Vísir - 22.10.1960, Page 4

Vísir - 22.10.1960, Page 4
íft VISIB Laugsrdaginn-22. október 196-Q vism ; D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. ýífiir kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Ritstjórnarskrifstofur eru að Laugavegi 27, en aðrar skrifstofur að Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofurnar eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Algreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Félagsprentsmiðjan h.f. KIRKJA DG TRUMAL: „Skammarleg útreið". Fyrii* nokkru var haldinn fundur í Stúdentafélagi Reykjavíkur til þess að ræða þar um „Ausiur og vestur, ástandið í heimsmáUinum.“ Framsögumaður var Paul Lieven, aðalblaðafulltrúi Atlantshafsbandalagsins. Var að sjálfsögðu inikill fengur í að fá blaðafulltrúann til þess að greina frá þessum niálum, enda maðurinn aíburða vel að sér á þessu sviði. Engann getur undrað, þótt þessi fundur hafi farið í taugarnar á kommúnistuni, og kom þetta óvenju j glöggt fram í frásögn eða öllu heldur vaðri Þjóðviljans í um fundinn. Kommúnistar hata ekkert afl meira í í heiminum en Atlantshafsbandalagið, ekki einu sinni I Bandaríkin, sem þeir þó hata af blindu og sjúku hatri. En einmitt þetta hatur kommúnista á bandalaginu er út af fyrir sig næg sönnun þess, að það hefur þýð- ingarmiklu hlutverk að gegna, og að það er nauðsyn- legt hinum frjálsu þjóðum á Vesturlöndum........... Kommúnistar bugðust láta ljós sitt skína á þessum fundi og höfðu sent þangað tvo þaulvana áróðúrsmenn, lögfræð- ingana Þorvald Þórarinsson og Inga R. Helgason. Ef trúa mætti frásögn Þjóðviljans, munu kommúnistákappaniir hafa saumað svo að Lieven blaðafulltrúa, að ekki licfði staðið eftir steinn yfir steini. Segir Þjóðviljinn að allar „tilraunir Lievens til svars“ hafi verið „aðeins undan- sláttur, tvísagnir og flótti frá staðreyndum.“ Hins vegar er ljóst af frásögnum annarra og vafalaust sannorðari heimildarmanna, að hlutur þeirra Þorvalds og Inga hafi verið allur annar og ólíkt háðulegri. Sumir segja líka, að menn hafi almennt hlegið að þeim. En það, sem mesta athygli vekur í frásögn Þjóð- viljans af fundinum er þó það, að hún er að mestu [ , persónulegt níð og skætingur um hinn erlenda gest.' i Til dæmis segir málgagn svo frá: „Greifinn seig niður i3 á bak við ræðupúltið, og feitt, hnöttótt höfuðið bii*tist aðeins ofan við borðbrúnina, stynjandi, másandi,* 1 * púandi..........“ Hér er sannarlega ekki tekið málefnalega á blutunum, og svona skrifa aðeins menn, sem í máttlausri reiði sinnij hafa engin rök á takteinum. Þá er það hamslaus reiðin, sem' blindar þá, reiðin yfir'því, að þarna áttu þeir að mæta manni, sem hræddist þá ekki og var þeim á allan hátt snjallari. Ókvæðisorð í stað raka. Á svipaðan hátt segir Þjóðviljinn frá öðrum ræðu- j * mönnum sem þarna tóku til máls og voru ómyrkir í j t máli um kommúnismann og hættu þá, sem öllum lýð- ræðissinnuðum mönnum er búin af áróðri þeirra og undirróðri. Að vísu dettur engum í hug, að Pétur Benediktsson, formaður Stúdentafélagsins, hafi orðið „klumsa“ vegna fyrirspurna Inga R. Helgasonar, eða „snúið máli sínu upp í kjaftæði“, eins og Þjóðviljinn vill vei*a láta, en þetta sýnir með öðru, hve miður sín kommúnistar vérða ef þeim er mætt af fullri festu og einurð. Engan mun heldur undra, þótt málgagn kommúnista segi þá-menn flytja „fasistískar ræður“, sem flytja mál sitt geiglausn* og af fullum rökum. Þetla er ekkert nýtt, og kommúnistar hafa jafnan rcynt að nefna þá menn fasista, sem þeim þykja hættulegastir. Það er heldur ekkert skrítið, jió að þúsundir Reykvíkinga, sem mótmæltu morðárásum ungvei*skra kommúnista, sem studdir voru rússneskum skriðdrekum, séu í Þjóðviljanum kallaðir „fasistískur skriir. Þegar talið berst að uppreisninni í Ungverjalandi fyrir réttum fjórum árum, eru þeir, sem þá létu lífið fyrir