Vísir - 07.04.1960, Blaðsíða 4

Vísir - 07.04.1960, Blaðsíða 4
vfsiB Fimmtudaginn 7. apríl 1960 VÍ8IE DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Kr. 3,00 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. ÓgnaröEdin í S.-Afríku. Barátta milli kynþátta hefir verið fylgifiskur mannkyns- ins frá upphafi vegar, og hætt er við, að hún verði seint á enda kljáð. En hún , hefir verið mismunandi vægðarlaus um aldirnar, þótt nú sé svo komið, að ýmiskon- ar framfarir(?) geri mönn- um kleift að ganga fram af meira miskunnarleysi en nokkurn mun hafa órað fyrir eigi alls fyrir löngu. Nægir að benda á múgmorð þau, sem einræðisríki 20. aldar- innar hafa framið svo að segja fyrir allra augum og með nýtízku aðferðum til þess að tryggja, að afköstin yrðu sem allra mest og lítil hætta á, að nokkurn bæri undan. Ógnaröld sú, sem nú er ríkjandi í S.-Afríku, einkennist að vísu ekki af gasklefum og þvílíkum drápstækjum, en þó er kynþáttahatrið þar svo ofsalegt, að í rauninni stapp- ar nærri blóðugri borgara- styrjöld. Stjórn landsins, menn, sem eru einkum af stofni Búa, þjarmar svo að blökkumönnum, bæði svert- ingjum og mönnum af Asíu- stofni, að aðrar eins aðfarir hafa ekki um langt skeið spurzt um heiminn frá þjóð, sem kallar sig lýðfrjálsa. Hvítir menn hvarvetna bera kinnroða fyrir þau ódæðis- verk, sem unnin eru daglega um þessar mundir í nafni hvíta kynstofnsins í S,- Afríku. Þau fantatök, sem lögregla Suður-Afríkustjórnar hefir beitt þá þegna, sem taldir eru óæðri af valdamönnun- um, eru vafalaust búin að vekja þvílíkt hatur blökku- manna á hinum hvítu íbúum landsins, að aldrei getur gró- ið um heilt. Eftir þær aðfarir, sem hvítir menn hafa látið sér sæma í S.-Afríku síðustu vik-ur, getur vart farið á ann- an veg en að svertingjar rísi upp, allir sem einn, þegar minnst vonum varir, og drepi hvíta menn hvar sem til þeirra næst. Blökkumenn eru 11 milljónir gegn þrem milljónum hvítra, svo að varla getur hvíti kynstofn- inn staðið vel að vígi, þegar hinir svörtu hafa fylkt liði, eins og þeir hljóta að gera, og hefja sókn. Brezk blöð hafa eins og fleiri aðilar látið í ljós megna and- úð og viðbjóð á athæfi stjórnar Verwoerds, og er ekki nema gott um það að segja. En hætt er við að sömu blöð og nú fordæma Búa- stjórn, hafi einhvern tíma látið sér eins og vind um eyrun þjóta neyðaróp svartra manna annars staðar í Afríku eða jafnvel manna, sem búa enn nær Bretlandi og eru engan veginn eins dökkir á hörund og blámenn. En vitanlega gegnir þar öðru máli í augum þessara blaða, af því að þar voru aðrir aðil- ar að verki, þar höfðu sendi- menn annarra stjórnarvalda verið sendir fram til hryðju- verka. Skörin er vissulega farin að færast upp í bekkinn, þegar enginn fæst til að mæla Ver- woerd og mönnum hans bót í því landi, sem stundað hef- ir nýlendukúgun hvað dyggi- legast. Vonandi er það góðs viti og sönnun þess, að Bret- ar muni sjá að sér framvegis. íslendingar munu fagna því eigi síður en aðrar þjóðir, sem fengið hafa að kynnast brezkri útgáfu af þeirri drottnunarstefnu, er nú fer hamförum í S.