Vísir - 08.05.1961, Blaðsíða 12
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Látið hann færa yður fréttir og annað
le&trarcfni heim — án fjrirliafnar af
j’ðar hálfu. — Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifenduí
Vísis eftir 10. hvcrs mánaðar, fá blaðið
ókej’pis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Mánudaginn 8. maí 1961
t 'i' Skaya firði:
Tveir bílar eyðileggjast í
næturárekstri.
í þeittt rom ÍU tnantts *mj
tneiflilusi tnttrfjir.
Einkaskeyti til Vísis.
Sauðárkróki í gær.
Um kl. 3,30 í nótt sem leið
•Varð mjög harður árekstur á
Skagfirðingabraut hjá Páfa-
stöðum.
Þarna lentu saman rússnesk-
ur jeppi, K-408, sem var á leið
norður brautina, og sex manna
fólksbifreið K-373. í jeppanum,
sem er nýr og yfirbyggður,
voru níu manns, auk bílstjór-
ans, en í K-373 voru fimm
mánns auk ökumanns.
Dansleikur hafði verið i Mel-
gili hjá Reynistað fyrr um nótt-
iná, og munu unglingarnir í bíl-
unUm hafa viljað framlengja
skfemmtan áína, en dansleikur-
inn hætti klukkan 2 eftir mið-
naétti.
Áreksturínn varð mjög harka
3egur, eins og fyrr segir. Öku-
maður jeppans sá til ferða hins
og vék eins og hægt var, en
iik'umaður fólksbílsins virtist í
méira lagi sjóndapur og „ók“
méð ofsahraða á hægri vegar-
Lrún og lenti beint framan á
jeppanum, sem kastaðist 7 m.
aftur á bak og út fyrir veginn.
Flestir í jeppanum hlutu
uokkur meiðsli, skurð á höfði og
í ándliti, auk minni háttar á-
verka, enginn er þó lífshættu-
le^a meiddur, að því er sjúkra-
húslæknirinn hér teíur, en hann
var’kvaddur á slysstað og gerði
að mönnum þar gn hafði síðan
stöllíu með sér í sjúkrahúsið
vegha höfuðáverka. Engan í
fólksbílnum sakaði, en báðar
bifreiðarnar eru taldar gerónýt
ar.
Ökumaður fólksbílsins virtist
mikið ölvaður, en ekill jeppans
ódrukkinn. Gengust þeir báðir
undir blóðrannsókn.
t Óhætt er að fullyrða, að árekst
ur þessi og slys .stafar eingöngu
af ábýTgðarleysi og vanhæfni
drukkins ökumanns og tilviljun
ein réð þvi, að þarna varð ekki
dauðaslys. Og seint mun eig-
andi og ökumaður jeppans fá
tjón sitt bætt úr hendi unglings
ins, sem í öíæði eyðilagði fyrir
honum rándýrt farartæki, því
að undir .slikum kringumstæð-
um eru tryggingafélögin laus
allra mála. — Á. Þbj.
er
kommúnismi
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisins sagði í gær, að yfirlýs-
ing Castrcs fyrsta maí tun
Kúbu sem „sósíalistískt lýð-
veldi“ sýndi, að stefna hans
væri algerlega kommúniutískt
fyrirkomulag.
Með orðalaginu „sósíalistískt“ |
væri Castro — eins og komm- ,
únistar hvarvetna að leyna því
fyrir fólki, að um kommúnisma
væri að ræða. Talsmaðurinn I
kvað 'auðsætt hvert Castro
hefði sótt fyrirmyndirnar að
fjöldafundum sínum Þeir væru j
'stæling á fjöldafundum Hitlers
I og Mussolini. [
Víkingur með 500
lestir til Akraness.
Netabátar að hætta.
Frá fréttaritara Vísis.
Akranesi í morgun. —
Togarinn Víkingur er vænt-
anlegur hingað kl. 11 f.h. með
fullfermi af karfa af Nýfundna-
landsmiðum. Það sem togarinn
hefur ekki áður komið með
fullfermi er ekki með ná-
kvæmni hægt að segja hvað
hann er með mikinn afla en
talið er að það séu 500 lestir.
Er þetta í annað skipti sem
hinir stóru 1000 lesta togarar
fá fullfermi, en togafinn Maí
frá Hafnarfirði kom með nær
fullfermi um daginn og reynd-
ist það vera hátt á fimmta
hundrað lestir.
Síldveiði var enn ágæt í nótt.
Höfrungur fékk 800 tunnur,
Heimaskagi fékk fullfermi.
Haraldur fékk 250tunnur i einu
kasti en kom inn vegna þess að
talstöð skipsins bilaði. Höfrung-
ur 2. fékk 200 tunnur. Afli bát-
janna var misjafn. Víða er nú
, lóðað á sild og má segja að
Isíldveiðin í heild sé geysimikil
miðað við þann fjölda báta
sem stundar hana og úrtök frá
veiðum hafa varla komið fyrir
að telj.a má.
Þrír Akranesbátár eru hættir
veiðum með þorskanet. Þrír
bátar voru á sjó i gær og fengu
13,5, 14,5, og 7,5 lestir.
Sheppard hylltur
i Washington.
(aeimför kans kestaði 400 tnilljónir dollara,
tunglför mundi kosta 40 milfjarBa.
