Vísir - 23.01.1961, Blaðsíða 7
Mánudaginn 23. :janúar 1961 ;
.... "'U" ■ ... '■
VÍSIB
~*r
Auk frummælendanna, Benedíkts Bjarklind
09 FriMinns Óíafssonar, tóku 17 aÓrir tii
máis á þessum 4 tíma fundi.
í gær kl. 14. hófst í Sjálf-
stæðishúsinu fundur sá um bjór
málið sem Stúdentafél. Reykja
vikur hafði boðað til. Fundur-
inn var vel sóttur, ræðumenn
niargir, og kenndi margra grasa
á þeim tæpum fjórum tímum
sem hann stóð. Ræðumenn
stóðu sig yfirleitt vel, þó að
nokkrir færu að vísu út fyrir
inál dagsins og kæmu þá með
fullyrðingar og yfirlýsingar er
menn áttu erfitt með að átta
sig á.
Matthías Jóhannessen, for-
maður Stúdentafélagsins, var
fundarstjóri, og kynnti hann
frummælendur, þá Benedikt
Bjarklind stórtemplar og Frið-
finn Ólafsson forstjóra.
Benedikt Bjarklind tók fyrst
ur til máls. Hann gat þess þeg-
ar í upphafi, að hér hefði fyrr
á árum verið leyft stex'kt öl í
landinu, og á þeim tíma hefði
sannai’lega ekki leitt til neins
fyrirmyndarástands í áfengis-
málum, Taldi hann, að ef nú
yrði farið út á þá braut að leyfa
áfengt öl á ný, myndum við
endurlifa sömu svínastíuna og
þá var. Að vísu væru gistihús
og aðrir samkomustaðir hér á
landi nú fegurri útlits, en ekki
væri ástæða til þess að ætla,
að eðli íslendingsins hefði
breytzt svo nokkru næmi síð-
an á þeim árum. Minnti hann
einnig á hættu þá sem leitt gæti
af tilkomu ölknæpa.
Afengi veldur fjölda slysa.
Vék ræðumaður síðan nokk-
uð að reynslu nágrannaþjóða
okkar í þessum málum. M. a.
vék hann að þvi, að V3 hluti
allra umferðai'slysa í Kaup-
mannahöfn væri talinn stafa af
áfengisneyslu, sömuleiðis 70%
glæpa, 40 slys í múraraiðn, svo
nokkur dæmi séu nefnd. Taldi
hann auðssætt, að öl mvndi þar
eiga hlut að máli, að miklu leyti
og þó helzt hin óheppilega
blanda, öl og snaps. Samkvæmt
revnslu Dana ættum við því
ekki að fá öl. I
Þá sagði frummælandi, að ái'-
ið 1949 hefðu Noi'ðmenn fengið
öl, og hefði ætlunin verið sú,
fyrst og fremst að hefia sam-
keppni á alþjóðamarkað, og hag
nýta m. a. hið góða vatn, sem
þar væri að finna. Reyndin
hefði hins vegar orðið sú, að
Noi'ðmenn neyttu sjálfir 95%
sinnar ölframleiðslu. Vék hann
sérstaklega að vandræðaá-
standi, sem skapazt hefði í
Haugasundi vegna öldrykkju.
Þi-eföld hætta
af öli.
Reynsla Svia kvað hann ekki
góða. Afbrot hefðu tvöfaldast
fi'á 1954—57, en ölið hefði þar
komið tdl sögunnar 1955. Taldi
hann að ölið myndi þar hafa
valdið miklu um.
Þannig taldi ræðumaður að-
allega þi-enns konar hættu
stafa af tilkomu öls. í fyrsta
lagi stafaði unglingum hætta
af því, í öðru lagi væri það sann
að mál, að öl gerðj menn óhæfa
til aksturs, þannig sljóvgaði
neyzla 3 ölflaskna menn bæði
til sjónar, heyrnar og við-
bragða. Loks taldi hann öl
hættulegt þeim sem tæpir væru
með tilliti til áfengisneyzlu
Næstur tók til máls hinn frum-
mælandinn, Friðfinnur Olafs-
son forstjóri. Vék hann i upp-
hafi máls síns að því, að vai'la
bæri að deila um það, að öl ætti
að leyfa. Lítill hópur manna
hefði á undanförnum árurn
i'eynt að „terrorisera" alþing-
ismenn og þjóðina til fylgis við
sig. Landsmenn hefðu hins veg
ar fengið nóg af bönnum og boð
um, og vart seinna vænna að
létta persónufrelsi af mönnum.
Þar að auki væri það margan
Ijóð að finna á ráði Góðtempl-
ara. að engin sérstök ástæða
væri til að hlýða á mál þeirra.
Sagðist ræðumaður þar eiga við
hreyfinguna sem heild. en ekki
einstaka menn innan hennar,
því að þar væri vissulega
marga ágætismenn að finna.
Hins vegar sagðist hann ekki
geta hæ!t reglúnni. til þess
væri sa.ga hennar of mikil saga
siysa og óhappa.
Temolarar og
stórar fiöskur.
