Vísir - 11.03.1961, Síða 2
2
VlSIR
Laugardaginn 11. marz 1961
Sœjatfféttif 1
ÍJtvarpið í dag:
. 8.00 Morgunútvarp. — 12.00
, Hádegisútvarp. 12.50 Óska-
, lög sjúklinga (Bryndís Sig-
urjónsdóttir). 14.00 Lagður
hornsteinn að hinni nýju
búnaðarbyggingu í Reykja-
, vík. 14.30 Laugardagslögin.
(15.00 Fréttir). 15.20 Skák-
þáttur (Baldur Möller). —
16.05 Bridgeþáttur (Hallur
Símonarson). 16.30 Dans-
, kennsla (Heiðar Ástvalds-
son danskennari). 17.00 Lög
unga fólksins (Jakob Möll-
er). 18.00 Útvarpssaga barn-
anna: „Skemmtilegur dag-
ur“ eftir Evi Bögenæs; III.
(Sigurður Gunnarsson kenn-
ari), 18.25 Veðurfr. 18.30
Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson). —
20.00 „Kvöld í Vínarborg11:
Robert Stolz og hljómsveit
hans leika létt lög. — 20.30
Leikrit: „Vöf“ eftir Guð-
mund Kamban. Leikstjóri:
Baldvin Halldórsson. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. —
22.10 Passíusálmur (35). —
22.20 Úr skemmtanalífinu
(Jónas Jónasson). — 22.55
Danslög — til 24.00.
Útvarpið á morgun:
8.30 Fjörleg músik að morgni
dags. 9.00 Fréttir. 9.10 Veð-
urfr. 9.20 Vikan framundan.
9.35 Morguntónleikar. 11.00
Messa í Hallgrímskirkju
(Séra Stefán Lárusson á
Núpi prédikar; séra Jakob
Jónsson þjónar fyrir altari.
Organleikari: Páll Halldórs-
son). 12.15 Hádegisútvarp.
13.00 Erindi um heimspeki-
leg efni; IV. Fegui’ð (Brynj-
ólfur Bjarnason fyrrum
menntamálaráðherra). 14.00
Miðdegistónleikar. — 15.30
Kaffitíminn: Carl Bi ’ich og
félagar hans leika. — 16.00
Veðurfr. Endurtekið ieikrit:
Tobías og engillinn eftir
James Bridie (Áður útv. í
febr. 1958). 17.30 Barnatími
(Skeggi Ásbjarnar?'-1 kenn-
ari); a) Guðjón Ingi Jigurðs-
KROSSGATA NR. 4358:
Skýringar.
Lárétt: 1 er um, 7 játning, 8
forfeðurna, 10 neðansjávar, 11
bitjárn, 14 læsingar, 17 ending,
18 ílát, 20 svarar.
Lóðrétt: 1 hæðirnar, 2 fanga-
mark þjóðsagnasafnara, 3 sjór,
4 á rúmi, 5 flanar, 6 ...eindir,
9 rönd, 12 stafur, 13 nafn, 15
flan, 16 haf, 19 ósamstæðir.
Lausn á krossgátu nr. 4357:
LárétP. 1 laugina, 7 ek, 8
stoð, 10, Ara, 11 dúll, 14 illar,
1*7 nf, 18 Kára, 20>bakar.
Lóðrétt: 1j lending; 2 ak, 3
g§, 4 íta, 5' nom, 6. aðaj ft ulk 12
úií, 13 l9Íía, 15 rák, 16 far, 19
Ka.
son les sögu: Litli lögreglu-
þjónninn. b) Svala Hannes-
dóttir les sögu, Keli ræfill-
inn, eftir Halldóru B. Björns-
son. c) Ólöf Jónsdóttir les
ævintýri í þýðingu séra Frið-
riks Hallgrímssonar. 18.25
Veðúrfr. 18.30 Þetta vil eg
heyra: Ragnar Björnsson
velur hljómplötur. — 19.30
Fréttir og íþróttaspjall. 20.00
Erindi: Mesti falskristur til
vorra daga; annar hluti (Ás-
mundur Eiriksson). — 20.30
Hljómsveit Ríkisútvarpsins
leikur tvö verk, Forleik op.
