Vísir - 10.06.1961, Blaðsíða 4

Vísir - 10.06.1961, Blaðsíða 4
4 V f SIR Laugardaginn 10. júníýL961 ..... ■■■■........— ' ■■■■■ ' "" —— Þa3 er lítið til af draug- um á íslandi nú til dags — því miður. Og þó er ekki ör- grannt. Þeir gera vart við sig endyum og eins, jafnvel á ólíklegustu stöðum. Eng- inn veit hvers vegna eða í hvaða tilgangi. En þannig á það líka að vera. En nýlega frétti eg af draug, mér til mikillar gieði. Splunkunýjum draug, sem enginn hafði haft hugmynd um áður. Hann hefur aðsetur uppi á fjalli hér sunnan- lands — Reynisfjalli í Mýr- dal. Eg brá mér upp á Reynis- fjall — í bifreið. Annars eru það ekki nema hetjur sem þora þangað upp í bíl — og nú er eg orðin ein af þeim. Þetta hlýtur að vera bratt- asti og hættulegasti vegar- spotti á íslandi. En hann er vel lagður. Það var Brand- ur vegaverkstjóri í Vík sem lagði veginn. Þess vegna fannst mér þjóðráð að fá Brand sjálfan til að aka mér upp á fjallið, hann færi ekki að aka út af sínum eigin vegi. Og það var komið kvöld og rökkur og þoka þegar Brandur verkstjóri lagði af stað upp brekkurnar. Það er einmitt í svoleiðis veðráttu sem draugar fara á stjá. — Heldurðu að hann geri okkur nokkuð? spurði eg Brand í neðstu brekkunni. — Ekki er hann vanur því. Hann glettist aldrei neitt við mig, en spurðu þá þama uppi, þeir kannast betur við hann. Að vörmu spori komum Á syðra tanga Reynifjalls er Ioranstöðin, sem er eins- konar viti fyrir flugvélar á flugi þeirra yfir Atlantsliaf. Þar uppi eru tveir menn á verði nótt og dag — og auk þess draugur, sauðmeinlaust grey. undarlega fagurt sturlaberg, sem sumt liggur skáhalt og annað lóðrétt. Þar eru líka hellisskvompur, sem brim- rótið hefur etið inn í bergið. — Hvað eigið þið við með ' því að legið hafi við slysi? — Það var einu sinni að vetri, að vaktmenn, sem voru á leiðinni milli þorps- ins og stöðvarinnar, voru nærri hrapaðir fram af bjarginu. En þeir sluppu. í annað skipti bilaði loft- net hér uppi í ofsaveðri. Annar vaktmannanna fór út, þrátt fyrir veðrið, til að gera við netið. Þegar þeim, sem inni var tók að lengja eftir manninum, fór hann út og sá þá að hann hélt sér að vísu föstum, en dinglaði fram og aftur í rokinu eins og þvottur á snúru og gat enga björg sér veitt. Stöðv- armenninrir geta alltaf átt von á slíku hér uppi. — En svo er það draugur- inn! Það var nú í raun og veru hann, sem eg ætlaði að spyrja um. — Já, draugurinn. Hann gengur hér um Ijósum log- um, þannig að við erum oftast nær þrír á vakt. — Er þetta magnaður draugur? — Nei, sauðmeinlaust grey. Hann er í uniformi, brezkur að okkur sýnist. Hann stendur þarna venju- lega frammi við vélarnar og er að rýna á þær. Hann snýr jafnan að okkur baki, svo við sjáum aldrei framan í hann. En okkur virðist hann vera nokkuð roskinn eftir útliti að dæma. Búningur- inn bendir til að hann hafi verið vélstjóri í sínu jarð- neska lífi. — Yrðið þið ekki á hann? — Það er þýðingarlaust með öllu. Hann steinþegir. Og ef við ætlum að ganga til hans leysist hann upp í einni svipan og hverfur. Þetta er ekki ærlegur draug- ur, þetta helvíti. við til þeirra þama uppi, það eru vaktmennirnir i loranstöðinni á Reynisfjalli, Guðmundur Jóhannesson og Olafur Björnsson, báðir ætt- aðir af Austurlandi, en hafa verið starfsmenn stöðv- arinnar frá því 1947 að ís- lendingar tóku við henni. Bretar komu henni upp á stríðsárunum og hver veit nema þeir hafi unnið stríð- ið fyrir bragðið! Núna er það alþjóða flug- málastofnunin, sem starf- rækir stöðina og vinnur hún í sambandi við tvær aðrar samskonar stöður við Norð- ur-Atlantshafið. Er önnur í Færeyjum og hin í Noregi. Húsakynnin eru ekki beint ásjáleg að utan, lágkúruleg- ir braggar frá stríðsárunum, ■ en inni tr hlýlegt og við- Draugur r uniformi. Sauðmeinlaust grey - sennilega enskur. kunnanlegt. Þar er mikið af vélum, en þar sem eg er lítið heima í vélum og eiginleik-' um þeirra — þekki naumast hakkavél frá traktor — þá tek eg þann kostinn að láta vélarnar í friði. En það er fleira þarna inni en vélar og tæki — það eru tveir menn — annar þeirra lærður loft- skeytamaður. — Það er rjúkandi kaffi á borðum og — einn draugur. — Er gaman hér uppi? — Ósköp rólegt alla jafna, en lítið spennandi. — Langar vaktir? — Sólarhringur í einu, sem við vökum óslitið. Á eftir fáum við tveggja sól- arhringa-frí. — Sofið þið ekki stundum á verðinum? — Ertu vitlaus! Þeir myndu líka verða vitlausir þarna úti í Færeyjum ef við gerðum það. Nei, hér er vakað og yakað vel. — Hvað gerið þið ykkur til dægrastyttingar? — Við tökum blöðin með okkur og lesum þau. Við teflum líka þegar svo ber undir. Það fylgir tafl stöð- inni. Stundum koma gestir í heimsókn. — Líka kvenfólk? fær maður sig samt full- saddan á því að komazt hing- að upp, einkum í roki. Þau geta orðið óskapleg þessi rok uppi á Reynisfjalli. Blátt áfram óstætt. — Fjúkið þið þá ekki nið- ur af því? — Sem betur fer hefur það ekki komið enn fyrir. En það er strengdur vír eftir endilöngu fjallinu til að halda sér í í fárviðri og líka til að villast ekki í byljum. En það hefir komið fyrir að við höfum orðið að skríða alla leið frá fjallbrún og hingað að stöðinni. Ætli það sé ekki um 2 kílómetrar. — En húsin, standast þau þessi veður? — Þau eru lágreist og standa vel af sér rok, jafn- vel þótt fárviðri sé. — Aldrei hent slys? — Ekki hjá okkur íslend- ingum, en stundum legið við. Hins vegar heyrðist orð- rómur um að brezSdr hefðu fokið niður af fjallinu eða hrapað. Þetta er e. t. v. þjóð- saga, maður veit það ekki. Það fóru fáar sögur af því sem gerðist meðal hermanna á stríðsárunum. — Já, en ekki nema leið- inlegt kvenfólk, þetta sem er í fylgd með eiginmönnum sínum. Annað kvenfólk er svo lofthrætt að það þorir ekki upp. — Er ekki erfitt að kom- ast upp á fjallið í vetrum þegar snjór og ís sezt á veginn. — Það er yfirleitt frekar snjólétt hérna, en stundum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.