Vísir - 01.11.1960, Síða 10
10
VÍSIR
Þriðjudaginn 1. nóvember 1960
Ý;V-V::V:
vx-l'xv;-;
í*!v!v!v!v
VIVIAN STUART:
NÖTTIJÍ
et Ajáahtti
47
i' Hann brosti. — Mér féll ekki að hafna boðinu, en einmitt þá
Stundina var mér svo mikið í mun að láta ekki undan Robert
.Vyner, sem var að reyna að hrekja mig burt. En nú skulum við
tfara og tala við Lucy. Við getum ekki afráðið neitt fyrr en við
heyrum hvort hún tekur í mál að verða hérna áfram. Hann tók
tmdir handlegginn á henni.
. — Ættlarðu að segja henni frá — Robert? spurði hún skjálf-
rödduð.
i Hann sá að hún sárkveið fyrir að tala við stjúpu sína, og svar-
aði um hæl: — Góða, láttu mig um það. Það hefur verið lagt
meira en nóg á þig. Eg skal láta koma með tebolla til þín, og þú
situr hérna í næði á meðan. Eg verð ekki lengi.
i Hann hellti í bollann þegar teið kom og lét hana setjast í
góðan stól, með tebollann á litlu borði við hliðina á sér.
«
..Fáeinum mínútum eftir að hann var farinn var drepið var-
lega á dyrnar og ungfrú Bloor kom inn. Mary tók hjartanlega á
móti henni og bauð henni að setjast og fá tebolla með sér.
— Mig langar til að tala svoltið við yður, ungfrú Gordon, sagði
Dina Bloor brosandi. Hún var rjóð í kinnum og augun ljómuðu.
— Mig langar til að þér verðið sú fyrsta sem ég segi frá þessu,
hélt hún áfram. Mary tók eftir að hönd hennar skalf þegar hún
setti frá sér bollann. — Það var maður að biðja mín.
Mary starði forviða á hana og yfirhjúkrunarkonan roðnaði
ennþá meir. Hún sagði óðamála: — Eg hef ekki játazt honum
ennþá, en ég varð svo giöð og sæl.... ég veit ekki hvernig ég á
að orða þetta til að segja yður frá því — þér verðið vafalaust
eins hissa og ég varð.
— Það gleður mig að heyra þetta, sagði Mary samstundis.
Ungfrú Bloor kveikti í vindlingi með skjálfandi fingrum og
rétti Mary hylkið, en hún hristi höfuðiö.
— Eg veit varla hvað ég á að gera, sagði Dina Bloor. — Fyrir
dálitilli stundu var ég aö binda um sárin á höndum Shrouds
fulltrúa — hann brenrrdist þegar hann var að bjarga ykkur úr
húsinu og brann á höndunum, alveg eins og MacLean, og ég;
minntist á að ég væri að hugsa um að fara frá Pulang Dal. En
.... hún rétti fram hendurnar og lagði þær ofan á hendur Mary,
— mér fannst það bezta ráðið, úr því sem komið er. Hún leit
hikandi á Mary. — Maður getur því miður ekki drepið í sér til-
finningarnar, og þáð er erfitt að leyna þeim til lengdar.
t — Mér mundi þykja leitt ef þér hættuð.... byrjaði Mary.
' — Já, ég veit það. En mér fannst það bezt. En þegar ég
sagði Shroud fulltrúa frá þessu, spurði hann allt í einu hvort
ég vildi giftast sér! Röddin skalf og hún þagði um stund áður en
hún hélt áfram: — Þér skiljið, ungfrú Gordon, Shroud fulltrúi
er göfugur og heiðarlegur maður. Eg ei ekki ástfangin af honum,
ég hugsa að ég geti orðið hamingjusöm í hjónabandinu með hon-
um og að ég geti gert hann hamingjusaman. Eg er ekki svo ung
að ég trúi að rómantísk ást sé eini tryggi grundöllurinn undir
hamingjusömu hjónabandi. Eg hef þekkt hann lengi, en ég vissi
ekki fyrr en núna að hann bar ástarhug til mín. Eg held að við
verðum hamingjusöm saman.
Mary hlýnaði um hjartaræturnar er hún sá gleðina skína út
úr fríðu andlitinu á Dinu Bloor. Hún stóð upp og kyssti hana á
báðum kinnarnar, og Dina greip um hendur hennar og þrýsti
I þeim að kinnunum á sér. ...
__MacLean yfirlæknir hefur valið vel, hvíslaði hún.
Alan kom inn í þessu og heyrði síðustu orðin. Hann kirikaði
kolli brosandi, til að sýna að hann væri á sama máli.
Ungfrú Bloor brá sér aftur í sitt venjulega líki og varð stilli-
leg. Hún dró sig í hlé og lét þau vera-ein.
Alan studdi höndunum á axlirnar á Mary og beygði sig til að
kyssa hana. — Hún Lucy er að spyrja eftir þér, sagði hann.
