Vísir - 11.01.1961, Side 9
Mið.vikudaííinn 11. janúar 1961
VtSlR
9»
x •
*
ir.
Kostnaður við eina fegurðarsam-
keppni getur skipt milljónum dollara.
Hinn- nýkjörni forseti A!-
heimsfegurðarsamkeppninnar í
Long Beach, Kaliforníu, George
P. Taubman, er ófeiminn við
að skýra frá því, að þessi feg-
urðarmót séu orðin stórfyrir-
tæki hverju sinni.
Taubman er þekktur lögfræð-
ingur í Long Beach. Hann
bendir á hinn geysimikla mun,
sem er á slíkri samkepppni
nú, og fyrr á tímum, eftir fyrri
heimsstyrjöldina, þegar þær
voru fyrst að ná hylli almenn-
ings.
Þessar fyrstu „kroppasýning-
ar“ voru uppfinning áhuga-
samra auglýsingaberserkja, og
kallaðar baðfata-fegurðarsam-
keppni: Þátttakendur voru
dæmdir einungis eftir því
hvernig þær litu út í formlaus-
um og víðum baðfötum þeirra
tíma. Sú, sem hlutskörpust
varð, fékk ódýran bikar að
launum og var síðan send bein-
ustu leið heim aftur. Dagblöð-
in í heimalandi — eða heima-
borg — hennar skrifuðu um
hana nokkrar smágreinar, en
síðan glevmdist hún venjulega
sarax, giftist og fór að eiga
börn.
„Útgjöid þeirra, sem sáu um
slíkar sýningar, fóru sennilega
ekki fram úr nokkur hundruð
dollurum.“ sagði Taubman.
„Fegurðarsamkeppni, eins og
okkar, sem er með þeim mestu
í heimi, hefur í för með sér út-
gjöld, sem reiknast í milljónum
dollara."
Þessari staðhæfingu til sönn-
unar, tók Taubman sem dæmi
samkeppnina 1960 í Long
Beach, en 52 þjóðir tóku þátt í
henni. Hann benti á kostnaðinn
við að halda fyrst slíka sam-
keppni í öllum þessum löndum,
og sumstaðar margar í hverju
landi, til að velja þær úr, sem
taka áttu þátt í keppninni á
Long Beach. (í Japan og Brazi-
líu, voru 50—60 slík mót haldin
áður en þjóðardrottningin var
kosin.) Sumstaðar fengxi þessar
fegurðardrottningar allt að
250,000 dali samtals í þessum
löndum, áður en þær lögðu af
stað til Bandaríkjanna. Síðan
kemur ferðakostnaður með
flugvél og skipum, 50 þús. doll-
arar, ferðakostnaður fyrir að-
stoðarfólk og umboðsmenn o.
fl.
Síðan, sagði Taubman, kemur
hinn gífurlegi kostnaður við
fegurðapsamkeppnina á Long
Beach, sem stendur í 10 daga.
„Við vinnum að samkeppn-
inni alla mánuði ársins," sagði
Taubman. „Við höfum skrif-
stofu opna allan ársins hring og
skrifstofufólk. Stærstu útgjöld-
in eru aðvitað gisting og uppi-
hald keppendanna, sem eru 60
eða fleiri, á Lafayette gistihús-
inu, kostnaðuf við viðhafnar-
opnun keppninnar á leikvangi
uppgjafahermanna, hin geysi-
stóra og íburðarmikla þriggja
klukkutíma skrúðganga um göt-
ur borgarinnar, fjórar skraut-
sýningar í viðhafnarsal ráð-
ráðhússins og hinn óhóflegi
krýningardansleikur.
Önnur útgjöld eru auglýsing-
ar og ferða- og dva’arkostnaður
dómnefndarinnar. Stjórn fyrir-
tækisins verður að greiða alla
þessa reikninga.
Svo kemur allur kostnaður-
inn við fréttasendiumynda-
tökur og annað fyrir bandarísk
blöð, erlend blöð, fréttastofur,
útvarpsstöðvar og sjónvarps-
stöðvar, kvikmyndafyrirtæki
og margt fleira. Um 200 erlend-
ir fréttamenn ásamt Ijósmynd-
urum eru ávallt til staðar alla
þessa 10 daga.
„Fjölmörg lönd, senda sína
beztu blaðamenn til þess að
fylgjast með keppninni.