-Afríku. Óbreytt fargjöEd hjá Loftieiðum. Sumaráætlun gengin í gildi. Sumaráætluninni, sem gekk í gildi 1. apríl sl. lýkur 31. októ- ber, á því tímabili verða 5 ferðir farnar til og frá Skand- inaviu, þrjár um Noreg, þrjár um Danmörku og tvær um, Svíþjóð. Nýjar vikulegar ferð- ir verða hafnar til Helsingfors og verður fyrsta ferðin farin 30. apríl. Tvær vikulegar ferðir verða farnar til og frá Bretlandi, önnur um London—Glasgow, en hin einungis milli Glasgow og Reykjavíkur / New York. Tvær ferðir munu farnar í viku frá Amsterdam til Reykja- víkur og New York. Ein ferð verður farin í viku miili Luxemborgar, Reykjavík- ur og New York. Þrjár vikulegar ferðir verða farnar milli Hamborgar, Reyk- javíkur og New York. Alls verða 8 ferðir farnar í viku fram og aftur milli Evr- ópu og Ameríku. Flugkostur. Frá byrjun apríl-mánaðar munu Cloudmasterflugvélarn- ar nýju smám saman teknar í notkun á flugleiðum félagsins. Enn verða fargjöldin hagstæð. Lofleiðir munu ekki breyta fargjöldum sínum. Loftleiðir hafa rutt braut hinna lágu far- gjalda á flugleiðum yfir Norð- ur-Atlantshafið og munu enn sem fyrr, halda áfram að bjóða hagstæðust fargjöld allra áætl- unarflugfélaga á þessum leið- um, þrátt fyrir hina nýju lækk- un IATA- flugsamsteypunnar. Til dæmis má geta- þess, að fargjalda mismunurinn á báð- um leiðum milli Lundúna og New York mun jafngilda 44.80 Bandaríkjadölum, Amsterdam — New York $44.40 Luxem- borg — New York $57.10 Hamborg — New York $62.50, Gautaborg — New York $ 103.20 og á hin síðast greinda tala einnig við Kaupmanná- höfn og Oslo. Loftleiðir munu bjóða hin svokölluðu ,,sparnaðarfargjöld“ en munu halda áfram að veita góðkunna þjónustu og gera far- þegum að greiða hin hagstæðu fargjöld, sem upp hafa verið talin hér að framan. „í Skálholti“ leikið á 10. afmælisdag Þjóðleikhússins Einnig verður flutt „Carmina Burana" Á undan sýningunni flytja menntamálaráðherra, formað,- ur Þjóðleikhússráðs og Þjóðleik hússtjóri ávörp. Þá verður flutt (ur hátíðaforleikur Þjóðleikhúss ins, sem dr. Páll ísólfsson samdi og gaf stofnuninni er hún var vígð fyrir 10 árum. Sinfóníu- hljómsveit íslands leikur for- leikinn undir stjórn dr. Róberts A. Ottósonar. Carmina Burana. Laugardaginn 23. april og sunnudaginn 24. verður svo flutt kórverkið „Carmina Bur- ana“ eftir Karl Orff, en það hefur orðið vífrægt og geysi vinsælt víða um lönd hin síð- ari ár. Þjóðleikhússkórinn og Sinfóníuhljófsveitar íslands munu flytja verkið, en ein- söngvarar verða Þurriður Páls- dóttir, Kristinn Hallsson, og' .Þorsteinn Hannesson, en stjórn- jandi dr. Rober A. Ottóson. Þjóðleikhúsið á 10 ára af- mæli á miðvikudaginn 20. þ.m. Brotaiamir innan Eögreghmnar. Undanfarið hafa gerzt þeir atburðir innan lögreglunnar hér og í Keflavík, að ærin ástæða virðist til þess að framvegis verði haft strang- ara eftirlit með heilsufari og heiðarleik manna, sem velj- ast til slíkra starfa. Annars vegar er maður, sem virðist geta verið hættulegur um- hverfi sínu — og jafnvel hættulegri en ella, af því að honum hefir verið sýndur sá trúnaður, sem því fylgir að vera tekinn í lögregluna — og hinsvegar maður, sem hefir jafnvel gerzt sekur við • landslög áður en hann gerðist starfsmaður löggæzlunnar, og framdi afbrot svo að segja þegar í stað. Að sjálfsögðu þarf að athuga vandlega fortíð manna, sem sækja um löggæzlustörf, svo að ekki komi hér upp hneyksli á borð við þau, sem gerzt hafa erlendis. En einn- ig virðist sjálfsagt að athuga andlegt heilsufar manna, sem virðast mjög úr jafnvægi eins og sá ógæfusami maður innan Reykjavíkurlögregl- unnar, sem sakaður var um að hafa sent lögreglustjóra hótunarbréf. Þetta er nauðsynlegra en ella, og verður þess minnzt með há- tíðarsýningu á leikritinu „í Skálholti“ eftir Guðmund Kamban undir stjórn Baldvins Halldórssonar, og helgina næstu verður flutt hið fræga kórverk með hljómsveit „Carmina Bur- ana“ eftir Karl Orff, en stjórn- andi þess verður dr. Robert A. Ottóson. Hlutverkskipun í sjónleikn- um „í Skálholti" verður sem hér segir: Brynjólfur biskup (Valur Gíslason), Ragnheiður biskupsdóttir (Kristbjöng Kjeld), Helga í Bræðratungu (Regína Þórðardóttir), Margrét biskupsfrú (Guðbjörg Þor- bjarnardóttir), Daði Halldórs- son (Erlingur Gislason), Dóm- kirkjupresturinn (Helgi Skúla- son), Skólameistarinn (Ævar R. Kvaran) og Torfi prestur (Robert Arnfinnsson). Vil- hjálmur.