9 og Ömmu sögur eftir Sig-
urð Þórðarson. Stjórnandi:
Hans-Joachim Wunderlich.
20.50 Spurt og spjallað í út-
varpssal. Þátttakendur:
Gunnar Guðjónsson skipa-
miðlari, Jón Árnason fyrrum
bankastjóri, Magni Guð-
mundsson hagfræðingur og
Pétur Benediktsson banka-
stjóri. Sigurður Magnússon
fulltrúi stjórnar umræðum.
22.00 Fréttir og veðurfregn-
ir. 22.05 Danslög valin og
kynnt af Heiðari Ástvalds-
syni — til 23.30.
Messur á morgun.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.
Séra Óskar J. Þorláksson.
Messa kl. 5. Séra Jón Auð-
uns. — Barnasamkoma í
Tjarnarbíó kl. 11. Séra Jón
Auðuns.
Frikirkjan: Messa kl. 2.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Neskirkja: Barnamessa kl.
10.30. Messa kl. 2. Séra Jón
Thorarensen.
Langholtsprestakall:
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Sólheima kl.
10.30. Messa á sama stað kl.
2. Séra Árelíus Níelsson.
Kirkja Óháða safnaðarins:
Messa kl. 2. Séra Björn
Magnússon.
Elliheimilið: Guðsþjónusta
kl. 2. Séra Jón Skagan. —
Heimilispresturinn.
Laugarneskirkja: Messa
kl. 2 e. h. Séra Bjarni Jóns-
son vígslubiskup. (Upphaf
æskulýðsviku KFUM og K,
en jafnframt dagur aldraða
fólksins af hálfu Kvenfélags
Laugarnessóknar). Barna-
guðsþjónusta kl. 10.15 f. h.
Séra Garðar Svavarsson.
. Háteigsprestakall: Messa í
hátíðarsal Sjómannaskólans
kl. 2. — Barnasamkoma kl.
10.30 f. h. Séra Jón Þorvarðs-
son.
Bústaðasókn: Messa í Háa-
gerðisskóla kl. 2. Séra Sig-
urður Pálsson messar. —
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
sama stað. — Séra Gunnar
Árnason.
Hallgrímskirkja: Barna-
guðsþjónusta kl. 10. Messa
kl. 11. Séra Stefán Lárusson
prédikar. Séra Jakob Jónsson
þjónar fyrir altari. Messa kl.
2. Séra Sigurjón Þ. Árnason.
Kaþólska kirkjan: Lág-
messa kl. 8.30 árd. Hámessa
og prédikun kl. 10 árd.
Háf narf jax»ðarkirkj a:
Messa kl. 2. Séra Garðar
Þorsteinsson.
Áheit á- Strandarkirkju,
afh. Vísi 9. þ. m.; 200 kr. frá
Ásu, 30 ffá N: N. 100 frá-B.
í.
1 Strandarkirkja; Afhent Vísi
1 2000 kr. frá X.
Ekknasjóður íslands
hefur hinn árlega merkja-
söludag sinn á morgun og
vísast til þess, sem um sjóð-
inn og merkjasöluna er sagt
á öðrum stað hér í blaðinu í
dag. — Börn, sem selja mei-ki
komi í Sjálfstæðishúsið kl. 9
í fyrramálið til að taka við
merkjum. Þau eru afhent í
litla salnum. Börnin athugi,
að klæða sig vel.
Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðarins í Rvk.
minnist 55 ára afmælisins
þriðjudaginn 14. marz með
borðhaldi kl. 7 í Tjarnar-
kaffi, niðri. Konur mega
taka með sér gesti. — Allar
nánari upplýsingar í símum
12032, 14233, 12423 og
14125.
Loftleiðir.
Laugardag 11. marz er
Snorri Sturluson væntanleg-
ur frá Kaupmannahöfn, Oslo
og Helsingfors kl. 21.30. Fer
til New York kl. 23.00.