Þegar maður leggur allan
þennan kostnað saman, fyrir
gistingu, ferðir, fæði símtöl
milli heimsálfa, símskeyta-
kostnað, bréfburðargjö'd fyr-
ir myndir í flugpósti nn sögur
til annara landa, þá blöskrar
mnni kostnaðurinn,“ sagði
Taubman.
Sjónvarpsmenn eyða um 150
þús. dollurum í að taka myndir
af þessu. í þessum kostnaði er
innifalið laun fyrir myndatöku-
mennina, dagskrártími, segul-
bandsupptaka, kostnaður við að
senda myndirnar með stutt-
bylgju og símakostnaður um
allan heim.
Síðast, en ekki sízt ber að
nefna aðal- og aukaverðlaun til
þátttakenda.
Fegurðardrottningin fær 10
þúsund dollara í reiðu fé, dem-
ants-armbandsúr, demants-
hring, sem kostar 3,600 dollara
og önnur heiðursverðlaun.
Næstu 4 stúlkurnar fá einnig
peningaverðlaun, og sömuleiðis
allar hinar í fyrsta flokki. Þetta
safnast allt saman“ sagði Taub-
man.
Eftir því, sem Taubman seg-
ir, er heiðurstitill fegurðar-
drottningarinnar metinn á 75
þús. til 100 þúsund dollara fyrir
þá, sem það hlýtur.
Stella Marquez frá Kólumbíu,
sem varð fegurðardrottning
1960, er nú á ferðalagi um
Evrópu á kostnað flugfélags í
Kólumbíu. Þegar hún kemur
heim eftir tveggja mánaða ferð,
mun hún hafa unnið sér inn
22 þús. dollara.
Ef sigurvegarinn vinnur
kvikmyndasamning eða sjón-
varpsráðningu, er um meira fé
að ræða. Jafnvel þær, sem ekki
hafa hlotið vinning, fá oft ýmis
góð atvinnutilboð. „Það þarf
mikla peninga til að efna til
slíkrar samkeppni nú á tímum,
og það er sannfæring mín að
það fé, sem samtals fer til henn-
ar á einhvern hátt, nema mill-
jónum dollara," sagði Taubman.
Austuitæjarbíó kynnir
myndir ársins 1961.
Þeirra á meðaf eru margar góðar myndir,
sem hlotið hafa almeniia viðurkenningu
erlendis.
Austurbæjarbíó hefur látið
frá sér fara bækling með upp-
lýsingum um helztu myndir
sem væntanlegar eru á árinu.
Kennir þar margra grasa, og
. lesendum til fróðleiks skal
minnzt á nokkrar þeirra hér.
Um þessar mundir er verið
að sýna „Trapp-fjölskylduna í
Ameríku“, en hún hefur notið
i mikilla vinsælda þá daga sem
sýníngar hafa staðið, enda
muna margir fyrri „Trapp“-
myndina sem hér var sýnd.
Næsta mynd er „The Prince
and the ShowgirI“, sem á ís-
lenzku hefur hlotið nafnið
„Prinsinn og dansmærin".
Þetta er víðfræg mynd, þar sem
sir Laurence Olivier fer með
aðalhlutvrkið á móti Marilyn
Monroe. Það vakti talsverða
athygli á sínum tíma, að svo
þekktur leikari sem Olivier
skyidi fara að leika á móti
Monroe, sem aðallega var þekkt
fyrir að vera „kynbomba“.
Myndin hefur þó vakið mikið
umtal, og þykir bráðskemmti-
leg, enda má næstum því mæla
með öllu sem Olivier kemur
nálægt.
„Skurðlæknirinn“ nefnist
mynd sem á ensku heitir \
„Behind the Mask“ og gerð er
eftir skáldsögu eftir John R.
Wilson. Michael Redgrave, sem
er í hópi beztu leikara Breta
fer með aðalhlutverkið, og má
því telja víst, að myndin sé,
vel leikin, en með önnur hlut-
verk fara Tony Britton og
Brenda Bruce, sem að vísu eru
ekki eins þekkt og Redgrave.
Þá er ætlunin að taka til sýn-
inga „The Pyjama Game“, en
myndin er byggð á samnefndum
sjónleik sem um árabil naut
mikilla vinsælda á Broadway.
Doris Day fer með aðalhlutverk,
en mótleikari er John Raitt,
sem lítt mun kunnur hér. Vafa-
laust er þetta þó bráðfjörug og
skemmtileg mynd.
