Vísir - 23.06.1960, Blaðsíða 8
EkJkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
lestrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
QHniMÍ /ípm php n—n
WlSllt
Fimmtudaginn 23. júní 1960
Munið, að þeir sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
IVIik.il óánægja með
flokkun humars.
Sjómann segja óeðiiEega rýrnun
á fyrsta fíokki.
Lillý verður léttari.
Fjórir leikárar frá Þjóðleik-
Íiúsinu hafa að undanförnu ver-
ið að æfa gamanleik, sem þau
ætla að sýna í öllum samkomu-
húsum á landinu.
Leikararnir eru Bessi Bjarna-
son, Herdís Þorvaldsdóttir,
Bryndís Pétursdóttir og Klem-
«nz Jónsson og er Klemenz einn
ig leikstjóri.
Leikurinn heitir „Lilly verð-
ur léttari“ og er eftir enska leik
ritaskáldið Roger Mac Dougal. j
Þetta er léttur og skemmti-
íegur sumarleikur og á óefað
eftir-að koma leikhúsgestum í
ígott skap. Bessi leikur aðal-
jhlutyerkið, ungan tónsilling,
(að því að hann heldur sjálfur)
<og konurnar hans tvær, bæði
Jnúverandi og fyrrverandi eru
leiknar af Herdísi og Bryndísi.
t>arna er mikill gáski og grín á
ferðinni og lendir Bessi í mestu
erfileikum með konurnar sínar,
en allt fer vel að lokum þó ekki
sé meira sagt. !
Leikararnir hafa sjálfir smíð-
að leiktjöld með aðstoð góðra
fagmanna og verður leiksviðs-
útbúnaður allur hinn smekk-
iegasti og vel vandað til allra
huta. ,
Leikflokkurinn leggur af stað .
5. júlí n. k. og er áætlað að
frumsýna leikritið í Borgarnesd
og síðan verður sýnt á Vestur-
landinu og haldið þaðan til
Norður- og Austurlands.
Leikferðin mun' taka 5—6
vikur og eftir það hafa leikar-
arnir ákveð.ið að sýna leikritið
hér í Reykjavik.
Leikferðir leikara úr Reykja-
vik eru vel séðar úti á lands-
byggðinni og er ekki að efa að
þessi leikflokkur muni hljóta
góðar undirtektir.
Ný ðgnun við
Indland.
Krishna Mehnon, sem nú
er á ferðalagi í Kashmir,
sagði í morgun, að Kínverj-
ar hefðu safnað miklu liði
i’ið landamæri Indlands.
Mehnon kvað ríkisstórnina
hafa gert víðtækar ráðstaf-
anir til eflingar landvörn-
unurn.
Laxinn tekur bærilega.
Búfzt við nýjum göngum með Jónsmessu-
straurn.
Laxveiðin er nú víðast hvar
að glæðast. I þeim ám sem
Stangaveiðifélagið hefur, mun
nokkur breyting hafa orðið á
imdanfarna daga, en laxveiði-
menn binda vonir sínar við
Jónsmessustrauminn. Votviðrið
HeimdallBrferð
Farin verður ferð í Land-
maiuialaugar á vegum ferða-
deildar Heimdallar næstkom-
andi laugardag.
Lagt verður af stað frá Val-
liöll við Suðurgötu kl. 2 eftir
hádegi.
Ekið verður sem leið liggur
um Dómadal í Laugarnar.
A sunnudag verður farið í
gönguferðir um nágrennið,
gengið á Bláhnjúk, skoðaðir
lbrennisteinshverirnir, náma-
liraun og fleira.
Komið verður til Reykjav.
að kvöldi sunnudags.
Nauðsynlegt er fyrir þátttak-
endur að hafa með sér nesti og
Íjöld ef mögulegt er.
Kaffi verður veitt á tjaldsíað.
ÞáUtaka tilkynnist skrifstofu
Uéimdallar fyrir föstudags-
Jkvöíd (sími 17102).
undanfarna daga tryggir hins
vegar nóg vatn í ánum hér
sunnanlands, og ætti því að
mega búast við góðri göngu.
j í Elliðaánum hefur veiðin
komizt upp í 17 laxa á dag, sem
verður að teljast all gott. Lax-
inn gengur nú óhindraður upp
á efra -svæðið, er stíflan hefur
verið opnuð. Er það mikil og
| góð breyting, því að áður varð
að flytja laxinn upp á ,,efri
part“ í bíhim, þ. e. a. s. í vatns-
, fyltum ílátum, en það fór oft
illa með laxinn og var hann das-
aður eftir f'lutninginn. Nú er
það hins vegar úr sögunni.
j Úr vatnasvæðinu í Kjós hafa
nú fengizt alls um 100 laxar.
j Meðalveiðin í Laxá í Kjós hefur
! verið 4—7 Jaxar á dag, en á þó
sennilega eftir að batna. Veiði
, í Bugðu hófst fyrir 3 dögum og
þar mun þegar hafa fengizt ein
hver lax. í Meðalfellsvatni hef-
ur einnig fengizt lax.
Borgarfjarðarárnar eru nú
óðum að lifna við, oð þegar hef-
ur verið orðið vart við lax í
Grímsá, en hún er nú aftur að
ná sér síðustu ár eftir lágdeyð-
una sem var. Norðurá gefur all
sæmilega veiði, en veiði er nú
einnig hafin í Þverá.
Fengu ekki að
sitja í.
Brezku undirforingjarnir
tveir, sem löbbuðu yfir þver
Bandaríkin, yfir 4800 km. leið,
eru nýkomnir til London.