Jöklar:
Langjökull fór frá New York
i gær áleiðis til Reykjavíkur.
Vatnajökull er í Amsterdam.
Eimskipafélag íslands:
Brúarfoss fór frá New York
3. þ. m. til Reykjavíkur. —j
Dettifoss fór frá Reykjavík1
6. þ. m. til New York. Fjall-j
foss kom til New York í gær,
fer þaðan um 13. þ. m. til j
Reykjavíkur. Goðafoss fór
frá Immingham í gær til.
Hamborgar og Helsingborg,
Helsingfors, Ventspils og
Gdynia. Gullfoss fór frá
Leith í gær til Thorshavn og
Reykjavíkur. Lagarfoss fór
frá Hafnarfii'ði í morgun til
Aki'aness og þaðan til Ham-
borgar, Antwerpen og Gauta-1
borgar. Reykjafoss kom til
Reykjavíkur í fyrrad. frá
Rotterdam. Selfoss fer vænt-
anlega frá Hull í dag til
Reykjavíkur. Tröllafoss fór
frá Reykjavík 1. þ. m. til
New York. Tungufoss er í
Reykjavík.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík síðd.
í dag vestur um land í hring:
ferð„ Esja er á Austfjöi’ðum
á norðurleið. Herjólfur fer
frá Vestmannaeyjum kl. 22 í
kvöld til Reykjavíkur. Þyrill
er væntanlegur til Reykja-
víkur í kvöld frá Norður-
landshöfnum. Skjaldbreið er
á Vestfjörðum á suðurleið.
Herðubreið er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að vestan
úr hringferð.
Eimskipafél. Rvk. 1
Katla er væntanleg til Kefla
víkur í kvöld. — Askja er á
leið til Ítalíu.
Skipadeild S.f.S.
Hvassafell fór í gær frá Ábo
áleiðis til Odda. Arnarfell
losar á Austfjörðum. Jökul-
fell er í Rotterdam. Dísarfell
losar á Breiðafjarðarhöfnum.
Litlafell átti að fara í gær
frá Reykjavík til Seyðisfjarð-
ar, Vopnafjarðar og Þórs-
hafnar. Helgafell er á Akur-
eyri. Hamrafell kemur til
Batumi í dag frá Reykjavík.
Ljósmyndasýning
— raunar tvær.
f bogasal Þjóðminjasafnsins
hafa fjórir áhugaljósmyndarar-
sýnt myndir sínar, samtals um
50, undanfarna daga. Þeir sem
sýna eru Rafn Hafnfjörð, Guð-
mundur W. Vilhjálmsson, Ottar
Kjartansson og Kristinn Sigur-
jónsson.
Það sem einkennir þessa sýn-
ingu fjórmenninganna strax
við fyrstu sýn er viðleitni
þeirra að gera mikið úr litlu.
Það er og einkenni allrar góðr-
ar sköpunar.
Aðferðirnar, sem þessir fjór-
ir áhugamenn um ljósmynda-
tökur beita til að ná tilætluðum
árangri eru margháttaðar, og
meira að segja svo margháttað-
ar og fjölbreytilegar að þessi
litla sýning verður að skemmti-
legum skáldskap. Það skal að
vísu játað að í ýmsum mynd-
anna skortir það sem kalla
mætti aðal góðra ljósmyndar,
en það er mýkt og millitónar.
Þær orka jafnvel á áhorfand-
ann sem hörð og köld pensil-
strik, sem ekkert eiga sameig-
inlegt með því sem maður er
vanur að skilgreina undir Ijós-
mynd. Þær eru blátt áfram ab-
strakt. En ekki sízt i þessu kem
ur fram hugkvæmni og snilli-
brögð ljósmynarans.Hann beitir
tæknikunnáttu sinni á hinn ó-
trúlegasta hátt, kemur alger-
lega á óvart og Ijósmvndin verð
ur í senn eftirminnileg og frum
leg Þessara síðastnefndu eigin-
leika gætir ekki hvað sízt í
myndum Rafns Hafnfjörðs. Þó
sýna sumar myndir hans að
hann sniðgengur ekki með öllu
mýktina.