Arið 1959 var franska gaman-
myndin „Mon Oncle“ eða
„Frændi mi!in“, valin bezta er-
lenda gamanmyndin í Banda-
ríkjunum, og hlaut hún Oscars-
vérðlaun sem slík. Myndin er
gerð af meistaranum Jaques
Tati.
Þá verður tekin til sýningar
bandaríska myndin „Indiscrete“
sem á íslenzku' nefnist „Ást-
fangin“. Myndin er ensk-ame-
rísk, og með aðahlutverkin fara
tveir mjög þekktir leikarar,
Ingrid Bergman og Cary Grant,
auk Cecil Parker og Phyllis
Calvert. Myndin er sögð
skemmtileg, þótt sennilega risti
hún ekki .mjög djúpt.
„Lés Cousins“, frönsk mynd,
sem víða hefur hlotið góð um-
mæli. Hún hefur á íslenzku
fengið nafnið „Hrópaðu ef þú
getur“. Hún hlaut m. a. gull-
verðlaun í Berlín 1959, og þykir
túlka hina nýju frönsku stefnu
í kvikmyndagerð. Með aðal-
hlutverk fara Gérard Blain,
Jqliette Mayniél og Jean Claude
Brialy.
Flestir kannast við tvifara
Montgomerys, Clifton James.
Nú hefur verið gerð kvikmynd
um hann, og þau atvik sem
spunnust út af því herbragði
Montgomerys, að senda James
allskonar gervierinda fyrir sig
í stríðinu. James fer sjálfur
með aðalhlutverkið, en honum
til aðstoðar eru John Mills og
Maria Goring.
„Too Much, Too Soon“. Ævi-
saga Diönu Barrymore, verður
einnig sýnd á árinu. - Errol
Flynn leikur John Barrymore,
föður Díönu, en Dorothy Malone
dótturina.
„Á valdi óttans“ nefnist á ís-
lenzku sú mynd, sem erlendis
er þekkt undir nafninu „Chase
a Crooked Shadow“. Myndin er
ákaflega spennandi, og með að-
alhlutverkin fara Richard Todd
og Anne Baxter. Sennilega sú
mest spennandi mynd sem bíó-
ið býður upp á á þessu ári.
Þá kemur seinni m^md James
Dean, „The Giant“ eða „Ris-
inn“, sem færði Dean upp á
bekk með þekktustu leikurum
heimsins. Auk hans leika í
myndinni Elizabeth Taylor og
Rock Hudson. Myndin er gerð
eftir sögu Ednu Ferber.
Loks nefnum við hér frönskuj
myndina „Les Aimants“, en húni
er sögð ein bezta og raunsæjasta
mynd sem enn hefur verið gerSP
um ástina og þykja sum atrið-
in í djarfara lagi, svo að við>
hefur legið, að sýningar á hennt
yrðu bannaðar. Með aðalhlut-
verk fara Jeanne Moreau og
Alain Cuny.
Þess má að lokum geta, að
það er skemmtileg nýjung að
kynna kvikmyndahússgestum
væntanlegt sýningarefni, og ber
að þakka það.
Happdrætti Styrktar-
félags vangefínna.
Eftirfarandi númer í happ»
drætti Styrktarfélags vangef-
ina lilutu vinninga:
1. R-677 — Opel Capitan j
Deluxe bifreið.
2. R-11330 — Flugfar til ,
Ameríku.
3. A-919 — Flugfar til Dar.-
merkur.
4. G-1172 — ísskápur.
5. G-1746 — Pfaff-saumavéí,
6. U-498 — Skipsferð til
meginlandsins. 1
7. K-142 — Skipsferð til
meginlandsins.
Ö. X-334 — Rafha eldavél.
9. R-8558 — Hrærivél.
10. Þ-90 — Ryksuga.
í vor unnu menn grcni , Ordrup skammt frá Kaupmannahöfn
en einum yrðlinganna var gefið Iíf og hann alinn upp hjá
manni cinum þar í bænum. í haust var yrðlingurinn, Tilki.
orðinn svo fyrirferðarmikill, að cigandinn varð að auglýsa
eftir nýju heimili handa lionum og fékkst það úti í Kastrup.
Hér sést fyrri eigandinn með rebba, sem stekkur upp, þegar
S.l. vor unnu menn greni í Ordrup skammt frá Kaupmannahöfn,