Vísir - 03.12.1960, Blaðsíða 2

Vísir - 03.12.1960, Blaðsíða 2
VlSIB Laugardaginn 3. desember 1960 Sœjarfréttir ÍTtvarpið í dag: 1 8.00—10.10/ Morgunútvarp. 12.00 Hádegisútvarp. 13.00 ! Óskalög sjúklinga (Bryndís 'í Sigurjónsdóttir). — 14.30 ! Laugardagslögin — (15.00 Fréttir). 15.20 Skákþáttur (Guðm. Arnlaugsson). 16,00 Fréttir og veðurfr. — 16.05 Bridgeþáttur (Stefán Guð- johnsen). — 16.30 Dans- kennsla (Heiðar Ástvalds- son). 17.00 Lög unga fólksins -Jakob Möller). — 18.00 Út- ] varpssaga barnanna: ,,Á í flótta og flugi“ eftir Ragnar I Jóliannesson. -Höf. les). — í 18.25 Veðurfr. 18.30 Tóm- 'j' stundaþáttur bama og ung- í linga -Jón Pálsson). 20.00 1 Tónleikar: Syrpa af lögum 1 eftir Emil Thoroddsen. 20.15 Leikrit: a„Maður og kona“ I eftir Emil Thoroddsen og i Indriða Waage, samið eftir ! skáldsögu Jóns Thoroddsen. Leilcstjóri: Valur Gíslason. 22.00 Fréttir og veðurfr. — '■ 22.10 Danslög, þ. á m. leikur 1 hljómsveit Svavars Gests. ! Söngvari: Ragnar Bjarnason 1 — til 24.00. Mcssur á morgun: Dómkirkjan: Messa kl. 11. j Sr. Óskar J. Þorláksson. — Síðdegismessa fellur niður f vegna aðalsafnaðarfundar, ! sem verður í kirkjunni kl. 5 ! síðdegis. — Barnasamkoma ! í Tjarnarbíó kl. 11. Sr. Jón i Auðuns. ) Fríkirkjan: Messa kl. 5. f — Barnaguðsþjónusta kl. 2. 1 Sr. Þorsteinn Björnsin. — Hallgrímskirkja: Kl. 10 f. h. Barnaguðsþjónus'a (að- | ventu- og jólasöngva ■). — j Kl. 11 f. h. Messa. Sr Jakob i Jónsson. Ræðuefni: / Jesús að hverfa af jólakort-ím, — ; Kl. 2 e. h. Messa. Sr. Sigur- jón Þ. Árnason. Barnasamkoma k1 10.30 í ! safnaðarheimilinu. M ssa kl. ' 14. Séra Árelíus Níeöson. KROSSGATA NR. 4 93 Skýringar: Lárétt: 1 tala, 6 reikar, 8 hvílt, 9 alg. fangamark, 10 tími, 12 kasta upp, 13 ósam- stæðir, 14 oft um Reykjavík, 15 svefn, 16 afkomandi. Lóðrétt: 1 aldur, 2 óvit, 3 nefnd, 4 eink.stafir, 5 til steik- ingar, 7 fuglar, 11 á norður- heimskautinu, 12 viðurlög, 14 umbrot, 15 ..berg. Lausn á krossgátu nr. 4392. Lárétt: 1 koluna, 6 undra, 8 Na, 9 on, 10 eld, 12 önd, 13 rá, 14 kf, 15 þau, 16 belgur. Lóðrétt: 1 kólera, 2 lund, 3 una, 4 Nd, 5 Aron, 7 andrár, lMá, 12 öfug, 14 kal, 15 þe. Háteigsprestakall: Messa í hátíðasal Sjómannaskólans kl. 2. — Bamasamkoma kl. 10.30 árd. Sr, Jón Þorvarðar- son. Kirkja óháða safnaðarins: Messa kl. 14. — Sr. Björn Magnússon. Sunnudagaskóli kl. 10.30. Elliheimilið: Guðsþjónusta með altarisgöngu kl. 10 árd. Sr. Sigurður Pálsson frá Selfossi. Heimilisprestur- inn. Neskirkja: Barnamessa kl. 10.30. Messa kl. 2. Séra Jón Thorarensen. Kópavogssókn: Messa í Kópavogsskóla kl. 2. Barna- samkoma í féagsheimilinu kl. 10.30. Sr. Gunnar Árnason. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e. h. Barnaguðsþjónusta kl. 10.15 f. h. Sr. Garðar Svav- arsson. Bessastaðir: Barnaguðs- þjónusta kl. 2. Bíll flytur börn úr Garðasókn til kirkju, þeim að kostnaðarlausu. — Hann fer frá biðskýlinu við Ásg'arð kl. 1.30. Sr. Garðar Þorsteinsson. Húsmæðrafélag Reykjavíkur. Bazar félagsins verður hald inn laugardaginn 3. des. kl 3 í Borgartúni 7. Félagskon ur, vinsamlegast komið gjöf um sem fyrst til frú Guðríð ar Jóhannesson, Mávalilíð 1, eða í Borgartún 7 eftir kl. 2 föstudag og laugardags- morgun. Áheit á Strandarkirkju, frá N. N. kr. 200. