Vísir - 25.05.1961, Blaðsíða 4
.4
Fimmtudaginn 25^y<maí 1$61
VISIR
Það gengi kraftaverki næst,
ef samningar tækjust í Evian
en meðan „reynt er að semja,
er enn von“.
gripið hefir verið til í Evian,
þar sem ræðst er við, og
handan svissnesku landa-
mæranna, þar sem serknska
samninganefndin býr. Beggja
vegna landamæranna er her-
lið búið nýtízku vopnum og
lögregla á verði við marg-
faldar gaddavírsgirðingar,
tálmunum hefir verið komið
fyrir á vegum o. s. frv. Og
fréttir bárust í fyrradag um,
að öfgamenn hefðu í hótvm-
um að sprengja í loft upp
eitt gistihús á dag í Evian,
og fylgdi það fréttunum, að
enginn þyrði að humma slík-
ar hótanir fram af sér, þar
sem menn voru minnugir
þess, að öfgamenn myrtu
borgarstjórann í Evian fyrir
rúmum 7 vikum.
En það fór ekki svo, eins
og flestir vonuðu, að skæru-
liðar í Alsír héldu að sér
höndum meðan reynt væri
að semja í Evian, því að
franska stjórnin í Alsír birti
yfirlýsingu, sem hafði gagn-
stæð áhrif við það sem til
var ætlast, og vakti grun-
semdir og gremju uppreist-
armanna. Hún lýsti yfir
vopnahléi algerlega óvænt
að því er virðist og án tmd-
angenginna samkomulags-
umleitana, að hún mundi
hætta öllum árásum, og
frönsku hersveitirnar aðeins
verja hendur sínar, ef á þær
væri ráðizt. Uppreistarmenn
töldu þetta „einhliða vopna-
hlé“ herbragð, og er þess
skemmst að minnast, að leið-
togi samninganefndar
Serkja, Belkacem Krim,
kvað ekkert vopnahlé unnt
að gera nema að undan-
gengnum samkomulagsum-
leitunum. Áður voru farnar
að berast fréttir um nýjar
árásir skæruliða á franskar
herstöðvar, franska her-
menn og herflutningalestir,
og hafa Frakkar þegar beðið
talsvert manntjón í þessum
árásum.
Belkacem Krim lýsti einn-
ig yfir, að Serkir hvikuðu
ekki frá markinu um alger-
lega sjálfstætt Alsír.
Áður hefir hér í blaðinu
vei’ið vikið að ýmsu, sem
erfiðleikum getur valdið við
samkomulagsumleitanirnar,
svo sem ágreiningnum um
yfirráðin yfir Sahara.
Frelsisbaráttan er talin
hafa byrjað aðfaranótt 1.
nóvember 1954, en sumir
höfundar telja hana raun-
verulega hafa byrjað 1926,
en þá varð Ferhat, sem nú
er 62 ára, formaður serk-
neska stúdentafélagsins við
Framh. á 9. síðu.
Tipluðu, svifu og stukku um sviðið, balletmeyjarnar.
4ahÁ c$ MéUatufi wAík
Frá lokaæfingu „Sígaunabarónsins“
í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi.
I kvöld verður frumsýning.
Ekki hefur verið mjög svefn-
samt hjá þeim í Þjóðleikhjsinu
síðustu vikurnar. Þar hafa
margir unnið fram á rauða nótt
og lagzt á eitt um að gera loka-
„stykkið“ sem skemmtilegast
og glæsilegast, óperettuna „Síg-
aunabaróninn“ eftir Johan
Strauss. Lokaæfingin var í gær
kvöldi og lofar góðu. Frumsýn-
ing fer fram í kvöld.
