Vísir - 08.02.1961, Blaðsíða 12
Kkkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
iMtrarefni heim — ón fyrirhafnar af
Sími 1-16-60.
WÍSXR.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísís eftir 10. hvers mánaðar, fi blaSið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Miðvikudaginn 8. febrúar 1961
Doktor við enskan
háskóla.
í byrjun vikunnar varð
Ciunnar G. Sohram lögfræðing-
ur doktor í lögum frá Cam-
bridge-liáskóla.
Gunnar hefir unnið að rit-
•gerð þessari um nokkur undan-
f arin ár, meðan hann hefir:
lagt stund á framhaldsnám
þjóðarétti. Mu.n ritgerðin fjalla
um fiskveiðar og fiskrækt á
landgrunninu, en til athugana
sinna fékk Gunnar m.a. styrk
frá British Council og Nato. —
Svo sem getið hefir verið, hefir
Gunnar verið ráðinn ritstjóri
við Vísi og mun taka til starfa
við blaðið á næstunni.
Fer stúdent héðan
til
/ '/y/ '
■ •
Á næstunni munu 6 Evrópu-
stúdentar fara til Chile í Suð-
ur-Ameríku til þess að taka
þar þátt í endurbyggingu skóla
isem hrundi til grunna í jarð-
skjálftimiun á sl. ári. Til greina
kemur að einn íslenzkur stúd-
ent verði meðal þátttakenda.
Það er fyrir milligöngu sam-
taka stúdenta í Evrópu, Cosec,
að þessi ferð verður farin, og
verða stúdentarnir 6 valdir úr
hóþi umsækjenda í hinum
ýmsu Evrópulöndum. Eins og
áður segir eru þó líkur fyrir því
að einn þeirra verði frá Há-
skóla íslands.
Vantraust á
M.M. fellt.
„Ein sit ég úti á steini . . .“ virðist verh einna bezti textinn með
þessari mynd. Áhugaljósmyndari var á ferð á Skúlagötu og sá
'þessa stúlku, sem sat og horfð dreymum augum út á sundin
blá. Framhald sögupnar kunnum við ekki . . .*
Fundi öryggisráðs um
Kongó frestað.
Enn reynt að finna leið út úr vandanum.
í
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-^að afvopna herinn. Mundi
anna frestaði í gærkvöldi fundi nær öll framleiðsla
sínum um Kongó og hefur ekki fara í kalda kol.
verið ákveðið enn hvenær næsti
fundur verður haldinn, en
þangað til verður unnið að því,
að finna leið út úr vandanum.
Það voru fyrrverandi frönsk
lönd í Afríku, nú sjálfstæð,
sem sérstaklega fóru fram á,
að fundinum væri frestað, svo
að þau gæti samræmt aðgerðir
sínar til þess að vinna að frið-
samlegri lausn deilunnar. Jafn.
framt er sagt á vettvangi S. þj.,
að fresturinn hafi verið ákveð-
inn til þess að Bandarikjastjórn
in ný|ja gæti kynnt sér allt
málið betur og lokið viðræðum
sínum við fulltrúa annarra
ríkja.
Fulltrúar ýmissa þjóða, sem
ekki eiga sæti í ráðinu, fengu
tækifæri til að láta álit sitt í
ljós. Ýmsir vilja leggja áherzlu
á, að mynduð verði stjórn fyr-
ir allt landið, og sé nauðsynleg-
ur forleikur að því, að Lum-
umba verði sleppt úr haldi.
Færri árekstrar
en s. I. 3 ár.
Bifreiðaárekstrar liafa orðið
færri í Reykjavík í sl. janúar-
j mánuði heldur en verið hefir
í þeim mánuði undanfarin ár.
Frá því í janúarbyrjun sl. og
fx-am til 1. febrúar höfðu 140
árekstrar verið bókaðir hjá um-
ferðardeild rannsóknarlögregl-
unnar í Reykjavík. Það er 27
árekstrum færra heldur en í
sama mánuði í fyrra, 4 á-
rekstrum færra heldur en í
janúar 1959 og 30 árekstrum
færra heldur en í janúarmán-
uði 1958.