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund í Sjómanna- skólanum, þriðjudag 6. des. kl. 8.30. Rædd verða félags- mál og sýndar litskugga- myndir, upplestur. Nýjar fé- lagskonur velkomnar. Blaðamannafélag íslands heldur fund á morgun, sunnudag, kl. 15 í Baðstofu Naustsins. Eimskip. Brúarfoss kom til Kristjáns- sands á miðvikudag'. Fer þaðan til Flekkefjord og Rvk. Dettifoss fór frá Aber- deen í fyrradag til London, Rotterdam, Bremen og Hamborgar. Fjallfoss fer frá Rvk. kl. 20.00 í fyrrakvöld til ísafjarðar, Siglufjarðar, Hjalteyrar, Raufarhafnar og Eskifjarðar. Goðafoss fór frá Keflavík 27. nóv. til New York. Gullfoss kom til K.hafnar í fyrradag frá Hamborg. Lagarfoss er í London. Fer þaðan til Hull, Rotterdam, Hamborgar og Rvk. Reykjafoss fór frá Mamborg í fyrradag til Rvk. Selfoss kom til Rvk. á mið- vikudag frá New York. Selfoss fór frá Seyðisfirði 28. nóv. til Liverpool, Brom- borough, Cork, Lorient, Rott- erdam, Esbjerg og Hamborg- ar. Tungufoss kom tii Lyse- kii á miðvikudag. Fer þaðan til Gravarna og Gautaborgar. Eimskipafélag Reykjavíkur Katla er væntanleg frá Eyj- um á morgun. — Askja fer í dag frá Barcelcara áleiðis til Livomo. Skipadeild SIS: Hvassafell fór í gær frá Stettín áleiðis til Rvk. Arn- arfell fór í gær frá Akureyri til Vestfjarða og Faxaflóa- hafna. Jökulfell fór í gær frá Keflavík áleiðis til Hull, Grimsby og Hamborgar. Dísarfell fór 30. nóv. frá Hvammstanga áleiðis til Hamborgar, K.hafnar, Malmö og Rostock. Litlafell kemur til Rvk. í dag frá Akureyri. Helgafell er á Ak- ureyri. Hamrafell er vænt- anlegt 6. þ. m. til Hafnar- fjarðar frá Aruba. Loftleiðir. Snorri Sturluson er væntan- legur frá Helsingfors, K.höfn og Osló kl. 21.?0. Fer til New York kl. 23.00. Stiidentablaðið 1960 kom út 1. desember. Aðal- greinar blaðsins eru tvær og fjalla um landhelgismálið. Hin fyrri er eftir Pétur Benediktsson bankastjóra en hin síðari eftir Birgi Finns- son alþingismann. Próf. dr. Þórir Kr. Þórðarson ritar um hlutverk guðfræðideildar Háskólans. Þá ritar sr. Sig- urður Einarsson í Holti um þjóðskáldið Einar Benedikts- son. Sveinn Einarsson phil. kand. ritar greinina Úr dag- bók íslenzks stúdents í Stokkhólmi. Rektor Háskól- ans Ármann Snævarr ritar minningargrein um hinn ný- látna rektor próf. Þorkel Jóhannesson. Þá er grein um hinn nýkjörna rektor, há- skólaannáll, úr bók próf. Einar Ól. Sveinssonar um handritamálið, úr frásögn- um Hafnarstúdenta o. fl. — Ritstjóri Stúdentablaðs er Ásmundur Einarsson stud. jur., en aðrir í ritnefnd eru: Jón Óskai'sson stud. jur. Jón- atan Sveinsson stud. jur. Hilmar Björgvinsson stud. jur. og Svavar Sigmundsson stud. mag. Teiknari blaðsins er Gunnar Éyþórsson stud. mag. Útgefandi er Stúdenta- ráð Háskóla íslands. Tónlistarkynning í Háskólanum. Fyrsta tónlistarkynningin