Vísir - 19.07.1960, Blaðsíða 4
V í S I •
Þriðjudaginn 19. júlí 1960
VZ8I&
D A G B L A Ð
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Vííir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson.
Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3.
Ritrtjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,30—18,00.
Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18.00.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00.
Sími: 11660 (fimm línur).
Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði.
Kr. 3,00 eintakið í lausasölu.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Englandsför endar í tugt-
húsinu í Amsterdam.
Hrakningasaga manns með vegabréf,
sem síðar reyndist ekki vegabréf.
Byggingarkostnaðurinn.
Erlendur sérfræðingur, sem hér
hefir dvalizt að undanförnu
á vegum hins opinbera til
| að athuga byggingarmál
, okkar íslendinga, hefir gef-
j ið ýmsar upplýsingar, sem
j koma mönnum ekki alveg
j á óvart. Hann hefir til dæm-
j is skýrt frá því, að hér á
landi sé byggingarkostnaður
j- tvöfalt hærri en hann sé yf-
j irleitt í öðrum löndum, og
það er ýmislegt annað, sem
hægt er að finna að í þessu
efni hiá okkur.
Það má segja, að þessi erlendi
' sérfræðingur hafi komizt að
sérstökum flottræfilshætti
hjá okkur fslendingum, og
j kemur það víst ekki heldur
á óvart. Við erum öfgamenn
í flestu, og ekki síður á sviði
bygginga en ýmis annars.
Við byggjum stórt og jafn-
' vel stærra en nauðsynlegt er
' og hagkvæmt, því að við
1 viljum sýnast svo miklir
menn, bæði í augum ná-
grannanna og útlendinga.
Allt veldur þetta því, að
J kostnaðurinn rýkur upp úr
öllu valdi hjá okkur. En því
er heldur ekki að neita, að
sitthvað fleira kemur til
greina, svo sem keppnin um
vinnuafl iðnaðarmanna, sem
hækkar laun þeirra, enda
þótt þau sé oft óbreytt á
pappírnum.
Það er að sjálfsögðu ágætt að
fá álit slíkra sérfræð-
inga, og vitanlega er þessi
heimsókn okkur meira virði
en margar aðrar af svipuðu
tagi, því að við byggjum
svo mikið og þurfum að
byggja mikið. Þó veltur gildi
hennar á því, að við reynum
að nota okkur heilræði komu-
manns, en gleymum ekki
öllu jafnskjótt og hann er
farinn. Þá verður heimsókn-
in til einskis gagns, en ef
allir aðilar, sem um þessi
mál fjalla, bæði hið opin-
bera, einstaklingar og félög,
leggjast á eitt um að koma á
umbótum, ætti varla að líða
langur tími, þar til við sæj-
um einhvern árangur, er
birtist í sparnaði á bygging-
arkostnaði.
Nú fyrir nokkru gerðist sá
atburður, að farþegi í utan-
landsflugi var gerður aftur-
reka á áfangastað og varð hann
að halda aftur hingað heim til
Islands, eftir næturdvöl í tugt-
húsinu í Amsterdain.
Svo var mál með vexti, að nú
fyrir nokkru hugðist Ungverji,
sem hér hefur dvalið undanfar-j
ið, og mun nú bíða eftir ís-
lenzkum ríkisborgararéttindum,
fljúga til London (um Glasgow)
til fundar við unnustu sína, (
sem er íslenzk. Hann mun hafa(
! fengið sér vegarbréf hjá skrif-(
, stofu lögreglunnar, og var það
íslenzkt vegabréf í engu frá-[
brugðið öðrum íslenzkum vega-
bréfum á annan hátt en þann,
' að í því stóð, að viðkomandi
Væri ungverskur.
Nú munu þær alþjóðareglur
gilda um flóttamenn og’ aðra
sem þannig bíða eftir borgara-(
réttindum, að þeim til handa
eru gefin út sérstök alþjóðleg'
vegabréf. En samkv. upplýsing-1
.!
um útlendingaeftirlitsins hefur
ekki verið ráðist í slíkan út-
gáfukostnað hérlendis, þar sem
hér eru aðeins um 100 manns
sem þannig er ástatt um. —
Maðurinn, og þeir, sem að hon-
um stóðu hér, hafa því ekki tal-
ið að hann þyrfti sérstaka vega-
bréfsáritun til Englandsfarar,
og farmiða mun hann hafa hlot-
ið athugasemdarlaust. Einnig
•>n engin athugasemd hafa
r gerð við vegabréfsskoðun
við urottför héðan að heiman,
en er flugvélin — á leiði til
Amsterdam — lenti í Glasgow,
þar sem Ungverjinn skyldi stíga
í land, þá var honum neitað um
dvalarleyfi á Bretlandseyjum
af þessum sökum. Hann var því
sendur um borð í flugvélina
aftur, og með henni til Am-
feterdam. Þar hlaut hann sömu
hlýlegu móttökurnar — honum
var varpað í tugthús nætur-
Jangt, unz vélin skyldi halda
heim aftur. Eftir tæpa tvo sól-
arhringa mun því utanferðin
hafa verið afstaðin, en Vísir
hefur ekki fregnað hvernig
inum unga manni gekk að finna
únnustu sína. — En vart verður
'manninum kennt um athugun-
arleysi, er viðkomandi aðilar
hafa ekki gert sér ljóst, að árit-
un þurfti.
