Vísir - 22.06.1960, Blaðsíða 3

Vísir - 22.06.1960, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 22. júní 1960 V ÍSIB 3 FRAMFARIR OG TÆKNI + Skip framtíðarinnar ná 100 mílna hrak. Siníði stoBaskipa undirbúin í U.S.A. Það' eru mörg ár, síðan Banda ríkjamenn fóru að gera tilrau- ir með svokölluð „stoðaskip“, og einn þeirra helzti frömuður í þessum málum var uppfinn- ingamaðurinn Alexander Gra- ham Bell, sem smíðaði stoða- skip eftir fyrri heimstyrjöldina, og reyndi það á stöðuvatni í Nova Scotia, og náði það 115 km. hraða á klukkustund. Skip þetta var knúið tveim flugvélahreyflum, srrtíðuðum í fyrra stríði. Þessi mikli hraði náðist rneð því að smíða nokk- nurs konar stoðir undir skrokk skipsins og út frá þeim einskon- ar vængi. Lyftist skipið smám saman úr sjó, er hraðinn jókst, þar til það þaut áfram á stoð- unum yfir sjóinn. Þegar upp- finningamaðurinn andaðist 1922, féllu rannsóknir niður í sambandi við þessa uppfinn- ingu. Fvrlr nokkru síðan komst málið á rekspöl aftur, þegar Charles R. Denison, yfirmaður trannsóknastofu sjávarútvegs- ins í Bandaríkjunum, spáði því að stoðaskip, sem knúin væru með kjarnorku, mundu sigla yfir úthöfin í náinni ffamtíð. Denison spáir því að árið 1965 muni verða búið að smíða 1000 jtonna skip, sem flytji 320 far- þega, og komast allt upp í 160 km. hraða, eða þrisvar sinn- | um hraðar en nútíma skip. Slíkt skip mundi „fljúga“ á þrem stoðum, en kjarnorku- vélin mundi staðsett í neðsta hluta ,,fótar“, sem væri neðan- sjávar að staðaldri. | Þetta skip mun hvíla á skrokknum eins og venjuleg skip, þegar það er í höfn og ,stoðirnar dregnar inn. Áður en kjölurinn verðui' lagður að þessu skipi, munu Grumman flugvélaverksmiðj- urnar í Bandaríkjunumfullgera teikn.ingar og áætlanir um smíði þess, og líkan mun verða smíðað til reynslu. Úr hverju er ameríski bíllinn framleiddur ? Allar álfur heims framleiða hrá- efni til bílaiðnaðarins. Bandaríski bílaiðnaðurinn er ekki eins hreinræktaður og margan skyldi gruna. Þrátt fyr- ir hinar mildu auðlindir Banda- ríkjanna, þá verður að leita vítt um lönd eftir hinum mörgu hlutum og hráefnum sem not- uð eru við framleiðslu bifreið- anna. Þegar farið. er að skoða málið niður í kjölinn kemur i Ijós, að í venjulegum bandarísk- um bíl má finna hluti sem eiga uppruna sinn að rekja til allra Sieimsálfa. Af innfluttum efnum má nefna kopar, blý, zink og nikk- el en þau efni koma aðallega frá Kanada. Frá Mexókó er keypt mikið magn af sömu efn- um og öðrum svo sem mang- an o.fl. Þá er keypt bauxit (alum- inium er unnið úr því), demant- ar (þeir eru notaðir í ýmiss konar bora) frá Brezku Guiana, tungsten frá Boliviu. j Afríka leggur einnig til sinn skerf, og má þar einkum nefna Suður-Ródesíu, sem flytur út j asbest og króm. Frá Evróplöndunum er eink- um flutt tungsten og zink, og helzta koparútflutningsl. er Spánn en keppinautur þess er Portúgal. Tyrkland framleiðir einnig króm. Austurlönd framleiða m.a. nikkel, tin, kopar og zink sem er notað til að fá mjúkt ytra borð og verja gegn ryði og tæringu, en blý er notað í raf- geyma. Gúmmíið, sem eng- in bifreið getur verið án, kem- ur m. a. frá Malakkaskaga, Indó nesíu, Ceylon, Thailandi og Liberíu. hafa tíðkazt síðustu árin í heyrnartækjum í ferðavið- og senditækjum, siglingakerf- um flugvéla, innanhússtalsíma, vasaljósum og öðrum raf- og rafeindatækjum. Þurrhlöður þær, sem hingað til hafa verið notaðar í tæki eins og ferða- útvarp og vasaljós framleiða aðeins IV2 volta spennu, og þeim er fleygt að lokinni notk- un. Þessar nýju þurrhlöður eru mörgum sinnum minni, en ; framleiða 9/10 volta spennu, ' og er hægt að hlaða þær upp | aftur og aftur og nota um ! lengri tíma. Tilraunir hafa sýnt j að þær endast í 10 ár, og þola mjög vel högg, hristing og j kulda. Enn fremur hafa þær þann kost fram yfir venjuleg- ar þurrhlöður, að í þeim eru engin þau efni, sem rafstraum- urinn getur eyðilagt og breytt í gastegundir, en það er ein- mitt ókosturinn við venjulegar þurrhlöður. Bandaríkjastjórn hefur einka lejdi á þessari nýju tegund af þurrhlöðum, en hún