Alan Sheppard kemur til
Washington í dag og hittir þá í
fyrsta sinn eftir geimferðina
konu sína og börn. — Verða
þau viðstödd komu hans og er
Kennedy sæmir hann heiðurs-
ínerki.
Almenningur í Washington
fær tækifæri til að hylla Shep-
^rd er hann ekur til þinghúss-
Lyggingarinnar.
í frétt frá Canaveralhöfða
segir, að „Project Mercury"
<Merkúr-áætlunin) um að
sehda mann út í geiminn hafi
Ikostað, til þessa dags’ 400 mili.
^ÖcÖIaraý eða $ 2.25 á . hvert
manns barn í Bandaríkjunum
(íbúatala 180 millj.).
Að senda mann í hringferð
um jörðu mundi kosta enn
meira og að senda mannað geim
far til tunglsins mundi, sam-
kvæmt sömu heimildum kosta
40 milljarða dollara eða 225
dollara á hvern mann í Banda-
■ríkjunum.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur.
Munið sumarfagnað félagsins
þriðjudaginn 9. rpaí kl. 8.30
L Borgartúni 7. Mjög góð
skemmtiatriði. ’
Enn gengur Barbara
Moore.
Brezka konan Barbara Moore
er byrjuð enn eina gönguförina,
að þessu sinni frá Key West í
Flórida norður til 'landamæra
Kanada.
Hún ætlar fyrst og fremst að
ganga norður til Boston, 2737
kílómetra, og svo ætlar hún að
halda áfram norður, ef vel ligg-
ur á henni. Hún sagði við blaða
menn við upphaf göngunnar, að æði.
Þingi verzlunar>
manna lokið.
Hör5 átök við stjéraarkjör. Sverrír
Hermannsson endurkjörmtt forma5ur.
3. þingi Landssambands ís-
Ienzkra verzlunarmanna Iauk
í gærkvöldi. Þingið gerð'. álykt-
anir um öll helztu mál og mála-
flokka, sem snerta hagsmuni
skrifstofu- og verzlunarfólks,
og mun þeirra verða getið síðar
í blaðinu.
AHhörð átök urðu á þ'ing-
inu um stjórnarkjör. Formað-
ur Verzlunarmnnafélags Rvík-
ur Guðmundur Garðarsson
gerði tilraun til þess að fá
Sverri Hermannsson formann
landssambandsins frá upphafi
felldan við formannskjör og
nýja menn kjörna £ stjórn, en
þingið liafnaði algjörlega til-
lögum Guðmundar.
Formaður LÍV var endur-
kjörinn Sverrir Hermannsson,
viðskiptafræðingur og eftirtald-
ir fjórir aðalmenn í fram-
kvæmdastjórn; Ásgeir Halls-
son, Björn Þórhallsson, Reynir
Eyjólfsson og Gunnl. J. Briem.
Til vara: Gísli Gíslason,
Björgúlfur Sigurðsson, Sigurð-
ur Guðmundsson og Sigurður
Steinsson.
Þessir 9 framantöldu menn
skipa aðalstjórn LÍV ásamt 2
mönnum úr hverjum lands-
fjórðungi:
Vestfirðingjafj.: Haukur Inga-
son og Þorleifur Grönfeldt.
Norðlendingafj.: Tómas Hall-
grímsson og Sigurður Jóhann-
esson.
Áustfirðingafj.: Sigurjón
Kristjánsson og Björn Eysteins-
son.
Sunnlendingafj.: Kristján
Guðlaugssón og Jón Hallgríms-
son. i
Varastjódn LÍV:
Reykjavík: Ragnar Guð-
hún mundi geta orðið 200 ára,
af því að hún hefði rétt matar-
Sverrir Hermannsson.
muridsson, Hörður Felixson ög
Richard Sigurbaldasön-.
Vestfirðingafj.v’Jenni R. Óla-
son.
Norðlendingafj.: ' Guðm. Ó,
Guðmundsson.
Austfirðingafj.: Sigtryggur
Hreggviðsson.
Sunnlendingafj.: Þórður
Bogason.
Endurskoðendur: Andreas
Bergmann og Eyjólfur Guð-
mundsson.
Til vara: Halldór Friðriksson
og Hannes Þ. Sigurðsson.
Þau tíðindi gerðust á þing-
inu formaður V.R. Guð-
mundur Garðarsson gerði til-
raun til þess að kljúfa samtök-
in og bar hann fram lista um
nýja menn til formennsku og
stjórnarkjörs. Var helzta hjálp-
arhella hans þar Þorsteinn Pét-
ursson. Meðal annars má geta
þess, að Guðmundur Garðars-
son beitti sér mjög fyrir því að
fella Björn Þórhallsson við-
skiptafræðing, sem verið hefir
gjaldkeri stjórnarinnar frá
upphafi fyrir Einar Birni, fram-
sóknarmanni í S.Í.S.
Þetta er eitt af spjöldunum, sem drengirnir báru undan kommúnistagöngunni £ gær. —
Kommúnistarnir tóku spjaldið af þeim með valdi og brutu það, fyrst í tvennt eins og myndirn
sýnir, en síðar þegár spjaldið var enn haft á lofti, þá tóku þeir það aftur með ofbeldi og
tröðkuðu og hoppuðu á því. Var þá engu Iikara en geðbilaðir mcnn væru að verki.