Vísir - 27.01.1961, Side 12

Vísir - 27.01.1961, Side 12
 Xkkert blað er ódýrara í óskrift en Vísir. j Látið hann færa yður fréttir og annað tcstrarefni hcim — án fyrirhafnar af Sími 1-16-60. Föstudaginn 27. janúar 1961 Munið, að þeir, sem gerast óskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðíð ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Danir eru mjög hreyknir af sigrum sínum á sjó endur fyrir löngu, og til minningar um það geyma þeir freigátuna Jótland. Nú er verið að endurbæta hana á alla lund og meðal annars verður að skipta um mörg bönd í skipinu, svo að viðgerð mun taka 4—5 ár, en að henni lokinni verður skipið gert að safni. Myndin sýnir skipasmiði vinna við byrðing freigátunnar. Ný lyfjabúð verður stofnuð Laugarneshverfi. í Ný lyfjabúð verður stofnuð í Reykjavík innan tíðar, og verður hún staðsett í Laugar- neshverfi. Það var Lyfjafræðingafélag íslands, sem óskaði eftir því sl. vor, að lyfjabúðum yrði fjölgað í bænum um eina eða fleii’i. Macmiilan ræðir við De Gauile. Macmillan er væntanlegur til Parísar í dag og hefur við- ræður við De Gaulle á morgun. Þetta er opinber heimsókn frá á morgun að telja og er kona Macmillans með honum. Þeir Macmillan og De Gaulle munu ræða sameiginleg áhuga- mál, tengsl Bretlands og sam- markaðslandanna, sambúð aust urs og vesturs, samstarfið við Bandaríkin eftir forsetaskiptin — og horfur á vettvaiigi al- Íýóðamála. * Bæjarráð fól borgarlækni að athuga, hvort nægar ástæður væru fyrir hendi til að lyfja- búðir risu 1 Laugarnes-, Há- logalands- og Vogahverfum. Reyndust íbúar Laugai’neshverf is vera 6200 og yrðu áður langt liði 7200. í Hálogalandshverfi væru um 1900 íbúar, yrðu um 3000. Vogahverfi væri nær full- byggt með um 3800 íbúa. Mælti borgarlæknir með lyfjabúð fyr- ir Laugarneshverfi og skoraði bæjarráð á heilbrigðismála- stjórnina að leyfa lyfjabúð þar. Hefur það nú verið gert, enda þótt Lyfsalafélag íslands færi fram á, að það yrði ekki gert, fyrr en komin væri fram reglu- gerð um fjölgun og staðsetningu lyfjabúða, er væri í vændum. Hin nýja lyfjabúð Laugarnes- hverfis verður væntanlega stað- sett annaðhvort á óbyggðu svæði vestan Hofteigs ogLauga- teigs, eða á horni Kirkjuteigs 21. Ekkert tjon í höfninni. í gær gerði austan storm og komst vindhraðinn í 12 stig þegar Iivassast var hér í Rvk. Bátaeigendur og hafnsögumenn höfðu nokkurn viðbúnað í höfn- inni. Voru færðir til bátar, sem lágu þar sem vænta mátti mik- illar hreyfingar en aðrir voru enn betur búndnir. Hafnsögumenn sögðu í morg- un að ekkert hefði orðið að bát- unum í höfninni. Veðrið var verst í gær, en í nótt tók vindur að snúast til suðurs og er þá skjól í höfninni. í svona áhlaupi er trillum alltaf hætta búin, en snemma í vetur lét hafnarstjóri fjarlægja þær úr höfninni Miklu tóbaki stoliö í nótt. Mjög miklu af allskonar tó- baksvörum var stolið úr Sel- árbúðinni á Selási við innbrot í nótt. Þar hafði þjófurinn haft á brott með sér rúmlega 70 dós- um og pökkum af ýmiskonar reykt.baki, álíka mörgum vindlapökkum, þ.e. 10 vindla ýmsum tegundum og loks um 50 pakkalengjum af vindlingum, samtals 6 tegund- um. Brotizt var ennfremur inn í tvö önnur fyrirtæki í nótt, þ.e. Verzlunina Alfabrekku og hjá Pétri Snælands og loks var bifreið stolið hér í bænum, grænni Skodabifreið, R-6856. Nokkru fyrir hádegið hafði lögreglan fréttir af bifreiðinni þar sem hún væri á ferð í bæn- um og að í bílnum myndu vera einhverjir piltar. Gerði lög- reglan þá út leiðangur að leita hennar, en ekki veit blaðið frekar um árangur leitarinnar. Ræningjar drepa 11 Það gerðist í nágrenni Djak- arta nú fyrir skemmstuð að vopnaðir ræningjar réðust á- langferðabíl. Þeir drápu 11 af farþegun- um, en 3 komust lífs af, illa haldnir. Þegar ræningjalýður- inn hafði lokið hryðjuverki Bandarísku flugmennimir svara ekki fyrirspumum. Fara í sjúkrahús til læknisskoðunar. Bandarísku flugniennirnir tveir, sem sleppt var úr haldi í Sovétríkjunum, og