Þeim var þar vel fagnað. Þeir
neita því harðlega, að það hafi
við nokkuð að styðjast, að þeir
hafi fengið „að sitja í“ á leið-
inni og það hafi tryggt þeini
sigurinn.
Þeir voru 67 daga á leiðinni.
Frá fréttaritara Vísis.
Vestm.eyjum í morgun. I
Enn eru margir bátar ófarnir
á sílcl en flestir munu fara fyr-
ir helgi. Humarbátar og trillur,
sem róa með línu og handfæri
eru einu bátarnir sem ganga
héðan. Dragnótabátarnir allir
með tölu liggja og bíða þess að
landhelgin verði onuð fyrir
dragnótina. j
Humarbátarnir hafa aflað vel
en mikillar óánægju gætir hjá
humarveiðimönmum vegna
flokkunar á humarnum i frysti-
húsunum. Sjómennirnir segja:
Við leggjum mikla vinnu á að
flokka humarinn um b'orð í
bátunum en svo fáum við geysi-
lega rýrnun á fyrsta flokk í
frystihúsunum. Það gætir mik-
illar ónákvæmni í flokkuninni
í húsunum eða réttara sagt ó-
samræmis sem stafar að likind-
um af því að flokkunin er fram-
kvæmd að mestu af unglingum
eða fólki sem ekki hefur feng-
ið nægilega þjálfun í flokkun
vörunnar.
Kveður svo ramt að þessu
að bátar sem fiska á sömu mið-
um og geta borið sama afla sinn
að mágni og flokkun fá mjög
misiafná útk'omu þegar frysti-
húsið hefur látið framkvæma
flokkun. Þess eru dæmi að einn
fær 70 prósent rýrnun en annar
sama og enga, þótt aflinn sé
svipaður að gæðum og allri
meðferð.
Aðalfundur norrænu sölutækni-
félaganna hér.
FjrirlestHr um sölutækni.
Stjórn sambands norrænu
sölutæknifélaganna — Nordisk
salgs- og Reklameforbund —
heldur aðalfund sinn í Reykja-
vík 2. og 3. júlí n. k.
Fundinn sækja forvígismenn
samtakanna í Danmörku, Finn-
landi, Noregi og Svíþjóð. í þeim
hópi er um. a. Leif Holbæk-
Hansen prófessor við verzlunar-
háskólann í Bergen og Paul
Fabricius framkvæmdastjóri
Sunlight-verksmiðjanna í Dan-
mörku. Báðir eru þeir góðkunn-
ir fræðimenn í sölutækni.
Stjórn Sölutækni hefur ákveð
ið að nota þetta einstaka tæki-
færi til þess að veita íslenzkumj
kaupsýslumönnum tækifæri til
að kynnast viðhorfum þessara
tveggja manna til mála, sem eru
þýðingarmikil fyrir viðskiptalíf
okkar.
Munu sérfræðingarnir halda
fyrirlestur um efnið „Mulighed
er ligger í eksport-reklame“.
Formaður stjórnar Sölutækni
er Þorvarður J. Júlíusson
f ramk væmdarstj óri.
-fc Nkrumah forsætisráðherra
Ghana hefur begið boð um
að heimsækja Sovétríkin.
★ Indlandsforseti lagði í gær
af stað í hálfs mánaðar ferð
til Sovétríkjanna.
Drukkinn ökumaður á
stolinni bifreið.
Tvennt siasast er ekið er aftan á bíl.
Þessi mynd var tekin af Roger
Moens, heimsmethafanum í
800 m. hlaupi, er hann kom í
mark í gærkvöldi. Rigning,
sunnan strekkingur og bung og
rennvot braut hindruðu hlaup-
arana, en þó náði Moens 1.51.3
mín. og Svavar 1.53.0 (sjá frétt
annars staðar í blaðinu). Mótið 1
Iheldur áfram í kvöld kl. 8.30.
í gærmorgun handtók lög- j
reglan ökumann uppi 1 Hlíðar -1
hverfi sem har hafði ekið á
girðingu.
Þgar lögreglan handsamaði'
manninn kom í Ijós að hann j
var undir áhrifum áfengis og i
ennfremur það að hann hafði
stolið farartækinu. Sökudólg-1
urinn var settur í fangagæzlu.
Annar ölvaður ökumaður var
tekinn í Reykjavík í nótt, það j
var aðkomumaður.
Slys,
Árdegis í gær varð umferð-
arslys á Borgartuni, er öku-
maður ók aftan á bifreið. Bif-
reiðarstjórinn slasaðist auk
farþega sem með honum var í
bifraiðmni og voru báðir fluttir
í Slysavarðstofuna.
Annað slys varð á Skóla-
vörðustíg um átta-íeytið í gær-
kveldi. Þar féll kona á götuna
að talið var í flogaveikikasti —
og hlaut áverka á höfuð. —
Sjúkrabifreið var fengin til að
flytja konuna í Slysvarðstof-
una.
í fyrradag varð lögreglan
beðin um aðstoð við að hjálpa
flogaveikum manni sem dottið
hafði út á götu í Efstasundi. •
Sama dag var ölvaður mað-
ur á ferli á Vesturgötunni
Hann datt og skarst í- andliti.
Lögreglan flutti manninn í
Slysavarðstofuna, þar sem gert
var að meiðslum hans. Að því
búnu var hann fluttur heim til
sín.
Pörupiltar að verki.
í fyrradag var lögreglunni
tilkynnt um að drengir hafi
gert sér leik að því að kveikja
í rólum á barnaleikvelli við
Meðalfaolt.