Vísir - 25.05.1961, Page 6

Vísir - 25.05.1961, Page 6
6 VfSIR Fimmtudaginn 25. maí 1961 lF----■ ----------------------------------- VÍSIR i , x D A G B L A Ð Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F. Vísir kemur út 300 daga á ári, 12 blaðsíður daglega. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson og Gunnar G. Schram. Ritstjórnarskrifstofur eru að Laugavegi 27, en aðrar skrifstofur að Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofurnar eru opnar frá kl. 8,30—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: 11660 (fimm línur). Vísir kostar kr. 30,00 í áskrift á mánuði. Félagsprentsmiðjan h.f. — Edda h.f. Versta íhaldssemin. Undanfarið hefir Tíminn gert sér mjög tíðrætt um þá hættu, sem stafi af vaxandi íhaldssemi í heiminum og hefir komizt að þeirri skarplegu niðurstöðu að þeir séu helzt sekir um að efla kommúnismann, sem berjist gegn honum af mestu hörkunni! Er þessi ályktun Framsóknarblaðsins í fullu samræmi við rökhugsaða stefnu flokksins í lands- niálum. Það hefir væntanlega verið með þetta ráð í huga, að setja niður kommúnismann í landinu, sem formaður ungra Framsóknarmanna steig í stólinn við Miðbæjarbarnaskól- ann fyrir skömmu og flutti ræðu á gegnherílandi sam- kundunni, sem þar var haldin. Og það er líklega af sömu áíftæðunni, sem í Tímanum birtist daglega greinar um vamarmálin, sem enduróma dúett þeirra félaga Einars og Hannibals um varnarlaust land. Þeir munu ekki vera margir saklausu einfeldningarnir hér á landi, fyrir utan skriffinna Tímans, sem eru á þeirri skoðim að gegn kommúnismanum verði bezt barizt með því að hopa undan honum. Hér fyrir nokkrum árum voru þeir þó fleiri. I Tékkóslóvakiu trúðu hinir grandalausu borgaraflokkar ekld því að kommúnistar gætu verið hættu- legir. En þeir skiptu um skoðun morguninn eftir bylting- una, þegar þeir vöknuðu við vondan draum i fangelsinu eða á leið á aftökupallinn. Söm var sagan í hinum Austur- Evrópulöndunum. Nú eru þeir færri þar, nytsömu sak- leyingjamir. Trúir Tíminn því að Hitler hefði átt eins auð- velt uppdráttar á árunum fyrh’ 1933, ef borgaraflokkar Þýzkalands hefðu skyggnt betur hættuna, sem af hinum brúna fasisma stafaði og skorið upp herör? Hér á landi hafa, sem betur fer, átt sér stað straumaskil í þessum efnum á undanförnum ámm. Á fyrstu eftirstríðs- árunum var þjóðlífið gegnsýrt af Rússlandssamúð og kom- múnistadekri. Gáfaðir menntamenn töldu það sóma sinn að sýna frjálslyndi með því að bera flokkssldrteinið. Lista- menn trúðu því í einlægni að aðeins í Sovétríkjunum væri listin frjáls og listamaðurinn virtur. Það var á árunum áður en fregnimar bámst af sósílarealsimanum og grát- Ijóðaframleiðslu herleiddra skálda til dýrðar milljónamorð- ingjanum Stahn. Rauðir pennar vom Völuspá og Lilja þeirra ára og það var þá sem Kristinn E. Andrésson falsaði bókmenntasögu tuttugustu aldarinnar. Nú er öldin önnur. Þjóðinni er orðið Ijóst að kommún- isminn er svartasta íhaldsstefna þessarar aldar. Almenna Rókafélagið sér þjóðinni fyrir sæmilega óbrjáluðu lesmeti og í Frjálsri menningu mynda menntamenn og skáld lands- ins skjaldborg um