Vísir - 19.05.1960, Side 1
q
I
V
50. árg.
Fimmtudaginn 19. maí 1960
111. tbl.
Hafnfirðingar fagna hinu glæsilega nýja skipi, togaranum „Maí“
í gær. Veðrið gat ekki betra verið, og svo var krökkt af fólki á
öllum aldri á hafnarbakkanum, að varla var hægt að þverfóta.
(Ljósm. Vísis — P. Ó. Þ.)
Hafnfirðingar fögnuðu
komu Maí í gær.
Bæjarútgerðin hefur verið lyftistöng
fyrir athafnalífið þar.
Sovétstjórnin krefst fund-
ar í Öryggisráði S. þj.
Stöðvaðar verði „dæmalausar ögranir'
bandaríska flughersins.
Fyrirskipað að fagna Krúsév við komuna
tii Austur-Berlínar í dag.
Það var líkast því að hátíðis—!
dagur væri í Hafnarfirði í gær.
Fánar blöktu við hún í hægum
vestan andvara og glaða sólskin
var yfir þessum fallega bæj
Fólkið var spariklætt og þyrpt-J
ist niður á bryggju til að fagna
hinu fallega skipi sínu, togar-'
num Maí, sem sigldi inn á höfn-
ina fánum skrýddur kl. 6.
Er Maí lagðist að bryggju
var honum fagnað af Lúðra-
sveit Hafnarfjarðar sem lék
'nokkur lög og Karlakórinn
Þrestir fór um borð og söng af
skipsfjöl. Adolf Björnsson for-
maður útgerðarráðs flutti ræðu
og rakti sögu útgerðarinnar.
Stefán Gunnlaugsson flutti
einnig ræðu og þakkaði Bæjar-
útgerðinni fyrir þann þátt, sem
hún hefði átt í eflingu atvinnu-
lifsins í Hafnarfirði.
Maí er stærsti togari lands-
ins um, 1000 brúttó rúmlestir.
Allar vélár eru af Man gerð.
Aðalvélin er 2280 h.ö. og knýr
skipið með 16 sjómílna hraða.
Á skipinu er skiptiskrúfa af
fullkomnustu gerð. Allur bún-
aður skipsins er hinn fullkomn-
asti. Má þar nefna tvö radar-
tæki, sem draga 48 mílur, sjálf-
virkur Sperry Loran, langdræg
stuttbylgjustöð, gyroáttaviti og
sjálfstýring. í skipinu eru tæki
til að dæla 80 gráða heitum sjó
frá fjórum stöðum á skipinu til
að verjast ísingu. Þá er þar að
finna þá nýjung að rathitun er
í framsiglu til að bræða af ís.
Lestar skipsins eru klæddar al-
uminíum og rúma 500 til 550
lestir af fiski.
Gromykó utanríkisráðherra
Sovétríkjanna símaði í gær frá
París til höfuðstöðva Samein-
uðu þjóðanna í New York kröfu
stjórnar sinnar, að Öryggisráð
þeirra kæmi saman þegar, til
þess að ræða hinar „dæmalausu
ögranir“ bandaríska flughersins
með njósnaflugi yfir sovézku
Iandsvæði, er hefði þannig ver-
ið rofin hvað eftir annað.
Ennfremur segir í orðsending
unni, að fundar sé krafist í Ör-
yggisráðinu vegna þess, að það
hafi komið fram, að það sé yfir-
lýst stefna Banaríkjastjórnar,
að verja njósnaflug. Er þess
krafist, að Öryggisráðið grípi
til ráðstafana til þess að stöðva
allt slíkt.
TiIIögur Eisenvowers.
Fyrstu ummæli frá Banda-
ríkjunum af opinberri hálfu
Togararnir leita nú
víða til fanga.
Dregið hefur úr afla við Grænland.
Síðan siglingum til Bretlands
var hætt hefur löndunum úr
togurum að sjálfsögðu fjölgað
í Reykjavík. Togararnir Ieita
nú víða til fanga, á heimamið
til Grænlands og Nýfundna-
lands.
Aflinn er nokkuð misjafn en
margir hafa gert allsæmilega og
jafnvel góða túra. Nokkuð er
farið að tregðast við Grænland,
„getur verið að hafi dregist þar
upp eða kominn sé ís á miðin“,
sagði Hallgrímur í Togaraaf-
greiðslunni.
Það er allsæmilegur afli á
Nýfundnalandsmiðum, en ekk-
ert mok.
Frá 8. þ. m. hafa eftirtalin skip
landað í Reykjavik: Skúli Magn
ússon 310 lestir, Þormóður goði
351, Gerpir 274, Jón forseti 41
lest af saltfiski og 131 af ísuð-
um fiski, Marz 226 lestir, Úran-
us 283, og Akur 298. í dag er
verið að losa úr Fylki og Geir.
Báðir eru með fullfermi.
SmíðaÓi 64 þús.
tunnur í vetur.
Frá fréttaritara Vísis.
Sigulfirði í gærmorgun.
Tunnuverksmiðja ríkisins á
Siglufirði er nú að hætta tunnu-
smíði að þessu sinni.
