Vísir - 08.12.1960, Side 1
q
x\
I
y
M. árg.
Fimmtudaginn 8. desember 1960
278. tbl.
Ræða fjármálaráðherra:
Skipulagsbreyting undirstaða sparnaöar.
Oraunhæfar sparnaðartillögur stjérnar-
andstæðinga.
í , umræduiiuin um f járlögin
1961 í gærkveldi kvaddi fjár-
málaráðherra Grmnar Thorodd-
sen, sér hljoðs til að svara
nokkrum ádeiluatriðmn úr ræð-
um stjórnarandstæðinga.
R.áðherrann hóf mál sitt
með því að þakka ijárveitinga-
nefnd vel unnin störf við skjóta
afgreiðslu málsins.
Síðan sagði ráðherrann að
margt stæði til bóta í samningu,
frágangi og afgreiðslu fjárlaga.
Hann hafði kannað með hvaða
hætti betur mætti undirbúa
frumvarpið og gera það betur
úr garði. Sem dæmi nefndi
ræðumaður að ráðuneytin
þyrftu að byrja fyrr á athugun-
um sínum vegna fjárlaga og
vinna betur en gert hefur ver-'
ið. Hvað upsetningu ríkisreikn-
inga og fjárlaga snertir þarf
meifa samræmi þarna á milli.
Sumar stórar ríkisstofnanir sem
velta milljónum króna eru ekki
teknar með í fjárlögin. Einnig
mætti draga saman atriði, sem
nú eru dreifð á margar greinar.
Erfitt er fyrir þá sem ókunn-
ugir eru að bera saman ríkis-
reikninginn og fjárlögin. Þarf
að setja um þetta fastari reglur
og er löggjöf í undirbúningi.
Gunnar Thoroddsen drap á
endurskipulagningu í rikis-
rekstrinum. Kvað ráðherrann
nú unnið kerfisbundið innan
sérhverrar starfsgreinar ríkis-
stofnana og það kannað af fær-
ustu mönnum hvort hægt sé að
breyta til sparnaðar og aukins
hagræðis. Hefðu m. a. verið
fengnir erlendir sérfræðingar
til þessarra athugana.
Ráðherrann minntist á sparn-
aðar tillögur stjórnarandstæð-
inga. Þær gera ráð fyrir svo og
svo miklum sparnaði, en án þess
að nokkuð sé kannað hvar og
hvernig hægt sé að spara. T. d.
flytja Framsóknamenn tillögu
um að fjárveiting til sumra
sendiráðanna á Norðurlöndum
verði lögð niður frá og með 1.
janúar næstk. En er þetta hægt
á svo skömmum tima sem til
stefnu er. Þetta kostar langan
undirbúning. Loks' á starfsfólk
sendiráðanna lagalegan rétt á
uppsagnarfresti.
I Stjómarandstæðingar hrósa
sér af langri baráttu fyrir nið-
urlagningu annars af tveim
sendii'áðum íslands í París, eins
og fjárlagafrumv. gerir ráð
fyrir. Engu að síður reyndu þeir
ekki að framkvæma þetta í
stjórnartíð sinn — á tíma V.-
stjórnarinnar.
Framh. á 5. siðu.
Kasavúbú setur herlög
í StanEeyvilEe og héruðunum
þar nyrðra.
Lm framkvæmd þeirra leikur mikill vafi.
Kasavúbú forseti setti í gær
herlög í norðurhéruðunum
kringum Stanleyville, þar sem
Saluma fyrrverandi einkarit-
ari • Lumumba hefur lýst yfir
áformum um stofnun sjálf-
stæðs ríkis, verði Lumumba
ekki látinn laus <*g fái frelsi til
að taka bátt í umræðum um
framtíð Kongó.
Fréttaritarar » Leopoldville
síma, að nú eigi eftir að koma
í Ijós hvort Kongóherinn sé
því hlutverki vaxinn að inna
ofannefnt hlutverk af hendi.
Fréttaritarar, brezkir, sem
fóru til Stanleyville, sögðu við
komuna til Leopoldville aftur,
að öngþveiti og öryggisleysi
væri ríkjandi þar nyrðra, og
700—800 manns frá Evrópu,
aðallega Belgíu, væru mjög
uggundi. Hefur þetta fólk orðið
fyrir hnjaski og jafnvel meið-
^ ingum.
I ..
Öryggisráðið
ræðir Kongó.
I Á .fundi Öryggisráðs hefur
I Dag Hammarskjöld varið stefnu
! og framkvæmdir Sameinuðu
þjóðanna í Kongó. Þær hefðu
ekki brugðist — heldur leið-
toga.r Kongó, sem ekki hefðu
notað tækifærið sem bauðst
Grísk skip undrr
réttum fána.
Kaupskipafloti heims hefur
aukist svipað í ár og í fyrra.
Sagt er frá þessu í nýjum
skýrslum. Bretar eru el'stir á
blaði með stærsta kaupskipa-
fletann í notkun. Grikkir eru
komnir í flokk mestu siglinga-
þjóða í skýrslum.