Þannig væri það fvrir teil-
verknað Góðetemplara, að
brennvín fengizt aðeins selt í
3 pela flöskum. Það hefði einn-
ig verið verk þeirra, er það á-
stand skapaðist á sínum tíma,
sem leiddi af sér laumufyllirí á
skemmtistöðum, eða hina svo-
nefndu pelaöld. Þá skyldu
menn minnugir héraðabanna,
sem einnig væri vei'k Góðtempl
ara. Þannig hefðu heilar sveitir
mann orðið að leita eftir áfengi
eftir fui'ðulegum leiðum. Á sin-
Um tíma hefðu Akureyringar
og Eyfii'ðingar drukkið „gegn
um“ Siglfirðinga, og við sjálft
hefði legið, að menn við Eyja-
fjöi’ð hefðu gert út á áfengi. Þó
kæmi öllum saman um, að
drykkja á þeim stöðum, þar
sem. héraðabann ríkti, hvergi
minnkað. Rakti hann einnig
hvernig Vestmannaeyingar
drykkju gegn um pósthús stað-
ai'ins, og Suðurnesjamenn gegn
um pósthús eða leynivínsala;
Kvað hann það mála sannast,
að helztu stuðningsmenn Góð-
templara í héraðabönnum væru
leynivínsalar.
Hins vegar taldi ræðumaður,
að þær tölur sem Góðtemplar-
ar gjai’nan beittu fyrir sig í öl-
málinu væru þess eðlis, að ekki
væri það mark á takandi sem
vei'a látið væri. Einnig fengi
hann ekki séð, hvernig öl gæti
haft áhrif til hins verra í iand.i.
I
þar sem áfengi væri selt hömlu
laust, allt að 21/2% og síðan frá
6% og upp i 100%.
myndi íæynast unglingum sér-
staklega hættulegt, sagði hann
það algerlega ósannaða stað-.
hæfingu. Enginn vissi nú hve
margir þeirra neyttu áfengis né
hver viðbrögð þeirra yrðu með
tilkomu öls, hvað þá að af því
hlytist verra ástand. — Einnig
kvað hann lítið mark á því tak
andi sem haldið væri fram, að
heilar stéttir manna, s. s. múr-
arar myndi leggjast í takmarka
litla öldrykkju, og öðrum álíka
fullyrðingum.
Bjór skal leyfa.
Hann vék einnig að þeirri
staðreynd, að margir prófessoi'-
ar og málsmetandi menn hefðu
mælt með neyzlu öls frekar en
annax-ra tegunda áfengis.
Taldi framsögumaður að lok-
um, að tvímælalaust ætti að
leyfa bruggun og sölu sterks;
öls, -en hins vegar bæri einnig
:að berjást gegn drykkju ung-
linga og annarri ofneyslu áfengf
is á raunhæfán hátt, og kvaðsí:
reiðubúinn að taka höndum.
saman við þá sem það vildu
gera.
Að loknu ræðum framsögu-
manna voru fi'jálsar umræður.
Tók fyrstur til máls Ezra Péi:
ursson læknir. Taldi liann allan.
málflutning ölmanna markast
af afstöðu þeirra til staðreynda,.
sem hann stangaðist á við, og
þessvegna yrðu þeir að hagræða
staðreyndum í málflutningi.
sínum. Hófdrykkja væri alls
ekki skaðlaus. Áfengi væri að-
eins eitt deyfilyfja, s. s. kóka-
ins, morfíns og heroins, og í
saina hópi bæri að telja kaffi.
Frh. á 11. s.
Bjór og brennivín.
Vék hann síðan að því, hvern
ig sá bjór sem hér fæst ú. og
telst ekki áfngi (2 % % )
myndi. ef neytt væri daglega,
nema 10 fl. af brenni yfir ár.iö.
Ef menn neyttu tveggja flaskna
af því á dag, jafngildi það 20
fl. af brennivíni. Leiddi ræðu-
maður þannig rök að því, að
neyta mætti áfengi á misjafn-
lega skaðsamlegan hátt.
Þá vék hann að þeirr.i fullyrð
ingu Góðtemplara, að t.íundi
hver maður, sem neytti áfengis
að staðaldri yrði áfeneissjúkl-
ingur. Miðað við þá tölu. sem
sennilega mætti teljast, að 100
þús. íslendingar neytti áfengis,
væri hér um 10.000 áfengis-
sjúklingar, eða sem dæmi öll-
um íbúum Suðurlandsundir-
Jendis frá Hellisheiði að Mark- ;
arflióti
Hvað við kæmi þeim rökum
Góðteemplara gegn öli, að það
Sl!
. . . allir ftekkja
SAS-0
SA&-Q rœMiAujjt
Amailkmtoéat
IIE I>I DALLIJR F.I.S.
A^t Sjálfstæíisfólk
velkomið.
Ókovnis að?ans(ur
BIINGO - BINGO
BINGO-kvöId verður í S|álfstæðishúsinu þriðjudaginn 24. jan. n.k. kl. 8,30 stundvíslega.
Dansað á eftir til kl. 1
Glæsilegir vinningar
Sætamiðar afhentir kl. 1—5
í dag
í skrifctofu
S’álfstæðishússins.
M.a.: 12 manna matarstell. ,,STQP“ kvenúlpa frá VÍR — Kvcld í Nausti fyrir tvo
Nýtizku lampar — Auk f jölda annarra eigulegra vinninga.
SH§i!ÍI&