þjóð sína í hetjulegri baráttu gegn rússneskum skriðdrekum og innlendum handbendum Moskvu- valdsins kallaðir fasistar. Þessi nafngift er notuð um aila-þá,-sem kommúnistar hata. f Hér í höfuðborginni hafa' margir válegir atburðir gerzt að undanförnu. Dagblöðin hafa J dag eftir dag flutt fregnir af viðburðum, sem . vakið hafa hryggð almennings og ugg, og verið hafa sorgarefni allra, sem . við þá eru riðnir og ástvina þedrra, sumum ævilangt áfall. Bifreiðaslys, mörg mjög alvar- leg, óhappaverk, afbrot eru tíðar fréttir. Það fer ekki hjá því, að menn hafi veitt því athygii, hve oft orsakirnar eru beinlín- is að rekja til áfengisneyzlu. Menn hljóta að fara að gera sér grein fyrir, að hér er mjög al- varlegt mál á ferð Fólk er ekki óhult á förnum vegi. Gangandi vegfarandi, sem á sér einskis! ills von, getur að tilefnislausu orðið fyrir árás, líkamsmeið- ingu, jafnvel lífshættulegri, ef engir eru í námunda til varn- ar. Ökumenn eru ekki óhultir á akbrautinni, þótt þeir gæti fyllstu varúðar og brjóti í engu settar umferðarreglur. Fyrr en varir er bifreiðin orðin hrúga af járnarusli og farþegar henn- ar limlestir og lífshættulega slasaðir í sjúkrahúsi eða liðið lík. Ölóðir menn valda árlega mörgum stórslysum og verða segir um margvísleg óhæfu- verk, sem saklausir borgarar verða að líða fyrir þjáningar, skaða og raunir. Þegar um þessi alvarlegu mál er rætt, má þó ekki gleyma því, sem vel er gert. Stundum snýst það upp í gleðifrétt, sem hefði getað orðið þungbær harm- saga. Fyrir fáum dögum fórst íslenzkt skip úti á rúmsjó. Engin skip voru nærri, og illa horfði. En öll skipshöfnin bjarg aðist i gúmmibát, sem björg- unarskip kömu til hjálpar. Fyrst og fremst var það mikið þakkarefni, að öllum varð bjargað, og enginn fórst af allri áhöfninni. En jafnframt var. eðlilegt að leiða hug að því að björgunin varð vegna þess, að hér höfðu verið vakandi menn að verki, þeir, sem unnu að því, að þetta ágæta björgunartæki var til taks, þegar háskann bar að höndum. Við eigum, Guði sé lof, stóran hóp af lifandi áhuga fnönnum, sem vinna ötullega að því, að bæja burt háska og bjarga frá voða, hóp manna, sem sjá hættúna fyrir og vilja eitthvað á sig leggja til þess að vara við, vinna gegn böli og forða frá skaða. Hliðstæð atvik við slysavarn ir gerast í áfengismálum. Bind- indisvikan, sem Landssamband gegn áfengisbölinu gengst nú fyrir, ber vott um, að við eig- um hóp góðra drengja, sem ekki vill láta fljóta sofandi að feigðarósi, heldur vara við háskanum og fyrirbyggja óham ingjuna eftir því sem mögulegt er Það er vissulega tímabært að vekja athygli á hinu geig- vænlega ástandi í- áfengismál- um og gera tilraun til að fá þá menn. sem sjá hvert stefnir, til að taka höndum saman og vinna í þessum málum slysa- varnastarf. Það er staðreynd, að hjá okk ar þjóð umgangast margir á- fenga drykki eins og ó.vitar væru að leika sér með voðann. Og það mun óhætt að segja, að drvkkjuskapur unglinga sé all- mikill orðinn og fári jafnvel vaxandi. Þarf raunar ekk.i ann- að en að lesa dagblöðin til þess að komast á þá skoðun, hvað þá ef gögn lögreglunnar lægju fyrir. Ef takast skal að vinna þarna umbótastarf, sem snýr straumn um við, forðar æskufólkinu frá voða til heilbrigðrar og ham- ingjusamrar lífsafstöðu, verður fyrst af öllu að gera sér grein fyrir orsökum vandamálsins. Hvað veldur því, að unglingar le.iðast út í áfengisnautn í skemmtanalífinu? Vafalaust má benda með nokkrum réttj á ýmsar orsak- ir, sem til þess liggja. En að sama brunni mun þó 'bera, ó- heppilegum uppeldisáhrifum. Og uppeldisáhrifin koma víðar að en .frá.foreldrum og heimil- um’ Það er andinn í skemmtana- lífinu, sem kerniir unglihgun- um að drekka, og kennir þeim að drekka sér til tjóns, van- virðu og háska. Er ekki kominn tími til að fara að athuga, hvers konar menn það eru, sem veitt er