Kristinn Sigurjónsson fer að
nokkru inn á áþekkt svið hvað
„kalda“ tækni snertir og Rafn,
en svið hans er víðara og fjöl-
breytilegra. Hjá báðum virðast
myndirnar fremur verða til í
útfærzlu heldur en í mynda-
tökunni sjálfri.
Hjá hinum tveimur, Guð-
mundi og Óttari, er þetta gagn-
stætt. Þeir láta i flestum til-
fellum myndavélina tala frem-
ur en vinnubrögðin í vinnustof
unni og velja oftast einföld og
látlaus viðfangsefni, en gera
það á þann hátt að þau verða
áhrifamikil og sterk. Viðfangs-
efni Guðmundar eru fjölbreyti-
leg og hann hefur óvenjunæmt
auga fyrir einfaldleik, sem all-
ur almenningur gengur fram-
hjá. Óttar er sá þeirra fjórmenn
inganna; sem helzt fylgir hefð-
bundnum háttum í Ijósmynda-
töku, og viðfangsefni hans eru
aðallega tvö, drengir og hús. En
báðum þessum viðfangsefnum.
skilar hann með eftirminnileg-
um ágætum.
Eg á erfitt með að gera upp
á milli þessara fjögurra lista-
manna í ljósmyndagerð, þeir
eru hver öðrum ólíkir og setja
sinn persónulega blæ á verk
sín svo sem vera ber. Eg á líka
erfitt með að taka eina mynd-
ina fram yfir aðra að ágæti, Þó
skal það sagt í fullri hreinskilni
að það er langur vegur frá að
þær snerti mig allar frá sjónar-
Framh. á bls. 6.
Skíðalyfta KR-inga tek-
in i notKtin a morgun.
Hún getur flutt rúml. 200 manns á klst
Á morgun, sunnudag, er dag-
ur þáttaskila í sögu Skíða-
deildar K.R. Þá taka K.R.-ingar
í notkun skíðalyftu sína í
Skálafelli, og er þar með lokið
miklu og óeigingjörnu starfi
deildarmanna í þágu félagsins,
og reyndar allra þeirra sem'j
stunda skíðaíþróttina hér á\
Iandi. Sú lyfta sem hér er um
að ræða, er ný af nálinni, af
sama tagi sem reistar eru nú
víða mn Iönd, og á hún vafa-
laust eftir að verða íþróttinni
góð Iyftistöng hér.
Lyfta K.R.-inganna, er svo-
kölluð T-lyfta, frá Austurríki,
framleidd af fyrirtækinu K
Doppelmeyer & Son, og hefur
það selt um 60 slíkar lyftur af
þessari gerð á s.l. ári. Lyftan
spánnar svæði sem er 500 m.
langt, og hún getur flutt 206
manns á hverri klukkustund.
Eins og henni hefur verið kom-
ið fyrir í Skálafelli, er hæðar-
mismunur um 130 m. og má
segja að þarna fáist því hæfi-
lega löng og brött brekka.
Sérstök vígsluathöfn verður
í Skálafelli, við skíðaskála KR-
inga á morgun eftir hádegi, og
verður ferð upp eftir frá BSR
kl. 1,15. Væntanlega mun Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri vígja
lyftuna.
Gullkom.
Vilji einhver fylgja mér, þá
afneiti hann sjálfum sér, og
taki upp kross sinn og fylgi
mér, því að hver sem vill bjarga
lífi sínu, muni týna því, eti
hver sem týnir lífi sínu min
vegna, hann mun finna það. Því
að hvað mun það stoða mann-
inn, þótt hann eignist allan
heiminn, en fyrirgeri sálu
sinni? Eða hvaða endurgjald
mundi maður gefa fyrir sálu
sína? Því að Mannssoniu-inn
mun koma í dýrð Föður síns
með englum sínum, og þá mun
Hann gjalda sérhverjum eftir
breytni hans. Matt. 16, 24—28.