Vísir - 27.01.1961, Síða 1
12
síður
q
l\
I
y
12
síður
51. árg.
Föstudaginn 27. janúar 1961
22. tbl.
Röðull sSé
metið.
Bv. Röðull frá Hafnarfirði
seldi farm af síld í Bremer-
haven .4 fyr'radag og fékk
fyrir hærri fjárhæð, en nokk
urt skip hefur fengið í Þýzka
landi mánuðum ef ekki ár-
um saman. Röðull var fermd
ur síld, þegar hrotuna gerði
á dögunum, og tók hann.
hvorki meira né minna en
242 lestir, en auk þess hafði
hann 12 lestir af öðriun
fiski. Fyrir sfldina fékk Röð
uli 124.000 mörk og hinn
fiskinn um 12.000, og hefur
því alls fengið xun 136 þús-
und mörk. Það mun vera 1.2
millj. ísl. króna.
„Feitur" tékki.
Hann var upp á
$334.867.807.60.
Búið er að ganga frá kaupm
Fordfélagsins bandaríska á
Wutabréfum Brezka Fordfé-
lagsins og greiða fyrir þau.
Var það gert með tékka á
Englandsbanka að upphæð
334 milljónir 867 þús. og 806
dollarar og 60 cent. — Fyrir
kaupin átti Fordfélagið banda-
ríska 55% hluta í félaginu.
Hluthafar á Bretlandi, sem nú
eru að fá greiðslu fyrir hluta-
bréf sín, eru um 20.000. Banda-
ríska Fordfélagið á nú 90%
hlutabréfa, því að 10 af hundr-
aði brezkra hluthafa neituðu að
selja.
Þetta er könnuður VIII, eitt af þeim gervitunglum sem Banda-
ríkjamenn hafa skotið á Ioft til geimrannsókna. Þetta er sjálft
gervitunglið áður en því er komið fyrir á cldflauginni sem
flutti það. Verið er að framkvæma sérstakar athuganir á því
hve mikinn hristing gervitunglið þolir án þess að tæki þau sem
það hefur að geyma gangi úr skorðum. Þessar tilraunir fóru
fram í Alabama, áður en „tunglið“ var sent til Cape Canaveral,
þaðan sem því var skoitð 3.'nóvember s.l. Þygnd þess var 40 V2
kg. og var 77.2 sm. á hæð og í þvermál.
Enn óvíst, hvar Santa
Maria leitar hafnar.
Farþegar segja frá vatns- eg matarskömmtuit
I morgun var enn óvíst um
hvar Santa Maria muni Ieita
hafnar.
í Angola, portúgölsku ný-
lendunni, eru herskip viðbúin
og herlið, en að sögn beðið loka-
fyrirskipana frá Lissabon. Þrjú
herskip úr flota Portúgals voru
sögð á leiðinni móti Santa
Eldingu sló niður
í m.s. Selfoss.
V'eöHrofsi um ailt Si -lnmf.
í gær og nótt geisaði ofsa-
veður um suð-vesturland og
komst vindhraðinn sumstaðar
upp í 11—12 vindstig, ásamt
tilheyrandi úrkomu.
í Vestmannaeyjum komst
vindhraðinn upp í 13 vindstig
á Stórhöfða, en í byggð mun
hafa verið aðeins lygnara. Við
höfnina var nóg að gera við að
hyggja að bátum og verja þá
veðri, og höfðu margir við það
ærinn starfa. Um þrjú leytið í
gær laust niður elding við
kaupstaðinn og varð af því
þruma svo mikil að felmstri sló
á flesta.bæjarbúa. Eldingunni
Framh. á 2. síðu
Maria, sem stefndi itl Afríku-
stranda.
í sumum fregnum Var sagt,
að hún kynni að leita hafnar í
Dakar, en ekki í Angola. Ekk-
ert svar hefur borizt við þeim
tilmælum, að láta farþega og
skipverja á land í höfn í Suður-
Ameríku,
Hinsvegar hafa borizt
skeyti frá skipinu — frá far-
þegum komin, að því er
virðist, þess efnis, að þeim
líði vel, en. byrjað hafi verið
á því í gærmorgun, að
skammta drykjkarvata og
mat.
Flugvélar fylgdust með skip-
inu um tíma í gær og stefndi
það þá enn til Afríkustranda.
Brezk og bandarisk herskip
gefa skipinu gætur, en munu
ekki gera tilraun til að stöðva
það. Ætla má, að þau séu við-
Framh. á 8. síðu.
Sjómannasamningar
aftir til sáttasemjara.
Skipstjórar á Suðurnesjum boða
verkfall 1. febrúar.