á þessum vetri fer fram í hátiða- sal Háskólans smmudag 4. þ. m. og hefst kl. 5. Flutt verður af hljómplötutækjum skólans tón- verkið „Le sacre du printemps“ ! (Vorfórnirnar) eftir Igor Stravinsky. j Þetta verk, sem upphaflega er samið við ballett eftir Diag- , hilev, var flutt í fyrsta sinn í I París 1913 og vakti þá mikið hneyksli og illdeilur, svo að nærri lá að áheyrendur berðust, | Síðar hefur verkið verið flutt ‘ um allan heim, bæði með ball-. ettinum og án hans, og er talið marka tímamót, ekki aðeins í þróun Stravinskys sjálfs, held- ur og í tónlistarsögu þessarar aldar. Jón Þórarinsson tónskáld flytur inngangsorð og skýrir verkið. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Kvenfélagið Hringurinn Munið jólabazar og kaffisölu Hringsins til ágóða fyrir Barnaspítalasjóðinn á Hótel Borg, sunnudag- inn 4. des, kl. 3—6 e.h. Styrktarfélag vangefinna tilkynnir Reykvíkingar, munið jólagjaíasjóð stóru bamanna. — Tekið verður á móti gjöfum í sjóðinn á skrifstofu Styrktarfélagsins, Skóla- vörðustíg 18 4. h. , Manntalið gekk mjög vel um land allt. Manntalið, sem frain fór í fyrradag xun land allt, gekk mjög vcl að því er Hagstofan liafði til frétt í gær. Hér í Reykjavík var starfið að vonum umfangsmest, en teljarar gengu yfirleitt rösk- lega fram í starfinu. Þó voru auðvitað noklcur brögð að því, að teljarar brygðust á síðustu stundu, af veikindaástæðum og öðrum. En þá var gripið til varaliðsins, sem voru nemend- ur í efstu bekkjum Mennta- skólans og Verzlunarskólams, og þeirra starf varð með ágæt- um, með tilliti til þess, að þeir höfðu lítinn tíma til að kynna sér reglurnar, sem fara skyldi eftir. Skrifstofan hér í Reykja- Þurrksrnir — Frh. af 1. siðu. Sólskin var 78 klst. í nó.vember, en eru aðeins 31 klst. meðallag. — Næstflestar sólskinsstundir voru í nóvember 1956 eða 67. — Sólskinsmælingar hafa verið gerðar frá árinu 1923. Meðalhiti á Akureyri var í nóvember 2.5 st. og er það óvenjulega hlýtt eða 3 st. hlýrra en í meðallagi. — Úr- koma á Akureyri var í meðal- lagi eða 43 mm. vík var opin fram yfir mið- nætti, og skiluðu margir af sér fyrir þann tíma. Góður gestur hjá félaginu ísland- Noregur. Prófessor Gerhard M. Ger- hardsen flytur erindi og sýnir kvikmynd á vegum félagsins Island—Noregur. Sunnudaginn 4. des. kl. hálf tvö mun prófessor Gerhard M. Gerhardsen frá Bergen flytja erindi og sýna kvikmynd í Tjarnarbíói. Erindið og mynd- in fjalla um aðstoð þá, sem Norðmenn veittu Indverjum við fiskveiðar fyrir nokkrum árum. Pi'óf. Gerhardsen er nú staddur hér á vegum stjómar- innar til þess að gera athuganir á fiskveiðum og útveg íslend- inga. Áður hefur hann verið í sömu erindagerðum í Indlandi, og mun segja frá því. Þó margt sé ólíkt með Ind- landi og íslandi er þörfin fyrir fiskveiðar sízt minni, þar en hér, og má því ýmislegt læra af erindinu og myndinni. Það skal tekið fram, að að- gangur er ókeypis meðan hús- rúm leyfir og erindið hefst stundvislega kl. hálf tvö.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.