Ekki er það þó vegna þess,
að grískum skipum hafi fjölgað
svo gríðarlega, heldur er hitt,
að þau sigldu áður, m. a. olíu-
skip grískra skipakónga, undir
fána Liberiu. Nú sigla þau und-
ir gi'íska fánanum.
Jólin nálgast — skreytingarnar eru komnar og brátt fara menn
að senda jólakveðjurnar. — Meðal þeirra jólakorta sem nú eru
á markaðnum eru sex prentuð eftir málverkum Guðmundar
Þorsteinssonar. Sýna þau atriði úr íslenzku þjóðlífi. Þetta er
eitt þeirra.
ítján lönd missa spón
úr aski sínum.
Mý bandarísk ráðstöfun til
stuðnings dollaranum.
Bandaríkjastjórn hefur á-
kveðið að stærri hluta en áður
af framlagi Bandaríkjanna til
efnahagsaðstoðar í 65 löndum
til ýmissa kaupa í Bandaríkj-
unum, og er talið að um 89%
af því, sem greitt var fyrir af
þessu framlagi erlendis, reimi
aftur til Bandaríkjanna, er frá
líður.
Fé, það sem hér um ræðir
hefur aðallega verdð notað til
kaupa á ýmsu og greiðslna í 19
löndum, sem hafa harðan gjald-
eyi'i, Vestur-Evrópulöndum
ýmsum að meðtöldu Bretlandi,
og Ástralíu og Nýja Sjálandi
Áhrifanna mun ekki gæta að
fullu fyrr en 1962. Ákvörðunin
er ein af þeim, sem tekin hefur
vei'ið til að treysta aðstöðu doll
ars og di'aga úr óhagstæðum
greiðslujöfnuði Bandaríkjanna.
Brezk blöð segja, að minna fá—
ist fyrir peningana vestra en í
ofannefndum löndum.
Herter, utanríkisráðherra
skýrði frá ákvöi’ðun þessari í
gærkvöldi.
Aöalfundur Varðar:
með aðstoð S. þj. til að koma á
„1910-14.des.-1960."
reglu og framtíðarskipan.
Brezk blöð í morgun í'æða
hoi'furnar í Kongó, telja þafn-
vel þá hættu á ferðum nú, að
Kongó verði ný Kói'ea.
Daily Mail er harðort í garð
Sovétríkjanna — það neiti
einlægu samstarfi og þátttöku
í greiðslum. en fulltrúar þeirra
æpi hátt um ihlutun og mis-
tök og auki þanng á sundrung-
una.
Guardian stingur upp á sem
hugsanlegi'i leið úr úr vandan-
um, að Lumumba verði aftur
settur í umsjá Sameinuðu þjóð-
anna. Hann hefði ekki átt að
flýja — hefði hann ekki gert
það væru horfuxnar betri nú.
Höskuldur Ölafsson, sparisjóðsstjóri var
einróma kosinn formaður felagsins.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson baðst undan endurkjöri.
Landsmálafélagið Vörur hélt
aðalfund sinn í gærkvölil. For-
maður félagsins, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, setti fund-
inn, en fundarstjóri var kosinn
Birgir Kjaran, alþm. Fundar-
ritari var Einar Guðniundsson
skrif stof ust jór i.
Formaður skýi’ði frá fjöl-
þættri starfsemi félagsins á sl.
ári, og færði meðstjórnendum
og félagsmönnum þakkir fyrir
gott samstarf á undanförnum
árum. Beiddist formaður ein-
dregið undan endurkosningu.
Fundarstjói'i þakkaði formanni
störf hans og tóku fundarmenn
undir það með lófataki.
Þá las gjaldkeri Varðar,
Sveinn Björnsson, reikninga fé-
lagsins og voru þeir samþykkir.
Að því búnu var gengið til
stjói'narkosningar og var kjör-
inn formaður, í einu hljóði,
Höskuldur Ólafsson, sparisjóðs-
stjóri, Aðrir stjórnarmenn
voru kjörnir þeir Baldur Jóns-
son, kaupmaður, Sveinn Guð-
mundsson, forstjóri, Þorkell
Sigurðsson vélstjóri óg Sveri’ir
Jónsson, ski'ifstofumaður.
í varastjói'n voru kosnir Jón
Jónasson skrifstofustj. Sverr-
ir Júlíusson útgerðarmaður og
Þórður Kristjánsson kennari.
Endurskoðendur voru kjörn-
ir Már Jóhannsson skrifstofu-
stjóri og Guttormur F.rlends-
son endurskoðandi.
Þá kvaddi sér hljóðs hinn ný-
kjörni formaðui', Höskuldur
Ólafsson, Þakkaði hann það
traust sem honum hefði verið
sýnt með kosningunni.
Loks flutti Sigurður Bjarna-
son ritstjóri, erindi um 15 þing'
Sþ., og eins og við var að búast
var það hin fróðlegasta frá-
sögn, því að hann er manna
kunnugastur öllum hnútum þar,
enda fulltrúi íslands hjá sam-
tökunum.