Þar eð samningsuppkast að
kjarasamningi sjómaiuia var
fellt í Reykjavík, Hafnarfirði,
Akranesi, Eskifirði og Norð-
firði verða samningaviðræður
teknar upp á ný. Deilan er enn
í höndum sáttasemjara og mun
hann að líkindum boða til
fundar á næstimni í morgun
hafði hami ekki kvatt nefnd-
imar saman,
í viðtölum, sem Vísir hefur
haft við bátaaðila kémur það í
ljós að það er aðaflega verð-
flokkun fisksins, en ekki hluta-
skipti sem valda óánægju, enda
þótt samninganefndirnar hafi
ekki fjallað um fiskverðið bein-
línis, en byggja þó á því til
hlutaskipta.
Verkfall er því á ofangreind-
um.stöðum og í Vestmannaeyj-
uni en þar er verkfall land-
verkafólks og tilgangslaust að
róa fyrr en því er lokið.
Þá hefur Skipstjóra- og
stýrimannafélagið í Keflavík
boðað til verkfalls 1. febrúar
hafi ekki tekizt samníngar.
Nær það einnig til skipstjóra og
stýrimanna í Grindavik, Sand-
gerði og Njarðvíkum. Samn-
ingaviðræður milli Farmanna-
og fiskimannasambandsins og
útgerðarmanna hófust 20. jan-
úar og hafa verið haldnir tveir
fundir án þess að samkomulag
hafi náðzt.
Herlög í
E1 Salvador.
HerlÖg eru nú í gildi í El
Salvador.
Samkvæmt óstaðfestum frétt
um er enn barist þar. Sagt er,
að um 20 menn hafi fallið, er
bylting þessi var gerð og
hús hafi verið skotin í
rúst og eldar logi í borginni.
Rétt mun, að stjórn Castillos
hafi verið steypt; en að minnsta
kosti vafasamt, að uppreistar-
menn hafi náð algerum yfirráð-
um.
Aðvörun Hannmarskjölds:
Borgarastyrjöld í Kongó
ef flyiga yrði burt utté
yœstutið S-þjjm
Dag Hammarskjöld hefur nú
lagt fram skýrslu, sem leiðir í
ljós hættuna af fækkun í gæzlu-
liði Sameinuðu þjóðanna í
Kongó, sem rætt var um í blað-
inu í gær.
í skýrslunni segir, að ef Mar-
okkó, Arabiska sambandslýð-
veldið, Guinea og Indonesia
kalli heim alla hermenn sína,
verði aðeins 13.000 eftir af
20.000. Afleiðing fækkunarinnar
gæti orðið heimköllun alls
gæzluliðsins og að Sameinuðu
þjóðirnar yrðu að hætta allri
starfsemi sinni í Kongó. Af því
leiddi sennilega borgarastyrjöld
Moröalda gengnr ylir Bretland
W'immiíu Mrtorð framin þar frá þm 4 desemberbyrgiini.
Yfir 50 morð hafa verið fram
in á Bretlandi frá því í byrjun
desember.
Veldúr þetta áhyggjum og
fyrirspumir bomar frain á
þingi. Sumir vilja innleiða eldri
ákvæði um líflátshegningu á
ný. — Stefna stjómarinnar
virðlst hinsvegar að efla lög-
regluna sem mest og bæta. kjör
lögreglumanna. Lögreglan er
allt of fámenn eins og er, en
vegna mjög bættra launakjara
mun verða um mikla fjölgun að
ræða í henni innan tíðar, eða
þegar lokið er þjálfun nýliða.
Bent er á, að þótt segja má,
að morðalda hafi verið á Bret-
landi á undangegnum vikum,
hafi heildartala morða miðað
við lengri tíma haldist nókkurn
veginn óbreytt.
og að ættflokkar ýmsir berðust
sín í milli.
í skýrslunni er ekkert vikið
að því, að D. H. hafi þreifað
fyrir sér um lið hjá öðrum þjóð-
um til að fylla í skörðin, né
heldur um undirtektir við því,
að lönd, sem ekki hafa heimt-
að hermenn sína heim, sendi lið
til viðbótar. Skýringin gæti ver
ið daufar undir.tektir.
HungursneyÖin —
hið versta að baki.
Hið versta er nú talið að bakí
þar sem hungursneyðin geisar.
Þegar verst var urðu um 300
manns hungurmorða daglega,
nú 40—50. Það kemur nú varla
fyrir, að menn hnigi niður á
víðavangi af matarskorti og
verði að liggja þar og bíða dauð
ans. Börn, sem njóta ,hjálpar
eru farin að fitna og braggast.
Fréttamenn segja, að hér hafi
þó verið unnið og sé verið að
vinna hlutverk, sem ágreining-
ur í New York hafi torveldað,
Framh. á 2. siðu.