60. áramóta-
samkoman.
1 nýútkomnu eintaki af Lög-
bergi-Heimskringlu er sagt frá
60. áramótasamkomunni, sem
lestrarfélagið Vestri í Seattle
hélt hinn 29/12 s.l. Skemmt var
með söng, ræðum og öðrum
gleðskap. Frú Ruth Sigurðsson
varaforseti stjórnaði samkom-
unni, en „aðalræðuna flutti img-
frú Elín Stefánsson frá Islandí,
sem stundar framhaldsnám í
heilsufræði við University of
Wasliing-ton (Háskóla Washing-
ton-ríkis). Forsöngvari og ein-
söngvari var Jónatan Björnssoh.
Tíu ungar stúlkur sungu ís-
lenzka söngva“.
I
1 Sumardegd fagnað
73 sinnmn.
Svo segir í fréttabréfi Jóns
Magnússonar frá Seattle; að ís-
lendingar þar í borg hafi fagn-
að sumri 73 sinnum — seinast
nú i vor. í Seattle er starfandi
kvenfélag. Það hefur starfað í
hálfa öld. Það hefur m. a. lagt
stóran skerf til dvalarheimilis-
ins Stafholts í Blaine.
Tóíf dagar í miðlandsferð.
_ A
F.I. efnir til ferðar um mestu
*
oræfi Islands.
Ferðamálafélagið.
Fyrir nokkrum árum spurði
Vísir hvað eftir annað um
afdrif Ferðamálafélagsins
j svonefnda. Það hafði þá ver-
ið stofna löngu áður og
■ mikið um það talað, að það
j mundi lyfta Grettistökum í
; því efni að búa hér í haginn
! fyrir útlenda ferðamenn, svo
að þeir gætu streymt hingað
í stríðum straumum og jafn-
fram gull úr pyngju þeirra.
Því miður fór svo, að félagið
gerði lítið, þótt mikið væri
talað í upphafi. Mátti því
segja, að þar væri alíslenzkt
1 fyrirtæki á ferðinni, því að
okkur er gjarnara að tala
! en framkvæma. Þó er rétt
j að geta þess, að við getum
stundum verið góðir til
snöggra átaka, en því miður
komst þetta aldrei svo langt
hjá margnefndu félagi.
Nú hefir hinsvegar verið til-
kynnt með blaðamannafundi
— minna mátti ekki gagn
gera — að hingað væri
kominn sérfræðingur til að
leggja á ráðin fyrir félagið.
Það á sennilega vel við, að
hann hefir áður kennt Nepal-
ingum, og víst er, að menn
bíða þess með nokkurri ó-
þreyju, að hann gefi okkur
heilræðin. En svo er bara
eftir að fara eftir þeim, og
er anzi hætt við, að það
reynist erfitt, er til lengdar
lætur.
Allt þykir nógu gott.
Það er nefnilega sannleikurinn
um okkur íslendinga, að við
erum hálfgerðir böðlar eða
sóðar í mörgum efnum. Við
viljum ekki vanda okkur um
of, teljum, að flest sé nógu
gott — að minnsta kosti
handa öðrum, enda þótt við
getum svo sem verið nógu
kröfuharðir gagnvart öðr-
um.
Það yerður sennilega erfiðasta
viðfangsefnið, ef gera á ís-
j land að verulega fjölsóttu
i . ferðamannalandi. Við hirðum
[ ekki um að gera nógu -vel við
komumenn, svo að þeir hafa
af þeim sökum minni áhuga
en ella fyrir að koma öðru
sinni, enda þótt náttúru
landsins sé stórfengleg og
geti laðað menn um langan
veg aftur og aftur.
Atriði eins og þetta tómlæti
verðum við að taka með í
reikninginn, þegar við erum
að bollaleggja þetta atriði,
því að fyrir sliku finna ferða-
menn. Erlendis þykir sjálf-
sagt að gera mikið fyrir út-
lenda ferðamenn til þess að
þeir komi aftur en það er
Ferðafélag íslands efnir inn-
an skamms til einnar skemmti-
legustu 'og um margt viðamestu
sumarleyfisferðar sinnar á
þessu sumri, en það er ferð um
öræfin í landinu miðju.
í þessari ferð, sem hefst frá
Reykjavík 27. þ. m., verður
farið um mestu öræfi og ó-
jbyggðir íslands, landsvæði sem
tiltölulega fáir íslendingar hafa
haft tök á að kynnast af eigin
raun sökum þess hve miklum
'erfiðleikum það hefur verið
bundið að komast um það.
| Frá Reykjavík verður farið
austur um Landsveit, yfir
Tungnaá til Veiðivatna. Þaðan
um Illugaver í Nýjadal. Síðan
austur um Ódáðahraun, fram-
hjá Gæsavötnum að Öskju og
í Herðabreiðarlindir. Allt er
þetta landssvæði einstakt í sinni
röð, svipmikið og litríkt, en þó
sneytt gróðri að mestu leyti.