— Hún tók þessu eins og hetja. Henni brá mikið við, en ég held
að hún líti á allt með öðrum augum en áður síðan hann faðir
þinn dó. Og hún er fús til að fara með okkur til Arminrah, elsk-
an mín.
— Ó, Alan — ég er-svo glöð! Ætlarðu þá að skrifa spítala-
nefndinni?
— Nei, ég ætla að hringja undir eins. En fyrst verðurðu að
taka handleggnum um hálsinn á mér og segja mér að þú elskir
mig. Eg fæ mig varla ennþá til að trúa því að það sé satt.
— Eg elska þig, Alan, sagði Mary.
— ENDIR —
Stúlkur
Stúlka vön sniðningu óskast í prjónaverksmiðju. Einnig
vantar stúlkur vanar saumaskap.
Uppl. verksmiðjan Borgartúni 3, kl. 10—17 daglega.
Vön vélritunarstúlka óskast
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og með-
mælum sendist skrifstofu vorri fyrir 8. þ.m.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
Laugavegi 114.
Bazar
Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík heldur
BAZAR á morgun miðvikudaginn 2. nóv. kl. 2 i Góðtempl-
arahúsinu, uppi.
Notið tækifærið.------Gjörið góð kaup.
Styrtarfélag vangefinna
Drætti í happdrætti Styrktarfélags vangefinna
er frestað til 6. janúar 1961.
. íípariö -yður hlaup á milli naaxgra. verzkiia!
t WWjðúL Á óm OOOM!
' -Austurstxæti
R. Burroughs
— TARZAIM —
4690
KVÖLDV0KUNNI
Þegar myrkrið féll á hljóp
Cyclops af stað til fundai-
við menn á afvikum stað..
Hann fór eftir götutroðn-
ingi gegnum skóginn þar til
hann kom að tjaldi þar sem
hann hitti fyrir tvo þjófs-
nauta sína. Hét annar Wade
en hin Roberts. Sagði hann
þeim nú hvað komið hefði
fyrir.
— Konan mín lék oft á pían-
óið hér áður, en síðan börnin
komu hefir hún ekki haft tíma
til þess.
— Já, það er þægilegt að eiga
börn.
★
Auðugur Detroitbúi kom úr
mikiíli Evrópuferð, og var
spurður af listrænum vini s-ín-
um, hvort honum hefði tekizt
að ná í nokkurn Van Gogh eða
Picasso í ferðinni.
— Nei, sagði Detroitbúinn.
— Þeir eru allir með vinstri
handar stýri. Og svo átti eg fyr-
ir þrjár Buick-bifreiðir.
★
Flokkur ferðamanna rakst á
Indíánahöfðingja, ' sem sat. á
hesti sínum. Samsíða honum
gekk kona hans og bar hún
þungar byrðar.
— Hvers vegna er konan ekki
á hestbaki? spurði einn ferða
maðurinn.
— Hún hefir engan hest,
svaraði Indíáninn.
★
— Ætlarðu virkilega að segja
mér, að sonur þinn leiki á fiðl-
una eins og- Heifetz?
■—• Vissulega. Hann heldur
fiðlunni undir hökunni.
43 þiísund Tíbet-
ingar fiúnir.
Birt hefur verið bréf. frá
Dalai Lama, þjóðar- og trúar-
leiðtoga Tibetinga, en bréfið
sendi hann Dag Hammarskjöld
framkvæmdástjóra Sameinuðu
þjóðanna fyrir skemmstu.
í bréfinu segir Dalai Lama
þjóð sína enn búa við kúgun og
ofbeldi af völdum kínverskra
kómmúnista og heitir á Sam-
einuðu þjóðirnar og allar þjóð-
ir að stuðla að því, að Tibét
getið orðið frjálst á ný.
.Dalai lama telur, að þegar
hafi 43,000 Tibetingar flúið frá
því innrás kínverskra kom-
múnista hófst.
Kosningar —
Framh. af 4. síðu.
miilj. Bandaríkjamanna hins
viðurkennda, hefðbundna rétt-
ar með frjálsum þjóðum að
kjósa, frjálslega og að öllu og
eins og sannfæringin bauð. Um
það bil 60 af- hundraði neyttú
þá atkvæðisréttar síns. — Gisk-
að er á, að kjósendum í landinú
hafi fjölgað um -9.5- millj. frá
því þingkosningarnar fóru
fram 1958. Vera má, að aukn-
ingin reynist 10 milljónir.
Þess er að geta, að í Norður-
Dakota þurfa kjósendur ekki
að láta skráset.ja sig, né held-
ur í Alaska. í fjórum ríkjuin
er skrásetningu ekki lokið óg
engar áætlanir fyrir hendi þáð-
an. Þessi ríki eru Idaho, Ne-
braska, Suður-Karólínu og Utah
en það er engum vafa bundið
að þetta er „mesta skrásetn-
ingarár í sögu Bandaríkjanna“,
segir Frank Thompson, formi.
skrásetningarnefndar. s