Vísir - 27.12.1960, Síða 7
Þriðjudaginn 27. desember 1960
VÍSIR
Bretar reyna að miðla
málum í Laos.
Konungur Laos kont tH Víentíane í gær.
Sir Frank Norton ambassador
Bretlands í Moskvu hefur átt
frekari viðræður um Laos við
Kusnetzov aðstoðar-utanríkis-
ráðherra.
Stjórnin í Vientiane heíur
lýst vfir, að hún hafi myndir og|
aðrar sannanir fyrir því, að sov-
ézkar flugvélar hafi flogið yfir
hersveitir Kong Lae á undan-
haldi hans frá Vientiane, og
hafi verið látnar svífa niður til
þeirra fallhlífar með vopn og
skotfæri. Náðst hafi myndir,
sem sýni greinilega hin sovézku:
einkenni f lugvélanna. Hefur
stjórnin mótmælt þessari er-'
lendu íhlutun. Kommúnistar
saka hins vegar Bandaríkja-
menn um stuðning við her-
sveitir Phoumi Nosovans, sem'
tóku Vientiene og hröktu Kong
Lae á brott þaðan.
Konungurinn í Laos kom til
Víentiane í gær, til þess að
kynna sér skemmdir í borginni
eftir bardagana, en að margra
ætlan er tilgangurinn að heita
stuðningi nýju stjórninni, sem
þar var mynduð eftir undan-
hald Kong Lae frá borginni.
Bretar reyna sem kunnugt er
af fyrri fregnum, að koma því
til leiðar, að fulltrúar sem
flestra verði i hinni hýju stjórn,
og samkomulag verði um að
hæta allri erlendri íhlutun.
Slys
v^WÞÓR ÓUVMUmSON
ll&íiutuj(iÍ£íl7r/m <Súni 23ý7o
INNHE/MTA
LÖGFRÆtHSTÖHr
Framh. af 12. síðu.
götunni þegar bifreiðarstjór-
inn kom út. Ekki er talið að
billinn hafi farið yfir manninn
og ekki var talið við fyrstu at-
hugun að maðurinn væri brot-
inn. Hins vegar mun hann hafa
hlotið þungt högg. Hann var
fluttur í sjúkrabifreið í slysa-
varðstofuna og þaðan í Landa-
kotsspítala, þar sem hann ligg-
ur nú. Þegar Vísir spurðist fyr-
ir um líðan hans í morgun var
blaðinu tjáð að hún væri ó-
breytt.
í gærkveldi ók kona bifreið
aftan undir vörubílpall og slas-
aðist við það á höfði, auk þess
sem hún hlaut taugaáfall.
í nótt meiddist mður í sysk-
ingum og annar varð fyrir bif-
reið í Austurstræti og slasaðist
á höfði. Þeir voru báðir flutt-
ir í slysavarðstofuna.
VARMA
Jólafagnaður Verndar
fór hið bezta fram.
Fleiri gestir komu en í fyrra.
Einangrunar plötur.
Sendum heim.
Þ. Þorgrímsson & Co
Borgartúni 7. - Síini 22235.
Nærfatnaður
karlmanna ,
»g drengja
fyrirliggjandl.
LH.MUUER |
Jólafagnaður félagsins Vernd-
ar fyrir þá, sem engan samastað
áttu um jólin, fór fram í Sjálf-
stæðishúsinu á aðfangadag,
var vel sóttur og fór hið bezta
fram.
Um tíu manns frá Vernd
voru mættir í Sjálfstæðishúsinu
kl. 2 síðdegis, aðallega konur,
og gengu um beina fyrir gesti,
en þeir urðu milli 50 og 60 alls,
og varð það miklu fleira en 1
fyrra. Fjöldi fyrirtækja og ein-
staklinga hafði gefið mikið af
mat og fatnaði, og Sjálfstæðis-*
húsið var lánað ókeypis.
Fyrst voru þeir látnir fá föti
til skiptanna, sem vildu, og
bjuggu allir sig upp undir sjálf-
! an jólafagnaðinn.
i Séra Bi’arni Jónsson vígslu--
biskup okm á vettvang og fluttil
jólahugvekju, Skúli Halldórssom
tónskáid mætti tíka og lék áí
píanó. Setzt var að borðum kl.
6.30 síðdegis, og setiS var j
góðum fagnaði fram eftiri
kvöldi, undu allir glaðir viði
sitt.
Eisenhower framtengir bann
á Kúbusykrí.
Enginn irmflutningur til 31. marz n. á.
Málfiumingsskrifstófa
MAGNÚS THORLACIUS
hæstaréttarlögmaður.
Aðalstræti 9. Síini 1-1875.
Eisenbower forseti fram-
lengdi fyrir skönmm bannið á
innflutningi á sykri frá Kúbu
um þriggja mánaða skeið frá
1. næsta mánaðar að telja.
Eökstyður hann framleng-
inguna með því, að afstaða
Kúbustjórnar til Bandaríkj-
anna sé enn fjandsamleg, og
hafi ákvörðunin verið tekin
með tilliti til þjóðarhagsmuna
Bandaríkjanna.
Sagt er, að forsetinn muni
einnig hvetja þjóðþingið til að
gera þá breytingu á gildandi.
lögum, að forsetinn sé leystur
undan þeirri skyldu, að kaupa
sykur í Dominikanska lýðveld-
inu.
Bannið á sykurinnflutningi
frá Kúbu gildir til 31. marz nk.,
en þá ganga hin svonefndu syk-
urlög úr gildi.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ISLAND
Gtæsiiegasta happdrætti iandsins.
60,000 hiutamiðar — 15,000 vinningar
FjcrJi hver mlJi hiýtur vinning að msðaitaíi.
i vinningtir ein milljón krónur
Umboðsmenn í Reykjavík:
Arndís Þorvaldsdóttir, Vesturgötu 10, sími 1--90-30.
Elís Jónsson, Kirkjuteigi 3, sími 3-49-70.
Frímann Frímannsson, Hafnarhúsmu, sími 1-35-57.
Guðrún Ölafsdóttir, Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar, Austur
stræti 18, sími 1 -35-40.
Helgi Sivertsen,, Vesturveri, sími 1-35-82.
Jón St. Arnórsson, Bankastræti 11, sími 1-33-59.
Verzlunin H. Toft, Dalbraut 1, sími 3-41-51.
Verzlunin Straumnes, Nesvegi 33, sími 1-98-32.
Þórey Bjarnadóttir, Laugavegi 66, sími 1-78-84.
Umboðsmenn í Kópavogi:
ölafur Jóhannesson, VallargerÖi 34, sími 1-78-32.
Kaupfélag Kópavogs, Álfhólsvegi 32, sími 1-96-45.
Umboðsmenn í HafnarfirSi:
Kaupfélag Hafnfirðinga, Vesturgötu 2, sími 5-02-92.
Valdimar Long, Strandgötu 39, sími 5-02-88.
Vinsamlegast endtirnýi6 sem fyrst tii a6 for6ast kiðraSir
seinustu dagana.
Vinsamlega athugiS:
Stofnað hefur verið nýtt umboð í Skjólunum í Verzlunmni
Straumnes, Nesvegi 33.
Umboð Guðnínar ölafsdóttur er flutt úr Bankastræti 11 í
Bókaverzlun Sigf. Eymundssonar, Austurstræti 18.
Umboðið, sem var í Verzl. Miðstöð er flutt í Kaupfélag
Kópavogs, Álfhólsvegi 32.
I
ÍSLANDS