Vísir - 25.05.1961, Blaðsíða 9
Fimmtudaginn 25. maí 1961
VISIK
9
Evian -
Framh. af 4. síðu.
háskólann í Algeirsborg, og
bar fram kröfuna um alger-
lega sjálfstætt Alsír (Erling
Fjöl í Politiken). Einkunn-
aroð fresisbaráttunnar valdi
hann þessi: Hjálpið oss til
að endurreisa mannlega
sjálfsvirðingu okkar — eða
leggið niður skólana, sem
þið hafið komið á fót. Bjöl
telur, að framan af hafi Fer-
hat Abbas og fylgjendur
hans talið, að mai’kinu yrði
náð með algeru jafnrétti
Mohammeðstrúarmanna og
Frakka innan hins fransk-
alsírska samfélags, en glatað
trúnni á það, því að allt, sem
frá París hafði komið og
miðað að friðsamlegri fram-
tíðaralausn hafi verið kæft
af stjórnarvöldunum í Alsír
og evrópsku landnemunum
þar.
Um þátt De Gaulle forseta,
eftir að hann komst til valda,
til að leysa Alsírdeiluna hefir
svo mikið verið ritað, að ekki
verður bætt við að þessu
sinni, eða tilraunir öfga-
manna til þess að torvelda
og koma í veg fyrir áform
hans. Á það má og minna,
sem nýlega var rætt hér í
blaðinu, að Bourgiba Túnis-
forseti hefir lagt sig í líma
með að fá serknesku útlaga-
stjórnina, sem hefir aðsetur
í Túnis, til samninga, enda
efast Bourgiba ekki um ein-
lægan vilja De Gaulle til að
koma á friðsamlegri og far-
sællegri framtíðarlausn. Það
mun ekki sízt fyrir hans á-
hrif, að þrátt fyrir allt kvað
sá hugur ríkjandi meðal
samningamanna beggja, að
reyna til þrautar í Evian að
koma málinu í höfn, hversu
sem til tekst.
Ferhat Abbas vildi lengi
vel fara þingræðis- og kosn-
ingaleiðir að markinu og
lagði 1946 fram tillögur, sem
ei’u mjög svipaðar þeim, sem
De Gaulle býður upp á. Nán-
asti samstarfsmaður hans
var Ahmed Francis, læknir
að menntun, en hann er nú
fjármálaráðh. útlagastjórn-
arninar. Francis er 10 árum
yngri en Ferhat Abbas. Þá
var Belcacem Krim, nú ut-
anríkisráðherra útlagastjórn-
arinnar, farinn að safna liði
í Kabilyu-fjöllum, og það lið
varð kjarni frelsishreyf-
ingarinnar. Og Belkacem
Krim og 8 aðrir leiðtogar
hófu svo fyrir 7 árum upp-
reistina, sem ekki er enn ^il
lykta leidd, en reynt er að
fá endi bundinn á í Evían.
Einna mikilhæfastur þess-
ara leiðtoga Ahmed Ben
Bella, sem frá 1956 hefir
verið fangi í Frakklandi og
nýlega var fluttur til eyjar
nokkurrar við Frakklands-
strendur, þar sem hann er í
einskonar „stofufangelsi“, þ.
e. hans er enn gætt, en hefir
talsvert frjálsræði. En þenn-
an velvildarvott láta hans
gömlu félagar sér ekki
Seinheppnir ráðherrar
Butler og Home lávarður sæta gagnrýni.
nægja. Þeir krefjast þess, að
hann fái fullt frelsi og verði
einn samningamanna í
Evian.
Meðal samningamanna
Serkja er og Mohammed
Yazid, nú upplýsingamála-
ráðherra útlagastjórnarinn-
ar, og Ahmed Boumendjel,
vinur Ferrhat Abbas, og er
hann nefndur stjórnmálaleg-
ur ráðunauur samninga-
nendarinnar. Hann á ekki
sæti í útlagastjórninni. Hann
er lögfræðingur og á franska
konu, sem enn býr í París.
Hann hefir gegnt mikilvægu
hlutverki sem tengiliður
skæruliða, sem berjast í Al-
sír, og hinna útlægu stjórn-
málaleiðtoga, og hefir annast
mikilvæga samninga, og er
talinn einn mikilvægasti
maður sjálfstæðishreyfing-
arinnar nú. Hann er 55 ára.
Bjöl telur í grein sinni, að
það sé Ben Bella, sem sé
hinn raunverulegi höfuðleið-
togi þjóðernissinna í Alsír.
Hann er 55 ára. Serkir líta
á hann sem þjóðhetju.
Frakkar náðu honum á sitt
vald og fleiri leiðtogum, er
flugvél, sem þeir voru í, var
knúin til að lenda. Hann lýs-
ir honum sem viljasterkum
og öruggum leiðtoga, með ó-
skeikulli dómgreind, sem
hafi tryggt honum áhrifavald
yfir öðrum leiðtogum, og
muni það án efa koma í ljós,
er hann aftur fái frelsi sitt.