Síðan í byrjun desember hafa
unnið þar 30—40 manns, og
smíðaðar hafa verið um 46 þús-
und tunnur. Hefir framleiðslan
gengið mjög vel, enda starfa
þarna þaulvanir menn, sem
unnið hafa að þessu vetur eftir
vetur. Verkstjóri og yfirsmiður
er Ástvaldur Kristjánsson.
Tunnuverksmiðjuna vantar til-
finnanlega geymslurými fyrir
framleiðslu sína og mun það
vera til athugunar að leysa úr
því. Tunnurnar hafa verið
geymdar í mjölhúsi S.R., en
verða nú senn hvað líður flutt-
ar á síldarstövarnar. Starfslið
verksmiðjunnar fer nú til ann-
arra starfa, á síldarstöðvarnar,
síldarskipin o. s. frv.
voru frá Cabot Lodge, aðalfull-,
trúa þeirra á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna, sem sagði að
meiri þörf væri að ræða orsakir
þess, að njósnaflug hefðu verið
stunduð, og finna ráð til þess
að uppræta þær orsakir. Þetta
hefði vakað fyrir Eisenhower
forseta og verið einlægur ásetn-
ingur hans, að bera fram tillög-
ur í þvi efni fram á fundi æðstu
manna. Samkvæmt þeim tillög-
um væri eftirlit falið Samein-
uðu þjóðunum og auk þess byð-
ust Bandarikin til að leggja
Sameinuðu þjóðunum allt það
til, er til slíks eftirlits þyrfti.
Með því að ganga af fundi
æðstu manna hefði Krúsév kom
ið i veg fyrir að slíkar tillögur
væru lagðar fram í París.
í París
búast höfuðkapparnir til
heimfarar í dag. Eisenhower
forseti leggur leið sína til Lissa
bon, höfuðborg Portúgals, og
dvelst þar sólarhring. Harold
Macmillan neytir hádegisverð-
ar með De Daulle Frakklands-
Framh. á 5. síðu.
Þeyar K. á-
kallar Gu5!
S.I. mánudag reyndi Krús-
év að leggja áherzlu á orð
sín og einlægni með því að
klykkja út með þessum orð-
um: „Eins og guð er mitt
vitni.“
í tilefni af þessu er minnt
á, að Krúsév er guðleysingi,
eins og hann hefur lýst yfir
sjálfur á liðnum tíma. —
Pravda hafði eftir Krúsév í
nóvember 1957: „Nafn guðs
er oft notað til dulbúnings
— til þess að blekkja menn,
með því að slá á strengi til-
finninganna og við kommún-
istar erum guðleysingjar —
og ef við, í ræðum, notum
orðatiltæki eins og til dæmis
„guðs sannleikur“ (þ. e.
heilagur sannleikur eftir ísl.
málvenju), þá verður þetta
aðeins af göntlum vana —
við Iítum svo á, að trúin á
guð sé í mótsögn við komm-
únistiskt viðhorf.“
Áhrif Krúsévs heima
í fyrir dvínandi.
Rauði herinn sagður sfyðja
Sfalinista.
Tilkynnt hefir verið í Amm-
an, að 600 manns hafi boð-
izt til að berjast með sveit-
um Serkja í Alsír.
'jff Látin er í Portúgal Maria
do Rosario, 116 ára, sem tal-
in var elzta kona lands-
íns.
Fyrir nokkru voru laun Iiðs-
foringja í Rauða hernum lækk-
uð. Er talið að þetta bitni á
samtals um 350.000 foringja
af öllum „gráðum“ og er kurr í
liðinu, sem kvað hafa magnast
í seinni tíð.
Af ýmsum er talið, að ó-
ánægja liðsforingjanna hafi
leitt til þess, að stalínistar geti
vænzt meiri stuðnings frá
Rauða hernum, og þar með fá
sterkari aðstöðu til baráttu gegn
„friðarstefnu“ Krúsévs, sem
alla tíð hefir verið þyrnir í
augum stalínista — og kín-
verskra kommúnista. Hefir af
óánægju stalínista og kin-
verskra kommúnista leitt, að
þrýst er að Krúsév úr tveim
áttum óþyrmilega til stefnu-
breytingar, og að margra áliti
|er þetta hin sanna orsök þess,
að Krúsév notaði njósnaflugið
'til að ónýta fund æðstu manna,
Jsem hann þar að auki vænti sér
leinskis af? Viðræðurnar við De
Gaulle á dögunum eru taldar
hafa sannfært hann um, að
engra tilslakana væri að vænta
af hálfu vestrænna leiðtoga
varðandi Berlín og Þýzkaland.
Hann hefði því ekki getað kom-
ið heim og hrósað neinum sigri
og heldur valið að koma heim
og skella allri skuld á Eisen-
hower.
Athygli mikla vekur, að víð-
tæk mannaskipti hafa orðið í
Sovétríkjunum svo að „hreins-
un“ er um að ræða að ýmsra
áliti. — Mikojan heyrist nú vart
nefndur. -
!