Vísir - 29.09.1960, Page 7

Vísir - 29.09.1960, Page 7
Fimmtudaginn 29. september 1960 VÍSIR, VIVIAN STIIART: NÓTTIN et Ajáandi 19. — Já, Mary veit nú fæst um það, hugsa ég. Hvers vegna segir þú henni það ekki? — Mig langar. ekkert til þess, sagði Dick. — Þessar frúr héma mundu béra kjaftasögur um Gabriel engil, ef þær fengi tæki- færi til þess. Þær þurfa ekki snefil af sönnunargögnum en vekja upp fáránlegustu lygasögur um fólk án þess. Það veistu vel, Robert. Robert yppti öxlum. Það var talað talsvert um MacLean og þessa yfirhjúkrunarkonu hans. Mér íannst alls ekki undarlegt þó að Lucy langaði ekki til að sjá hann sem gest hjá sér. Ekki sízt eftir það sem gerðist í klúbbnUm forðum. Þú trúir því varla, Mary, en hann gerðist svo ósvífinn að hafa með sér kyndblending á danskvöld í klúbbnum! Sonja rétti honum glas. Henni leið ekki vel. — Eg held að það sé réttast að hann Dick fari að hátta, sagði hún. Robert tæmdi glasið í einum teyg og stóð upp. — Þá er líklega bezt að ég fari að hypja mig, sagði hann. — Góða nótt, Sonja — góða nótt, Mary. Eg lít inn í fyrramálið, Dick og frétti hvernig þér líður. Þú skalt ekki fara í skrifstofuna nema þú sért vel hress. Og heyrðu — ég tala við Shroud á morgun viðvíkjandi þessum árásum. Lögreglan verður að fara að hefjast handa eða þá aö biðja um herlið hingað. — Ef þessir menn eru héðan úr sveitinni.... byrjaði Dick, en Robert tók fram í fyrir honum og var höstugur: — Enga flónsku, Dick. Hér eru engir spellvirkjar. MacLean veit ekki hvað hann er að tala um. Þeir höfðu Sten-byssu og.. nei, þetta er blátt áfram hlægileg tilhugsun. Líklega eru þetta bófarnir úr Múla- Bharu-héraðinu, sem hafa flúið undan herliðinu þar. Jæja, góða nótt — aftur. Robert stakk blaðinu í vasann. — Jú, þetta eru útreikningar sem við gerðum saman. Blaðið hefur dottið út úr bílnum. Líklega hefur það legið í holunni við mælaborðið. Hann talaði í kæru- leysistón en augun voru á verði og hann hafði fölnað. Mary horfði á eftir honum er hann fór. Hann var hugsandi, og hrukkur í enninu á henni. — Hann tók sér ákaflega nærri þegar faðir yðar dó, sagði Dick. Mary gekk að boröinu aftur og Sonja sagði glaðlega: Nú er Mary sá að hún sagði þetta í einlægni. — Eg held að hommi þætti vænt um að þú aðeins sýndur honum aö þú viljir vera vinur hans, sagði hún. — Það er dálítið erfitt viðfangs, sagði Grant. — Sjáið þér til, við höfum bæði skrifað undir áskorunina um að hann verði lát- inn fara héðan. Robert hefur sagt yður frá henni, er það ekki? Það liti einkennilega út ef við færum allt í einu að vingast við niann, sem við höfum reynt að bola burt héðan. — Eg átti ekki við að þið ættuð að látast vera.... neitt, sagði Mayr. Hann roðnaði. — Nei, ég átti heldur ekki við það. Eg átti við að það gæti litið út eins og fölsk vinátta, undir núverandi kring- umstæðum. — Já, en — Dick, tók Sonja fram í. — Þeir hafa ekki gert neitt við þessa áskorun ennþá, eða er það? Það er orðið langt síðan hún var send, og þessir menn sem ráða hafa líklega hugsað sér að sinna henni alls ekki. — Það er ómögulegt að segja, sagði Dick. — Þessar nefndir eru ekki vanar að flýta sér að taka ákvörðun. Mig langaði ekkert til að undirskrifa þessa áskorun, en.... hann lækkaði róminn. — Það var Robert sem sá um þetta mál, og hann fékk mig til þess. Mary vissi ekki áður að það hafði verið Robert, sem beitti sér fyrir þessu máli, og' hún átti erfitt með að leyna því að hún varð hissa. Hvað kom til þess að Robert hataði MacLean svona? — Faðir’minn hefur þá ekki verið á sömu skoðun og fjöldinn, lim MacLean? Dick tók dræmt undir og roðnaði aftur. Svo sagði hann hátt. og skýrt: — Nei, John Gordon þótti vænt um hann. Mary heyrði rödd Roberts bak við sig og brá við er hún heyrði hefnigirnina í röddinni: — Nei, það er rangt. MacLean var aldrei boðið að koma á heimili Johns Gordons. Hann kom hægt fram í birtuna og