aðstaða til þess að móta skemmtanalíf æsku þessarar þjóðar, aðstaða og sérréttindi til þess? Er þeim mönnum öll- um trúandi fyrdr æskunni, mót- un hennar og framtíð? Leiða menn ekki hug að því, að það myndi verða hollari og heilla- vænlegri áhrif, sem æskan nyti á þroskaskeiði, ef kirkjan og hennar andi fengi aðstöðu til að móta skemmtanalíf og fé- lagslíf hennar. heldur en kaffi- hús og danssalir, sem rekið er með það eina sjónarmið fyrir augum að hafa fé af ungmenn- unum, hvað sem velferð þeirra liður. Það er fullrar athygli vert, að svo.er málum háttað í okkar þióðfélagi, að á þeim tíma, sem söfnuðum landsins er illkleift fyrir fjárskort að koma upp kirkjuhúsum og félagsheimil- um til safnaðarstarfs, þar á meðal til heilbrigðs skemmt- analífs unglinga, virðist engin fyrirstaða neins staðar á því að afla fjár og leyfa til að koma upp fjölda skemmtanastaða, sem notaðir skulu í fjárgróðra- skyni, eða til að halda uppi -skemmtanalífi, sem sízt er sómi að og stundum er skefjalaust í spillingu. Ef nokkur alvara er í því að hefjast handa til heilbrigðra uppeldisáhrifa á æsku landsins, verða menn að gera sér ljóst að það er hlutverk kirkiunnar að leiða æskumenn. Það hlutverk vill hún vinna, og hún getur það öllum öðrum fremur. En hún getur það því aðeins, að hún hafi til þess fjármagn. Án fiármagns verður litlu áorkað á þessu sviði, eins og svo mörg- um öðrum. „Kenn þeim unga þann veg, sem hann á að ganga.“ Það eru fyrirmæli, sem kirkiunni er liúft að fylgia. Og til þess þarf hún að fá aðstöðu, ef vel á fara fyrir okkar þjóð. BERGMAL V* í. .t Það má lika minna á nokkur þau fyrirbrigði sem komu fram hér á landi á þeim árum þegar áfengi var lítt eða ekki fáanlegt. Þeir sem háðastir voru því, drukku hverskyns rakspíra, hleyptu gasi í mjólk og komust í annarlegt eitrunarástand, hrærðu jafnvel skósvertu út í vatn og sigtuðu svo löginn gegn- um rúgbrauð og drukku. Eða tíndu til hvert það rekailát, sem barst að ströndum landsins og gerðu tilraunir með innihaldið á sér og öðrum. — Þótt reyndir drykkjumenn, sem bera skyn á hvað er áfengi og hvað ekki, kunni á stundum að geta forðast slika hættulega drykki, hverjar eru þá. líkurnar til þess að ungir ! óreyxidir Amgliagar fáeru ékki áð j. 'fikta með slíká oft og tiðum •; Svarasama rekavöru. j. Ekki .er heldur ur vegi að minnv ast á annað atriði í þessu. sam- bandi. Það er staðreynd, að nú á tímum eru til margs konar með- ul, sem misnota má á hinn herfi- að þeir koma frá hinu’ sama landi? Þessir ágætu frændur vor ir eru meira að segja þekktir alla leið suður til Spánar fyrir legasta hátt. Það hefur komið i hina ofboðslegu drykkjusiði sina fyrir á undanförnum árum, að i fréttum hefur þess verið getið, að menn og konur hafi fundizt afvelta í „rúsi“, án þess þó, að þau hafa notað neina af hinum hættulegari eiturlyfjum. Mundi bann draga úr eða auka líkurnar fyrir slíkri misnotkun? Enn eitt atriði. Þeir eru marg ir Islendingarnir, sem undanfar- in ár hafa komið til Norður- landa, Á einu þeirra hefur ríkt strangari áfengislöggjöf, a. m. k. til skamms tíma, en á hinum. Spyrjið..»Kaupraapnahafnarbúa, hver.jir, Norðunlandabúar fari vérst með.áfengi í þeiirá'ágætu borg?<4>iað stendm* <skki -á svar- inu. Og er þaö nokkur tUviljnniúyndisúrræðaABaiin.JíBftir,-ve^S. k Kannske njenn vildu sjá þann dag, að Islendingar, sem nú fara svo þúsundum skiptir til útlanda ár hvert, yrðu jafn frægir að endemum. Það er vissulega margt sem mælir með þvd,. að talsmenn vin- banns varpi ekki fram slikum hugmyndum nema að færa um leið rök að því, að afleiðingin verði ekki hörmungaástand sem tekið getur ár ef ekki áratugl að leiðrétta. Staðreyndin er sú, að þrátt fyrir það, að slæmt ástahd kunni að rikja í áíengismálum þjóðar- innar, þá er ekkf?rétia léiðin' til “21

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.