andlegt frelsi. En allt hefir þetta farið fram hjá Tímanum. Kommún- isminn er enn 1 hans augum fagnaðarboðskapurinn um frelsi hins þreytta verkamanns. Og það er versta íhalds- semin; að kunna ekki að læra af reynslunni, en stara blind- um augum inn í framtíðina. Skuggi yfir haustdöguw. Nú hafa framhaldsskólamir lokað dyrum sínum í bili og æskan gengur glöð út í sólskinið. Martröð prófanna er að baki, sumum hefir gengið vel, aðrir horfa sorgbitnir á einkunnabókina og lofa sjálfum sér því að gera betur næsta vetur. Og þá hefst atvinnuleitin. Það er ekki lítil viðbót við vinnukraft landsmanna þar sem skólafólkið er, og það sýnir manndóm þess og dug að flestir sækjast eftir vinnu, þótt hin erfiðasta sé, allt til hausts. Þannig kynnist æskan framleiðslustörfunum og daglegu atvinnulífi landsmanna af eigin reynd. Og ekki fáum auðveldar það stöðuvalið siðar meir. Þessa dagana ber aðeins einn skugga á sumarmánuðina i augum skólaæskunnar; ef til vill verður henni bannað að vinna. Og þá er hætt við að krappt verði skotsilfrið hjá mörgum námsmanninum, þegar kemur fram á haustnætur. Skósn:i5urinn9 — sewn smíðaði 40 htíta í FJÖRUNNI í botni Foss- vogs liggja margir trillubát- ar, af ýmsum stærðum og gerðum. Sumir hafa jafn- vel verið dregnir upp á grænt túnið norðan við lítið íbúðarhús, sem stendur við voginn. Úr skúr sem er á- fastur íbúðarhúsinu heyrast reglubundin hamarshögg eins og verið sé að hnoða nagla þar inni. Stórar vængjadyr á vesturgafli skúrsins standa upp á gátt. Kvöldsólin nær til að skína inn í eitt hornið við dyrnar og norðanandvari ber með sér lykt af þangi inn í skúr- inn og blandast þar við ilm af tjöru og nýsöguðum viði. Maðurinn heldur áfram að hnoða naglann. Stór prammi stendur á stokkun- um næstum fullbyrtur, og það mætti ætla að smiður- inn ætlaði að Ijúka við prammann í kvöld, svo virð ist hann hraða verki sínu. Hann er örlítið álútur yfir prammann. í hægri hendi heldur hann á hnoðhamri og lemur á naglann innan á borðinu og í vinstri hendi heldur hann á þungum slag hamri sem hoppar' af naglan um á byrðingnum utanverð- um við hvert högg. — Hver á að fá svona stór- an pramma, Guðjón? Ætl- viðtal dagsins Guðjón Jóhannsson. arðu að ljúka við hann í kvöld. Guðjón slær síðasta höggið _ á naglann, réttir snögglega úr sér, tekur glað lega kveðju komumanns og þarna stendur hann, rúm 6 fet á hæð, þráðbeinn eins og konunglegur lífvörður, þrátt fyrir 70 árin. Hárið er orðið grátt, en það er allt á sínum stað og hin svörtu augu ljóma enn af lífsfjöri. — Þennan stóra pramma er ég að smíða fyrir geysistór- ann mann, ég held bara stærsta mann sem ég þekki. Þessi prammi getur áreiðan lega borið tonn. Byrðingur- inn fimm áttundu og högg- inn eikarbönd. Hann ætti að þola eitthvað. — Hver er þessi gasalega rtóri maður, sem þarf svona stóran og sterkan pramma? — Það er hann Árni Sigurjónsson. — Nú, Árni gæti að minnsta kosti haft fjóra jafn stóra með sér og þó haft borð fyrir. — Það er dýrt að smíða báta núna, er það ekki? — Það er alveg agalegt. Saumurinn kostar offjár og viðurinn, ját það er bara ekki hægt að tala um það og svo er þetta