Til var fenginn einn af meiri-
háttar leikstjórum Svía, Soini
Wallenius, fyrsti leikstjóri
Stóra leikhússins í Gautaborg,
og síðan hann kom um sein-
ustu mánaðamót hefur ekki ver
ið til setunnar boðið. Frétta-
maður Vísis leit inn á æfing-
una í gærkvöldi, og þar var nú
heldur líf í tuskunum, enda er
hinn sænski leikstjóri karl, sem
lætur hendur standa fram úr
ermum. Öll hlutverk eru flutt
af íslenzkum söngvurum og
leikurum, utan annað aðalhlut-
verkið, en í því er einn elsku-
legur gestur, næturgali sunnan
úr álfu, Christine von Wid-
mann. óperusöngkona frá Vín.
Balettmeyjar tipla, svífa og
stökkva um sviðið með Bryn-
dísi Schram í fararbroddi, en
Veit Betche ballettmeistari hef
ur þjálfað þær. Niðri í gryfj-
unni leika hljóðfæraleikarar úr
Sinfóníuhljómsveitinni undir
stjórn Wodiskos, og mæðir
hreint ekki minnst á þeim.
Þegar hlé varð á æfingunni í
gærkvöldi, báðu þeir fyrst
allra orða um loft, „hleypið
lofti niður,“ sögðu þessir bless-
aðir karlar og teygðu úr sér,
skutu upp kollinum eins og
hvalir úr hafi til að blása. Stjór
arnir báðir voru fegnir að geta
losað enn betur um hálsmálið,
teygt á axlaböndunum, slokað
í sig einni flösku af appelsín,
pepsikóla, pilsner, kók eða
hvað það nú var.
Svo „settust allir upp í“ á
ný, og tekinn upp þráðurinn,
þar sem sleppt var. Allir forð-
ast auðvitað að líta út eins og
festir, upp á þráð, en þetta er
samt sem áður feykilega spenn-
andi, og það láir þeim enginn,
þótt votti fyrr glímuskjálfta.
Þetta hlýtur að taka á taugarn-
ar að vinna allar þessar endur-
tekningar eftir fyrirskipunum
vandláts stjórnanda. En það
gefur líka gull í mund skulum
við vona:
Svo er að orði komizt í yf-
irlitsgrein um frelsisbarátt-
una í Alsír í erlendu blaði
fyrir nokkrum dögum, að
meðan samningamenn Serkja
og Frakka í Alsír „hefðu orð-
ið“ gættu skæruliðar í Alsír
þess, að „ekki kæmist væta
í púðrið þeirra“, myndu m.
ö. o. vera viðbúnir hverja
stund. Það er engum vafa
bundið, að menn töldu yfir-
leitt sterkar líkur fyrir, að
uppreistarmenn myndu ekki
frekara en franski herinn
hafa ýfingar í frammi á
meðan reynt væri að semja.
Hinsvegar bjuggust allir
við, að öfgamenn í Alsír af
frönskum stofni og skoðana-
bræður þeirra í Frakklandi,
kynnu að grípa til örþrifa-
ráða. Sprengjutilræði af
þeirra völdum hafa líka ver-
ið tíð og í fréttum hefir ver-
ið greint frá þeim víðtæku
varúðarráðstöfunum, cem
Kalman Zsupan svínakóngur (Guðm. Jónsson) umkringdur
af kvennafans.
Krúsév vill
fella Hodza.
Saffi, Sigaunastúlka (Christine von Wid-
mann) og Sandor Barinkay, Sígaunabarón-
inn“ (Guðrn. Guðjónsson).
Sígaunabaróninn (Guðm. Guðjónsson), sið-
gæðismeistarinn (Þorsteinn Hannesson) og
Sígaunakonan (Sigurveig Hjaltested).
í Albaníu er haldið áfram
réttarhöldum yfir njósnurum
Rússa og hafa fleiri verið hand-
teknir.
Blaðið Scotman segir, að
myndir af Krúsév séu teknar
niður og myndir af Stalin
hengdar upp í staðinn, og sé
Krúsév orðinn svo gramur að
hann vilji Hodzha frá völdum
þera, — og gremja Krúsévs
kunni nú að bitna á kínversk-
um valdhöfum, en Albanir taka
forustu þeirra fram yfir for-
ustu Rússa.