Þarna er öræfaauðnin og öræfa-
kyrrðin í almætti, hvergi
mannaþefur né neitt það sem
minnir á menningu og þægindi
— aðeins lífvana auðn. En ein-
mitt í þessari auðn býr máttur
og tign, svipmikið land og vold-
ugt.
Úr Herðubreiðarlindum er
farið eftir troðnum slóðum til
byggða. Farið verður sem leið
liggur vestur Norðurland og1
þar komið við á fögrum og
merkum stöðum. Þegar komið
er vestur í Húnavatnssýslu
verður haldið suður Auðkúlu-
heiði um Kjöl til Reykjavíkur.
Ferðin tekur 12 daga og verð-
ur gist í tjöldum á leiðinni.
Fararstjóri verður Jóhann Kol-
beinsson, einn reyndasti og
traustasti fararstjóri félagsins,
maður sem þaulkunnugur er
leiðinni. Allar nánari upplýs-
ingar um ferðina eru gefnar á
jskrifstofu Ferðafélagsins í Tún-
götu.
hætt við, að misbrestur
i verði á. því, hversú landinn
i verður aðlaðandi við komu-
menn.
Síitlin —
Framh. af 1. síðu.
Smári 200
Snæfugl 200
Bergur VE 700
Þorlákur 300
Akraborg 1000
Sæborg 600
Bjarni Jónsson 800
Gissur hvíti 250
Sindri 500
Björgvin KE 500
Goðaborg 400
Hafbjörg VE 100
'Keilir 500
Ásgeir 400
Máni 500
Hannes Hafsteinn (tn.) 100
Ásbjörn (tn.) 60
Fjarðaklettur 500
Ólafur Magnússon KE 250
Huginn 450
Andri 600
Gylfi II. 250
Jón Trausti 400
Sunnutindur 700
Tjaldur SH 350
Um 100 landskjátafræðing-
ar frá 24 löndum hafa setið
á ráðstefnu í Tokyo tií aS
að skiptast á upplýsingum.
Seattle.
íbúar í Seattle eru nú 550.000.
Verzlun er þar mikil og iðnað-
I ur. Mesta vinnu veita Boeing
verksmiðjurnar. Þar hafa 40.000
manns atvinnu. — Það var eng-
inn vetur ’59—’60, segir J. M„
! og vorið svo votviðrasamt, að
„rigndi 40 daga og 40 nætur“,
en sjaldnast mikið.
Dánardægur.
Hinn 5. júni lézt að heimili
sinu i Selkirk, Manitoba, frú Sig-
urbjörg Johnson, 95 ára að aldrj.
Hún hafði átt þar heima 73 ár.
Mann sinn missti hún 1919. Hana
lifa tvær dætur og tveir synir.
Davíð Jóhannes Guðmundsson
skattheimtumaður andaðist í Ár-
borg, Manitoba, 75 ára að aldri
9. júní. Kona hans, Sigurleif,
lifir hann og 7 synir þeirra og
22 barnabörn. Hann var skatt-
heimtumaður í Árborg-byggðar-
lagi í 35 ár.
75. ársþing liins
lútherska ldrkjufélags
íslendinga í Vesturheimi var
haldið fyrir nokkru og hófst með
hátiðarguðsþjónustu í Grundar-
kirkju í Argyle. Það fór alger-
lega fram á islenzku. Biskup Is-
lands, herra Sigurbjörn Einars-
I son, prédikaði. Síra Eric H. Sig-
jmar, forseti Kirkjufélagsins og
síra Eiríkur Brypjólfsson þjón-
uðu fyrir altari, en „síra Ing-
þór Indriðason og sira Jón
Bjarman lásu lexíurnar og síra
Hjalti Guðmuridsson söng ein-
, söng. Sameinaðir kórar presta-
^kallsins, prýðilega æfðir, sungu
Dýrð sé guði í hæstum hæðum
og Láttu guðs hönd þlg leiða hér.
Við messulok afhenti sira Eric
Sigmar herra Sigurbirni Einars-
syni biskupi íslands skrautritað
skírteini, sem heiðursverndara
kirkjufélagsins.
Minningar s j óðnr.
Er kveðjur voru fluttar um
kvöldið tilkynnti biskup Islands,
að íslenzka ríkiskirkjan hefðl
stofnað 50.000 kr. sjóð í minn-
ingu afmælis kirkjufélagsins og
skyldi Vöxtum af þessum sjóði
varið i þeim tilgangi að greiða
að nokkru ferðakostnað í sam-
bandi við heimsóknir islenzkra
presta til Islands eða Vestur-
heims.
75 ára minningarsamkómá var
haldin I Brúarkirkju í Argyle.