Vísir - 03.06.1961, Síða 7
Laugardaginn 3. júní 1961
STÍSIR
:$£•■■ tf/'/A x-í-Zj, ■•
::*%,->• ' • '• '''
:;:,••; • • • ••••:.•'•••; •’
SwíÍKlfflilSssiSs
.•••••••■••••.■
brást.
Trillubátum fjölgar
mjög á Austfjörðum.
Mikill afli á handfæri inni í fjörðum.
Frá fréttaritara Vísis.
Eskifirði í morgun.
Eskifirðingar sanka nú að sér
trillum og öðrum bátum sem
henta til handfæraveiða. Astæð
an er sú að hér hefur verið
mokafli á handfæri í allt vor og
enn helzt aflinn.
Undanfarið hafa menn fisk-
að mjög vel alveg inn í botni
Reyðarfjarðar. Það er ekki óal-
gengt að menn hafi upp í 3000
króna hlut á dag.
Elztu menn muna ekki aðra
eins fiskigengd á handfæri hér
í firðinum. Sumir veiða á flot-
hjá þessum bátum, sm byrjaðir
eru.
Vegir greiðfærir.
Vegir hér eystra eru vel
greiðfærir. Til dæmis er veg-
urinn yfir Oddsskarð með á-
gætum. Vegurinn kom undan
snjónum harður og sléttur,
vegna þess að hann lo'oðist af
snjó áður en hann náði til að
frjósa og er því enginn holklaki
í honum. Fjarðarheiði mun hins
vegar hafa verið lokuð nokkra
daga meðan bleytan er að fara
úr veginum.
Konnngsheimsdknin
línu. Er línan beitt jafnótt og
hún er dregin en draga svo
fisk áfærin meðan línan liggur.
Atvinna er hér mjög mikii.
Unnið er fram á kvöld á hverj-
um degi í frystihúsinu, en auk
þess er um margs konar at-
vinnu að ræða. Síldarbátar eru
að verða tilbúnir, en óvíst er
hvenær þeir fara út.
Hingað kom norskur bátur
um daginn. Hann er einn af
8 norskum bátum sem byrjað-
ir eru með línu úti fyrir Aust-
fjörðum. Sagði skipstjórinn að
milli 20 og 30 bátar myndu
verða á línuveiðum við ísland
í sumar. Eru þeir langt fyrir
utan landhelgi og sækjast helzt
eftir stórþorski sem þeir salta
um borð. Hefur afli verið góður
Norsk konimgsheimsókn á
Þingvöllum er sögulegur við-
burður. Ólafur Noregskonung-
ur fór til Þingvalla í gærmorg-
un og skoðaði staðinn.
Dr. Kristján Eldjárn þjóð-
minjavörður sagði sögu staðar-
ins að Lögbergi. Síðan gekk
konungur suðvestur eftir
grundunum til ráðherrabústað-
arins skammt frá Valhöll. Eftir
að hafa notið hressingar var
ekið að útsýnisskífunni við
mynnd Almannagjár, en þaðan
haldið til Reykjavíkur.
Silimgsveiði er með allra
minnsta móti Þingvallavatni
í vor.
Bezti veiðitíminn í vatninu
hefur jafnan verið frá miðjum
maí og frameftir júnímánuði.
Hafa Þingvallasveitarbændur
oftast veitt vel á þessum tíma
og selt þá meira eða minna af
silungi til Reykjavíkur.
í vor hefur brugðið svo við
að mjög illa hefur veiðzt, þann
ig að með fádæmum má teljast
og rétt svo að bændur fá í soð-
ið fyrir heimili sín.
Mjög hátt er í Þingvalla-
vatni sem stendur vegna v.irkj
ananna og er vatnið þessvegna
með kaldara móti nú miðað við
árstíma. Gizka sumir á að afla
tregðan standi í sambandi við
kuldann í vatninu.
Um hádegið snæddi konung-
ur í boði ríkisstjórnarinnar í
Sjálfstæðishúsinu. Síðar um
daginn var móttaka í norska
sendiráðinu fyrir norska og
norskættaða menn á íslandi.
Um kvöldið hélt konungur
veizlu í konungsskipinu. Gest-
ir fóru með skipsbát frá kon-
ungsskipinu Norge. Lagt var
frá Loftsbryggju. Er báturinn
sigldi með forsetahjónin út
höfnina, dundu við húrrahróp
frá sjóliðum á „Bergen“ og
lúðrar voru þeyttir. Veizlunni
lauk um kl. 23.00.
Haraldur Kröyer forsetaritari og frú ganga inn í Þjóð-
leikhúsið fyrir hátíðarsýninguna s.l. fimtudag. Frúin er
dóttir norska ambassadorsins.
Silungsveiði
Jón Eyjólfsson er alveg uppgefinn eftir að hafa undirbúið
hátíðarsýninguna í Þjóðleikhúsinu. — En hún stendur enn
þá yfir og Jón getur ekki farið heim í rúmið. Hann tekur
það fangaráð að setjast þægilega í einn stigann.
Island tekur þátt í 2 al-
þjóðafundum í næstu viku.
Fjallað um hafrannsóknir, verndun fiski-
stofna og fiskiskýrslur.
í næstu viku verður haldinn
í Washington fundur Alþjóða
fiskveiðanefndarinnar fyrir
Norðvestur-Atlantshaf (vestan
Grænlands).
Þetta er ráðstefna vísinda-
manna, sem koma saman ár-
lega til þess að ræða niðurstöð-
ur hafrannsókna og verndun
fiskstofna á fyrrnefndu haf-
svæði. Fundurinn stendur dag-
ana 5.—10. júní. Sitja hana
fulltrúar frá eftirtöldum lönd-
um: Kanada, Danmörku, Frakk
landi, Vestur-Þýzkalandi, ís-
landi, ftalíu, Noregi, Portúgal,
Spáni, Sovétríkjunum, Bret-
landi og Bandaríkjunum.
Fulltrúi íslands á ráðstefn-
unni verður Jón Jónsson for-
stöðumaður Fiskideildar At-
vinnudeildar Háskólans.
Áheyrnarfulltrúar verða frá
FAO (Matvæla- og landbúnað-
arstofnun S. þj.), Alþjóða haf-
könnunarráðsins (The Inter-
national Council for Explora-
tion of the Sea) og ríkisstjórnar
Póllands.
Um leið verður haldinn fund
ur um fiskiskýrslur og situr
þann fund af fslands hálfu Már
Elísson hagfræðingur, en hann
á sæti í Alþjóðasérfræðinga-
nefnd, sem fjallar um fiski-
skýrslur.
Ormsbye-Gore til
Washington.
í gær var tilkynnt í London,
að David Ormsbye-Gore hefði
verið skipaður ambassador
Bretlands í Washington.
Hann er nú vara-utanríkis-
ráðherra og formaður brezku
sendinefndarinnar á Genfar-
ráðstefnunni um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn og
eftirlit.
Ormsbye-Gore tekur við
embætti sínu í október næst-
komandi.
•jt Bandarísku fyrirtæki hefir
verið stefnt fyrir að flytja
inn frysta rækju frá Kína
og láta sem hún væri frá
Ítalíu.
Aðeins til þess að drekka það. Bakkar með fleytifullum
glösum og í glösunum er kampavín. Þó ekki öllum. í ein-
staka er appelsín og öðrum er sherry. Kampavínið Ijómaði
í glösunum og augu sumra ljómuðu á móti þegar 'þeir komu
auga á veigarnar.