Þ. Gíslason þýddi leik- ritið, en Magnús Pálsson mál- aði leiktjöld. Landbúnaðarafurðir USA keypt- ar áfram fyrir ísf. krónur. Frá G. Ág. hefur Bergmáli borizt eftirfai’andi bréf: „L,jósavikan“. í sambandi við „Ljósavikuna“, sem nú stendur yfir, langar mig að mælast til þess, að menn temji sér fremur notkun fallega, íslenzka orðsins: „ljósaflóð", en „flóðljós”, sem virðist vera „gleypt ómelt“ úr enskunni (floodlight). „Meðal góðra frétta". Meðal margra góðra frétta af fulltrúa-fundi Skóræktarfélags Islands, gladdist undirrit. ekki sízt yfir frétt af því, að vega- málastjóri sé nú farinn að láta græða upp flagskellur, sem ó- hjákvæmilega myndast við vega- gerð um graslendi, sem oft er af „skornum skammti". Vegna þess, að sá, er þessar línur ritar hefur lengi talið svona „kvittun" sjálfsagða, urðu eftirfarandi vísur eitt sinn til á ferðalagi um heiðalönd: Þars upphleypti vegurinn út yfir landið sig teygir, má allvíða greina hvar fyrrum lá vall-lendisflöt. Þó rétt sé að legga’ann svo langt eins og augað eygir, er alls engin þörf á, að skilja eft- ir þessháttar „göt“. Því gróður á heiðum ei gæddur er þvílíkum mætti, að geti ’ann af sjálfsdáðum bætt fyrir þessháttar spjöll. Þvi mál er til komið að skamm- sýnis skemmdirnar hætti, | og skellurnar breytist við sán- ingu í iðgrænan völl. G. Ág.“ „Önnur söngelsk" skrifar: „Söngelsk" skrifar í Bergmál og vill að útvarpað sé meira af góðum sönglögum, og vil ég taka undir það, og um leið mæl- ast til, að smekk manna sé ekki misboðið með útvarpi, sem er ekkert annað en misþyrming á hugðnæmum lögum, og tel ég þeirra á meðal plötuna af „Danny boy“, sem útvarpað var eitt kvöldið nú i vikunni, en þessi fræga þjóðvísa er sem kunnugt er sungin undir laginu „London- derry Air“, sem viðurkennt er sem ’ eitthvert hugðnæmasta þjóðlag, sem til er, og nýtur vin- sælda um allan heim. Hér er um gimsteina að ræða, sem mér finnst blátt áfram skammarlegt að færa í jazzumbúðir. Er ég minnist á þetta kemur fram í hugann, að fyrir nokkrum ár- um var byrjað á því hér, að af- skræma fögur islenzk ljóð, en sem betur fer virðist sá ósiður hafa lagzt niður. — Önnur söng- elsk.“ í gær var gerður samningur milli ríkisstjórna Bandaríkj- anna og Islands um kaup á bandarískum landbúnaðarafurð um gegn greiðslu í íslenzkum krónum. Samningin undirrituðu Tyl- er Thompson, sendiherra Banda ríkjanna, og Emil Jónsson, er nú gegnir störfum utanríkis- ráðherra. Hér er um að ræða samskonar samning og gerður hefur verið undanfarin þrjú þegar'trúnáðárménn hins.op- : inbera eiga i hlut. ár við ríkisstjórn Bandaríkj- anna. f hinum nýja samningi er gert ráð fyrir kaupum á hveiti, maís, byggi, hrísgrjónum, tó- baki og soyu- og bómullarfræs- olíum, fyrir alls 1.85 milljónir dollara eða 70 milljónir króna. Andvirði afurðanna skiptist í tvo hluta. Annar hlutinn, sem er 75% af andvirðinu, gengur til lánveitinga vegna fram- kvæmda hér á landi. Hinn hlut- inn, sem er 25% af andvirðinu, getur Bandaríkjastjórn. notað til eigin þarfa hér á landi. Nasser, bjargvættur Suez. Nasser heldur áfram ferS sinni um Iadland og er kvar- vetna vel tekið. í einni borginni var reistur upp heiðursbogi mikill í til- efni komu hans og var á hann letrað: Velkominn, bjargvættur Suez. ........

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.