Vísir - 03.06.1961, Blaðsíða 1
12
síður
alla daga
12
síður
alla daga
51. árg,
Laugardaginn 3. júní 1961
122. tbl.
Borðahald á Bessastöðum í fyrradag. — Talið frá vinstri: Major Haugh fylgdarliði konungs,
Ilaldur Guðmundsson ambassador, Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra, Magnea Þorkelsdóttir
biskupsfrú, Bjarne Börde ambassador, frú Bósa Ingólfsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson forseti, Ma-
dame Börde, kona norska ambassadorsins. — Þeir sem snúa baki í myndavélina eru talið
frá vinstri: Pétur Sigurðsson forstjóri, skipherrann á Bergen og Gröndvold hirðmarskálkur.
Vinnuveitendasambandið og Dags-
brún felldu sáttatillöguna.
Hún var samþykkt í nokkrum fé
lögum. - Þátttaka var víða lítil.
Kennedy og de Gaulle sam-
mála um Berlin og NATO.
Bandaríkin snúast með bandamönnum sínum
gegn hverri árás, sem gerð kann að vera.
Kveðst fara bjartsýnn til Vínar.
Sáttasemjari byrjaði að taka
á móti atkvæðum í gærkvöldi
upp úr kl. 22. Talning at-
kvæða fór fram í Alþingishús-
inu.
Úrslit í atkvæðagreiðslunum
fara hér á eftir í sömu röð og
þau urðu kunn:
Verkamannafélagið Hlíf,
Hafnarfirði;
Já sögðu 66,
Nei sögðu 108.
1 seðill auður.
Á kjörskrá voru 405. At-
kvæði greiddu 175 eða 43%.
TiIIagan var felld.
Múrarafélag Reykjavíkur:
Já 'sögðu 87,
Nei sögðu 64.
1 seðill auður.
Á kjörskrá voru 219. — 152
greiddu atkvæði eða 69%.
Tillagan var samþykkt.
Múrarameistarafélag Rvíkur:
Já sögðu 5.
Nei sögðu 23.
TiIIagan ,var felld.
Málarafélag Rvíkur:
Já sögðu 14.
Nei sögðu 55.
Á kjörskrá voru 95, en 69
greiddu atkvæði eða um 74%.
Tillagan var felld.
Málarameistarafél. Rvíkur:
Já sögðu 6.
Nei sögðu 41.
Tillagan var felld.
Verkakvennafél. Framsókn
í Reykjavík:
Já sögðu 219.
Nei sögðu 183.
Á kjörskrá voru 1496. — Um
27 % greiddu atkvæði.
Tillagan var samþykkt.
Vinnuveitendafélag Hafnarfj.:
Já sögðu 2772.
Nei sögðu 2574.
Tillagan var samþykkt.
Verkakvennafél. Framtíðin,
Hafnarfirði:
Já sögðu 84.
Nei sögðu 66.
Á ‘ kjörskrá voru 417 og
greiddu nærri 36% atkvæði.
Tillagan var samþykkt.
Verkamannafél. Dagsbrún,
Reykjavík:
Já sögðu 390.
Nei sögðu 1303.
Á kjörskrá voru 2700, en
1712 greiddu atkvæði eða 63%.
Tillagan var felld.
Vinnuveitendasamband
íslands:
Já sögðu 333.
Nei sögðu 873.
Tillagan var felld.
Vinnumálasamband
Samvinnufélaganna
samþykktu hinsvegar tillög-
una.
Fleiri úrslit en að ofan
greinir voru eigi kunn, er blað-
ið fór í pressuna.
Kaupa 9 stóra
togara.
Færeyingar auka togaraflota
sinn stórlega á þessu ári. Ný-
lega voru undirritaðir samn-
ingar um smíði á 9 togurum
fyrir færeysk útgerðarfélög.
Skipin verða smíðuð í Frakk-
landi og á smíði þeirra allra að
vera lokið á þessu ári.
í gær lauk í París þriggja
daga heimsókn Kennedys
Bandaríkjaforseta og viðræð-
um hans og De Gaulle Frakk-
landsforseta. Var gefin út
sameiginleg tilkynning um
viðræðurnar.
Samkvæmt henni náðli þeir
samkomulagi í meginatriðum
um helztu mál, sem um var
rætt, m.a. um afstöðuna til
Berlínar. Mikla athygli vekur,
að þeir telja Norður-Atlants-
hafsbandalagið mikilvægast
allra samtaka frjálsra þjóða og
vilja efla það sem mest.
Þeir ræddu málefni Suður-
Ameríku, Suðaustur-Asíu og
Afríku.
Sérstök áherzla er lögð á, að
þeir telja mikilvægt að hafa
fengið tækifæri til að kynnast
og treysta forn vináttubönd
Bandaríkjanna og Frakklands.
Kennedy ræddi við blaða-
menn að viðræðunum lokn-
um og m.a. um fundinn með
Nikita Krúsév forsætisráð-
herra Sovétríkjanna sem
verður í dag og á morgun.
Kvaðst Kennedy fara bjart-
sýnn á fundinn og hefði
bjartsýni hans aukist eftir
viðræðurnar við De Gaulle.
Hann kvað Bandaríkin mundu
snúast gegn hverri árás sem
gerð yrði og hversu skæð sem
hún yrc5i ásamt bandamönnum
sínum.
Hann gerði ráð fyrir, að Ber-
línarmálið yrði eitt helzta við-
ræðuefni hans og Krúsévs, og
hefðu þeir verið sammála um
það, hann og De Gaulle, að
ekki kæmi til mála að sovét-
stjórnin ræki fleyg í raðir
bandamanna.
Krúsév kom til Vínarborgar
í gær og var öryggisviðbúnað-
ur mikill. 8000 Iögreglumenn
hafa verið kvaddir til skyldu-
starfa meðan fundurinn stend-
Ulf.
Krúsév kvaðst vona að sá
andi friðsemdar sem ríkti í
Austurríki mætti einkenna
fund hans og Kennedys.
Eigi var fjölmenni mikið við
komuna og voru það aðallega
kommúnistar, sem safnast
höfðu saman í járnbrautarstöð-
inni til þess að fagna honum.
Páfi snýr heim.
Jarðneskar leifar Gregoríus-
ar 7. páfa hafa verið fluttar til
Rómaborgar.
Gregoríus, er var einn
atkvæðamesti páfi, sem
uppi hefir verið, andaðist
1085 í Salerno, og þar hefir lík
ið hvílt síðan. Nú verður það
greftrað í nýrri kirkju, sem
fullgerð verður í Róm á þessu
ári.
Noregskonungur, forseti fslands og félagsmálaráðherra á Þing-
völlum í gærmorgun. Dr. Kristján Eldjárn er að segja sögu
staðarins.