dökkar augnabrúnirnar voru kýttar saman. Hann sneri sér að Mary og sagði kuldalega: — Eg held að þeir séu ekki margir, sem hafa mætur á þessurn dáðadreng þínum, Mary, þegar frá er talin þú sjálf. Við þekkjum dóna, skilurðu. Mary var forviða er Dick studdi hennar mál áfram. — Hann kom ekki heim til Johns vegna þess að Lucy var á móti honum. John sagði mér sjálfur, að það væri eina ástæðan til þess. Robert kveikti sér í vindlingi. Hann tók langan téyg áður en hann svaraði: — Eg vissi ekki til að þú værir trúnaðarmaður • Sauðarkróki, 28. sept Johns, Dick. Röddin var neyðarleg. Mér er m>'nd af »tr«H“ nýranu, sem blöðin gátu um nú fyrir Dick roðnaði. — Hann sagði mér þetta, að minnsta kosti. skemmstu. — Svo sem sjá má á myndinni er líffærið ekkert Robert yppti öxlum og fór út í aðra sálma:—Eg var að tala við smáræði, borið saman við, eldspýtustokkinn og tvö „normal Shroud fulltrúa í símanum. Eg sagði honum hvað hefði borið að nýru! enda viktaði það 14 kg., en kroppurinn (gimbur), sem höndum, og hann sagðist ætla að fara á stjá og reyna að finna l*a® var * fl kg, einhver spor yfir árásarmennina. Eg er hræddur um að hann finni ekki neitt. Viltu gefa mér í staupinu, Sonja. Eg hugsa að það hressi mig. Sonja stóð upp. — Já, sjálfsagt, Robert. Hún leit aðvörunar- augum til Dicks, en hann lét sem hann tæki ekki eftir því. Það var þráavipur á andlitinu. — John sagði að hann vUdi ekki biðja Lucy um að taka á móti MacLean vegna alls slaðursins, sem gengi um hann, en ég veit að.... Robert horfði kuldalega á hann. — Slaðrið? át hann eftir. . . .. gpaíiö-yður IJaup á nallli ínargra-.verzmLa! ^«01 Á Ö!UJ)! »1: • •• ©--.AustóKtMeti •' R. Burroughs — TARZAIM — 3664 Tarzán faldi sig í skógar- þykknirm en veítti svert- ingjanum eftirför, en allt í einu heýrði hann sársauka- stunu. Hann varð mjög undrandi er hann kom til mannsins og sá að hann hafði ráðið sér baha. Lumumba — Framh. af 1. síðu: og bréf frá Nkrumah til Lumumba, sem sýna að hann hvatti hann til þess að „nota sér það‘“, er lijálp væri boðin frá öðrum en þeim, sem væru stuðningsþjóðir hans. Öll eru bréf þcssi birt til þess að sýna samband Lumumba við kommúnista og hvernig í pottinn var bú- ið um samstarf hans og Nkrumah, 98 þjóðir. Mali og Senegal eru nú komnar í fylkingu Sameinuðu þjóðanna. Þau voru sambands- ríki. Sameinuðu þjóðirnar éru nú orðnar 98. Margar ræður voru fluttar til þess að fagná komu þeirra í hóp S. þj. Eigi litla athygli vakti, að fulltrúi Mali skammaði Frakka fyrir, að hafa verið meðmælendiir með umsókn Mali, en fulltrúi Frakka svaraði þegar, og kvað Mali hafa beðið Frakka um það. Margir tóku til máls. I gær við hinar almennú um- ræður. Fulltrúi Ítalíu studdi eindregið stefnu Sameinuðu þjóðanna í Kongó. Fulltrúi Búlagaríu studdi áður fram komnar tillögur Rúmeníu og nauðsyn Balkanbandalags. Seinustu fréttir frá Nevv York herma, að dagskrár- nefndin hafi sam’þykkt, að umræða um Kongó skuli fram fara á Allsherjarþing- inu. Kasavubu forseti Kongó hefur opinberlega falið ráð- inu, sem Muboto hefur stofnað, að fara með völd | landinu til ársloka. Enn eru rústir í Áiasundi. Nú loksins á að fara að fjar- lægja rústirnar í miðri'Álasúnds borg, en þær hafa stáðið ó- hreyfðar frá því er Þjóðverjar gerðu loftárásir á horgina í upphgjfi síðarí heámsstyrjald- arinnar. Nokkur stórhýsi verða reist þar, en ákveðið hefur verið að láta ósnertan nokkurn hluta rústanna um aldur og ævi. m$m m mmm J'R i DRi iC 33j öfirfföotf LAUFÁSVEGÍ 25 . Sími 11463 1 F5TUR-STÍLAR-TALÆFÍNGAR MÁNUDAGSKVÖLD tap- aðist gulbrún skjalataska, sennilega í bíl niður á Hreyf- il. Finnandl vinsaml. hringi í síma 19441. Fundarlaun. __________________(1464 PARKER 51 héfiif taþazt. Merktur. Fundárláun. ••T’ími 35973. iilPQ KVENKÁPA héfur fúftd- izt í vesturbænum. Úpþl. á Hofsvállagötu 18. (1514

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.