrir heima' í stað þess að fara
til vinnu sinnar, fyrir að láta í
Framh. a> 4. síðu.
Þetta er Antonio Tambroni,
sem myndaði stjórn á Ítalíu á
dögunum. Það er minnihluta-
stjórn kristilegra demókrata.
Slökkviliðið
á ferð.
Slökkviliðið var tvisvar kall-
út í gær, til að slökkva minni-
háttar eldsvoða.
í fyrra sinnið hafði kviknað
í bragga, sem Pípugerð Reykja-
víkurbæjar hefur til umráða
inn í Vogum. Hafði þar kviknað
í út frá kolaofni, og var það
fljótt slökkt. Skemmdir urðu
ekki’ miklar. í seinna sinnið
hafði eldur orðið laus að Sól-
vangi, gróðrarstöð við Sléttu-
veg. Þar hafði kviknað í rusli
og urðu litlar skemmdir.
Frakkar sprengja
á ný þá og þegar.
Frakkar bönnuðu í gær allt
flug yfir sömu landssvæði í
Sahara og bannað var að fljúga
yfir, áður en þeir sprengdu
kjarnorkusprengjuna 13. febrú-
ar.
Er nú talið, að Frakkar séu
tilbúnir að sprengja seinni
sprengjuna (sem þeir voru þá
taldir eiga), en þó getur það
dregizt að tilraunin verði gerð,
veðurs vegna.
Frumherji V hefir nú farið
um 4 milljónir kílómetra út
I geimiim. Hraði ITans er
tæplega 9000 km. á klukku-
stund.
Líklegt, a5 fundarmenn líti upp,
þegar flutt verður ræða íslands.
Guardian vlðbútð undanhaldi Breta.
Einkaskeyti til Vísis. — Genf í gærkvöldi.
Þess er beðið með mikilli óþreyju, að rödd íslands
heyrist á sjóréttarráðstefnunni hér í Genf, því að menn
tala um, að íslendingar eða sendinefnd þeirra sé eigin-
lega spurningarmerkið í sambandi við ráðstefnuna.
íslendingar hafa verið manna fámálastir í sambandi við
ráðstefnuna, og munu 'þeir hafa lagt meiri áherzlu á að kynn-
ast skoðunum annarra og þeim straumum, sem Iíklegastir eru
meðal aðildarþjóðanna.
Þegar þetta er ritað, er ekki
vitað kl. hvað Guðmundur í.
Guðmundsson, formaður ísl.
sendinefndarinnar, mun stíga
í ræðustól, en ákveðið er, að
hann flytji ræðu sína á síðdeg-
isfundinum á fimmtudag.
Hitt leikur hinsvegar ekki
á tveim tungxun, að á hami
mun verða hlustað af at-
hygli. Þótt ráðstefnan hafi
ekki staðið lengi, eru fund-
armenn þegar farnir að
þreytast á ræðuhöldunum,
en það er búizt við því, að
allir leggi frá sér blöðin og
við hlustirnar, þegar rödd
íslands heyrisí.
Menn hafa kallað ísland
spurningarmerkið, eins og þeg-
ar er sagt, en samt gerir enginn
ráð fyrir, að nein breyting
verði á afstöðu íslendinga.
Ekkert hefur heldur komið
fram, sem bendir til þess, að af-
staða íslendinga sé ekki ná-
kvæmlega hin sama og fyrir
tveim árum, þegar haldin var
fyrri sjóréttarráðstefnan hér í
Genf. Oft hefur kvisazt um að-
alefni ræðna, sem ætlunin hef-
ur verið að flytja, en því er
ekki að heilsa, varðandi ræðu
Guðmundar í., því að enginn
óviðkomandi veit neitt um
hana.
Semja Kanada og f
Bandaríkin.
Eins og nú standa sakir, virð-
ast Bandaríkjamenn og Kan-
adamenn staðráðnir í að þoka
ekki um hársbreidd frá tillög-
um sínum, en þó hefur verið
talað um að gerð verði sam-
komulagstilraun utan ráðstefn-
unnar. Manchester Guardian
ritaði í dag um málið og komst
svo að orði:
„Tvennt gæti ýtt undir
vonir xun hyggilegt sam-
Framh. á bls. t2.
Afhendir skiíríki.
Hinn nýi sendiherra Belgíu
á íslandi, le Chevalier Jean de
Fontaine hefur afhent forseta
íslands trúnaðarbréf sitt við
hátíðlega athöfn á Bessastöð-
um, að viðstöddum Emil Jóns-
syni ráðherra, sem fer með
utanríkismál í fjarveru utan-
ríkisráðherra.
Að afhöfninni lokinni höfðu
forsetahjónin boð inni fyrir
sendiherrann.
Togaraverkfallinu loki5.
Síðasti sáttafundur stóð í 12 klst.
Verkfalli yfirmanna á togur-
um lauk í morgun er sámning-
ar voru undirritaðir fimmtán
mínútum fyrir kl. sex. Hafði
sáttafundur. þá staðið j’fir frá
því kl. 5 e. h. á miðvikudag.
Eins og kunnugt er, var það
viðurkennt að kjör togarasjó-
manna voru lakari en annarra
sjómanna. Kom það fram í
greinargerð með efnahagsmála-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar,
að þrátt fyrir þá stefnu hennar
að sporna við launahækkunum
nú, væri það óhjákvæmilegt að
bæta kjör togarasjómanna,
segir í frétt frá F.Í.B.
Leiðrétting' sú, sem um var
samið milli FÍB er fólgin í því
að fiskverð sem aflaverðlaun
miðast við, var fært til sam-
ræmis við skiptaverð bátasjó-
manna. Auk þess var um minni
Framh. á <2. síðu.