fengu heim- fararleyfi, voru í Goose Bay á Labrador í nótt, og halda áfram ferð sinni til Washington í dag, ef veður leyfir, og tekur Ken- nedy forseti sjálfur á móti þeim. Fannfergi var í Washington í g'ær og ekki lendandi á flug- vellinum þar af þeim sökum. í fréttum í morgun segir, að flugmennirnir fari í sjúkrahús eftir að Kennedy hefur veitt þcim móttöku, til heilsufarslegt eftirlits, og einnig var sagt, að þeir myndu ekki koma á fund með fréttamönnum til þess að svara fyrirspurnum þeirra, Það er efni margra brezkra blaða í morgun í ritstjórnar- greinum, að Krúsév fyrirskip- aði, að flugmönnunum skyldi sleppt úr haldi. Guardian seg- ir, að með því hafi hann stuðl- að að því, að Kennedy gæti „byrjað vel“ og telur blaðið, að þetta skref sýni, að Krúsév vilji bætta sambúð, og óbyggilegt, ef vestrænu þjóðirnar kæmu ekki til móts við Rússa. — Sama kemur fram í fleiri blöð- um. Þó heyrast raddir um, að því megi ekki gleyma, að kofnmúnistar hafi oft átt til að grípa til óréttmætra aðgerða og ætlist svo til þakklætis, ef þeir gera einhverja úrbót, — og það hafi verið svívirðilegt afhæfi, að skjóta niður BB-47 flugvél- ina, eftir að reynt hafði verið að lokka hana iim yfir rúss- neskt yfrráðasvæði. í fréttaaúka í Móskvu í gær- kvöldi var mikið rætt um þann vináttuvott af hálfu Rússa, að veita flugmönnunum frelsi, og farið lofsamlegum orðum um Kennedy, og lögð áherzla á, að hann hefði sagt, að hrundið hefði verið af vegi alvarlegri hindrun fyrir bættri bandarísk- sovézkri vináttu, og að hann hefði fyrirskipað að hefja ekki U-2 flug á ný. Veður hamlar öllu flugi. Tvær itifHilandavelar tef jast, og allt innan- lactdsflug lá enn niðri í morgun. Veðurhamurinn undanfarinn sclarhring hefur haft sín áhrif á flugið, bæði innanlands og ut- an. Lítið sera ekkert hefur ver- ið flogið innanlands, og tvær af millilandavéluni flugfélaganna hafa ekki getað haldið áætlun vegna veðurs. í gær var einungis flogið til Akureyrar, allra staða sem þá voru á áætlun. Sú vél tepptist þó, er norður var komið og var þa.r enn, er blaðið átti í morgun tal við Flugfélag íslands. Þá var enn ófært til allra! staða innanlands, en þó var beð- ið eftir frekari fregnum utan af landi. Millilandavél félagsins, sem koma átti í gærkveldi, teppt ist í Glasgow í nótt, og var vænt anleg hingað laust fyrir hádegi í dag. Er blaðið átti tal við Loftleið- ir í morgun, hafði ein af vélum þess tafizt erlendis, þ. e. vélin sem í gærkveldi átti að koma frá Hamborg, Kaupmannahöfn, sínu á farþegunum, báru þeir eld að bifreiðinni. Gautaborg og Stavanger. Sú vél var væntanleg um hádegið. Aft- ur á móti var gert ráð fyrir að vél sem væntanleg er í kvöld, geti haldið áætlun. Nýtt blað. Nýtt blað hefur göngu sína hér í bæ næstkomandi laugar- dag. Á það að fjalla um þjóðmál og ýms mál, sem á döfinni er, og nefnist „Kvöldblaðið“. — Blaðið verður 8 bls., fjögurra dálka, og á að kosta 4 kr. —■ Ritstjóri er Sigurður I. Ólafs- son. Fréttin í Ogottyok Sovétstjórnin hefur nú svar- aði fyrirspum Bandaríkjastjóm- ar um flugmennina 11 (sbr. frétt í Vísi í gær). Segir hún það, sem gefið var í skyn í tímaritinu Ogonyok, að flugmennirnir 11 væru enn á lífi, á misskilningi byggt. Mínnkandi áfengisneyzla íslendinga. 10% minni neyzla s.L ár en 1959. Áfengi var selt fyrir um 12 milijónum króna meira á árinu 1960 en árið áður. Þessi aukning á innkomnu fé fýrir áfengi gefur ekki upplýs- ingar um magnið, því að verð á minnkað lím 10% I áfengi hækkaði allmikið, eða I næsta ár á undan. um 15%—20% á árinu. Áfengisneyzlan varð 1.71 lítri miðað við 100 % alkóhóllítra á mann, en var 1,90 litri árið 1959. Áfengisneyzlan hefur því miðað við Síðasta ársfjórðunginn 1960 varð heildarsala áfengis tölu- vert minni 1960 en 1959, jafnvel þótt miðað sé við fjár- upphæð, því að 1959 var áfengi selt fyrir rúmL 54 millj. króna, en fyrir 50.5 millj. 1960 á síð- asta ársfjórðungi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.