Á öllu árinu í fyrra nam á-
rekstrafjöldinn um 1900 í
Reykjavík, eða nær 160 árekstr-
ar á mánuði til jafnaðar. Á því
sést, að ái'ekstrafjöldinnj í sl.
mánuði er fyrir neðan meðal-
tal, og sér í lagi þó þegar mið-
að er við árstíma, því að oftast
er meira um árekstra í janúar
þá heldur en t. d. sumarmánuðina,
Kongó sem orsakast af verra skyggni
og færð.
Mobutu dregur
saman lið.
Mobuto hershöfðingi er sagð-
ur draga saman lið ofarlega við
Kongó og óttast menn, að brátt
muni lið hans og lið Lumumba-
manna í Kivu berjast.
Dayal.
Oi'ðrómur er á kreiki í Leo-
poldville, að Dayal hinn ind-
verski, staðgengill D. H. í Leo-
poldville, muni láta af störfum,
en ekkert fai’arsnið er á honum,
og kunnugt er, að öllum kröf-
um Kassavúbú varðandi slík
mannaskipti hafa engan hljóm-
grunn fengið hjá Sameinuðu
þjóðunum.
Vantraust krata á brezku
stjórnina var fellt.
Umræðunni um efnahags-
nxálin í neðri málstofu brezka
þingsins Iauk í gærkvöldi
nieð atkvæðagreiðslu um
vantrauststillögu krata, sem
var felld með 89 atkvæða'Borgarastyrjöld.
mun (317 : 228). Um tillögur Dags Hammar-
Gagnrýni krata var all- skjölds varðandi Kongóliðin er
hörð og stjórnin játaði að ekki annað nýtt að segja en
þjóðarátak þyrfti til að auka' það, að tveir Kongóleiðtogar
útflutninginn. ' hafa lýst yfir, að afleiðingin
NB. Vonandi hefur enginn' yrði borgarastyrjöld, ef tillög-
ætlað vegna fyrirsagn-j ur D. H. væru samþykktar. —
arinnar, að Marilyn Mobuto lagðist eindregið gegn
Monroe væri við frétt-| þeim og Tsjombe segist skera
ina riðin. | upp herör um allt Katanga, eigi
Nítján bandarískir gervi-
hnettir á sporbrautum
- 17 kringunt jörðu og 2 kringum sól.
Síðan Bandaríkjamenn skutu
gervihnettinum Samos II.
(Geimnjósnaranum) á loft upp
í vikunni hafa þeir 17 gervi-
hnetti á sporbraut kringum
jörðu og
sólu.
Á þremur árum og missex-i
betur hafa Bandai'íkjamenn
skotið 34 gervihnöttum á braut
kringum jörðu, en Sovétríkin á
sama tíma 9 og hæft tunglið
2 á braut kringum með einum. Tveir sovezkir
| gervihnettir eru á braut kring-
Frá 10 gervihnöttum berast um jörðu en frá hvorugum
BÚ. upplýsingar til jarðar. I berst nú skeyti til jarðar.
Árásarmaður
í varðhaldi.
Árásarmaðuriinn, sem Vísiri
skýrði frá i gær að hafi ráðist
á vegfaranda á Hverfisgötunni
með byssusting fyrir nokkrum
dögum, hefur verið handtekinn.
Fyrir rétti kvað árásarmað-
urinn það satt vera að hann
hafi otað byssustingnum að
manninum, en ekki lagt til
hans fyi'r en sá ætlaði að hrifsa
af honum vopnið.. Enn fremur
kvaðst hann hafa greitt honum
höfuðhögg.
Árásai'maðurinn hefur verið
úrskurðaður í gæzluvarðhald
og til geðheilbi'igðirannsóknar.
Air France flutti 3,189,000
farþega á sl.. ári og þykir
það rnikið, þar sem verkföll
stöðvuðu vélar félagsins
nokkrum sinnum.
Þrír menn í stjóm verk-
smiðju í Leningrad voru ný-
lega sviftir störfum og rekn
ir úr kommúnistaflokknum
fyrir skýrslufalsanir. Fjór-
ir aðrir fengu áminningu.
Guömundur i.