hefur veitt ýmsum fyrirtækjum leyfi til framleiðslu á þeim og notkunar. Búist er við, að þurr- hlaðan muni kosta helmingi meira en venjulegar kvikasilf- urshlöður í fjölframleiðslu, en vísindamenn halda því fram, að kostir þeirra séu svo miklir, að þeir vegi fullkomlega upp á móti verðinu. HraBmyndavélar notaðat við rannsóknarstörf. Nýlega hafa Kodak verk- smiðjurnar í Bandaríkjunum skýrt frá því að smíðaðar hafi verið kvikmyndavélar, sem taki 15 miljón myndir á sek- úndu. George T. Eaton, sem er for- maður rannsóknarstofu fyrir- itækisins, sagði að slíkur kvik- myndavélar væru mjög þýðing- j armiklar við ýmis rannsóknar- j störf. Önnur myndavél, sem fyr ’ irtækið hefur smíðað, tekur myiidir á einum tíu milljón- jasta úr sekúntu. Sú vél er not- juð til rannsókna á kjarnahreyf- I ingum í bræðsluofnum og við I athuganir á brennslu í þotu- hreyflum. Rafmagn frá 1.008 rafvökum knýr tilraunatraktorinn, sem myndin sýnir. Hann er frá Allis-Chalmers verksmiðjunum í Bandaríkjunum. Rafvakarnir framleiða 15 kílóvött rafmagns og geta knúið 20 hestafla vél. Dráttarvélin getur dregið 1350 kílógr. sem er meir en nóg til að draga stærstu plóga. Verða bílar framtiilar- innar kmiilir rafmagni? Tilraunir gerðar með henfuga aflvaka vesfan hafs. Ný, fullkomin þurrhlaða framleidd vestan hafs. Þær endast í 10 ár ef þarf. Vísindamönnum við Naval Ordnance rannsóknarstofuna í Washington hefur tekizt að framleiða þur-rafhlöðu, sem ekki er stærri en venjulegt annbandsúr. Rafhlaðan er að- eins einn rafvaki, og í plötur hennar notuðu vísindamenn- irnir blý, blýsýring og silfur- duft. Straumstyrkurinn er 1,5 ampertímar og framleiðir 9/10 volta rafspennu. Þessi nýja gerð af þurrhlöð- um vegur aðeins 40 grömm. Er því mjög hentugt að nota hana í transistorrásir, sem mikið Félag eftirlitsm. m. raforkuvirkjum í síðustu viku var í Reykja- vík stofnað nýtt félag, — eftir- litsinanna með raforkuvirkjun. Stofnendur félagsins eru 29 eítirlitsmenn. Er tilgangur fé- la^sins sá að efla samhug og faglega þekkingu félagsmanna, sem stuðli að bættu öryggi al- mennings með raforkuvirkjum. — Og að standa vörð um hags- munamál félagsmanna. í stjórn félagsins voru kosnir þeir Kristján Dýrfjörð, formað- ur, Friðþjófur Hraundal, Gísli Guðmundsson, Stefán Karlsson og Oddgeir Þorleifsson. Bandarískir bifreiðafram- leiðendur gera nú tilraunir til að finna upp hentugan raf- magnsmótor til að knýja bif- reiðar í framtíðinni. Hann á að starfa hljóðlaust án útblásturs eða gírskiftingar. Auk þessara kosta sem raf- magnsmótorinn hefur verður hann ódýrari í rekstri og mun geta endurnýjað orku sína í venjulegri umferð með meiri árangri en benzinmótorinn. Hjarta hins nýja drifkerfis er svokallaður. rafvaki (ft\el cell), sem sendir rafmagn til mótora sem tengdir eru einn jvið hvert hjól. Rafvakinn er ný uppfinning. Hann líkist rafhlöðunni, en starfar þó á öðrum grundvelli. I honum eru tvær elektróður, sem stjórna rafstraumnum. Þeg ar vatnsefni er leitt í aðra el- ektróðuna og súrefni í hina verður úr efnabreyting. Vatn myndast þegar vetnið og súr- efnið sameinast, en neikvætt rafmagn safnast á vetnisel- ektróðuna. j Ef rafvaki er tengdur raf- magnsmótor streymir rafmagn frá vetniselektróðunni gegnum vélina til súrefniselektróðunn- jar. Ef drifkjörnum er raðað þannig að styrkur þeirra sam- einast myndast nægilegt raf- magn til að knýja mótor. Kjarnorkubílar fraiKtíðariimar. Lewis S. Strauss, formaður bandarisku kjarnorkunefndar- innar sagði nýlega, að það yrði mögulegt í framtíðinni, að smíða kjamorkuknúnar bifreið- ar. Það eina, sem vantar til þess, sagði hann, er einhvers- konar geymir, sem getur geymt rafmagn, sem framleitt er með kjarnorkuvél. Þá mun kjarn- orkuvélin framleiða rafmagn- ið, sem knýr bifreiðina. -fc Bankastóri hjóðbankans á Kúbu vill hjóðnýta iðnað — og banna vcrkföll. Á myndinni sést hvernig framleiðendur hugsa sér mótorunum, komið fyrir. Þeir eru fjórir, einn við livert hjól, tengdir við raf- vakana. Teikningin er frá Chryslerverksmjifjunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.