tómt rusl. Það er ekki hægt að fá almenni- lega spýtu. Það hlýtur að vera eitthvert svindl í þessu með verðið á timbrinu. — Þú ert ekki lærður bátsmiður er það, en þó bú- inn að smíða marga báta? — Já, ég er búinn að smíða 40 báta. Sá fyrsti er gamall bátur, sem ég fékk brotinn og bramlaðan. Ég setti í hann botninn og bæði stefnin og svo reri ég á hon- um bæði langt og lengi. — Þú hefur verið á Súg- andafirði þá? — Já, ég kom ekki hingað suður fyrr en 1948 og setti upp skóviðgerðarvérkstæði. Skósmíði er reyndar mitt fag og ég stunda það, þegar eitthvað er að gera, en ég vil miklu heldur smíða báta. Guðjón var nú búinn að leggja frá sér hamrana og við virtum enn einu sinni fyrir okkur prammann hans Árna og Guðjón hallaði aftur skúmum, enda var klukkan að verða tíu og vinnudagur sjötugs manns orðinn nógu langur. Framh. á 10. síðu BERGMÁL Arsrit Garðyrkju- félags íslands. Það er nýkomið út, aJar fjöl- breytt að efni. 1 ritinu er marg- ar greinar, yfirleitt stuttar, en allar hafa þær mikinn fróðleik að finna, sem verða mun til gagns og ánægju öllum þeim, sem áhuga hafa fyrir garðrækt, og einkum þeim, sem hafa skil- yrði til að stunda hana, en þeim sem það gera í landinu hefur far- ið mjög fjölgandi á siðari árum, og má það mjög þakka Garð- yrkjufélagi íslands og mörgum, ötulum forustumönnum á sviði garðræktar. Nefnd skulu heiti nokkurra greina til þess að vekja betur athygli á hve mikinn og þarfan fróðleika ritið hefur að flytja: Vorlaukar, Uppbinding jurta, Fagur er reynir, Danir tak- marka mjög notkun eitraðra plöntulyfja, Jurtaval í steinhæð- ir, Jurtapottar og stofublóm, Villigróður og garðagróður, Kál- æxlaveiki og hnúðormar. Gul- rótamaðkur fundinn í Reykja- vík, Skordýraeyðingarlyf borin á fræ, Svart plast notað í görðum, Blaðlýs skemma sitkagreni, Sótt hreinsun jarðvegs, Brúnrotnun í káli, rófum o. fl., Nokkrar ábend ingar um ræktun limgerða o. m. fl. Gróðiuhúsabygglngar. í grein um gróðurhúsabygg- ingar 1960 segir, að mjög hafi dregið úr þeim, „enda er bygg- ingarkostnaður orðinn svo mik- ill, að menn þurfa að vera meira en lítið fjársterkir ti! þess að geta komið sér upp gróðurhúsi." Þó var nokkuð um framkvæmd- ir á þessu sviði, m. a. lokið við smíði gróðurhúsa sem smíði var hafin á 1959. 1 greininni er m. a. vikið að tilraunum með notkun gerviefna í stað glers í gróðurhúsum erlendis. Fyrsta plastgróðurhús landsins. Þar segir m. a.: Á Garðyrkju- skólanum var rifinn braggi og grind hans komið fyrir við gróðr arstöðina, þannig að hún nær yfir grunn tveggja gamalla gróð urhúsa. Heyrst hefur að klæða eigi grind þessa með einhverju plastefni í stað glers og yrði þar komið fyrsta plastgróðurhús landsins .... Fróðlegt verður að fylgjast með árangri þessarar tilraunar," — skýrt er tekið fram að notkun plastefna í gróður- hús sé enn á tilraunastigi. Grein þessi er eftir Ola Val Hanson, sem á nokkrar aðrar greinar í ritinu, en langmest hefur lagt til í það Ingólfur Davíðsson grasa- fræðingur, sem er ritstjóri Árs- ritsins. — I ritnefnd eru Hafliði Jónsson og Halldór Ó. Jónsson.,

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.