Hann segir ennfremur, að
sagt sé að í þau 4J/2 ár, sem
hann hefir verið fangi í
Frakklandi, hafi beiskja
hans í garð Frakka ekki auk-
izt.
Ben Bella er 45 ára, Hann
var eitt sinn undirforingi í
franska hernum og var
sæmdur heiðursmerki fyrir
vasklega framgöngu í orrust-
unni við Monte Cassino.
Ótal torfærur eru á leið til
fulls samkomulags í Evian
og engu verður um spáð að
svo stöddu hvort yfir þær
allar verður komizt. Hjá
sumum höfundum kemur
fram sú skoðun, sem virðist
nokkuð almenn, að það gengi
kraftaverki næst, ef samn-
ingar tækjust, en hér mun
sennilega eiga við sem oftar,
að „meðan reynt er að semja
er von“.
Bikarkeppni Bridgesambands
er nýlokið. Keppt var um Stef-
ánsbikarinn, en hann er gefinn
af Stefáni Óla Stefánssyni, Ak-
ureyri, og var handhafi hans
sveit Einars Þorfinnssonar. —
Þátttakendur voru nú 19
sveitir, frá Reykjavík, Selfossi,
Akureyri og Keflavík. Sigur-
vegari varð sveit ' Jákobs
Skökk ræða, flutt af skökkum
manni á skökkum tíma, er dóm-
ur Daily Mail um ræðu, sem
Butler innanríkisráðherra og
Raforkuskortur
í Póllandi.
Rafmagnsskortur hefir gert
vart við sig hjá Pólverjum,
bætist ofan á vistaskort.
Hefir verið lítið um úrkomur
í vetur, svo að lítið vatn hefir
safnazt við uppistöður orku-
vera. Menn sjá einnig fram á
neyzluvatnsskort í helztu borg-
um, ef sumarið verður þurr-
viðrasamt.
Bjarnasonar, Reykjavík, en
með honum í sveitinni eru þess
ir menn: Hilmar Guðmunds-
son, Jón Arason, Jón Björns-
son, Rafn Sigurðsson og Vil-
hjálmur Sigurðsson. — í öðru
sæti varð sveit Brandar Bryn-
jólfssonar, Reykjavík, og í 3.
sæti sveit Mikaels Jónssonar,
Akureyri.
varaforsætisráðherra fiutti, í
einka-samkvæmi í Madrid.
Kvað hann skömm að því að
Spáni hefði verið haldið utan
við alþjóðlegt samstarf, svo mik-
ilvægt sem landið væri með til-
liti til varnar Vestur-Evrópu,
og er þetta skilið af flestum
sem meðmæli með aðild Spánar
að Norður-Atlantshafsbandalag-
inu.
Daily Herald segir, að engu
sé líkara en sumir menn telji
að bjóða skuli alla velkomna
í samtökin, ef menn aðeins séu
á móti kommúnisma, en borg-
arastyrjöldin á Spáni sé ekki
öllum gleymd.
Rætt var um málið í spurn-
ingatíma í neðri málstofunni og
kvað ráðherrann hafa túlkað
einkaskoðun, þar sem ræðan
hefði verið flutt í einkasam-
kvæmi. •
Heimsókn Home lávarðs til
Lissabon í þessari viku er einn-
ig gagnrýnd. Hún eigi sér stað
á eins óheppilegum tím og frek-
ast geti verið, þar sem á hana
kynni að vera litið sem stuðn-
ing við Portúgalsstjórn út af
Angola. Þykja ráðherrarnir
hafa verið seinheppnir og kem-
ur það fram líka í stjórnarblöð-
unum.
A. Th.
Bridgekeppni um Stefáns-
bikarinn lokið.
ALGER IMYJUNG
hérlendis í gerð og viðhaldi gólfa.
f
Er vísindalega samansett og prófuð efna-
blanda sem tekur langt fram öllu sem
áður hefur verið notað hér til gerðar
steinsteyptra gólfa.
Emeri-Crete gólf hafa undraverðan styrk"
leika og endingu. Þau springa ekki og
eru ónæm fyrir hitabreytingum raka,
olíum og flestum kemiskum efnum.
Yfirborðið er afar hart, en þó óbrotgjarnt,
og algjörlega laust við hálku.
Aferðin er falleg og alltaf eins.
EMERI-CRETE gólf eru sérlega hentug
fyrir verksmiðjur og iðnfyrirtæki.
KYNNIÐ YÐUR HIN ÓVIÐJAFNANLEGU
EMERI-CRETE GÖLF:
Allar upplýsingar:
SIGURBJÖRN ÁRNASSON
P.O. Box 769 — Reykjavík
Skólavörðustíg 6 B Símar 23986 og 18995.