óferjandi.
Frá fréttaritara Vísis.
Vestm.eyjum í morgun.
Guðmundur J. var hér í
Eyjum að stappa stálinu í
verkfallsmenn og útlista
fyrir þeim ávinning af verk-
föllum. Þegar Esja kom að
austan s.l. sunnudag mun
honum liafa fundist verk-
fallsmenn orðnir traustir í
trúnni og freistaði þess að
komast um borð. Aflýsti
hann þá samúðarverkfalli
vélstjóra og hugðist fá sig
fluttan um borð í Esju, sem
beið fyrir utan með farþega
sem ætluðu til Eyja en
fengu ekk að fara í land. ISn
þegar til kom reyndust vin-
sældir verkfallspostulans
ekki meiri en svo að hann
var talinn óferjandi og
fékkst enginn til að flytja
hann um borð. Komst hann
suður með flugvél í fyrra-
dag.
0k strætisvagni
drukkinn.
í gær var kært yfir því til
lögreglunnar að ölvaður maður
hefði farið inn í strætisvagn,
sezt við stýri hans og ekið af
stað.
Ekki olli ökumaður neinu
slysi með þessu tiltæki sínu,
enda náðist hann fljótt og var
afhentur lögreglunni.
í gærkveldi eða nóít var
annar ölvaður ókuþór hand-
tekinn við stýri bifreiðar og
reyndist sá ekki hafa réttindi
til aksturs.
Eldsvoði á tvehn
stöium í gær.
I gærkvöldi urðu talsverðar
brunaskemmdir á tveimur í-
búðarhúsum hér í bænum.
Um sjöleytið í gærkvöldi
varð elds vart á efri hæð húss-
ins Lindargötu 26. Þar hafði
kviknað út frá ljósastæði í í-
búð, en eldurinn siðan læst sig
milli þilja í loftinu, Slökkvilið-
ið var kvatt á vettvang og varð
það að rífa talsvert úr loftinu
til að komast að eldinum. Úr
því tókst fljótlega að kæfa
hann, en skemmdir urðu all-
nokkrar.
Um tíuleytið var slökkviliðið
aftur kvatt á vettvang og í það
skipti að litlum íbúðarskúr á
Sogavegi 190. í skúrnum bjó
ein kona og varð hún fyrir til-
finnanlegu tjóni því skúrinn
sviðnaði allur að innan og mik-
ið mun hafa skemmst eða eyði-
lagst af því sem í skúrnum var.
í fyrradag kviknaði í gas-
hylki, sem var í sambandi við
logsuðutæki [ verkstæði á
Karlagötu 15. Maður sem var í
verkstæðinu bar logandi hylkið
út úr húsinu og þar var slökkt
í því.
Fjárhagsáætlun.
Við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unar Akureyrar á bæjarstjórn
arfundi s.l. þriðjudag voru út-
svörin lækkuð um 1 milljón
kr. frá því sem gert var ráð
fyrir á áætluninni.
Var samþykkt á fundinum
að tekin skyldi 1 millj. króna
lán til framkvæmda, sem áður
hafði verið áætlað að fá með
hækkuðum útsvörum. Útsvörin
lækka því sem þessari upphæð
nemur og verður samanlögð
tæplega 21 millj. krónur.
Janúar var
sólríkur.
í framhaldi af frétt í Vísi
nýlega um veðurfar í janúar
er þess að geta, að sólskins-
stundirnar í mánuðinum
voru 39 eða helmíngi fleiri,
en meðallagið er, en það er
18,5.
Munaði hér mesí um tvo
seinustu daga mánaðarins,
því að bá var sól og heið-
ríkja báða dagana og sól-
skinsstundir samtals 10.
Kona slasasl.
Síðdegis í gær slasaðist kven-
maður, Jóhanna Jónsdóttir að
nafni og er talið að hún liafi
fótbrotnað.
Jóhanna var á gangi fyrir
utan Skógagerði 2 en datt niður
í skurð sem er rétt hjá húsinu,
og slasaðist. Sjúkraliðar sem
fluttu Jóhannu í slysavárðstof-
una töldu að hún hefði fót-
brotnað.